Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Blaðsíða 21
Umræða 21Vikublað 8.–10. júlí 2014
Grannur, hugrakkur og
kynþokkafullur
Af hverju má Elín Hirst? Var staddur í Hagkaup
í Skeifunni
– Leoncie sem leitar að manni til að leika í tónlistarmyndbandi. – Facebook. – Jón Gnarr um mannanafnanefnd og óréttlæti. – Facebook. – Stefán Már Kristinsson aðstoðarvarðstjóri sem slökkti eld á stuttbuxum. – Vísir.is
Síðasta hægristjórnin?
F
lestar skoðanakannanir frá
síðustu kosningum mæla
Framsóknarflokkinn á kunn-
uglegum slóðum, með rúm-
lega tíu prósenta fylgi. Hinn
mikli sigur hans 2013 er líklegast
kominn til af sögulega einstökum
viðburði, það að Icesave-dómurinn
féll í tæka tíð fyrir kosningar og ólík-
legt að eitthvað álíka muni endur-
taka sig. En þetta eru fréttir fyrir
fleiri en framsóknarmenn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ver-
ið með um 25 prósenta fylgi allt
frá hruni, sem er talsvert minna en
hann hafði á velmektarárum sínum
og ekkert bendir til þess að hann
bæti við sig í bráð. Hið klassíska
stjórnarfar undanfarinna áratuga,
með Sjálfstæðisflokkinn í hátt í 40
prósentum og framsóknarmenn
bætandi því við sem vantar upp á í
meirihluta, virðist því vera fyrir bí.
Ef til vill er núverandi ríkisstjórn sú
síðasta sem skipuð er þessum tveim
flokkum einvörðungu.
En vandi framsóknarmanna er
meiri en þessi. Sem miðjuflokk-
ur gat hann leitað hvert sem var
og lengi vel voru bæði hægri- og
vinstristjórnir svo til óhugsandi án
aðkomu Framsóknar. Í seinni tíð
hefur hann hins vegar komið sér
kirfilega fyrir hægra megin við Sjálf-
stæðisflokk, sem gerir það að verk-
um að hann getur varla myndað
ríkisstjórnir með öðrum.
Vinstristjórn með þátttöku hans
er óhugsandi. Sóley Tómasdóttir
gaf það út rétt eftir borgarstjórnar-
kosningar að hún myndi ekki setj-
ast í stjórn með framsóknarmönn-
um, og eru það tíðindi í landi þar
sem enginn vill útiloka neitt fyrir-
fram. Sömuleiðis sagði Guðmund-
ur Steingrímsson (sem nú er loks-
ins farinn að líkjast pabba sínum,
sem leiðtogi öflugs miðjuflokks),
að Björt framtíð ætti erfitt með að
setjast í stjórn með framsóknar-
mönnum en útilokaði ekki samstarf
við sjálfstæðismenn. Þriggja flokka
hægri-miðstjórn er því harla ólíkleg
ef fram fer sem horfir.
Ef til vill, eins og svo oft áður,
eru því borgarmálin vísbending um
það sem koma skal í landsmálun-
um. Aldrei þessu vant er sú árátta
vinstrimanna að kljúfa sig niður
í sem flesta flokka þeim til gagns.
Líklegt er að fleiri kjósi systurflokk-
ana Samfylkingu og Bjarta framtíð
hvorn í sínu lagi en myndu kjósa
þá sem sameinaðan flokk, sem gef-
ur þeim samanlagt meira vægi. Ef
við bætast náttúrulegir samstarfs-
flokkar eins og VG og Píratar er
meirihlutinn nánast gulltryggður,
en þessir fjórir flokkar hafa mun
meira fylgi samanlagt en hinir tveir
hefðbundnu vinstriflokkar landsins
hafa oftast haft.
Ef til vill munu hægrimenn því
fara sömu leið og vinstrimenn hafa
gert, að stofna nýjan flokk lengra
út á miðju sem vissulega myndi
taka fylgi af Sjálfstæðisflokknum
en einnig frá BF og Samfylkingu.
Þannig gætu hægriflokkarnir sam-
anlagt náð meirihluta, tveir gamlir
og einn nýr.
Gallinn er hins vegar sá að sá
hægri-miðjuflokkur sem er nú á
teikniborðinu myndi ekki síst vera
Evrópuflokkur. Því væri allt eins
líklegt að hann myndi vilja mynda
ríkisstjórn með miðju-vinstriflokk-
unum um Evrópusambandsaðild.
Hægri flokkarnir fara með völdin á
Íslandi í dag eins og þeir hafa oft-
ast gert. En það er erfitt að spá þeim
bjartri framtíð. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kjallari
„Ef til vill er núver-
andi ríkisstjórn sú
síðasta sem skipuð er
þessum tveim flokkum
einvörðungu
Myndin Hótel í Hjartagarði Framkvæmdir við byggingu hótels á Hljómalindarreit, sem oft var nefndur Hjartagarður, standa nú sem hæst. Um er að ræða 142 herbergja hótelbyggingu sem taka á í notkun næsta sumar. DV SiGtryGGur Ari
Mest lesið
á DV.is
1 Nýrri myndbönd: Eldur-inn stjórnlaus! Skeifan 11
brann nánast til grunna í eldsvoða á
sunnudagskvöld
62235 hafa lesið
2 Húsið sem brann til grunna DV sýndi nærmyndir af
átökum slökkviliðsins við eldinn
31244 hafa lesið
3 Myndband sagt sanna sakleysi Oscars Ástralskur
fréttaskýringaþáttur fjallaði um mál
Oscars Pistorius
26874 hafa lesið
4 Leitar að grönnum fola Leoncie undirbýr nýtt tónlistar-
myndband
24501 hafa lesið
5 Aðstandandi Gunnars-systra talar um heila-
þvott: „Þetta er ferlegt“ Dætur
Gunnars hafa misst tökin á fjölskyldu-
fyrirtækinu.
20132 hafa lesið
Könnun
Vilt þú fá Costco
til landsins?
81,9%
n Já
n Nei
n Hlutlaus
n Veit ekki 625 AtKVÆÐi
11,4%
3,2% 3,5%