Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Blaðsíða 24
Vikublað 8.–10. júlí 201424 Neytendur
Besta malaða kaffið
n Blind bragðsmökkun á kaffi n Afríkusól skarar fram úr n „Loksins kominn góður kaffibolli“ n Verð og gæði fara ekki alltaf saman
A
fríkusól frá Kaffitári er besta
malaða kaffið samkvæmt
dómnefnd í bragðprófi DV.
Í öðru sæti er hið ramm-
íslenska Bragakaffi. Kaaber
Ríó kaffið, sem er frá sama framleið-
anda og Bragakaffi, fékk hins vegar
lægstu einkunnina. Almennt þyk-
ir kaffið frekar líflaust og eru með-
aleinkunnirnar yfirleitt heldur lágar.
„Við erum vön að drekka kaffi sem er
innan við vikugamalt en þetta kaffi
ber með sér að vera of gamalt,“ segja
meðlimir dómnefndarinnar en hún
er skipuð meðlimum úr Kaffibar-
þjónafélagi Íslands.
Dómnefndin
DV fékk fagfólk til þess að smakka
hefðbundið, malað kaffi, sem fæst í
flestum stórmörkuðum hér á landi
og þar af leiðandi á flestum heimil-
um. Um blinda smökkun var að ræða
og vissi dómnefnd því ekki hvaða
kaffi hún var að drekka hverju sinni.
Erla Dögg Gunnlaugsdóttir frá Kaffi-
tári sá um að hella upp á kaffið og þá
fékk DV góðfúslegt leyfi til að halda
smökkunina í húsakynnum Kaffitárs
á Höfðatorgi. Dómnefndina skipuðu
Pálmar Þór Hlöðversson, formað-
ur Kaffibarþjónafélags Íslands, Njáll
Björgvinsson og Sigrún Jóna Nord-
hal.
Kaffið valið
Eftir að smökkuninni lauk
spratt upp umræða um
hvernig kaffið í smökk-
uninni var valið. Blaða-
maður hringdi í fram-
leiðendur og heildsölur
og bað um að fá senda
kaffipoka sem væru til
sölu í flestum stórmörk-
uðum landsins. Að-
eins ein heildsala, Að-
föng, vildi ekki láta DV í
té kaffi á þeirra vegum;
Himneskt lífrænt kaffi
og Euroshopper kaffi.
Þessar tegundir voru því
keyptar. Aðrar heildsölur; ÍsAm, Inn-
nes og Ölgerðin, útveguðu DV kaffi
til smökkunar, sem og íslensku fram-
leiðendurnir; Nýja kaffibrennslan,
Te & Kaffi og Kaffitár.
Sumir sendu aðeins eina tegund
í smökkunina, Kaffitár til
dæmis, en aðrir sendu
fleiri en eina tegund. Te
& Kaffi sendi alla hvítu
línuna sína, Colombia
Santos, Espresso Roma,
Java Mokka og Kaffi Gull,
en eingöngu tvær tegund-
ir, Espresso Roma og Kaffi
Gull, voru í smökkuninni.
Þess má geta að Te & Kaffi framleið-
ir einnig sælkerablöndur sem eru til
sölu í ýmsum verslunum auk brúnu
línunnar sem er eingöngu fáanleg á
kaffihúsum Te & Kaffi. Kaffitár fram-
leiðir nokkrar gerðir af kaffi og eru
Morgundögg og Kvöldroði þekkt-
ustu tegundirnar. Kaffið sem Kaffi-
tár sendi í smökkunina, Afríkusól,
er sumarkaffi Kaffitárs árið 2014 og
kostar 999 krónur í verslunum Hag-
kaups. Allt verð í þessari grein er
fengið úr Hagkaup en þar fást allar
eftirfarandi kaffitegundir. n
1 Afríkusól
Meðaleinkunn: 8,5 Verð: 999 kr.
Pálmar: „Yes! Nammi namm. Berja-
ilmur, eins og brómber. Mér finnst það
vera sætt og mjúkt. Góð sýrni. Mjúk og
góð fylling. Mig grunar sterklega að
þetta sé frá Afríku.“
Sigrún Jóna: „Liturinn er allavega
flottur, ég sá það bara um leið og ég
tók bollann. Karamellulitur, ekki bara
svart. Það er mjúkt og gott. Ávextir
og ber.“
Njáll: „Þetta er lifandi bolli. Loksins
kominn góður kaffibolli. Það er karakt-
er í kaffinu. Góð sýrni.“
2 Bragakaffi
Meðaleinkunn: 5,3 Verð: 927 kr.
Pálmar: „Þetta er mjög líflegt kaffi. Ég
var ánægður þegar ég fékk sopann upp
í mig, en mér finnst eftirbragðið mjög
spes. Mér finnst vera eitthvert eftir-
bragð sem ég vil ekki hafa í kaffi.“
Sigrún Jóna: „Það er smá sýrni í því, en
það er ekki mikil lykt. Það er pínu reykur
í því.“
Njáll: „Þetta er eiginlega bara mikið
betra en margt af því sem við höfum
smakkað í dag.“
3 Gevalia
Meðaleinkunn: 4,3 Verð: 749 kr.
Sigrún Jóna: „Mér fannst engin lykt og
mér fannst það súrt. Það er ekki sama
brennslubragðið eins og á öðru kaffi
sem við höfum smakkað, en mér fannst
það trénað.“
Pálmar: „Mér fannst það líflegra en
margt annað sem við höfum smakkað í
dag. Samt er það ekki súper ferskt. Það
er svo lítill ilmur af því áður en maður
smakkar og lítið eftirbragð.“
Njáll: „Þessi bolli er samt í ágætu jafn-
vægi og ég myndi segja bara nokkuð notalegur.“
4 BKI Classic
Meðaleinkunn: 3,7 Verð: 659 kr.
Sigrún Jóna: „Mér finnst þetta vera
milt, pínu súrt en ekkert mjög mikið
í gangi. Súr lykt frekar en sítruslykt.
Það er ekki vond lykt af því samt, bara
ekkert merkilegt.“
Njáll: „Það lyktar eins og það sé gamalt
og staðið. Bragðast svolítið eins og gam-
alt brúsakaffi. Það er bæði súrt og trénað.“
Pálmar: „Mér finnst það einmitt milt
og mjúkt. Það er eiginlega frekar „dull“
[dauft] og venjulegt. Ég væri alveg til í
að sötra þetta með kökum í fermingar-
veislu.“
5 Merrild
Meðaleinkunn: 3,5 Verð: 789 kr.
Pálmar: „Ég fann bara á lyktinni að það yrði
súrt. Það er ekki mikið líf í því. Bara frekar milt
og venjulegt.“
Sigrún Jóna: „Það er flatt bara.“
Njáll: „Mér finnst þetta bara vera kaffi. Ég
myndi drekka það ef einhver myndi rétta mér
það, en ég myndi ekki endilega kaupa mér það.“
6 Bragakaffi Columbia
Meðaleinkunn: 3,3 Verð: 927 kr.
Njáll: „Þetta myndi væntanlega flokkast sem
meðalristað. Það er súrt eftirbragð. Aftur á móti
kemur minni beiskja. Þetta er þægilegri bolli en
margt annað sem við höfum smakkað.“
Sigrún Jóna: „Það er súrt og það er eftirbragð.“
Pálmar: „Þetta er svona í meðallagi.“
7-10 Kaaber Columbia
Meðaleinkunn: 2,7 Verð: 869 kr.
Pálmar: „Mjög gróft. Í fyrsta sopanum fann ég
strax mikla brennslutóna.“
Sigrún Jóna: „Það er eiginlega engin lykt. Eftir-
bragðið er samt ekki það versta, bara í mildari
kantinum. Það heldur samt áfram að magnast.
Maður finnur það ekki fyrst.“
Njáll: „Létt, milt og pínu súrt. Samt svolítið
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Hæg uppáhelling Við smökkunina var notast við svokallaða hæga uppáhellingu, upp á gamla mátann.
Dómnefnd að
störfum Sigrún
Jóna, Pálmar og
Njáll ræða málin.
MyNDir Sigtryggur Ari
Forðist falsaðar
snyrtivörur
Margir neytendur hafa látið
freistast af fölsuðum vörum, sem
eru í flestum tilfellum töluvert
ódýrari en fyrirmyndin. Að sjálf-
sögðu ættu allir að reyna að forð-
ast vörusvik af öllu tagi – en fals-
aðar snyrtivörur geta beinlínis
verið hættulegar.
Sýkingar og ofnæmi
Í nýlegri rannsókn kemur fram að
einn af hverjum tíu sem kaupir
sér snyrtivörur á netinu hafa
fengið senda falsaða vöru. Þriðj-
ungur kaupenda fer á netið í leit
að ódýrari snyrtivörum en fást
jafnan í snyrtivöruverslunum.
Falsaðar snyrtivörur eru ekki
gerðar með sömu efnum, formúl-
um eða nýsköp-
un og fyrir-
myndin.
Þótt þú
haldir að
þú sért
að gera
reyfara-
kaup gætir
þú átt á hættu
að fá sýkingar
og alvarleg of-
næmisviðbrögð.
Snyrtivöruframleiðendur þurfa
að fylgja ströngum reglum varð-
andi gæðaeftirlit og nýsköpun
og hafa varið bæði tíma og pen-
ingum í rannsóknir og prófanir.
Framleiðendur fölsuðu snyrtivar-
anna spila, eins og gefur að skilja,
ekki eftir sömu leikreglum og
geta þess vegna selt vörurnar sín-
ar á margfalt lægra verði.
Fyrirtæki höfða mál
Fyrirtæki hafa gengið svo langt
að höfða mál gegn þeim sem
selja eftirlíkingar til þess að
tryggja orðspor vörumerkisins. Í
desember síðastliðnum sömdu
forsvarsmenn verslunarkeðjunn-
ar Target í máli þar sem þeim var
gert að sök að selja falsaðar MAC-
vörur í verslunum sínum. Þurftu
þeir að greiða fyrirtækinu Estée
Lauder, eiganda MAC-vörumerk-
isins, eina milljón bandaríkjadali
í bætur, fjarlægja vörurnar úr
verslunum sínum og birta leið-
réttar auglýsingar í verslunum
sínum, bæklingum og á netinu.
Svona kemur þú
auga á fölsun
n Áletrunin er skrítin Letur-
gerðin skiptir framleiðendur máli.
Leitaðu eftir skökku letri og rangri
leturgerð.
n Slitnar umbúðir Umbúðirnar
eiga að vera samhverfar. Kassarnir
utan um fölsuðu snyrtivörurnar eru
oft settir saman á ranga vegu.
n Of lágt verð Spurðu sjálfan þig
hvers vegna verðið á þessari vöru er
svona mikið lægra en í snyrtivöru-
verslunum. Ef verðmunurinn er mikill
eru líkur á að varan sé fölsuð.