Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Qupperneq 26
26 Lífsstíll Vikublað 8.–10. júlí 2014
Skyndilausnir
Litlir hlutir sem geta glatt í
hvelli:
1 Teiknaðu myndir af óhollum mat eins og bollakökum og pitsum.
2 Skipuleggðu herbergið þitt eða fataskápinn.
3 Skrifaðu áhyggjur þínar niður á blað og settu í umslag og lokaðu fyrir.
4 Einbeittu þér að nákvæmlega því sem þú ert að gera núna.
5 Stundaðumeira kynlíf.
6 Hlúðu að ástinni. Rómantískt stefnumót með þeim sem maður
elskar er nokkuð sem gleður alltaf.
7 Vertu sjálfboðaliði hjá trúar-samtökum eða hjálparsamtökum.
8 Gerðu eitthvað sem veitir þér áreynslulausa gleði eins og að spila
skák eða fara á skíði.
9 Brostu meira. Bros getur dimmu í dagsljós breytt. Brostu hringinn.
10 Gervibrosvirkar líka.
11 Stundaðulíkamsrækt.
12 Knúsaðu meira. Gefðu þeim sem þú elskar knús. Oft.
13 Skrifaðu þakklætismiða.Skrifaðu niður á blað allt það sem þú
ert þakklát/ur fyrir.
14 Hlustaðu á hressandi tónlist. Góð tónlist getur komið
skapinu í lag. Ekki sakar að taka sporið
með, jafnvel þótt maður sé einn heima á
náttfötunum.
15 Farðu í jógatíma. Það er slak-andi og gleður.
16 Hlæðu meira. Ekkert er skemmtilegra en gott hláturskast.
Kallaðu fram skemmtilegar minningar
eða farðu á YouTube og skoðaðu fyndin
myndbönd.
17 Hugleiddu. Hugleiðsla hjálpar okkur að koma hugsunum okkar í lag.
18 Haltu í höndina á einhverjum. Það er gott og gefandi að leiða.
19 Fáðu þér kaffibolla. Ef þú drekkur kaffi þá er góður kaffibolli
alltaf eitthvað sem gleður.
20 Hættu að borða ruslmat.Óhollur matur gerir okkur leiðari.
Borðaðu hollan mat.
21 Farðu í hálftíma göngutúr.Hreyfing kemur skikki á hugsanir okk-
ar. Farðu í stuttan göngutúr (eða langan).
22 Skipuleggðu frí. Það þarf ekki að vera svo dýrt að fara í frí. Það er
líka sniðugt að plana fríið fram í tímann og
safna sér vel fyrir. Það eru líka fjölmargar
ódýrar leiðir, um að gera að skoða vel og
gefa sér góðan tíma.
23 ... og svo þegar kemur að því að fara í fríið – njóttu þess þá! Ekki
skipuleggja það um of en heldur ekki of
lítið þannig að tíminn nýtist ekki. Fyrst og
fremst hafðu það eftir þínu höfði.
24 Farðu í nudd.
25 Farðu út í náttúruna. Andaðu að þér ferska loftinu og njóttu þess
að vera úti.
26 Lestu þér til skemmtunar. Góð og skemmtileg bók gleður. Taktu
fram uppáhalds bókina þína og lestu hana
aftur.
27 Hættu að kíkja endalaust á símann þinn. Margir eru búnir að þróa
með sér þann leiðindaávana að vera alltaf
að kíkja á símann. Gefðu símanum smá frí
og njóttu frelsisins.
28 Hrósaðu. Það er gott að hrósa og það er líka gott að fá hrós.
29 Farðu að versla. Kannski ekki það besta í stöðunni alltaf en getur
oft á tíðum létt lundina töluvert, reyndar
budduna líka.
30 Þróaðu með þér betri siði. Þetta kann að taka lengri tíma
en það getur verið gott að koma sér upp
ákveðnum venjum til þess að skapa sér
hamingjusamara líf.
31 Svefn er mikilvægur. Temdu þér góðar svefnvenjur. Það eru allir
hamingjusamari eftir góðan nætursvefn.
Lífið er svo miklu léttara ef maður er vel
sofin/n.
32 En ekki sofa of lengi. Farðu snemma að sofa og snemma á fætur.
33 Búðu umrúmið þitt á morgnana.
34 Borðaðumorgunmat.
35 Passaðu að koma inn sjö skömmtum af ávöxtum og grænmeti
í matarræðið á hverjum degi.
36 Borðaðu utandyra. Ef veðrið er bærilegt nýttu þér það þá og
borðaðu hádegismatinn utandyra. Ferskt
loft og næring klikkar ekki.
37 Finndu tíma fyrir líkams-rækt. Farðu fyrir vinnu, í hádeginu
eða eftir vinnu. Það hafa allir klukkutíma
á dag; vertu minna í tölvunni og meira í
ræktinni.
38 Takmarkaðu Facebook -notkun þína og aðra netnotkun.
Settu þér ákveðinn tíma yfir það hversu
miklum tíma þú mátt eyða á samfélags-
miðlum á degi hverjum.
39 Í enda hvers dags, skrifaðu þá niður þrjá góða hluti sem gerðust
þann daginn.
40 Vertu stolt/ur af afrekum þínum. Ekki gera lítið úr því sem þú
gerir vel. Ekki tala þig niður heldur upp.
41 Takmarkaðu sjónvarpstí-mann. Það er auðvelt að gleyma
sér fyrir framan sjónvarpið. Reyndu að gera
uppbyggilega hluti í stað þess að gleyma
þér fyrir framan sjónvarpið tímunum
saman.
42 Langtíma lífsstílsákvarð-anir og breytingar Þetta ætti fólk
að hafa í huga til langs tíma.
Hvað gerir okkur hamingjusöm?
n Þetta gerir hamingjusamt fólk n 62 hlutir sem hamingjusamir mæla með n Hugleiðsla, sjálfsrækt, góð samskipti og hlátur mikilvægir þættir
Ö
ll þráum við líklega að
vera sem hamingjusöm-
ust. Það hvernig við lif-
um lífinu og hvernig við
veljum að haga hlutun-
um hefur heilmikið með það að
gera hversu hamingjusöm við
erum.
Hér er listi frá vefsíðunni
Business Insider þar sem teknir
voru saman hlutir sem hamingju-
samt fólk segist gera:
Sjö leiðir að
hamingju
Tímaritið Cosmopolitan
bendir lesendum sínum á sjö
leiðir til þess að öðlast ham-
ingju. Sjö atriði sem eru lykil-
þættir í leitinni að betra lífi.
Góður vinahópur.
Samkvæmt dr. Dav-
id Niven, höfundi The 100
Simple Secrets of Happy
People, er vinskapur ein
helsta ánægja lífsins. Sam-
kvæmt honum getur fólk virki-
lega verið það sjálft í kringum
fólk sem það þekkir. En til að
rækta vinskap þarf þolinmæði
og gagnkvæma virðingu.
Ævintýri nauðsynleg.
Ef þú hugsar til baka
þegar þú varst í framhalds-
eða háskóla, hver er uppá-
halds minningin þín? Þori að
veðja að það var ekki þegar þú
lærðir rosalega mikið og fékkst
tíu. Taktu áhættur, skemmtu
þér og gerðu eitthvað óhefð-
bundið. Þannig verða bestu
minningarnar til.
Hentu draslinu. Pen-
ingar og dótið sem þú
getur keypt með þeim munu
ekki færa þér hamingju. Þegar
ríkir Bandaríkjamenn svöruðu
könnun reyndust þeir jafn
hamingju- eða óhamingju-
samir og allir aðrir. Þegar fólk
hefur lítið á milli handanna
hefur það tilhneigingu til þess
að hugsa of mikið um skort
frekar en hvað það í raun á.
Gefðu þér frí, en ekki
of mikið. Að keyra sig
út alla daga, alltaf, mun enda
illa. Það hefur áhrif á skapið.
En að hanga á sófanum er litlu
skárra. Að leggja hart að sér er
mikilvægt ef það fer ekki fram
úr hófi. Tilfinningin sem fylgir
vel unnu verki er mikilvæg
þegar kemur að hamingju.
Leyfðu þér eitthvað.
Til að ná langt og þrífast
er agi nauðsynlegur. Að mæta
á réttum tíma í vinnuna,
stunda reglulega hreyfingu og
borga reikningana. En stund-
um þarf bara að fá sér ís, fara í
spa eða kaupa sér skó.
Elskaðu þig. Eina sem
er ekki umsemjanlegt er
að elska sjálfan sig. Grunn-
forsenda hamingju er að líka
vel við sjálfan sig. Hvernig áttu
að geta elskað aðra eða gefið
ást ef þú fyrirlítur sjálfa(n)
þig? Við erum gjörn á að
dæma okkur mun harðar en
aðra.
Taktu ákvörðun.
Á ég að velja kjúkling
eða fisk? Hefði ég ekki átt að
velja kjúkling? Á hverjum
degi efumst við um eigin
ákvarðanir og teljum okkur
trú um að grasið sé grænna
hinum megin. Í þetta eyðir
fólk ómældri orku og tíma. Í
stað þess að treysta sér til að
taka ákvarðanir og meta eigin
hagsæld.
1
2
3
4
5
6
7