Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Side 27
Lífsstíll 27
43 Vertu bæði bjartsýn/n og raunsæ/r. Temmileg blanda af þessu
ætti að gefa manni ágætis jafnvægi.
44 Ekki ofdekra börnin þín.Stundum höldum við að því meira
sem við gefum börnunum okkar því
ánægðari verði þau. En stundum er minna
meira. Börn læra frekar að meta hlutina ef
þau fá ekki alltof mikið.
45 Ekki reyna að vera of fullkomin/n. Vertu besta útgáf-
an af sjálfum þér en það er
enginn fullkomin/n. Vertu
þú sjálf/ur.
46 Ekki týna þér í for-eldrahlutverkinu. Það er okkur
öllum mikilvægt að eiga eigið sjálf. Alltof
margir gleyma sjálfum sér í foreldrahlut-
verkinu og það kemur niður á fólki fyrr eða
síðar.
47 Eigðu góða vini. Haltu í góðu og traustu vinina. Sinntu vináttunni.
Góðir vinir eru til staðar á góðum og slæm-
um tímum, það er því mikilvægt að rækta
vinskapinn vel.
48 Haltu utan um markmiðin þín. Settu þér raunhæf markmið og
gerðu þitt besta til þess að ná þeim.
49 Ekki láta vaða yfir þig Hvort sem það á við um vinnuna,
sambandið þitt eða vinskap; ekki láta neitt
vaða yfir þig.
50 Haltu góðu sambandi við foreldra þína. Ræktaðu sam-
bandið við foreldra þína, enginn er eilífur og
það er of seint að lappa upp á sambandið
eftir að þau eru farin.
51 Þakklæti. Alltof oft gleymum við að
vera þakklát fyrir það
sem við eigum.
52 Ekki lifa í eftirsjá. Ekki hugsa um það af hverju þú gerðir ekki
hlutina, lífið er núna, ekki í fortíðinni.
53 Haltu góðum minningum en slepptu þeim vondu. Hættu að hugsa
um hluti sem láta þér líða illa.
54 Ekki hugsa í peningum. Peningar geta vissulega veitt visst
frelsi en þeir eru ekki allt. Njóttu þess sem
virkilega skiptir máli í lífinu.
55 Sumir hugsa endalaust um hvað þeir vilji eignast. Flotta
hönnunarhluti og dýra hönnun. Notaðu
frekar peningana til þess að gera skemmti-
lega hluti. Farðu í ferðalög og njóttu lífsins.
56 Vertu í kringum hamingju-samt og jákvætt fólk. Neikvætt
fólk dregur mann niður.
57 Gleddu aðra. Það er gott að gleðja. Gefðu þínum nánustu litlar
gjafir af tilefnislausu.
58 Þróaðu nýja hæfileika. Próf-aðu eitthvað sem þig langar að gera
en heldur að þú sért ekki fær um.
59 Fáðu þér gæludýr. Rannsóknir hafa sýnt að umönnun gæludýra
minnkar einsemd og veitir hamingju.
60 Æfðu íþróttir.
61 Taktu myndir.Minningarnar lifa á myndum. Taktu
nóg af myndum og njóttu þess að skoða
skemmtilegar myndir.
62 Hafðu þig til.Það veitir vellíðan að líta vel út.
Vikublað 8.–10. júlí 2014
Hvað gerir okkur hamingjusöm?
n Þetta gerir hamingjusamt fólk n 62 hlutir sem hamingjusamir mæla með n Hugleiðsla, sjálfsrækt, góð samskipti og hlátur mikilvægir þættir
Sítrónur til
margs góðar
Ávöxturinn sítróna er til margs
nýtilegur annars en til að
borða.
Þær eru góðar gegn
bólum og fílapensl-
um. Skerðu niður sneið af
sítrónu og nuddaðu henni
yfir andlitið. Þú getur líka sett
nokkra dropa af hunangi með
áður en þú setur sítrónuna á
andlitið. Leyfðu þessu að vera
á andlitinu í fimm til tíu mín-
útur áður en þú hreinsar af.
Þær lýsa upp ör og
dökka bletti. Sítrónur
eru gæddar þeim eiginleika
að geta lýst upp dökk svæði.
Það getur virkað á ör að setja
sítrónu á örina í þeim tilgangi
að lýsa hana. Passaðu þig þó
vel að setja ekki sítrónu á opið
sár, því fylgir mikill sársauki.
Gera tennurnar
hvítar. Sítrónur lýsa
tennurnar líka. Það get-
ur verið ansi dýrt að fara í
tannhvíttun en náttúruleg
leið er að nota sítrónur á
tennurnar. Blandaðu saman
matarsóda og sítrónusafa og
settu á tennurnar. Hafðu á í
um mínútu (alls ekki lengur)
og burstaðu svo burt með
tannbursta.
Þurrka upp fituga
húð. Margir berjast við
fituga húð. Þá getur verið gott
að bera sítrónusafa á húðina
því hún þurrkar hana upp.
Settu nokkra dropa af sítrón-
unusafa í bómull og þrífðu
andlitið með því áður en þú
ferð að sofa. Þvoðu svo af með
vatni morguninn eftir.
Viltu lýsa hárið?
Sítrónur hjálpa þér
til með það. Blandaðu
sítrónusafa út í hárnæringuna
og berðu í hárið áður en þú
ferð út í sólina. Hafðu það í
hárinu í nokkrar klukkustund-
ir (ekki of lengi) og skolaðu
svo í burtu. Þetta þarf líklega
að gera í nokkur skipti áður en
árangur sést.
1
2
3
4
5