Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Síða 30
Vikublað 8.–10. júlí 201430 Sport
Þ
etta breytir liðinu en ég
bendi á að það eru engir
aular sem koma inn,“ seg-
ir Willum Þór Þórsson, þing-
maður Framsóknarflokksins
og knattspyrnuþjálfari, um fjarveru
tveggja lykilmanna brasilíska liðsins.
Í dag, þriðjudag, mæta gestgjafar
Brasilíu Þýskalandi í fyrri undanúr-
slitaleiknum á HM í knattspyrnu. Bras-
ilíumenn leika án tveggja lykilmanna;
fyrirliðans Thiago Silva, sem tekur út
leikbann, og stjörnunnar Neymar, sem
meiddist illa í baki í síðustu umferð.
Þjóðverjar mæta fullskipaðir til leiks
og hoknir af reynslu að auki.
Willum segir borðliggjandi að Dan-
te, leikmaður Bayern München, komi
inn í vörnina í stað Silva. Dante sé
frábær varnarmaður. „Ég hef ekki al-
veg tilfinningu fyrir leiðtogahæfileik-
um hans en hann er mjög sterkur og
ég held að þeir Luiz [David Luiz innsk.
blm.] eigi eftir að klára þetta verkefni
með sóma.“ Hann bendir á að Luiz hafi
verið stórkostlegur í keppninni hingað
til.
Fjarveran þjappar liðinu saman
Hvað fjarveru Neymar áhrærir seg-
ir Willum að hann sé auðvitað þessi
„X-factor“ í liði Brasilíumanna. „Þeir
fá auðvitað ekki þannig leikmann inn
en ég trúi því að Willian [leikmaður
Chelsea, innsk. blm.] komi inn. Jafn-
vel gæti Ramírez komið inn í liðið og
Brasilíumenn leggi þannig áherslu á
að spila með þétta og góða miðju.“ Að-
spurður spáir Willum því að mótlætið
sem felst í fjarveru lykilmanna, og nei-
kvæðri umræðu um það, muni þjappa
liðinu saman. „Mennirnir sem koma
inn verða bæði óþreyttir og óþreyju-
fullir að fá að spila.“ Willum segir að
Þjóðverjar muni örugglega vera und-
ir það búnir.
Hefðin fleytir þeim langt
Spurður um styrkleika Þjóðverja, sem
virðast á köflum hafa lítið fyrir sigr-
um sínum, segir Willum að honum
finnist þýska vörnin ekki hafa verið
sannfærandi á mótinu – og að raun-
ar hafi þýska liðið enn ekki heillað
sig. „En þeir bæta það upp með góðu
skipulagi og mikilli vinnusemi. Þess
utan hafa þeir endalausa trú á sjálfa
sig.“ Hann bendir á að mikil gæði búi
í þýska liðinu. „Þeir virðast alltaf seigl-
ast áfram og hefðin fleytir þeim langt.“
Willum segir ekki ljóst hvernig
vörninni verði stillt upp. Per Mertes-
acker hafi ekki verið með í síðasta leik
en hann gæti komið aftur inn í liðið
nú. Mertesacker hafi stundum ver-
ið legið á hálsi að vera hægur en Will-
um segir þó að hann standi alltaf fyrir
sínu. „Ég held þetta breyti ekki miklu
fyrir Þjóðverja, þótt það sé alltaf svo-
lítið önnur áferð á liðinu með Mertes-
acker innanborðs í vörninni.“ Hann
segir að annað liggi nokkuð ljóst fyrir,
hvað uppstillingu liðsins varðar.
Átök í kringum Messi
Á miðvikudag eigast Argentína
og Holland við í hinum undanúr-
slitaleiknum. Bæði lið eru þekkt
fyrir blússandi sóknarleik og má því
búast við mikilli skemmtun. Willum
segir, spurður um þessa viðureign, að
Argentínumenn séu meistarar í því að
hindra andstæðinginn í því að skína.
Vissulega leiki þeir nú án Di Maria en
það komi ekki að sök. Willum spáir
gríðarlegum átökum í kringum Messi,
enda sé um að ræða algjöran lykil-
mann í liði Argentínu. „Hollendingar
munu ekki sýna honum neina mis-
kunn. Þeir munu örugglega taka þá
eins og þeir tóku Spánverjana í fyrsta
leik. Þar nudduðust þeir í þeim allan
leikinn og fylgdu fast á eftir návígjum.
Þeir notuðu gamalt trix í bókinni og
fóru í þá ef þeir mögulega gátu.“ Hann
á hins vegar allt eins von á því að
Argentínumenn muni svara í sömu
mynt hinum megin vallarins, þar sem
Robben geti verið í banastuði.
Geislar af Hollendingum
Willum segir að Hollendingar hafi
ef til vill komið sér liða mest á óvart,
allavega þegar horft er til Evrópuþjóð-
anna. Efasemdir hafi verið uppi um
varnarleikinn hjá þeim, fyrir mót, en
vörnin hafi verið mjög góð allt mótið.
„Menn héldu að óreyndir varnar-
menn yrðu þeim að falli – og spáðu
því að þeir kæmust ekki upp úr riðlin-
um – en þeir hafa verið feiknarlega vel
skipulagðir og komið mjög skemmti-
lega inn í þetta mót. Það hefur geislað
af Hollendingum og Robben hefur
verið í banastuði.“
Spurður hvort það kunni að hafa
áhrif á Jasper Cillessen markvörð að
hafa verið skipt af velli fyrir vítaspyrn-
ukeppnina á móti Kostaríku í 8 liða úr-
slitum, segist Willum ekki telja það.
„Ég held hann geti alveg ýtt því út og
einangrað það við vítafærni. Hann hef-
ur staðið sig vel á mótinu og ekki gert
neinar gloríur, þótt efasemdaraddir
hafi verið á kreiki fyrir mótið.“
Messi verður heimsmeistari
En hvernig fara leikirnir? Willum spá-
ir því að þótt Þjóðverjarnir séu ólseigir
og Hollendingar frábærir, komi það í
hlut Suður-Ameríkuliðanna að leika
til úrslita. Bæði Brasilía og Argentína
vinni sína leiki 2-1. En hver stendur
uppi sem heimsmeistari? Willum er
viss í sinni sök. „Argentína. Ég spáði
því fyrir mótið og ég stend við þá spá
mína. Ég held að Messi klári þetta með
sínum mönnum.“ n
Ameríkuliðin frábær
Evrópuliðin njóta ekki lengur sérstöðu fyrir skipulag
Sjö af níu liðum frá Ameríku tryggðu
sér sæti í 16 liða úrslitum. Ekvador og
Hondúras voru einu liðin frá álfunni sem
komust ekki áfram. Mexíkó, Argentína, Kól-
umbía, Brasilía, Kostaríka, Chile og Úrúgvæ
komust öll upp úr riðlunum og tvö þeirra
eru eftir, nú þegar í undanúrslit er komið.
Willum segir að liðin frá Suður-Ameríku hafi
sett skemmtilegan svip á þetta frábæra
mót. Þar nefnir hann Kólumbíu, með sinn
leiftrandi hraða, Chile og Kostaríku, sem
enginn hafi búist við neinu frá. „Vinnusemin
og hlaupin sem leikmenn Kostaríku lögðu
á sig, til dæmis á móti Hollendingum, var með ólíkindum. Þetta sýnir bara hvað hægt er
að gera ef hugarfarið er rétt og skipulagið er til staðar.“ Hann segist svakalega ánægður
með mótið. Riðlakeppnin hafi verið betri en hann hafi átt von á. „Liðin komu á fullu gasi
inn í mótið, tóku sénsa og sóttu á mörgum mönnum.“
Óhætt er að segja að fjölmörg lið hafi komið á óvart á HM og mikið hafi verið um
óvænt úrslit. Svo virðist sem allir geti unnið alla. Willum segir að á síðustu árum hafi
það verið að gerast að vinnubrögð og þekking hafi færst mjög hratt á milli heimsálfa.
Leikmenn séu farnir að spila úti um allan heim og þjálfarar flakka á milli landa og
heimshluta. Suður-Ameríkulöndin hafi tileinkað sér evrópska skipulagið og sama megi
segja um fleiri lönd, til dæmis í Asíu og Afríku. Það sé af sem áður var að Evrópuliðin hafi
skipulagið og þekkinguna fram yfir aðrar þjóðir. Þetta geri mót eins og HM skemmtilegri
fyrir vikið og minnki bilið á milli liðanna.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Skemmtilegt mót Willum Þór Þórsson
spáir því að Argentína fari alla leið.
Argentínumenn fagna Leiðir Messi menn sína til sigurs gegn Hollendingum?
Hvers vegna? Marcelo, liðs-
félagi Neymar, fórnar höndum
þar sem sá síðarnefndi liggur
meiddur í grasinu. Kemur
Willian inn í liðið í staðinn?
Vissir þú ...
n... að Argentínumenn eru það lið á
HM sem hefur átt flestar mislukkað-
ar fyrirgjafir, 86 talsins?
n... að Þýskaland hefur aðeins verið
undir í viðureignum sínum í átta
mínútur á öllu mótinu?
n... að Hollendingar eru komnir í
undanúrslit í þriðja skipti af síðustu
fjórum heimsmeistaramótum?
n... að Tim Krul, markvörður
Hollendinga, varði jafn margar
vítaspyrnur á fimm mínútum um
helgina og hann gerði í 20 leikjum
með Newcastle?
n... að leikmaður sem tekur víta-
spyrnu undir þeirri pressu að lið hans
detti úr leik, skori hann ekki, skorar
aðeins í 41prósents tilvika?
n... að áður en kom að vítaspyrnu-
keppni Hollands og Kostaríku höfðu
níu vítaspyrnukeppnir farið þannig
að liðið sem tók fyrstu spyrnu vann?
n... að Hollendingar hafa aldrei frá
því mælingar hófust (árið 1966) ver-
ið oftar dæmdir rangstæðir í einum
leik en gegn Kostaríku (11 skipti)?
Engir aular sem
koma inn í liðið
n Segir fjarveru tveggja lykilmanna ekki veikja Brasilíu mikið n Hollendingar beita hörku