Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Page 31
Vikublað 8.–10. júlí 2014 Sport 31
Félagslið í Evrópu undirbúa sig nú af fullum þunga
fyrir komandi tímabil og ljóst er að mörg þeirra leita
nú logandi ljósi að leikmönnum sem geta aukið
möguleika á góðum árangri. Vefritið Bleacher Report
tók á dögunum saman lista yfir bestu leikmennina
sem eru samningslausir. Þessir leikmenn eiga það
sameiginlegt að geta samið við hvaða lið sem er án
þess að setja fjárhag hins nýja félags á hliðina.
einar@dv.is
Tveir góðir Frank
Lampard og Ashley Cole
eru á förum frá Chelsea.
10 frábærir leikmenn
sem kosta ekki krónu
n Samningslausir gæðaleikmenn n Sumir komnir á aldur en eiga samt nóg eftir
Frank Lampard
Aldur: 36 ára Þjóðerni: Englendingur Landsleikir/mörk: 106/29
n Frank Lampard fer líklega í hóp með bestu miðjumönnum
Englendinga frá upphafi. Hann vermdi tréverkið löngum stundum í
vetur hjá Chelsea og mun hann yfirgefa félagið í sumar rétt eins og
Ashley Cole sem er annar leikmaður sem vert er að nefna. Tilkynnt
var á dögunum að Cole myndi ganga í raðir Roma og því er hann ekki
gjaldgengur á þessum lista. Líklega horfa öll félög sem þurfa á öflug-
um miðjumanni að halda til Franks Lampards. Lampard hefur verið
orðaður við MLS-deildina að undanförnu, þá helst New York City FC.
Didier Drogba
Aldur: 36 ára Þjóðerni: Fílabeinsstrendingur
Landsleikir/mörk: 104/65
n Didier Drogba er líklega einn besti framherji síðast-
liðinna tíu ára eða svo. Þessi fyrrverandi leikmaður
Chelsea lék síðast með Galatasaray en er nú frjáls ferða
sinna eftir að samningur hans rann út. Drogba sýndi það
í vetur að hann er ekki dauður úr öllum æðum þótt hann
sé orðinn 36 ára. Ljóst er að Drogba gæti nýst mörgum
félögum, til dæmis í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann
lét varnarmenn skjálfa á beinunum helgi eftir helgi í
nokkur ár.
Gareth Barry
Aldur: 33 ára Þjóðerni: Englendingur
Landsleikir/mörk: 53/3
n Margir töldu að þegar Gareth Barry yfirgaf Manchest-
er City myndi ferill hans fara hægt og bítandi niður á við.
Raunin varð önnur eins og þeir sáu sem fylgdust með
enska boltanum í vetur. Hann var lánaður til Everton
þar sem frammistaða hans vakti verðskuldaða athygli.
Samningurinn hjá City er nú runninn út og ljóst er að
Barry getur samið við hvaða lið sem er. Forsvarsmenn
Everton vilja örugglega halda honum í sínum röðum og
þykir ekki ólíklegt að þeir muni fá vilja sínum framgengt.
Tom Ince
Aldur: 22 ára Þjóðerni: Englendingur
Landsleikir/mörk: 0/0
n Tom Ince er yngsti og óreyndasti leikmaðurinn á þess-
um lista og í raun erfitt að segja hversu miklum gæðum
hann býr yfir. Hann hefur lengst af spilað í Champions-
hip-deildinni á Englandi þar sem frammistaða hans
hefur vakið athygli stærri félaga. Ince hefur þegar
hafnað Inter, félaginu sem Tom Ince, faðir hans, lék
með á sínum tíma. Talið er að Ince yngri muni reyna fyrir
sér í úrvalsdeildinni næsta vetur og er hann sterklega
orðaður við Hull City.
Tiago
Aldur: 33 ára Þjóðerni: Portúgali
Landsleikir/mörk: 58/3
n Tiago var einn af mikilvægustu leikmönnum Atletico
Madrid í vetur, félags sem vann spænsku deildina og
komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Svo virðist
vera sem Tiago muni yfirgefa félagið í sumar eftir þrjú
góð ár. Ljóst er að fjölmörg lið gætu nýtt krafta hans og
hefur hann raunar þegar verið orðaður við endurkomu
til Chelsea. Ljóst er að þessi vinnusami miðjumaður
smellpassar inn í hugmyndafræði Jose Mourinho sem
keypti hann einmitt til Chelsea á sínum tíma.
Guillermo Ochoa
Aldur: 28 ára Þjóðerni: Mexíkói
Landsleikir/mörk: 63/0
n Ochoa var einn besti markvörður heimsmeistara-
keppninnar í Brasilíu og varði á köflum eins og berserkur
– hvað sem það þýðir. Ochoa spilaði síðast með Ajaccio
frá Korsíku í frönsku deildinni en samningur hans rann út
fyrr í sumar. Það er ljóst að liðin munu bíða í röðum eftir
að fá að ræða við þennan hæfileikaríka markvörð. Hann
hefur verið orðaður við félög eins og Liverpool, Arsenal
og Atletico Madrid svo fáein dæmi séu tekin.
Victor Valdes
Aldur: 32 ára Þjóðerni: Spánverji
Landsleikir/mörk: 20/0
n Markvörðurinn sterki hefur leikið sinn síðasta leik
fyrir Barcelona eftir tólf frábær og sigursæl ár. Valdes
meiddist undir lok síðustu leiktíðar og verður væntan-
lega ekki klár í slaginn fyrr en eftir nokkra mánuði. Nái
Valdes að jafna sig að fullu af meiðslunum er ljóst að
hann á mörg ár eftir í boltanum. Talið er að Monaco sé
líklegasti áfangastaður hans en engin formleg tilkynn-
ing hefur þó verið gefin út um væntanleg félagaskipti.
Samuel Eto'o
Aldur: 33 ára Þjóðerni: Kamerúni
Landsleikir/mörk: 118/56
n Samuel Eto'o átti ágætu gengi að fagna hjá Chelsea
síðastliðinn vetur, skoraði 12 mörk í 34 leikjum og lagði
upp sex til viðbótar. Þó að hann hafi orðið markahæsti
framherji liðsins dugði það honum ekki til að fá nýjan
samning. Eto'o er útsjónarsamur framherji sem hefur
skorað haug af mörkum. Þannig má geta þess að hann
hefur skorað 10 mörk eða meira á hverju einasta tímabil
frá 1999/2000 – þá var Eto'o 19 ára.
Esteban Cambiasso
Aldur: 33 ára Þjóðerni: Argentínumaður
Landsleikir/mörk: 52/5
n Þó að Esteban Cambiasso sé kominn yfir það besta
á ferli sínum býr hann enn yfir miklum gæðum. Þessi
öflugi miðjumaður mun yfirgefa Inter í sumar eftir tíu
ára þjónustu þar sem hann vann alla þá titla sem í boði
voru. Cambiasso var fastamaður í liði Inter í vetur og
ætti því að vera í góðu leikformi. Talið er að Mauricio
Pochettino, nýráðinn stjóri Tottenham, hafi áhuga á
þessum reynslubolta.
Xavi
Aldur: 34 ára Þjóðerni: Spán-
verji Landsleikir/mörk: 133/13
n Staða Xavi er dálítið
sérstök. Samningur hans
rennur ekki út fyrr en árið
2016 en þrátt fyrir það hafa
forsvarsmenn Barcelona látið
hafa eftir sér að þeir munu
ekki standa í vegi fyrir Xavi
vilji hann róa á önnur mið. Xavi
er vissulega orðinn 34 ára en
reynsla hans og útsjónarsemi
er slík að hvaða lið sem er gæti
notað krafta hans. Ekkert er
útséð með framtíð hans en
hann hefur þó verið orðaður
við félög í Katar og Bandaríkj-
unum.