Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Síða 32
32 Menning Vikublað 8.–10. júlí 2014
Staðir sem flestir þekkja
en fæstir hafa komið á
V
ið Íslendingar erum með
þessar veðurstöðvar í eyr-
unum alla ævi. Það kann-
ast allir við þessi nöfn eins
og Dalatangi, Kollaleira
og Fagurhólsmýri, en það eru fæst-
ir sem hafa séð þessa staði. Komið
þangað og vita hvernig þeir líta út,“
segir Ólafur Kolbeinn Guðmunds-
son, en hann hefur undanfarin þrjú
ár ferðast, ásamt unnustu sinni,
Rebekku Guðleifsdóttur, um Ísland
og myndað veðurstöðvar.
„Við höfum ekki unnið svona verk
saman áður. Ég er nú bara sjóari
en hún er myndlistarkona og ljós-
myndari,“ segir Ólafur Kolbeinn um
samstarf þeirra en myndir Rebekku
hafa vakið athygli á heimsvísu. Þær
hafa meðal annars verið notaðar í
auglýsingaherferð bílarisans Toyota,
auk þess sem Rebekka vakti víða
athygli þegar myndir hennar voru
seldar í stórum stíl í leyfisleysi á
eBay, sem leiddi til mikillar umræðu
í netheimum um höfundarrétt og
þá hættu sem fólgin er í því að deila
sköpunarverkum sínum á veraldar-
vefnum.
Kjóll og vindmælir
„Við byrjuðum á þessu árið 2011 og
eigum bara Reykjavík eftir. Þetta eru
60 staðir, hringinn í kringum landið,
auk nokkurra eyja,“ segir Ólafur Kol-
beinn en á hverjum stað tók parið
tvær myndir. „Önnur er af staðnum
eða einhverju sem einkennir svæð-
ið, og á hinni sést Rebekka alltaf í
sama kjólnum, sem er þannig útbú-
inn að hann sýnir hvernig veðrið er
á myndinni. Eins konar vindmæl-
ingartæki.“
Verkefnið hefur reynst mikil æv-
intýraför en margar þessara veð-
urstöðva eru afskekktar og erfitt að
komast að þeim. „Þetta eru ofboðs-
lega margar perlur og ótrúlega fal-
legir staðir sem maður hefur feng-
ið að njóta. Staðir sem maður hefði
annars aldrei séð.“
Sokkinn bíll og æðardúnn
Ferðalagið hefur ekki gengið áfalla-
laust fyrir sig og hafa Ólafur Kol-
beinn og Rebekka lent í ýmsu. „Það
er oft erfitt að komast á þessa staði.
Við rerum til dæmis út í Æðey í Ísa-
fjarðardjúpi á uppblásnum kajak
sem við redduðum deginum áður.
Við fengum far út í Seley á zodiac
með sóknarprestinum á Eskifirði, og
launuðum honum greiðann með því
að aðstoða hann við æðardúnssöfn-
un, sem var mjög sérstök reynsla.“
Þá gekk parið einnig Hornstrandir til
þess að ná myndum af Straumnes-
vita og Hornbjargsvita.
„Mér tókst líka að sökkva bíln-
um mínum við Vík í Mýrdal,“ en um
ástæðuna segir Ólafur Kolbeinn:
„Það var bara ég að vera fífl. Ég ætlaði
að keyra aðeins nær Reynisdröng-
um og fór yfir litla sprænu. Við lend-
um í sandbleytu og bíllinn sekkur.
Ég sat þarna með vatn upp í mitti og
Rebekka klifraði út um glugga, stökk
á land og hringdi á björgunarsveitina
í Vík. Þeir ráku upp stór augu við að-
komuna, Land Rover hálfur á kafi
og örvæntingarfull kona í síðkjól
og stígvélum að bíða í rigningunni.
Þetta fór samt allt á besta veg, og bíll-
inn var kominn aftur í gang tveimur
tímum seinna.”
Listrænn sjóari
Ólafur Kolbeinn og Rebekka hafa
þegar sýnt hluta af verkum sínum en
ekki á Íslandi enn sem komið er. „Við
vorum nýlega í Berlín og í septem-
ber verður hluti myndanna sýndur í
virtu galleríi í Noregi. Svo höfum við
líka sýnt í Helsinki.“ Ólafur Kolbeinn
segir standa til að sýna á Íslandi þegar
allt er klárt, en þau hafa einnig aðrar
áætlanir fyrir verkið. „Lokapælingin
var alltaf að gera bók. Vera með ljós-
myndir og texta. Segja frá hverjum
stað og segja einnig ferðasöguna sem
er búið að vera ótrúlegt ævintýri.“
Parið hefur sinnt verkefninu í
hjáverkum undanfarin ár. „Ég er nú yf-
irleitt á sjónum. En stundum fær mað-
ur frí og þá skreppum við og tökum
myndir,“ segir sjóarinn sem ef til vill er
listrænni en hann gefur upp í fyrstu. n
n Mynduðu allar veðurstöðvar landsins n Afskekktar náttúruperlur og ævintýri
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Ólafur Kolbeinn og Rebekka
Hafa ferðast um allt land undan-
farin ár og upplifað margt.
MyndiR RebeKKa GuðLeifSdÓttiR
„Við
lendum í
sandbleytu og
bíllinn sekkur
bláfeldur Rebekka í forgrunni
og kjóllinn góði sem sýnir hvernig
viðraði þegar myndin var tekin.
bíllinn á kaf Til stendur að gefa út bók
með myndunum og ferðasögunni.
Skálað að lokum Ólafur og Rebekka hafa nú myndað allar veðurstöðvar landsins að þeim
í Reykjavík undanskildum.
Spænsk sýn
á hrunið
Þriðjudaginn 8. júlí klukkan 17
mun spænski blaðamaðurinn
og ljósmyndarinn Eric Lluent
kynna bók sína, Islandia 2013.
Crònica d‘una decepció í Borgar-
bókasafni, Tryggvagötu 15. Bók-
in fjallar um íslenska hrunið frá
2008 til 2013 og tildrög þess að
nýja stjórnarskráin var ekki stað-
fest fyrir Alþingi árið 2013. Eric
Lluent, höfundur bókarinnar, og
blaðamaðurinn og lögmaður-
inn Xavier Rodriguez, sem hefur
verið búsettur á Íslandi síðast-
liðin níu ár, munu kynna bókina.
Kynningin fer fram á ensku. Við-
burðurinn er haldinn í samstarfi
við Katalónska húsið á Íslandi og
er opinn öllum.
Fjalla-Eyvindur
300 ára
Í tilefni þess að 300 ár eru liðin
frá fæðingu Fjalla-Eyvindar Jóns-
sonar mun Kómedíuleikhús-
ið flytja leikrit um hann í Dalbæ
á Snæfjallaströnd laugardaginn
12. júlí. Fjalla-Eyvindur er án efa
frægasti útilegumaður allra tíma
hér á landi og var í útlegð í fjóra
áratugi vegna gruns um þjófn-
að. Það er Elfar Logi Hannesson
sem túlkar sögu Fjalla-Eyvindar á
nýjan og kómískan hátt en hann
er einnig höfundur verksins. Um
tónlist sér Guðmundur Hjalta-
son og leikmynd, búningar og
leikstjórn eru í höndum Marsi-
bil G. Kristjánsdóttur. Miðaverð
er 2.900 krónur. Á undan sýn-
ingunni segir Hjörtur Þórarins-
son frá Eyvindi og konu hans,
Höllu, en nýlega gaf Ferðafélag
Íslands út bók Hjartar um úti-
legufólkið, Afreksfólk öræfanna.
Þungarokk á
Gauknum
Hollenska sveitin The Monolith
Deathcult heldur tónleika á
Gauknum í Reykjavík þriðju-
daginn 15. júlí. Þetta er í annað
sinn sem sveitin kemur hingað
til lands en hún lék á Eistnaflugi í
Neskaupstað árið 2011. Það gerir
sveitin einnig í ár. Sveitin bland-
ar saman öðrum tónlistarstefn-
um svo sem industrial, klassík
og jafnvel elektronica. Íslensku
sveitirnar Gone Postal og Ang-
ist spila með sveitinni, Angist á
báðum tónleikunum, en Gone
Postal á þeim síðari. Þess má
geta að Gone Postal mun afhjúpa
nýtt nafn á sveitinni á Eistna-
flugi um helgina og mun því bera
nýja nafnið á tónleikunum með
TMDC. Húsið opnar klukkan 18
og tónleikar byrja klukkan 18.30.
Ekkert aldurstakmark og miða-
verð er 1.500 krónur.