Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Qupperneq 36
Vikublað 8.–10. júlí 201436 Fólk
H
annes Hólmsteinn Giss-
urarson er meðal virkustu
fræðimanna á Facebook.
Á síðu sína skrifar hann
reglulega um stjórnmál
og hagfræði, einkum kapítalisma
og kosti hans. Fræðin eru þó frá-
leitt eina umfjöllunarefni Hannesar.
„Ég eyði tímanum í þrennt: vígaferli
(10%), vísindi (80%) og víndrykkju
(10%). Annað mætir afgangi,“ skrif-
ar Hannes á samskiptasíðuna og
fær fjölmörg „like“ fyrir. Stuttu síð-
ar, hugsanlega vegna undirtektanna,
bætir hann við: „Bestu kokkteilar
fyrir mat: dry martini og manhatt-
an (og kir royal fyrir stelpurnar).
Síðan með matnum: pinot noir frá
Frakklandi (eða malbec frá Argent-
ínu). Eftir matinn: viskí með sóda og
klaka.“
Þessi áfengisáhugi Hannes-
ar er ekki nýr af nálinni. Hann hef-
ur lengi haft gaman af því að drekka
fínt vín í góðum félagsskap, til dæm-
is með Davíð Oddssyni og Kjart-
ani Gunnarssyni. En þótt hann
svali nautnum sínum með þessum
hætti segist hann forðast fíknina
eins og heitan eldinn. Um þetta hef-
ur hann fjallað á bloggi sínu: „Hver
er munurinn á fíkn og nautn? Á át-
vaglinu og sælkeranum? Á ofdrykk-
umanninum og hófdrykkjumann-
inum? Ekkert eitt og endanlegt svar
er til, en samt liggja einhver ósýni-
leg og lítt skilgreinanleg mörk á milli
fíknar og nautnar. Ég ætla að reyna
að halda mér við nautnina.“
Einn drykkur sem Hannes segist
sólginn í umfram aðra er dry martini
sem áður greinir. Gerð hans get-
ur reynst óvönum þrautinni þyngri.
Hannes er með aðferðarfræðina á
hreinu og deilir henni með Face-
book-samfélaginu: „Fáir kunna að
gera góðan martini dry. Það þarf
að kæla glasið inni í ísskáp. Síðan
þarf að hræra kokkteilinn í ís, svo að
ginið eða vodkað sé nægt, en aðeins
smávegis af dry martini. Síðan er
ólífu-berið mjög mikilvægt. Kokkt-
eillinn þarf að vera svo kaldur, að létt
sindri á ísinn á glasinu.“ n
Hannes Hólmsteinn skrifar um kokkteila
Vígaferli, vísindi og víndrykkja
Hannes
Hólmsteinn
Nautnaseggur,
ekki fíkill.
Óli Stef. á VOX
Búast má við að fullt verði út úr
dyrum á VOX í hádeginu næstu
vikur. Nova býður viðskiptavinum
sínum upp á „tveir fyrir einn“-til-
boð á hlaðborðinu út júlímánuð.
Fjölmargir hafa nú þegar gripið
gæsina. Þeirra á meðal er hand-
boltahetjan og fílósóferinn Ólafur
Stefánsson. Á föstudaginn síðasta
sat hann þar að snæðingi ásamt
Einari Þorvarðarsyni, fyrrverandi
handboltamarkverði og núver-
andi framkvæmdastjóra Hand-
knattleikssambands Íslands.
Nýttu þeir sér tilboðið til hins
ítrasta og gúffuðu í sig kræsingar.
Ekki er vitað um hvað þeir ræddu
en líklegt getur talist að Ólafur
hafi frætt Einar um frumspeki,
jafnvel dulspeki.
Hafþór hleypur fyrir
ólæknandi sjúkdóm
n „Gaman að geta hjálpað til og hjálpað góðu málefni“
S
tyrkja gott málefni og láta
gott af sér leiða. Gera eitt-
hvað gott,“ segir Hafþór Júlíus
Björnsson, leikari og sterkasti
maður Íslands, um ástæður
þess að hann ákvað að hlaupa í næst-
komandi Reykjavíkurmaraþoni fyrir
Duchenne-samtökin, en duchenne er
ólæknandi vöðvarýrnunarsjúkdóm-
ur. „Ég er nú ekki mikill hlaupari sjálf-
ur en ákvað að hlaupa í þetta skiptið,“
segir Hafþór en fjölskylda hans ætlar
einnig að hlaupa með honum.
Honum finnst gaman að fá að
vera með og finnst sjálfsagt að láta
gott af sér leiða. „Já, ef ég hef tök á því
þá að sjálfsögðu geri ég það. Gaman
að geta hjálpað til og hjálpað góðu
málefni,“ segir Hafþór sem vonast
til þess að ná mörgum áheitum fyrir
samtökin. „Já, það er stefnan. Maður
hefur bara gaman af þessu.“
Báðir synirnir með duchenne
Þáttaskil urðu í lífi Sifjar Hauksdóttur
og Hjörvars Jónssonar þegar drengir
þeirra greindust með hinn ólækn-
andi duchenne-sjúkdóm þegar þeir
voru tveggja og þriggja ára. Sif er öt-
ull baráttumaður þess að finna með-
ferð og lækningu og hefur fengið
Hafþór með sér í lið til að safna fyrir
samtökin. „Þetta er ofboðslega mik-
ilvægt málefni því þetta er ólækn-
andi sjúkdómur,“ segir Sif en allar
fjárhæðir sem safnast fara í rann-
sóknir á sjúkdómnum erlendis.
Synir hennar, Baldvin Týr og
Baldur Ari, verða fjögurra og fimm
ára í haust. Sif er bjartsýn og lifir í
þeirri von að meðferð og möguleg
lækning finnist. „Tíminn skiptir öllu
máli því þessum strákum fer aftur á
hverjum degi. Á hverjum degi hrakar
þeim aðeins. Þeir hafa ekki allan tí-
mann í heiminum, þeir sem eru
fæddir í dag og greindir með þenn-
an sjúkdóm,“ segir Sif. Eingöngu
drengir fá sjúkdóminn og flestir
þeirra ná einungis tvítugsaldri.
Sif er vongóð um að þau nái að
safna ágætis fjárhæðum fyrir sam-
tökin í ár en í fyrra söfnuðu 50
hlauparar um einni milljón króna.
Með sterkasta mann Íslands og
Game of thrones-stjörnuna með sér
í liði vonast þau eftir að vekja enn
meiri athygli á mikilvægi þess að
styrkja málefnið. „Margt smátt ger-
ir eitt stórt. Það hjálpar allt,“ segir
Sif og hvetur fólk til að heita á Haf-
þór Júlíus.
Fjárframlög þróa meðferð
„Það er engin meðferð til. Það er það
sem er vandamálið. Fyrir tíu árum var
varla vitað hvað þetta væri. Nú er ver-
ið að ræða um góðar meðferðir sem
munu hægja sennilega ansi mikið á.
Maður kannski hættir að labba um
fimmtugt í staðinn fyrir tólf ára,“ seg-
ir Guðjón Reykdal Óskarsson lyfja-
fræðingur. Hann ber duchenne-sjúk-
dóminn og hefur kynnt sér málefnið
afar vel. Vegna aukinna fjárfram-
laga til rannsókna segir hann að á
næstu árum muni sennilega verða
til meðferð sem mun gera sjúkdóm-
inn bærilegri, en þó ekki lækna hann.
Duchenne-samtökin fjármagna
rannsóknir til þess að þróa slíka með-
ferð og vonandi á endanum finna
lækningu. Hann segir að lyfjafyrir-
tækin hafi ekki séð hag í að fjármagna
þessar rannsóknir og því skiptir fram-
lag almennings til samtakanna sköp-
um fyrir þá sem bera sjúkdóminn. n
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is
Ekki mikill hlaupari
Kraftakarlinum finnst gott að
geta hjálpað. Mynd Sigtryggur Ari
„Margt
smátt
gerir eitt
stórt. Það
hjálpar allt
Fengu Hafþór með
sér í lið Sif hvetur fólk
til þess að heita á Hafþór.
Mynd rAgnHEiður BjörnSdóttir.
Sérfræðingur í duchenne Guðjón segir
meðferð vera í pípunum. Mynd KriStinn MAgnúSSon
Bræðurnir Baldvin og Baldur greindust
með duchenne-sjúkdóminn þegar þeir voru
tveggja og þriggja ára.
Sjaldnar
boðið í mat
einstæðri
Söng- og leikkonan Selma
Björnsdóttir prýðir forsíðu
nýjasta tölublaðs tímaritsins
Man. Þar talar hún meðal annars
um hvernig er að vera einstæð
og henni finnist lítið mál að búa
ein með tveimur börnum. „...það
er viss pressa, þú pass ar ekki inn
þegar þú ert einn, mér hef ur til að
mynda ekki verið boðið voðal ega
oft í mat síðan ég skildi því ég er
ein og það er vand ræðal egt fyr-
ir ein hverja. Mér finnst einnig að
stund um sé komið fram við mig
af vorkunn, fólk á það til að segja
eitt hvað í þess um dúr: „Vá! Þú ert
svo dug leg!“ og „Hvernig ferðu að
þessu? Þú ert nú meiri hetj an!“
Vill mynda
íslensk kynfæri
Kynfræðingurinn Sigga Dögg
stendur fyrir myndatökum á kyn-
færum fólks. Myndirnar notar
hún við kynfræðslukennslu. „Það
eru til svo margar mýtur um kyn-
færin eins og um stærð á typpum
og hvernig píkan á að líta út og
þvíumlíkt,“ segir Sigga Dögg í við-
tali í Fréttablaðinu á mánudag.
Fyrsta myndatakan fer fram í júlí
og er nánast fullt í hana en önnur
myndataka fer fram í ágúst. Fullri
nafnleynd er heitið og þeir sem
vilja taka þátt er bent á að senda
Siggu póst á: sigga@siggadogg.is.