Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Qupperneq 37
Vikublað 8.–10. júlí 2014 Fólk 37 Fjör á landsmóti L andsmót hestamanna fór fram á Hellu um helgina. Ljós- myndari DV smellti nokkrum myndum á svæðinu en mikil stemning var þrátt fyrir að veðrið hafi ekki beint leikið við mótsgesti meiri part helgarinnar. Hestamenn skemmtu sér á Hellu Borgarar í lagi Búllan var á svæðinu. Löggan spjallar Töluverður erill var hjá lögreglu aðfaranótt laugardags. Hér spjallar hún við mótsgesti. Fjallabræður í fjöri Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar fjallabróðir sungu fyrir mótsgesti. Í brekkunni Gestir fylgdust spenntir með. Mikil gleði Það var stuð og stemning á Hellu um helgina. Gott uppeldi Edda Sif Pálsdóttir, dagskrár- gerðarkona á Stöð 2, er harð- ur stuðningsmaður ÍBV þar sem hún er ættuð úr Vestmannaeyj- um. Faðir hennar, Páll Magnús- son, fyrrverandi útvarpsstjóri, er einn harðasti stuðningsmaður ÍBV en hann var á meðal áhorf- enda í stúkunni á Ásvöllum þegar ÍBV fagnaði sínum fyrsta Íslands- meistaratitli í handbolta í vetur. Edda vinnur hörðum höndum að því að „ala upp“ samstarfsmenn sína í Skaftahlíðinni eins og hún orðar það og birti á mánu- dag myndband á Instagram af Sindra Sindrasyni úr Ísland í dag þar sem hann söng hvatningar- söngva ÍBV til heiðurs en liðið lék á mánudag í Borgunarbikarnum. Styrktartónleikar fyr- ir Unicef voru haldnir í Hörpu síðastliðinn fimmtudag. Snorri Helgason, Páll Óskar, Hjaltalín og Kaleo komu fram og mikil stemning var í húsinu enda fullt út úr dyrum. Fjölmargir lögðu leið sína á tónleik- ana og glöddust saman til styrktar góðu málefni. GLöddust fyrir Gott máLefni Sykursætar Sólborg og Ragnhildur. Glaðir Sigurpáll, Hjálmtýr og Hjalti. Glæsipíur Jóhanna, Theódóra og Sólveig. Flottar Hera og Agnes. Kampakát Stefán Jón Hafstein og Guðrún Kristín Sigurðardóttir. Vinsælir Kaleo er ein vinsælasta hljómsveit á Íslandi í dag. Þeir komu fram á tónleikunum. Glæsileg Þröstur Jón Sigurðarson og Kolbrún Pálína Helgadóttir skelltu sér á tónleikana. Veiddi lax í eystri Stjörnukokkurinn Gordon Ramsay er staddur á Íslandi en hann renndi fyrir lax í Eystri- Rangá á sunnudag. Þetta kemur fram á vefsíðunni veitingageir- inn.is en myndir af Gordon með glæsilega 78 sentímetra langa hrygnu birtust á Facebook-síðu leigutaka árinnar. Laxinn tók á Hofteigsbreiðu á svæði 4 en það þykir með betri veiðistöðum Eystra. Stjörnukokkurinn yfirgaf svo Rangárnar í þyrlu en Vísir.is greindi einnig frá því að Rams- ey hefði snætt á veitingastaðn- um Kol á Skólavörðustíg. Síðast þegar Ramsey var hér komst það í fréttir þegar hann hellti sér yfir eigendur Loftsins fyrir að reka fólk af borðum sínum til að rýma fyrir kokknum. Heltekinn af hreðjunum Egill „Gillz“ Einarsson varð hel- tekinn af stærð eistna hollenska þjálfarans Luis van Gaal eftir að sá síðarnefndi skipti um mark- vörð fyrir vítaspyrnukeppni Hollands og Kosta Ríka. Egill, sem er stuðningsmaður Manche- ster United, sem Gaal þjálfar á komandi tímabili, sagði á Twitt- er eftir að Hollendingar komust áfram: „Er einhver til í að taka það að sér að vigta punginn á Van Gaal og senda mér svo hversu mörg kg hann er?“ Í kjölfarið endurtísti Egill öllum þeim tíst- um sem hann fann er fjölluðu um hreðjar hins hugaða Hol- lendings en mjög óvanalegt þykir að skipta um markvörð rétt fyrir vítaspyrnukeppni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.