Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1953, Síða 47
Búnaðarskýrslur 1951
45*
ha, og mun það mest hafa stafað af hækkuðum styrk til ræktunar
garðlanda. Þó er talsvert minna garðland inetið til jarðabóta 1951, að-
eins 92 ha, svo sem fyrr segir.
Grjótnám. Hér verður ekki gefið sams konar yfirlit yfir grjót-
nám úr sáðreitum og túni frá upphafi þessarar aldar sem um áburðar-
hús og túnrækt. Er grjótnámið raunar ekki vitnisburður um annað en
það, hve grýtt sú jörð hefur verið, sem til ræktunar hefur verið tekin.
Þess er þó að geta, að grjótnámið hefur verið öllu minna hlutfallslega
hin siðustu ár, sökum þess að allmikill hluti grjótsins hefur verið
urðaður í jörð niður með jarðýtum, og hefur það þá ekki verið talið
og metið með grjótnámi. En síðustu 6 árin hefur grjótnámið verið
sem hér segir:
m3 m'’
1946 ....... 13 556 1949 .......... 16 583
1947 ....... 12 963 1950 .......... 22 824
1948 ....... 18 924 1951 .......... 24 493
Framræsla. Um framræslu var lengi fremur lítið hirt og fram-
ræslan lítils metin, en á siðustu árum hefur þar verið um að ræða stór-
virkustu jarðabótaframkvæmdirnar og hinar eftirtektarverðustu. Er því
ástæða til að gera yfirlit yfir það, sem gerzt hefur í þessum málum frá
aldamótum.
Framræslan hefur frá upphafi verið jöfnum höndum með opnum
skurðum og lokræsum.
Fram að 1924 voru eigi aðrir skurðir teknir á jarðabótaskýrslur en
túnvörzluskurðir og vatnsveituskurðir. Túnvörzluskurðirnir nýttust vit-
anlega mjög misjafnlega til framræslu, og framtal þeirra var aldrei á-
reiðanlegt, þar sem þeir voru metnir með öðrum girðingum. Vatnsveitu-
skurðirnir voru hins vegar einvörðungu gerðir vegna engjaræktar, aðal-
lega til aðfærslu vatns á flæðiengjar, en sums staðar þó jafnframt til fram-
ræslu eða þurrkunar engjanna. Framtal vatnsveituskurðanna er því
miður ekki fullkomið, því að skurðakerfi stóráveitanna á Suðurlandi var
ekki tekið þar með, en þær áveitur voru á sinum tíma mestu jarðræktar-
framkvæmdir landsins. En í búnaðarskýrslum eru þessir vatnsveitu-
skurðir fram taldir:
Þús. m3
1901—10, samtals ...................... 466
1911—20, „ 510
1921—30, „ 380
1931—40, ........................ 62
1941—48, „ 231
Skurðir þessir voru allir handgrafnir, nema hafi eitthvað af skurð-
gröfuskurðum verið mælt hér með tvö síðustu árin, 1947 og 1948, en
þau ár nemur þessi skurðgröftur 141 þús. m3.
Frá 1924 hafa opnir f r a m r æ s I u s k u r ð i r til túnræktar verið
taldir í jarðabótaskýrslum: