Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Side 18
föstudagur 29. ágúst 200818 Helgarblað DV
Súkkulaði er mishollt. Marga
langar mikið að finna gott súkku-
laði bráðna í munninum með
svo góðu bragði að það tekur við-
komandi til himnaríkis um stund.
Betra er að vanda valið vilji þeir
ekki stofna heilsu sinni í hættu.
Flest súkkulaði eru mjög orkurík
og full af mettaðri fitu sem hefur
afar slæm áhrif á hjarta og æðar.
Önnur súkkulaði innihalda hærra
prótínmagn og minna af mettaðri
fitu. DV kannaði innihald nokk-
urra súkkulaðitegunda.
Risahraun orkuríkast
Súkkulaðistykkin í athugun-
inni hafa mismunandi innihald.
Risahraun inniheldur mesta
magn af kaloríum, eða 575 kalor-
íur á hundrað grömm, og mesta
magn fitu og mettaðrar fitu. Mið-
að við hvað rannsóknir segja um
tengsl mettaðrar fitu og hjarta- og
æðajúkdóma telst þetta súkkulaði
mjög óhollt. Snickers, sem löng-
um hefur verið talið eitt óhollasta
súkkulaðið á markaðnum inni-
heldur hvorki mesta magn kol-
vetnis né fitu heldur mesta magn
prótíns. Það er orkuríkt en þó ekki
eins og jafn mikið magn af Prins
póló-súkkulaði sem virðist sak-
laust kexsúkkulaði. Þess má þó
geta að jafn mikið magn af mett-
aðri fitu er í þessum tveimur teg-
undum.
Fituríkt en kolvetnalítið
Bounty inniheldur mest af
viðbættum sykri og næstmesta
magn kolvetnis. Má því segja það
tiltölulega óhollt súkkulaði. Í at-
huguninni voru þrjár tegundir af
kexsúkkulaði og þrjár af súkku-
laði með ávöxtum athugaðir. Auk
tveggja naslstanga sem auglýst-
ar eru hollar. Það eru Special K
Original og Larabar. Þau súkku-
laði sem innihalda kex eru í flest-
um tilfellum með hærra hlutfall
fitu og mettaðrar fitu. Nóa Siríus-
súkkulaðiplata með hnetum og
rúsínum er mjög fiturík og eru það
hneturnar sem hækka hlutfallið
mjög. Sú súkkulaðiplata inniheld-
ur næst minnst af kolvetnum.
Dökkt er betra
Súkkulaði er ekki eingöngu
óhollt því það inniheldur ýmis vít-
amín og steinefni. Dökkt súkklaði
er ágæt uppspretta járns, magnes-
ínums og kopars auk B-vítamíns. Í
ljósu súkkkaði bætast svo við nær-
ingarefni úr mjólk svo sem kalk og
meira af B-vítamínum. Súkku-lað-
ið rýrist hins vegar af járni þar sem
mjólk er lélegur járngjafi. Súkku-
laði inniheldur fleiri efni sem hafa
áhrif á líkamann. Má þar nefna
tryptófan sem eykur serótínmagn í
heilanum en það örvar gleðistöðv-
arnar. Súkklaði getur því framkall-
að sælutilfinningu.
Neyta í hófi
Það efni í súkkulaði sem hefur
vakið mesta athygli kallast Fjöl-
fenólar en það er sagt hafa góða
andoxunareiginleika og með því
hjartaverndandi áhrif, öfugt við
mettuðu fituna í súkkulaðinu.
Sama efni er til að mynda í ávöxt-
um, grænmeti, rauðvíni og kakó-
baunum. Meira magn þessa efn-
is er að finna í dökku súkkulaði
því kakómassinn þar er meiri og í
raun meira magn en er í rauðvíni.
Því hefur verið mælt með því að
fólk fái sér dökkt súkkulaði í hófi
og fremur en ljóst. Það verður þó
að muna að súkklaði er hitaein-
ingaríkt og ætti að neyta í hófi.
Skárri kostir
Larabar og Special K eru góðir
kostir í stað súkkulaðis fyrir þá sem
vilja huga að heilsunni. Minnsta
fitan er í Special K sælgætisstöng-
unum en um leið mest af kol-
vetni. Mettaða fitan er einungis
3,5 grömm á hundrað grömm eða
mun minna en er í Larabar. Þetta
eru tveir ólíkir kostir þar sem ann-
að inniheldur kornvöru og sykur
en hitt eingöngu hnetur og þurrk-
aða ávexti. Larabar er orkuríkt en
hefur engan viðbættan sykur á
móti 35,0 grömmum í Special K.
Kannski ætti enginn að sneiða al-
veg hjá þeirri náttúrulegu gjöf sem
súkkulaði er en hafa það í huga að
allt er gott í hófi.
asdisbjorg@dv.is
Nóa kRopp
kaloríur í 100g: 542
prótín: 8,9 grömm
Fita: 31,7 grömm
Þar af mettuð: 19,9 grömm
kolvetni: 55,5 grömm
Þar af viðbættur sykur: 34,8 grömm
RiSa hRauN
kaloríur í 100g: 575
prótín: 6,0 grömm
Fita: 39,0 grömm
Þar af mettuð: 24,9 grömm
kolvetni: 50,6 grömm
pRiNS póló
kaloríur í 100g: 540
prótín: 7,4 grömm
Fita: 31,5 grömm
Þar af mettuð: 12,0 grömm
kolvetni: 56,9 grömm
Þar af viðbættur sykur: 35,0 grömm
SNickeRS
kaloríur í 100g: 477
prótín: 9,6 grömm
Fita: 22,3 grömm
Þar af mettuð: 12,0 grömm
kolvetni: 59,2 grömm
Þar af viðbættur sykur: 42,1 grömm
BouNty
kaloríur í 100g: 488
prótín: 4,8 grömm
Fita: 26,2 grömm
Þar af mettuð: 21,2 grömm
kolvetni: 58,5 grömm
Þar af viðbættur sykur: 51,1 grömm
Nóa SiRíuS RjómaSúkkulaði með
hNetum og RúSíNum
kaloríur í 100g: 567
prótín: 8,1 grömm
Fita: 37,8 grömm
Þar af mettuð: 23,4 grömm
kolvetni: 49,1 grömm
Þar af viðbættur sykur: 40,0 grömm
kellogS Special k oRigiNal
kaloríur í 100g: 402
prótín: 8,0 grömm
Fita: 8,0 grömm
Þar af mettuð: 3,5 grömm
kolvetni: 75,0 grömm
Þar af viðbættur sykur: 35,0 grömm
laRaBaR
kaloríur í 100g: 444
prótín: 6,7 grömm
Fita: 31,1 grömm
Þar af mettuð: 1,1 grömm
Kolvetni: 48,8 grömm
Súkkulaðifíklar geta vart staðist gott súkkulaði og láta
eftir sér á degi hverjum sinn uppáhaldsbita. Súkku-
laði er mjög orkuríkt og er yfir 30 prósent af því
hrein fita. Helmingur af henni er hörð fita
sem hefur slæm áhrif á hjarta og æðar. Það
inniheldur þó líka tryptófan sem eykur
serótínmagn heilans og kallar fram
gleðitilfinningu. DV skoðaði inni-
haldið í nokkrum vinsælum
súkkulaðitegundum.
óhollustan í
súkkulaðinu „Bounty inniheldur mest af viðbættum sykri og næstmesta magn kolvetnis“