Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Síða 2
Bændur í Helgafellssveit á Snæfells- nesi og forsvarsmenn Íslandspósts eru komnir í hár saman vegna deilna um niðurskurðaraðgerðir Íslands- pósts. Forsvarsmenn Íslandspósts ákváðu að hætta að keyra póstinn alla leið heim að dyrum hjá bændum. Þess vegna var verktaki sendur til að taka niður póstkassana við bóndabýl- in og setja þá upp við veginn þar sem afleggjarinn að bóndabýlunum hefst. Þetta sættu bændur sig alls ekki við og fóru því í kjölfar verktakans, tóku póstkassana upp og komu þeim aftur fyrir við býli sín. Löng vegalengd „Sumir íbúanna þurfa að keyra allt að tæpa fjóra kílómetra hvora leið til að sækja póstinn,“ segir Bene- dikt Benediktsson, oddviti Helgafells- sveitar, í samtali við DV. Íbúarnir segja það skerðingu á póstþjónustunni og að Íslandspóstur sé að níðast á lands- byggðinni með þessu. Íbúar í Helga- fellssveit hafa eins og fyrr segir gripið til þess ráðs að fjarlægja póstkassana við þjóðveginn og koma þeim aftur fyrir við heimili sín. Það hefur hins vegar mælst afar illa fyrir hjá Íslands- pósti, því Benedikt segir fulltrúa fyr- irtækisins hafa tilkynnt sveitungum hans að hann hefði lagt fram kæru vegna stuldar á póstkassa. „Ég veit ekki hvort íbúar í þéttbýli yrðu sáttir við að sækja póstinn sinn þessa vegalengd. Svo eru póstkass- arnir við þjóðveginn ólæstir, þannig að óprúttnir aðilar gætu farið í þá og sótt allan póstinn. Sumir eru að fá bankakort með pin-númeri og öllu saman sent í pósti og þetta er bara óvarið.“ Reyna að veita góða þjónustu Ágústa Hrund Steinarsdóttir, for- stöðumaður markaðs- og kynningar- deildar hjá Íslandspósti segir að reynt sé að þjónusta viðskiptavini sem best. „Við getum ekki borið út allan póst, alla daga, á öll heimili, fólk hlýtur að sjá sanngirnina í því. Munurinn á þéttbýli og dreifbýli er mikill,“ segir Ágústa Hrund. Hún bendir á að erfitt sé að veita sömu þjónustu og til dæm- is á höfuðborgarsvæðinu og á jafn víðfeðmu svæði og Helgafellssveit er. „Fyrir blaðbera sem er með þús- und hús í þéttbýli tekur miklu styttri tíma að skila póstinum af sér en fyr- ir starfsmann sem þarf að keyra tugi kílómetra á eins víðfeðmu svæði og Helgafellssveit er.“ Ágústa kannast ekki við að Ís- landspóstur hafi kært bændurna fyr- ir að fjarlægja póstkassana af sínum stað og koma þeim fyrir við býli sín. Hún segir hins vegar að bændur þurfi ekki að óttast þjófnað úr póstköss- unum. „Fólki er alveg frjálst að læsa kössunum sínum.“ Mótmæla við ráðherra Málið hefur nú verið tekið fyrir í hreppsnefnd Helgafellssveitar og hef- ur nefndin skrifað Kristjáni Möller samgönguráðherra formlegt bréf þar sem nefndin mótmælir þeirri skerð- ingu sem hefur orðið á þjónustu Ís- landspósts. „Ég vona bara að þeir bakki með þessa ákvörðun og virði okkar rétt hérna. Þeir eiga að hætta að skerða þjónustu í dreifbýlinu. Ég vil hvetja alla bændur til að færa póstkassana sína heim á bæinn þannig að við fáum póstinn heim að húsum. Þetta er nú árið 2008,“ segir Benedikt. Þetta helst föstudagur 19. september 20082 Fréttir DV - þessar fréttir bar hæst í vikunni Kjararáð hefur ákvarð- að forseta, ráðherrum og þingmönnum sína þriðju launahækkun á rétt rúmlega ári. Hækk- unin gildir fjóra mánuði aftur í tímann eða frá 1. maí síð- astliðnum. „Það finnst mér alltaf vera afskaplega leiðinlegt þegar launahækkanir eru afturvirkar. Þá finnst mér að þessar nefndir sem eru að fjalla um þetta ættu bara að vinna hraðar. Mér finnst allt- af ankannalegt þegar hækkanir eru afturvirkar,“ sagði Pétur H. Blöndal þingmaður í viðtali við DV. Hækkunin nú hljómar upp á 20.300 krónur á mánuði eða það sama og margir ríkisstarfs- menn hafa fengið. Þetta er þriðja launahækkunin sem þingmenn, ráðherrar og forseti hafa fengið á rúmlega ári. Launahækkun marga mánuði aftur í tímann fimmtudagur 18. september 200810 Fréttir Þingmenn, ráðherrar og forseti fengu samþykkta launahækkun á síðasta fundi kjararáðs. Fundurinn var haldinn undir lok síðasta mán- aðar en þá ákvað ráðið að launa- hækkunin skyldi vera afturvirk og miðast við 1. maí. Þess vegna fengu þingmenn, ráðherrar og forseti 20.300 króna launahækkun á mán- uði og 81.200 króna eingreiðslu í afturvirka launahækkun. 20.300 króna launahækkun- in sem nú var ákveðin byggist á kjarasamningum opinberra starfs- manna sem hafa flestir hverj- ir feng- ið 20.300 króna launa- hækkun. Aftur- virkn- in leiðinleg „Ef þetta er í takt við aðrar hækk- anir í kjara- samningum tel ég þetta í góðu lagi,“ seg- ir Pétur Blön- dal, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður efnahags- og skatta- nefndar Alþingis. „Það finnst mér alltaf vera afskaplega leiðinlegt þegar launahækkanir eru afturvirk- ar. Þá finnst mér að þessar nefnd- ir sem eru að fjalla um þetta ættu bara að vinna hraðar. Mér finnst alltaf ankannalegt þegar hækkanir eru afturvirkar,“ segir hann um það að launahækkunin tekur gildi nær fjórum mánuðum áður en hún var ákveðin. „Það er búið að skila þessari vinnu og það er ástæðulaust að borga fyr- ir það sem ekki á eftir að vinna.“ Þrjár launa- hækkanir Eftir launahækkunina sem ákveðin var í síðasta mánuði hafa þingmenn, ráðherrar og forseti feng- ið þrjár launahækk- anir á um það bil ári. Það hefur skilað þeim á bilinu 5,9 til 8,6 prósenta launahækkunum. Á sama tíma hefur launavísitalan hækkað um 9,3 prósent. Laun þingmanna hafa hækkað mest að prósentutölu en minnst í krónum talið, um 8,6 prósent og 44 þúsund krónur. Ráðherrar og forsætisráðherra hafa hækkað um 64 og 68 þúsund eða um tæp sjö prósent. Forseti hefur svo fengið hæstu krónutöluhækkunina eða tæpar 102 þúsund krónur sem samsvara rétt tæplega sex prósenta launahækkun. Fleiri njóta góðs af Það eru ekki aðeins forseti, þingmenn og ráðherrar sem fá aft- urvirka launahækkun núna. Sömu sögu er að segja af embættis- mönnum og prófess- orum. Fleiri stétt- ir njóta góðs af. Þannig eru laun aðstoð- armanna þingmanna á lands- byggðinni föst prósenta af laun- um þingmanna, 25 prósent. Þá mið- ast laun sumra, til að mynda borgarstjóra Reykjavíkur, við laun for- sætisráðherra. Þrátt fyrir að ákvörð- un kjararáðs hljómi upp á 20.300 krónur hækka laun margra þingmanna meira en því nemur. Það er vegna þess að laun fyr- ir nefndarformennsku, formennsku í stjórnar- andstöðuflokki og þing- flokksformennsku eru föst prósenta af þing- fararkaupinu. Þannig bætast við 3.015 til 10.150 krónur ofan á ákvörðun kjara- ráðs. „Það er búið að skila þessari vinnu og það er ástæðulaust að borga fyrir það sem ekki á eftir að vinna.“ Pétur H. Blöndal FÁ AFTURVIRKALAUNAHÆKKUN BrynjólFur Þór guðmundsson og sigurður mikAel jónsson blaðamenn skrifa: brynjolfur@dv.is og mikael@dv.is 20.300 krónur á línuna allir þingmenn og ráðherrar fengu 20.300 króna launahækkun á mánuði. Hún er afturvirk til síðasta vors, nánar tiltekið 1. maí. laun 1. janúar 2007 Hækkun 1. júlí 2007 Hækkun 1. janúar 2008 Hækkun 1. maí 2008 sAmAnlögð Hækkun launavísitala 9,3% Þingmenn 44.381 eða 8,6% ráðherrar 63.518 eða 6,8% Forsætisráðherra 68.215 eða 6,6% Forseti 101.546 eða 5,9% 51 7. 63 9 k ró nu r 92 8. 99 4 k ró nu r 1. 02 9. 99 3 k ró nu r AFTurVirk Hækkun mesta og minnsta hækkunin forsetihefur fengið lægstu prósentuhækkun allra kjörinna fulltrúa síðasta árið. Laun hans hafa hins vegar hækkað mest í krónum talið, um um það bil 100 þúsund krónur. 20.300 10.622 13.540 20.300 19.064 24.154 20.300 21.136 26.779 1. 72 5. 59 7 k ró nu r 20.300 36.381 44.865 562.020 krónur 992.512 krónur 1.098.208 krónur 1.827.143 krónur ÞiNgmeNN rÁÐHerrar fOrsÆtisrÁÐHerra fOrseti Hækka í launum mánaðarlaun forsætis-ráðherra hafa hækkað um tæpar 70 þúsund krónur á rúmu ári og laun annarra ráðherra um rúmar 60 þúsund krónur. Stöðugar fréttir af gjald- þrotum og fjöldaupp- sögnum fela að baki sér sára reynslu margra. „Atvinnuleysið fer mjög illa með mann andlega. Maður fer ofan í rosalega lægð og sjálfstraustið fer niður. Mað- ur veigrar sér jafnvel við því að sækja um stöður og kvíðir því að fara í viðtöl af því að maður er ekki upp á sitt besta,“ sagði einstæð atvinnulaus móðir í viðtali við DV. „Þetta brýtur mann bara niður. Ég er manneskja sem hef unnið mikið alla mína ævi og það eru rosalega þung spor að taka að sækja um atvinnuleysisbætur.“ Ágústína Ingvarsdóttir sagði at- vinnuleysi geta komið mjög illa við fólk en hvetur þá sem missa vinn- una til að láta ekki bugast. „Þetta snýst svolítið um að hugsa út fyrir þann ramma sem fólk er vant og sjá hugsanlega möguleika á öðrum sviðum, því það eru margir möguleikar á öðrum sviðum.“ brotna saman í atvinnuLeysi Tæplega níræður karl- maður var á fimmtudag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að beita barnabarn sitt kynferð- islegu ofbeldi yfir ellefu ára tímabil. Fyrir fimm árum steig annað barnabarn hans fram og sagði afann hafa misnotað sig. Þau brot voru þá fyrnd. Sú stúlka sagði hann hafa misnotað hana frá þriggja ára aldri og þar til hún var fjórtán ára. Lítið var talað um ásakanirnar innan fjölskyldunnar. Stúlkan, sem hann var í síðustu viku dæmdur fyrir að misnota, vissi því ekki af ásökunum frænku sinnar á hendur honum fyrr en á síðasta ári. Brotin sem þær greindu frá eru af sama toga. Fjölskyldan tvístraðist þegar málið kom upp og sagði eitt barnabarn hans fyrir dómi að afinn hefði gert allt fyrir fjölskylduna og ætti þetta ekki skilið, hún trúði ekki ásökununum. brot afa sundra fjöLskyLdu 3 Deila er sprottin upp í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Verk- taki á vegum Íslandspósts setur upp póstkassa fjarri heimilum bænda sem taka póstkassann upp og flytja aftur heim á hlað. „Sumir íbúanna þurfa að keyra allt að tæpa fjóra kílómetra hvora leið til að sækja póst- inn,“ segir Benedikt Benediktsson, oddviti Helgafellssveitar. hitt málið BÆNDUR BERJAST VIÐ PÓSTINN UM PÓSTKASSANA 2 fimmtudagur 18. september 20082 Fréttir „Þetta er í fyrsta sinn sem ég lendi í atvinnuleysi,“ segir 49 ára einstæð móðir sem lenti í því fyrir sjö mánuð- um að vera sagt upp í hópuppsögn hjá fyrirtæki í heilbrigðisgeiranum. Hún er ljósmóðir að mennt auk þess að búa að annarri menntun og hafa rekið eigið fyrirtæki um tíma. Tæki- færin eru engu að síður af skornum skammti. Hún sér fram á dimman vetur hjá sér og unglingsdóttur sinni á meðan skuldir hrannast upp og lítið glæðist á atvinnumarkaðinum. Hún segir atvinnuleysið fara mjög illa með fólk og sjálfstraustið bíði hnekki. Lenti í hópuppsögn „Ég var að vinna hjá fyrirtæki í heilbrigðisgeiranum síðustu tvö árin en lenti síðan í hópuppsögn- um mánaðamótin febrúar mars. Það var mikið áfall jafnvel þótt ég hefði hugsað mér að breyta til áður en mér var sagt upp. En ég hefði aldrei far- ið að segja upp án þess að vera búin að finna mér aðra vinnu,“ segir kon- an. Hún segir það hafa vegið á móti að hún hafi fengið laun í þrjá mán- uði eftir uppsögnina, sem hún taldi þá vera nægan tíma auk sumarfrís til að fá aðra vinnu. En sú varð ekki raunin. Víða leitað Hún skráði sig í kjölfarið hjá þremur mismunandi ráðningar- skrifstofum í von um að það hjálp- aði til við að fá vinnu, auk þess sem hún sendi inn sínar eigin umsóknir til fyrirtækja sem henni hugnaðist að starfa hjá. Allt í allt hefur hún sent yfir tuttugu umsóknir. „Fyrst um sinn leitaði ég mér að vinnu utan spítal- ans hreinlega út af því að launin þar eru svo lág að ég get ekki lifað á þeim. Þetta var í lagi í byrjun að vera í at- vinnuleit og sækja um, en svo heyrir maður að hundruð manns sækja um sömu stöður og maður er aldrei kall- aður í viðtal,“ segir konan og bendir á að á sama tíma og hún hafi verið í at- vinnuleit hafi verið að segja upp fólki víða annars staðar í samfélaginu. „Það fólk fer sömu leiðir og maður sjálfur, þannig að maður verður allt- af vonlausari og vonlausari um að fá vinnu. Tækifærin eru af skornum skammti og óvissan er mikil.“ 22 milljónir á bakinu „Ég er skráð fyrir íbúðinni minni sem ég keypti árið 2005 á 100 pró- sent lánum. Ætli ég sé ekki með 22 milljónir í skuldum sem ég þarf að borga af, ef ekki meira. Ég hef náð að fljóta þar til um síðustu mánaðamót og núna er ég komin í þrengingar hvað það varðar. Það er ekki uppörv- andi að sjá hvernig lánin hjá manni hækka um hver mánaðamót,“ seg- ir konan og bætir við að nú sé fast- eignamarkaðurinn þannig að það sé ómögulegt að selja íbúðina. Hún segir að lán sín séu ekki hjá Íbúða- lánasjóði og því standi henni ekki til boða að láta frysta þau. „Maður er eiginlega kominn út í horn með að leysa sín mál.“ Þung spor að sækja um bætur „Atvinnuleysið fer mjög illa með mann andlega. Maður fer ofan í rosalega lægð og sjálfstraustið fer niður. Maður veigrar sér jafnvel við því að sækja um stöður og kvíðir því að fara í viðtöl af því að maður er ekki upp á sitt besta. Þetta brýtur mann bara niður. Ég er manneskja sem hef unnið mikið alla mína ævi og það eru rosalega þung spor að taka að sækja um atvinnuleysisbæt- ur. Kannski er það bara þannig við- horfið hjá minni kynslóð, en þetta er það síðasta sem maður myndi gera.“ Hún segir það gott framtak hjá Vinnumálastofnun að bjóða upp á sjálfstyrkingarnámskeið fyrir fólk í hennar sporum. „Það er mjög mikil- vægt því þetta er mjög erfitt ferli fyrir fólk að ganga í gegnum.“ Vonar það besta Hvað framtíðina varðar segir hin 49 ára einstæða móðir að það eina sem hún geti gert sé að halda áfram að leita og vona það besta. „Núna eru vonandi ljósmæður að semja, en það þýðir ekki að ég fái stöðu á kvennadeildinni. Það hjálpar manni hins vegar ekki að manni virðist allt vera að hrynja í þjóðfélaginu, ég veit eiginlega ekki hvað fólk á að gera.“ Þung spor og dimmir tímar „Ég er manneskja sem hef unnið mikið alla m ína ævi og það eru rosalega þung spor að taka a ð sækja um atvinnuleysisbætur.“ Sigurður MikaeL jónSSon blaðamaður skrifar: mikael@dv.is 22 milljónir Lánin á íbúðinni hækka án afláts og viðmælandi dV er kominn út í horn. ráðþrota atvinnulaus 49 ára einstæð móðir sem er skuldum vafin segir það þung skref að sækja um atvinnuleysisbætur. fimmtudagur 18. september 2008 3 Fréttir Mikael Torfason Leitar nýrra tækifæra „Það er mjög mikið áfall fyrir fólk þegar það missir vinnuna,“ segir Ágústína Ingvarsdóttir sálfræðing- ur spurð um viðbrögð fólks við at- vinnumissi. „Það getur verið mjög lamandi og þegar það virkar þannig á einstaklinginn er hann einhvern tíma að átta sig á aðstæðum. Þegar þannig er ástatt koma alls konar tilfinningar og ósjálfráðar hugsan- ir. Efasemdir um eigin getu, hvort hægt sé að komast í gegnum þetta, ótti við framtíðina og kvíði vegna fjármálanna. Hvernig verður með húsið mitt? Fjölskyldu mína? Get ég verið fyrirvinnan sem ég var?“ Hún bendir á í því samhengi að það geti verið talsvert meira áfall fyrir karlmenn að missa vinnuna, þar sem þeir upplifi mikinn stöðu- missi við aðstæður sem þessar. „Konurnar hafa breiðara félagslegt net sem þær geta sótt stuðning í. Og þær takast á annan hátt við þetta áfall sem atvinnuleysi er.“ Getur brotið fólk niður Ágústína segir að afleiðingar uppsagna og atvinnumissis geti ver- ið mjög mismunandi fyrir fólk. „Ef ástandið er mjög slæmt kemur kvíði sem getur þróast út í þunglyndi, en sjálfsvígshugsanir koma yfirleitt ekki fyrr en staðan er orðin mjög tvísýn og viðkomandi er búinn að fá ítrek- aða höfnun. Það er að segja, ef ein- staklingur er búinn að sækja aftur og aftur um vinnu og fengið neitun. Þá getur það brotið fólk niður.“ Tækifæri til að vaxa Ágústína segir sín skilaboð til fólks sem missir vinnuna séu að líta á þetta sem tækifæri til að vaxa. „Þú uppgötvar oft ekki þinn eigin styrk fyrr en þú ert að lenda í aðstæðum sem þú bjóst ekki við. Allt í einu finnur þú þolkraft eða sveigjanleika sem þú gerðir þér ekki grein fyrir að þú byggir yfir.“ Ágústína segir mikilvægt fyrir einstaklinginn að líta á sjálfan sig og skoða í hverju hann sé sterkast- ur og hvernig hægt sé að nota þann styrkleika samhliða fyrri reynslu og menntun til að horfa á aðra starfs- möguleika. Þá jafnvel á öðrum vett- vangi en fólk hefur starfað á. „Þetta snýst svolítið um að hugsa út fyrir þann ramma sem fólk er vant og sjá hugsanlega möguleika á öðrum sviðum, því það eru margir mögu- leikar á öðrum sviðum.“ Engin skömm Það er mat Ágústínu að fólk í stéttum sem nú gangi í gegnum þrengingar geti komið með mikil- vægt innlegg í aðrar atvinnugrein- ar sem ekki sé þar fyrir. „Það eru ekki að lokast neinar dyr, heldur er umhverfið að umbreytast á annað svið. Síðan þegar þenslan kemur á nýjan leik munu ný tækifæri bjóð- ast. Í millitíðinni getur fólk verið að sanka að sér mikilvægri þekkingu og starfsreynslu,“ segir Ágústína og bætir við mikilvægum skilaboðum til handa þeim sem eiga nú um sárt að binda: „Það er hvorki skömm né neikvætt að missa vinnuna, svo lengi sem þú leyfir því ekki að ná yfirtökunum hjá þér. Þegar mót- streymi kemur er það tímabundið verkefni til að takast á við. En not- aðu tækifærið til að vaxa sem mann- eskja,“ segir Ágústína Ingvarsdóttir sálfræðingur að lokum. Ágústína Ingvarsdóttir Getur brotið fólk niður „Ég myndi alveg vilja taka þátt í einhverju og komast upp úr eigin hugarheimi um tíma,“ segir Mika- el Torfason, rithöfundur og blaða- maður, sem er um þessar mundir með augun opin fyrir atvinnutæki- færum eins og svo margir aðrir. Birtingarform atvinnuástandsins á Íslandi í dag eru mörg nú þegar þrengt hefur að. Mikael er einn af þeim sem eru í atvinnuleit þótt hann taki ástandinu heim- spekilega og af meiri ró en aðrir sem farnir eru að örvænta. „Ég er í svolítið annarri stöðu um þessar mundir af því ég hef alltaf unnið í fjölmiðlum þeg- ar það er stemning fyr- ir því og eitthvað er í gangi. En svo hef ég átt mjög auðvelt með að vera bara að dunda mér við að skrifa bók, sem ég hef verið í undan- farna 12 mánuði. En ég myndi alveg vilja taka þátt í einhverju,“ segir Mika- el. Á rithöfundalaun Hann viðurkennir að örvænt- ingin sé kannski ekki að sliga hann þótt hann hafi verið að leita sér að nýjum verkefnum á þessum síð- ustu og verstu tímum. Aðspurður hvert hugurinn stefnir segir hann að leit hans sé enn um sinn bund- inn við fjölmiðlaheiminn. „Ég er nú ekki búinn að leita annað en að láta vini mína í fjölmiðlum vita af því að ég sé opinn fyrir verkefn- um. Núna eru um tvær vikur þar til maður getur sótt um rithöfunda- laun aftur og ætli það endi ekki með því ef allt annað bregst.“ Sviptingar daglegt brauð Aðspurður hvort hann hafi áður verið í þeirri aðstöðu að vera í atvinnuleit segir Mikael að það sé bæði og. „Alltaf þegar ég er að skrifa er ég til í önnur verk- efni. Aldrei skorast undan með það. Fjölmiðlar eru þannig að þar eru sviptingar og breytingar dag- legt brauð, eins og við sjáum bara núna. Fyrir þremur árum var allt önnur staða á fjölmiðlamarkaðin- um en er í dag, eftir þrjú ár verð- ur hún enn breytt. Miðlar koma og fara og fólkið með,“ segir Mikael og bætir við að hann hafi einhvern veginn alltaf verið í þessari stöðu. Dýrt að lifa Aðspurður hvernig ástandið á Íslandi í dag komi við fjármálin hjá fjölskyldumanni eins og hon- um segir Mikael að hann sé bara í sömu aðstöðu og aðrar fjölskyldur á landinu. „Ef verðbólgan verður 100% er þetta bara búið, það gef- ur augaleið. Ég held að ég sé ekk- ert í annarri stöðu en almenningur á Íslandi í dag. Ef þú skuldar eitt- hvað ertu bara í djúpum skít, ef fram heldur sem horfir. Ef þú þarft að kaupa í matinn þarftu nán- ast að bryðja þunglyndislyf áður en þú ferð inn í stórmarkað. Bara til að halda gleðinni eftir að hafa pungað út stórfé fyrir brýnustu nauðsynjum. Ég held að allir séu bara í þeirri stöðu.“ Framtíðin óráðin „Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Kannski koma einhver skemmtileg verkefni en ef ekki hef ég alltaf mitt eigið skemmtilega verkefni sem er að skrifa bækurn- ar mínar. Þá held ég mig við það,“ segir Mikael en hann gerir ráð fyr- ir því að það eigi eftir að verða enn frekari uppstokkanir í vetur. „Það verður örugglega einhver stemn- ing fyrir því að fá mann til að hjálpa til við eitthvað.“ Góðærið ærði menn Kreppa og þrengingar horfa öðruvísi við Mikael en flestum þar sem hann segist sjá fram á að næstu mánuðir geti verið mjög krefjandi og skemmtilegir. „Því eins og góð- ærið getur verið gott fyrir budduna getur það verið leiðinlegt. Það sem þú gerir rétt í kreppunni er miklu betra,“ Mikael hefur greinilega haft gott af því að gefa úr sjálfshjálpar- bókina um Warren Buffet-aðferð- ina þar sem hann tekur kreppunni heimspekilega. „Ég held að þrátt fyrir að almenningur hafi áhyggjur af ástandinu er það fegið að þess- ari vitleysu sé lokið. Það nennir ekki að vita af Elton John í afmæl- isveislum og öðru gegndarlausu bruðli. Fólk vill bara jafnvægi og stöðugleika í staðinn.“ mikael@dv.is „Ef þú þarft að kaupa í matinn þarftu nánast að bryðja þunglyndis- lyf áður en þú ferð inn í stórmarkað.“ Engin skömm Það þarf ekki að vera neikvætt að missa vinnuna, svo lengi sem það nær ekki yfirtökunum hjá fólki. Í atvinnuleit mikael torfason er að leita sér að vinnu á markaði sem býður fá tækifæri um þessar mundir. Lamandi áhrif fólk sem missir vinnuna getur orðið þunglynt. mánudagur 15. september 20082 Fréttir Tæplega níræður karlmaður var á fimmtudag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að beita barnabarn sitt kynferðislegu ofbeldi yfir ellefu ára tímabil. Fyrir fimm árum steig ann- að barnabarn hans fram og sagði af- ann hafa misnotað sig. Þau brot voru þá fyrnd. Sú stúlka sagði hann hafa misnotað hana frá þriggja ára aldri og þar til hún var fjórtán ára. Lít- ið var talað um ásakarnirnar innan fjölskyldunnar. Stúlkan, sem hann var í síðustu viku dæmdur fyrir að misnota, vissi því ekki af ásökun- um frænku sinnar á hendur honum fyrr en á síðasta ári. Brotin sem þær greindu frá eru af sama toga. Öll fjölskyldan í uppnámi Gunnhildur Pétursdóttur, réttar- gæslumaður stúlkunnar sem hann var dæmdur fyrir að brjóta gegn, seg- ir hana hafa upplifað mikla vanlíðan. „Henni finnst líf sitt hafa staðnað. Henni fannst hún ekki geta hald- ið áfram fyrr en niðurstaða fengist í málið,“ segir Gunnhildur en hún hef- ur ekki náð tali af stúlkunni eftir að dómur féll. Hún bendir á að líf stúlkunnar sé litað af bæði ofbeldinu og réttarhöld- unum. Eins og kemur fram í dómn- um er afar mismunandi hvernig fjöl- skyldumeðlimir tóku því þegar hún steig fram og sagði frá misnotkun- inni. „Öll fjölskyldan er í uppnámi og hefur hreinlega tvístrast,“ segir Gunnhildur. Fjölskyldufundur fyrir fimm árum Eldri stúlkan, sú sem brotin gegn voru fyrnd, sagðist fyrir dómi hafa verið mjög tengd yngri frænku sinni. Hún hafði lengi reynt að komast að því hjá þeirri yngri hvort afinn hefði einnig misnotað hana. Það var í júníbyrjun í fyrra sem yngri stúlkan brotnaði saman þegar þær ræddu um afa þeirra og hún sagði frá því kynferðisofbeldi sem hann hefði beitt hana stærstan hluta lífs hennar. Fjölskyldufundur var haldinn með fullorðna fólkinu í fjöl- skyldunni eftir að ásakanir eldri stúlkunnar komu fram fyrir fimm árum, en mál- ið lítið rætt eftir það. Stúlk- an bar nú fyrir dómi að hún hefði alltaf haft á tilfinning- unni að enginn hafi trúað henni fyrr en yngri frænka hennar kom fram með sams konar ásakanir. Neitaði að heimsækja afa sinn Móðir yngri stúlk- unnar vissi af ásökun- um frænkunnar á hend- ur manninum en hana grunaði aldrei að hann hefði einnig misnotað dóttur hennar. Fyrir dómi segist hún „alltaf hafa tal- ið sig eiga besta pabba í heimi“. Móðirin bar þó fyrir dómi að eftir að amma stúlkunnar lést hafi dóttir hennar forðast sem mest hún mátti að fara í heim- sókn til afa síns og alltaf fundið upp afsakanir til þess að fara ekki til hans. Það var því eftir lát ömmu hennar sem stúlkan fór að spyrna við fótum og neita því að vera ein með afa sínum. Þá var hún orð- in fimmtán ára. Óeðlileg hegðun Faðir stúlkunnar var spurður af lögreglu hvort hann hefði ein- hverju sinni orðið þess áskynja að afinn hefði brotið gegn barnabörn- um sínum. Hann sagði þá að í kring- um 1990 hafi hann í sumarbústaðar- ferð séð afann fara með hendur inn undir klæði sonardótt- ur sinnar. „Hann hefði ekki hugs- að nánar út í þetta en séð strax að þetta væri nokkuð sem menn gera almennt ekki,“ segir í dómnum. Eftir að dóttir hans sagði frá mis- notkuninni fannst honum þó að „þau hefðu átt að vera búin að kveikja á perunni“. Stúlkan hefur sótt viðtöl í Barna- húsi og í bréfi frá sálfræðingi þaðan, sem lagt var fyrir dóminn, kom með- al annars fram að stúlkunni þyki erfitt að stærstur hluti æskuminn- inga hennar tengist kynferðislegri misnotkun af hálfu afa hennar. Skrifaði sjálfsvígsbréf Spurð um ástæður þess að hún sagði ekki frá misnotk- uninni fyrr en á síðasta ári sagðist hún í byrjun hafa ætlað að segja frá. „Ákærði hafi þá sagt nei, mamma þín gefur þig, mamma þín hatar þig, mamma þín trúir þér ekki. Það hafi alltaf verið það. Þeg- ar hún hafi verið pínulítil hafi hann sagt: „Mamma þín gef- ur þig bara.“ Hann hafi einn- ig sagt: „Þú vilt þetta.“ Svo hefði vitnið farið að skilja hvað þetta væri og hún væri að læra það í dag að kenna sjálfri sér ekki um þetta.“ Stúlkan sem maðurinn er dæmdur fyrir að brjóta gegn hef- ur þjáðst af mikilli vanlíð- an í Erla HlyNSdÓttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is FJÖLSKYLDAN TVÍSTRUÐ Neitað um Viagra afinn leitaði til læknis og óskaði eftir Viagra. Þar sem hættulegt er að taka það með sprengitöfl- um sem hann þurfti að nota fékk hann ekki lyfið. Stúlkan bar nú fyrir dómi að hún hefði alltaf haft á tilfinningunni að eng- inn hafi trúað hennifyrr en yngri frænka hennar kom fram með sams konar ásakanir. gegnum tíðina. Stuttu áður en hún greindi frænku sinni frá ofbeldinu hafði hún sagt kærasta sínum frá því. Þá sagði hún honum einnig að hún hefði eitt sinn skrifað sjálfsvígsbréf og gengið í sjóinn, en hætt við á síð- ustu stundu. Í dómi segir að hún hafi ekki haft neitt sjálfsálit þegar hún var yngri. Afi hennar niðurlægði hana mikið og sagði hana vera feita og með ljót brjóst. Þessi orð viðhafði hann þótt aðrir væru viðstaddir. Gaf henni saltpillur Fórnarlambið sem hann var dæmdur fyrir að misnota greindi frá því að hann hefði fyrst leitað á hana þegar hún var enn á leikskóla. Þá hafði hann sótt hana á leikskólann og síðan káfað á henni. Hún hætti á leikskólanum fjög- urra ára gömul og miðast dæmd brot við þann aldur. Misnotkunin stóð allt þar til stúlkan varð fimmtán ára, eða til ársins 2005. Manninum er gefið að sök að hafa í fjölmörg skipti snert kynfæri stúlunnar, farið með fingur í leg- göng hennar, látið hana fróa sér og í nokkur skipti látið hana hafa við sig munnmök. Fyrir dómi bar stúlkan að afi hennar hefði iðulega gefið henni saltpillur eftir að hann misnotaði hana. Fékk ekki Viagra Maðurinn neitaði öllum sakar- giftum fyrir Héraðsdómi Reykjaness en sekt hans þótti hafin yfir skyn- samlegan vafa og hann því dæmd- ur sekur. Maðurinn bar meðal ann- ars við getuleysi. Því hefði hann ekki getað gert margt af því sem hann hefur nú verið dæmdur fyrir. Afinn sagðist hafa orðið getulaus eftir aðgerð sem hann fór í þegar hann var um sextugt. Læknar hans voru kallaðir fyrir dóm en þeir gátu ekki staðfest að hann hefði þjáðst af getuleysi eftir viðkomandi að- gerð. Framburður mannsins var einnig mjög óstöðugur um þetta at- riði. Hann sagði ýmist að kynlöng- un sín eftir sextugt hafi verið lítil, nánast engin, eða þá hann sagðist ekki muna hvort hún hefði nokkuð breyst. Læknir mannsins staðfesti þó að hann hefði sóst eftir því að fá stinn- ingarlyfið Viagra fyrir tveimur árum og þykir það benda til þess að kyn- löngun hafi verið til staðar. Hann fékk þó ekki lyfið þar sem hann hafði farið í hjartaþræðingu og þurfti að taka sprengitöflur, en alls ekki er ráðlegt að taka þau lyf saman. Segir afann saklausan Enn eitt barnabarn afans kom fyrir dóm og sagðist hafa verið mik- ið heima hjá honum þegar hún var barn. Hún sagði sér fyndist ráð- ist ranglega á afa sinn og hann ætti þetta ekki skilið. „Hann hefði gert allt fyrir þetta fólk.“ „Vitnið kvaðst ekki trúa þessum ásökunum og sagði að ef hann hefði gert eitthvað af þessu af hverju hann hefði þá ekki byrjað á þessu við hana eða systur hennar,“ segir í dómnum. Aðspurð af hverju þessar ásakanir hefðu komið fram kvaðst hún ekki vita það en gat sér þess til að þarna hafi aðr- ir fjölskyldumeðlimir séð færi á að „hirða restina af eigum hans“. Hún bætti því við að alltaf hefði verið mikið ósætti um peningamál innan fjölskyldunnar. Dómarar sáu þó enga ástæðu til að ætla að ásakanir um kynferðisof- beldi hefðu komið fram af fjárhags- ástæðum. Móðir stúlkunnar sagði fyrir dómi að bróðir hennar hefði hætt að tala við hana eftir að ásakanir dóttur hennar komu fram og hann neiti að leggja á þær trúnað. Ekki vafi á sekt Brotin sem maðurinn er dæmd- ur fyrir framdi hann á heimili sínu og á heimili stúlkunnar, í bifreiðum er hann hafði lagt á afviknum stöðum, í sumarbústað og í hjólhýsi á ferðalagi um landið. Sekt hans þótti hins vegar hafin yfir skynsamlegan vafa og hann því dæmdur sekur. Honum var gert að greiða barnabarni sínu 1,5 millj- ónir króna í miskabætur. Auk þess á hann yfir höfði sér fjögurra ára fang- elsi. Vegna hás aldurs er þó mögulegt að hann krefjist þess að sleppa við fangelsisvist. Þess eru þó fordæmi að menn á hans aldri séu vistaðir innan veggja íslenskra fangelsa. Héraðsdómararnir Sandra Bald- vinsdóttir, Finnbogi H. Alexanders- son og Þorgeir Ingi Njálsson dóm- stjóri kváðu upp dóminn. mánudagur 15. september 2008 3 Fréttir Lærðu að koma auga á vísbendingarnar Líkamleg einkenni kynferðislegs ofbeldis eru ekki algeng. Engu að síður er full ástæða til að athuga vandlega einkenni á borð við roða, rispur og bólgur í kringum kynfæri sem og allar þvagfæra-sýkingar. Líkamleg vandamál sem tengjast kvíða; svo sem „krón-ískur“ maga- eða höfuðverkur geta einnig gert vart við sig. Einkenni tengd tilfinningum og hegðun eru mun algengari. Þau geta verið mjög misjöfn; allt frá „of fullkominni“ hegðun til skyndilegrar hlédrægni og þunglyndis eða jafnvel óskýranlegra reiðikasta, mótþróa og uppreisnar. Kynferðisleg hegðun og talsmáti sem er í engu samræmi við aldur ætti að hringja viðvörunarbjöllu. Verið engu að síður meðvituð um að hjá mörgum börnum eru bókstaflega engin sjáanleg einkenni. Ef þú verður var/vör við líkamleg einkenni sem vekja grun um kynferðislegt ofbeldi farðu þá með barnið í skoðun hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi sem hefur sér-hæft sig í kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Þegar þú bregst við upplýsingunum með reiði eða vantrú þá leiðir það oft til þess að: Barnið „lokast”. Barnið breytir sögu sinni þegar það sér reiði þína eða vantrú – þrátt fyrir að raunverulegt ofbeldi kunni að eiga sér stað. Barnið breytir frásögn sinni; sníður hana í kringum spurningar þínar. Þetta veldur því að þegar það segir söguna seinna kann sá framburður að hljóma „æfður”. Þetta getur reynst mjög skaðlegt komi málið til kasta dómstóla. Barnið fyllist enn meiri skömm og sektarkennd. Heimild: 7 skref til verndar barnabæklingur blátt áfram, gefinn út með styrk frá dómsmálaráðuneytinu. Hvert skal leita? Neyðarnúmerið 112 er opið allan sólarhringinn og er þar tekið á móti ábendingum um kynferðislegt ofbeldi. Einnig er hægt að hafa samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717. Samkvæmt barnaverndarlögum ber hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við ofbeldi eða áreitni skylda til að tilkynna það. Tvö ár í viðbót stúlkan var beitt kynferðisofbeldi af afa sínum frá því hún var á leikskóla. Þegar hún var þrettán ára steig eldri frænka hennar fram og sakaði afann um sams konar ofbeldi. stúlkan heyrði aldrei af þeim ásökunum og greindi hún sjálf ekki frá ofbeldinu fyrr en tveimur árum síðar. Beitt ofbeldi frá leikskólaaldri Karlmaður á níræðisaldri var dæmdur til fjögurra ára fangelsis- vistar fyrir að beita barnabarn sitt kynferðislegu ofbeldi í ellefu ár. Segist saklaus aldraður maðurinn hefur allaf neitað því að hafa beitt dótturdóttur sína kynferðislegu ofbeldi. Hann sagði við stúlkuna að mamma hennar myndi gefa hana ef hún segði frá. Heilsu- átak dr. Gillian McKeith Mataræði sem veitir þér vellíðan allt til æviloka H eilsuátak dr. G illian M cK eith HÓLAR Bók sem hefur bætt líðan margra. Fæst í bókabúðum. „Ég veit ekki hvort íbú- ar í þéttbýli yrðu sátt- ir við að sækja póstinn sinn þessa vegalengd.“ Erfið dreifing Ágústa Hrund segir erfitt að veita sömu póstþjónustu í dreifbýli og er veitt í þéttbýli. Beðið eftir póstinum bændur sætta sig ekki við að Íslandspóstur vilji setja upp póstkassa við afleggjarana að býlum þeirra í stað þess að keyra póstinn heim í hlað. vaLgEiR öRn RagnaRsson og Boði Logason blaðamenn skrifa: valur@dv.is og bodi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.