Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Síða 24
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 200824 Fókus u m h e l g i n a Miðasala í dag Miðasalan á þriðju minningartónleika Vilhjálms Vilhjálmssonar, betur þekktur sem Villi Vill, hefst í dag klukkan 10.00. Tónleikarnir fara fram laugardaginn 11. október klukkan 16.00 en selst hefur upp á fyrri tvenna tónleikana á mettíma. Miðaverð er frá 4.900 krónum til 11.900. Forsala fer fram á midi.is. Þrjár nýjar sýningar Þrjár nýjar sýningar voru opnaðar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús- inu, í gær. Um er að ræða sýningu á verkum eftir Erró þar sem gætir vestrænna og austrænna áhrifa, áhrifamikla innsetningu á verk- um Ingibjargar Jónsdóttur og fyrstu sýninguna í nýrri sýningaröð Hafn- arhússins þar sem tvíeykið Libia Castro og �lafur �lafsson tekst á við samfélagslega nálgun í myndlist. Þrátt fyrir formlega opnun á verki Libiu og �lafs í dag er því hvergi nærri lokið en eðli verksins felur í sér stöðuga framvindu á sýningar- tímanum. leikur og leiðangur Á sunnudaginn, 21. septem- ber, klukkan 14 er boðið upp á leiðangur og leik fyrir börn og fjölskyldur þeirra á Kjarvalsstöð- um. Leiðangurinn hefst í Norð- ursalnum þar sem komið hefur verið fyrir lítilli sýningu sem ber yfirskriftina Bragi í hólf og gólf, en þar eru gólf, veggir og loft þakin efni sem tengjast listamannin- um á einn eða annan hátt. Einnig verður farið um sýningu Braga, Augnasinfóníu, sem er í Vestur- sal og á göngum Kjarvalsstaða og brugðið á leik, sem allir geta tekið þátt í. Sýningin spannar sextíu ár í lífi Braga og eru þar til sýnis rúmlega eitt hundrað málverk sem gefa gott yfirlit yfir litríkan og afkastamikinn feril þessa ein- stæða listamanns. Bragi Ásgeirsson áritar Og meira af Braga, því að leik og leiðangri loknum, eða klukkan þrjú á sunnudag, hefst svo al- menn leiðsögn um sýningu Braga en af því tilefni mun Bragi vera á Kjarvalsstöðum og árita bók sína, Augnasinfóníu. Sýning Kjarvals- staða dregur heiti sitt af bókinni en hún er gefin út í samvinnu bókaforlagsins Opnu og Lista- safns Reykjavíkur. Bókina prýðir fjöldi mynda af verkum Braga frá öllum ferli hans og er hún seld á tilboðsverði á meðan á sýning- unni stendur. Hafið þið einhvern tímann lent í því að gera eitthvað sem virðist vera mjög sniðugt á þeim tímapunkti en horft svo til baka og hugsað „Hvað í fjandanum var ég að gera?“ Þannig hlýtur Kiefer Sutherland að líða þessa dagana eftir að hafa leikið í hrollvekjunni Mirrors. Myndin segir sögu lögregluþjóns sem er leikinn af Íslandsvininum Kiefer. Sá heitir Ben og hefur ver- ið vikið úr starfi. Hann tekur að sér starf næturvarðar í gamalli verslun. Áður en langt um líður fara undar- legir hlutir að sjást í speglunum og í kjölfarið gerast hræðilegir hlutir. Það er óhætt að segja að Mirrors falli ekki í flokk með besta efni Kief- ers. Hann er einstaklega ósannfær- andi í hlutverki Bens. Karakterinn nær engu sem kalla mætti dýpt og skyndileg reiðiköst hans eru fárán- leg svo ekki sé meira sagt. Atrið- ið þar sem Kiefer er að brenna en samt ekki fer í topp tíu yfir hallæris- leg atvik í kvikmyndum. Vissulega nær Mirrors að kalla fram smá ótta og viðbjóð hjá manni. Nokkur þrælgóð bregðuatriði er þar að finna. Ekki má gleyma einu sjúk- asta atriði hryllingsmyndasögunn- ar sem fær mann til að hugsa sig tvisvar um áður en maður lætur renna í bað aftur. En eins og með flestar svona myndir, sem eru ekki vel skrifaðar, missa þær algjörlega marks þegar óvætturinn kemur í ljós og dulúð- in er horfinn. Endir Mirrors minnti helst á Species 3. Kiefer ætti að halda sig við Twenty Four. Allavega um sinn. Ásgeir Jónsson Komm on, Kiefer! kvikmyndir mirrors Leikstjóri: Alexandre Aja. Aðalhlutverk: Amy Smart, Kiefer Sutherland, Paula Patton, Jason Flemyng. Ég er fyrst og fremst bara kall sem spilar á píanó og býr í Kópavogi,“ segir Jónas Ingi-mundarson píanóleikari þeg- ar blaðamaður spyr hann hvort hann sé ekki titlaður tónlistarráðunautur Kópavogs. „En jú, ég hlaut þann tit- il fyrir löngu síðan. Ég hef hins vegar fyrst og fremst gaman af því að upp- lifa músík með fólki. Það er nú ekki flóknara en það.“ Spjallið fer fram heima hjá Jónasi við Álfhólsveginn í Kópavogi. And- rúmsloftið er notalegt og kaffið gott. Klukkan er rúmlega eitt því Jónas vildi eiga morguninn fyrir sjálfan sig og tónlistina. Segist alltaf gera það því þrátt fyrir að hafa spilað á píanó í marga áratugi er ekki hægt að slá slöku við í undirbúningi og æfingum. Tónleikar og tónlistarkynning var enda á dagskránni hjá Jónasi í Saln- um að kvöldi þessa dags. En burtséð frá hvaða titli megi klína á Jónas kemur hann alla vega mikið nálægt starfseminni innan tónlistarlífsins í Kópavogi – og reynd- ar víða um land – og þar með Salar- ins sem hóf tíunda starfsár sitt á dög- unum. Og Jónas hefur staðið vaktina þar ásamt fleirum frá upphafi. „Allt var það háð velvilja bæjaryfirvalda að Salurinn var byggður. Og ég var kannski kallinn í brúnni, en ég er ekki Salurinn og Salurinn er ekki ég. En margt sem ég geri fer fram í Salnum,“ segir Jónas og brosir. Hann tekur hins vegar fram að sú kona sem stendur í stafni starfseminnar í Salnum sé for- stöðumaðurinn Vigdís Esradóttir. „Hún er andinn og sálin í Salnum og stjórnar starfinu með glæsibrag.“ Algjört undur Mikið er um dýrðir í dagskrá Sal- arins þennan afmælisvetur. Þar er fyrst að nefna Tíbrá-tónlistarröð- ina sem Kópavogsbær stendur að. Jónas nefnir líka til að mynda rúss- nesku listakonuna Galinu Pisarenko sem kemur til Íslands í næstu viku og heldur svokallað „masterklass“, eða meistaranámskeið, í söng 24. til 26. september. Námskeiðið er öllum opið gegn vægu gjaldi. Pisarenko hef- ur um árabil verið í fremstu röð rúss- neskra söngvara og er virtur prófessor við Tchaikovsky-tónlistarháskólann í Moskvu. „Pisarenko er einhver glæsilegasti listamaður Rússa,“ segir Jónas. „Hún var náinn samstarfsmaður Svjato- slavs Richter sem var einn af guð- sútvöldum píanistum á síðustu öld. Þetta er því mikill hvalreki fyrir okk- ur.“ Til að ítreka glæsilegan feril Pis- arenko enn frekar nefnir Jónas að Richter hafi einungis spilað með sex söngvurum alla ævina. „Það segir sína sögu að hún var ein af þessum sex og söng með Richter í um tuttugu ár. Hún er algjört undur þessi kona.“ Holdgervingur heiðarleikans Jónas nefnir fjölmarga aðra lista- menn sem munu koma fram í Salnum í vetur. Einn þeirra er lágfiðluleikari sem Jónas kynntist í Bandaríkjun- um síðasta vetur, Richard O´Neill að nafni. „Hann er alveg ótrúlega góð- ur,“ segir Jónas en O´Neill spilar hér í mars á næsta ári. Jónas nefnir líka sellóleikarann Nataliu Gutman sem spilar sólósvítur fyrir selló eftir Bach þegar nær dregur vorinu. Fyrrnefnd- ur Svjatoslav Richter kallaði hana hvorki meira né minna en holdgerv- ing heiðarleikans í tónlist. Þá er rétt að minnast á hátíðartón- leika sem fara fram núna á sunnu- daginn á sjötíu ára afmælisdegi Atla Heimis Sveinssonar tónskálds. Með þeim er Atla Heimi þakkað fyrir ein- stakt ævistarf og Íslendingum gef- inn kostur á að hlýða á tónverk hans. Tónleikarnir eru þáttur í tónleikaröð sem haldin verður víðs vegar um höf- uðborgarsvæðið í tilefni afmælisins. Allar nánari upplýsingar um dagskrá Salarins í vetur geta lesendur annars nálgast á salurinn.is. Brýtur ímyndaða múra Jónas hefur starfað sem píanó- leikari, tónlistarkennari og kórstjóri í hátt í hálfa öld. Hann hefur hald- ið fjölda tónleika á Íslandi og kom- ið fram víða í Evrópu og Bandaríkj- unum, ýmist einn eða með öðrum, einkum söngvurum. Hann hefur leikið inn á fjölda hljómplatna og hljómdiska og hefur staðið fyr- Jónas Ingimundarson hefur starfað sem píanóleikari, tónlistar- kennari og kórstjóri í hátt í hálfa öld. Í samtali við Kristján Hrafn Guðmundsson segir hann meðal annars frá tíu ára starfsafmæli Salarins og hvernig hann hefur reynt að brjóta niður ímyndaða múra milli flytjenda klassískrar tónlistar og áheyrenda. Pönkari með prestsdrauma Ekki nöldrandi kall í kópavogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.