Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Side 2
2 Fréttir 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
Kíktu á heimasíðu okkar og skoðaðu matseðilinn
!
Einn vinsælasti Kebab staðurinn á höfuðborgarsvæðinu!
www.alamir.is Hamraborg 14 a 200 Kópavogi Sími 5554885
Virkir dagar:11–21 Helgar:13–21
Uppljóstrari eltur
1 „Þeir voru greinilega búnir að elta mig í nokkurn tíma, veit
ekki hve lengi. Veit ekki hvort við
erum að tala um klukkutíma eða
daga,“ segir Smári
McCarthy, ís-
lenskur uppljóstrari
og baráttumaður
fyrir tjáningarfrelsi,
um lífsreynslu sem
hann varð fyrir í
Bandaríkjunum á
dögunum. Smári
lýsti reynslu sinni
í mánudagsblaði DV en hann er
einn þeirra þriggja Íslendinga sem
starfað hafa með Wikileaks. Hin eru
Kristinn Hrafnsson fréttamaður og
Birgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyf-
ingarinnar. Smári var einnig áreittur
af tollvörðum þegar flugvél hans
lenti í Washington.
Varað við
skógarmítlum
3 Guðjón Egilsson húsasmiður var bitinn af skógarmítli þegar hann
var í sumarleyfi í Danmörku árið 2009.
Skógarmítill er vara-
samur því hann get-
ur borið alvarlega
sýkla í fórnarlömb
sín, meðal annars
Borrelia-bakteríuna
sem getur valdið
Lyme-sjúkdómn-
um sem getur valdið
alvarlegum skaða
á taugakerfi. Guðjón er einmitt einn
þeirra sem fékk Lyme-sjúkdóminn
eftir að hafa verið bitinn. Eftir bitið
hrakaði heilsu hans mikið og um tíma
lamaðist hann að hluta. „Í dag get ég
unnið svona 15–20 mínútur á dag,“
sagði Guðjón í DV á miðvikudag.
Missti fót eftir
mistök lækna
2 Bræðurnir Davíð Bergmann Davíðsson og Arnar Snær
Davíðsson
eru sárir yfir
því að heyra
Guðbjart
Hannesson
velferðarráð-
herra tala um
að skipulagsleysi hafi átt þátt í því að
faðir þeirra, Davíð Davíðsson, 79 ára,
leið ótrúlegar kvalir í tæplega tvo ár án
þess að fá rétta greiningu hjá læknum.
Eftir að læknar höfðu upphaflega talið
að stöðugir verkir í fæti hans væru
vegna trosnaðrar hásinar, kom í ljós
í mars á þessu ári að hann var með
æxli á stærð við páskaegg númer þrjú
í fætinum. Bræðurnir lýstu lífsreynslu
föður þeirra í mánudagsblaði DV.
Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunniFréttir vikunnar
Blessun að vera
tekinn ölvaður
R
agnar Rúnar Sæmunds-
son, sjómaður og brandara-
karl, var tekinn ölvaður und-
ir stýri fyrir tæpum tveimur
árum og missti í kjölfarið bíl-
prófið í 18 mánuði. Hann vill meina
að það hafi í raun verið blessun í
dulargervi þar sem hann hafi nú öðl-
ast nýja virðingu fyrir umferðarlög-
um og reglum eftir að hafa þurft að
taka ökuprófið aftur.
Steinhissa en ánægður
Hann bendir á að allir myndu ef-
laust hafa gott af því að fara reglu-
lega í endurmenntun í akstri og um-
ferðarlögum og hvetur stjórnvöld til
íhugunar um það. „Það var hund-
leiðinlegt að lesa þessa kennslubók,
Akstur og umferð, fyrir bóklega próf-
ið, en ég las hana að ég held þrisvar.
Það var sko meira en að segja það
fyrir mig, margreyndan manninn að
svara þessum spurningum, en það
hafðist. En það merkilega við þetta
allt saman er, að eftir sit ég með meiri
virðingu fyrir umferðarlögunum. Ég
er alveg steinhissa en mjög ánægður
með þá upplifun.“
Allir gott af endurmenntun
Ragnar Rúnar er sjómaður og hef-
ur lengi haldið úti brandarasíðu á
Facebook sem hefur vakið þó nokkra
athygli en þar setur hann inn nýja
brandara daglega. Sem sjómaður
segist Ragnar reglulega fara á endur-
menntunarnámskeið sem veitti sjó-
mönnum gott aðhald og geri þá enn
meðvitaðri um öryggi sitt og reglur.
„Ég er sjómaður og við sjómennirn-
ir erum skyldaðir til að fara á sjó-
björgunarnámskeið til að öðlast sjó-
mannsréttindi. Á fimm ára fresti
þurfum við að fara á endurmenntun-
arnámskeið til að viðhalda þessari
þekkingu. Það er hægt að spyrja sig
af hverju við þurfum að læra þetta og
í þokkabót að fara í endurmenntun.
Svarið er að við öðlumst ákveðna
virðingu fyrir sjómannsstarfinu og
því sem ber að varast í starfinu. Út-
koman er sú að það verða færri
slys um borð í skipum og bátum en
áður. Af hverju ekki að hafa endur-
menntunarnámskeið í ökuskóla og
taka bílprófið aftur. Segir það sig
ekki sjálft að það yrðu færri slys í
umferðinni þegar virðingin er kom-
in fyrir umferðarlögunum? Það hafa
allir gott af því að endurmennta sig,
sama á hvaða sviði það er og þá er
aksturinn engin undantekning.“
Önnur sýn
Ragnar segist aðspurður ekki hafa
búist við að upplifa nýja virðingu fyr-
ir umferðarlögum eftir að hann var
tekinn ölvaður undir stýri á sínum
tíma. „Nei, ég átti ekki von á þess-
um viðbrögðum hjá mér. Maður var
náttúrulega fúll yfir því að hafa ver-
ið tekinn. Það var ekki fyrr en mað-
ur fór að lesa kennslubókina og lesa
um umferðarlögin að maður fékk al-
veg nýja sýn á þetta og ég fór að finna
fyrir ákveðinni virðingu fyrir umferð-
arlögunum. Mér finnst þetta miklu
merkilegra núna en áður. Áður sett-
ist maður bara upp í bíl og keyrði.“
Góð tilfinning
Ragnar segist hafa lært af reynslunni
og með hina nýju virðingu að vopni
segir hann að honum myndi aldrei
aftur detta til hugar að setjast ölvað-
ur undir stýri. „Það er alveg á hreinu.
Þetta er mikill ábyrgðarhluti að gera
svona lagað. Maður er þarna með
tæki í höndunum og heldur að það
komi ekkert fyrir mann, en það er
bara aldrei í lagi að setjast undir stýri
eftir að hafa neytt áfengis. Ekki einu
sinni eftir bara einn bjór.“
Hann segist vera meðvitaður um
að þessi afstaða hans sé ekki líkleg
til að afla honum vinsælda þar sem
margir eru væntanlega ekki til í að
fara reglulega í ökupróf. „Ég veit að ef
þið birtið þetta í DV þá verð ég ekki
vinsælasti maðurinn á Íslandi,“ segir
hann og hlær. „En mér er alveg sama,
því þessi virðing sem ég fékk er góð
tilfinning.“
n Vill að allir þurfi reglulega að fara í endurmenntun í akstri„Mér finnst þetta
miklu merkilega
núna en áður. Áður settist
maður bara upp í bíl og
keyrði.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Sáttur
Ragnar segir að
hann hafi öðlast
meiri virðingu fyrir
umferðarlögunum
eftir að hann var tekinn
ölvaður.
Varar við
gylliboðum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
varar við gylliboðum eins og þegar
heimilishjálp er boðin án endur-
gjalds. Svo virðist sem eldri borg-
urum sé boðin þessi þjónusta og
þeim að kostnaðarlausu. Í tilkynn-
ingu frá lögreglunni segir að elli-
lífeyrisþegi hafi fengið hringingu
af þessu tagi, en sá sem hringdi
sagði þjónustuna í boði tiltekinna
samtaka. Hringt var úr leyninúm-
eri, en þegar haft var samband við
umrædd samtök kannaðist enginn
við málið og þjónustan var ekki á
þeirra vegum.
Lögreglan segir rétt að vara
fólk við þessum gylliboðum enda
leiki grunur á að eitthvað annað
og verra búi þar að baki. Hún
bendir á að mikilvægt sé því að
fólk hleypi ekki ókunnugum inn
á heimili sín nema að kanna fyrst
hvort viðkomandi sé sá sem hann
segist vera. Í því felst að sannreyna
að hinn sami sé frá þeim samtök-
um sem tilgreind eru, líkt og var
gert í áðurnefndu tilviki.
Ferjuðu bangsa
til ungrar stúlku
Landsbjörg hefur staðið fyrir
hálendisvakt þetta sumarið, en
hún hófst þann 22. júní síðast-
liðinn. Í fréttatilkynningu frá
Landsbjörg segir að störf sveitanna
hafi gengið vel og ekki hafa nein
stór mál komið upp. Aðstoðar-
beiðnirnar hafa þó verið marg-
víslegar. Sem dæmi má nefna að
nokkrir meðlimir Björgunarsveitar
Hafnarfjarðar var í Emstrum og á
leið upp í Laugar á dögunum þegar
að þeim kom maður sem spurði
hvort þeir væru á leið í Laugar.
Þegar björgunarsveitar-
mennirnir játtu því, spurði maður-
inn hvort þeir gætu ferjað bangsa
til ungar stúlku sem saknaði hans
sárt.
Arna Sara, sem er fimm ára, átti
erfitt með svefn án bangsans og
tóku björgunarsveitarmenn vel í að
aðstoða manninn og var stúlkan
hæstánægð þegar hún fékk bangsa.