Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 23
stórhættuleg sólgleraugu Sturlaðist vegna svefnleysis n Flugmaður lét móðan mása um trúmál og hryðjuverkamenn C layton Osbon, flugmaður Jet- Blue-flugvélagsins, sturlaðist um borð í vél félagsins í mars vegna svefnleysis. Þetta er mat sálfræðings sem var fenginn til að meta heilsu Osbons fyrir bandarísk- um dómstólum. Atvikið varð þann 27. mars þegar vélin var á leið frá New York til Las Vegas í Bandaríkjunum. Aðstoðar- flugmaður vélarinnar, áhöfn hennar og farþegar yfirbuguðu Osbon þegar hann fór að haga sér einkennilega í flugstjórnarklefanum. Lét hann móð- an mása um trúmál og hryðjuverka- menn sem kom samstarfsmönnum Osbons í opna skjöldu. Var brugðið á það ráð að yfirbuga hann og koma honum út úr flugstjórnarklefanum. Vélinni var svo lent í Texas. Osbon var ákærður fyrir að stofna öryggi farþega í hættu en dómari mat hann ósakhæfan þegar dómur var kveðinn upp í málinu fyrir skemmstu. Í mati sálfræðings sem lagt var fyrir dóminn kom fram að Osbon hafi þjáðst af miklu svefnleysi sem olli tímabundnu sturlunarástandi. Stjórnendur JetBlue-flugfélagsins segja að vinnuálagi sé ekki um að kenna enda sé reglum um hvíld flug- manna fylgt til hins ýtrasta. Osbon jafnaði sig að fullu um það bil viku eftir atvikið en er þó enn haldið inn- ilokuðum á stofnun uns dómari úr- skurðar annað. Tíu farþegar, sem voru um borð í vélinni, höfðuðu mál á hendur flugfélaginu og krefjast bóta vegna atviksins. Fullyrða þeir að þeir hafi óttast um líf sitt og flugfélagið hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með því að leyfa Osbon að fljúga vélinni í því ástandi sem hann var. Þau mál eiga eftir að koma til kasta dómstóla. Þ að getur borgað sig að kaupa vönduð sólgleraugu sem framleidd eru af viðurkennd- um aðilum eins og Laura Musson, sautján ára bresk stúlka, komst að raun um á dögunum. Laura var hætt komin þegar hún fékk ofsafengið ofnæmi vegna sólgleraugna sem hún keypti á göngugötu á eyjunni Mallorca á Spáni. Höfuð hennar, augu og nef bólgnuðu mikið eins og sést á meðfylgjandi myndum og þegar Laura snéri aftur heim til Bretlands áttu for- eldrar hennar í stökustu vandræðum með að þekkja dóttur sína. Læknar rekja ofnæmið til plasts sem notað var í gleraugun. Varar ferðalanga við „Þetta var skelfilegt. Í hreinskilni sagt hélt ég að ég myndi deyja,“ segir Laura í samtali við breska blaðið The Daily Mail. Laura var á Spáni til að fagna útskrift sinni en með í för var systir hennar, Lucy, og annar félagi þeirra. Sá keypti sér gleraugu á sama stað og Laura og fékk hann einnig ofnæmi af gleraugunum – þó ekki eins ofsafeng- ið. Laura leitaði sér læknisaðstoðar á Spáni en áhyggjufullir foreldrar henn- ar bókuðu flug fyrir hana til Bretlands strax daginn eftir að ofnæmisvið- brögðin komu fram. Þar var hún lögð inn á sjúkrahús þar sem hún hlaut við- eigandi meðferð vegna ofnæmisins. Laura segist vilja vara aðra ferðalanga við því að kaupa sér ódýr sólgleraugu í sólarlöndum. „Eins og skrímsli“ „Ég var mjög veik. Mig svimaði og fólk hélt að ég hefði orðið fyrir hrottafenginni líkamsárás,“ segir hún. Gleraugunum sem hún keypti voru hræódýr; kostuðu einungis um 200 krónur íslenskar. Laura og ferðafé- lagar hennar fóru til Mallorca þann 28. júní síðastliðinn og vandræðin hófust um leið og Laura byrjaði að nota gler- augun. Hún hafði legið í sundlaugar- garðinum við hótelið – með gleraugun á sér – þegar hún fékk brunatilfinningu í andlitið. „Ég hélt að þetta væri vegna sólar- innar og ég brást við með því að bera á mig meiri sólarvörn. Mér fannst þetta skrýtið því ég var með sólarvörn núm- er 30,“ segir hún. Þrátt fyrir það hvarf brunatilfinn- ingin ekki og morguninn eftir var Lauru mjög brugðið þegar hún leit í spegil. „Ég leit út eins og skrímsli. And- lit vinar míns var bólgið líka.“ Laura áttaði sig ekki á að þetta væri gleraug- unum að kenna og hélt hún áfram að nota þau, ekki síst til að fela bólguna. Það var svo um kvöldið að Laura og vinur hennar urðu verulega áhyggju- full þegar vinurinn fór að kvarta um að háls hans væri á bólgna upp. Fljótlega eftir það fóru einkenni hennar einnig að versna og ákvað Laura að hringja á sjúkrabíl þegar bólgan var farin að byrgja henni sýn. Þá grunaði hana að gleraugunum væri um að kenna. Ekki þess virði „Systir mín var við góða heilsu enda hafði hún ekki notað gleraugun. Þetta hlaut að vera þeim að kenna,“ seg- ir hún. Á sjúkrahúsinu var Lauru sagt að setja kælipoka á andlitið en þegar bólgan minnkaði ekki ákvað hún að fara heim til Bretlands. „Ég vildi ekki deyja á Spáni vegna sólgleraugna. Ég hringdi grátandi í foreldra mína sem bókuðu fyrir mig flug heim strax með næstu vél,“ segir hún og bætir við að móðir hennar hafi varla trúað að þetta væri dóttir sín þegar hún tók á móti henni á flugvellinum. „Ég leit út eins og persóna úr Avatar-myndinni. Hún grét og ég grét,“ segir hún. Foreldrar hennar óku henni á næsta sjúkrahús þar sem grunur Lauru var staðfestur. Plastefni í sól- gleraugunum hafði að öllum líkind- um valdið ofnæminu. Laura er nú á góðum batavegi og bólgan minnkar dag frá degi. Hún fær þó ferðina sína, sem kostaði hátt í 100 þúsund krón- ur, ekki endurgreidda. „Þetta eyðilagði fyrir mér fríið. Ég keypti þessi gleraugu fyrir eitt pund (198 krónur) en þau hafa nú þegar kostað mig stórfé. Ekki kaupa ódýr sólgleraugu – þau eru ekki þess virði.“ Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is „Ég vildi ekki deyja á Spáni vegna sól- gleraugna. n Laura fékk mikil ofnæmisviðbrögð eftir að hafa keypt ódýr sólgleraugu Erlent 23Helgarblað 13.–15. júlí 2012 Fyrir og eftir Eins og sést bólgnaði andlit Lauru mikið upp. Í ljós kom að plast í sólgleraugunum hafði að öllum líkindum valdið ofnæminu. Á stofnun Osbon er haldið inni á stofnun uns dómari úrskurðar annað. Hann var metinn ósakhæfur. Glæsieyja til sölu Þeim sem eiga nóg af peningum stendur nú til boða að kaupa sannkallaða glæsieyju undan ströndum Skotlands. Eyjan, sem er 105 hektarar að stærð, heitir Kings Island og kostar litlar þrjár milljónir punda, eða rétt tæpar sex hundruð milljónir króna. Glæsi- legt fjögurra herbergja hús með þyrlupalli stendur á eyjunni og er það innifalið í kaupverðinu. Enginn flugvöllur er á eyjunni og því er einungis hægt að komast í hana á báti eða með þyrlu. Nú- verandi eigandi eyjunnar heitir Christian Siva-Jothy sem á tímum góðærisins átti hlut í Goldman Sachs-fjárfestingarbankanum. Þarf að hætta í draumastarfinu Hinn 47 ára Angus Kennedy frá Bretlandi hefur neyðst til að segja skilið við draumastarfið sitt sem súkkulaðismakkari. Ástæðan er sú að Angus bætti óhóflega mikið á sig af aukakílóum og ráðlögðu læknar honum að fá sér heilsu- samlegra starf. Starf Angus fólst í því að bragða á súkkulaði og skrifa greinar um það í fagtímaritið Kennedy‘s Confection. Angus landaði starfinu árið 2010 en á þeim tveimur árum sem hann starfaði við súkkulaðismökkun bætti hann á sig rúmlega fimmtán kílóum. Læknar ráðlögðu honum að hætta til að forðast það að fá hjartaáfall. Kim Dotcom gefst upp Kim Dotcom, stofnandi skráar- skiptasíðunnar megaupload.com, ætlar að fljúga til Bandaríkjanna þar sem hann er eftirlýstur fyrir stórfelld brot á höfundarréttar- lögum. Kim Dotcom, sem er þýskur ríkisborgari, hefur búið á Nýja-Sjálandi undanfarin misseri en hann var handtekinn þar í jan- úar síðastliðnum eftir að banda- ríska alríkislögreglan, FBI, lokaði skráarskiptasíðunni. Bandarísk yfirvöld vilja fá hann framseld- an og er sú krafa til meðferðar á Nýja-Sjálandi. Kim Dotcom hef- ur hins vegar samþykkt að fara sjálfviljugur til Bandaríkjanna gegn því að hann fái aðgang að bankareikningum sínum aftur. Segist hann þurfa á peningunum að halda til að geta borgað lög- fræðikostnað. Bandarísk yfirvöld fullyrða að megaupload.com hafi haft um hálfan milljarð dala af tónlistar- og kvikmyndaiðnaðin- um í Bandaríkjunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.