Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 33
Frá eymd til endurlausnar Viðtal 33Helgarblað 13.–15. júlí 2012 Brjálaði uppfinningamaðurinn Svavar segir að þegar flóðið féll hafi fjölskyldan öll verið við að samein- ast og pabbi hans, sem hann segir að hafi verið svolítið eins og „brjálaði uppfinningamaðurinn“, hafi verið að ná ákveðnu jafnvægi í lífinu. „Það er svo fyndið að pabbi var alltaf tíu árum á undan sinni samtíð og þegar internetið var að byrja var hann kom- inn með drauma fyrir internetið sem við sáum svo verða að veruleika um árið 2005. Hann talaði meira að segja um það einu sinni að loksins væri heimurinn að ná honum og hann var rosalega spenntur fyrir öllum möguleikum internetsins, en svona er þetta, þegar kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða.“ Á sjálfstýringu í mörg ár Eftir flóðið segir Svavar að hann hafi breyst töluvert. „Ég dofnaði upp eftir flóðið, ég man rosalega óljóst eftir ár- unum eftir flóð. Þetta var bara alveg rosalega vont og ég held að þessi doði hafi bara verið ég að bregðast við því. Ég var bara á sjálfstýringu í mörg ár, að reyna að bjarga mér og tókst það alveg því ég fór í háskólann og lærði heimspeki og lærði kerfisfræði í leiðinni, með heimspekinni og var að vinna með, gerði eiginlega of mik- ið. Þegar ég var orðinn 27 ára fór svo klakinn að bráðna utan af mér og ég fór allt í einu að upplifa tilfinningar og mikil þyngsli á sálinni og þá fór ég að semja lög til að losa mig frá þessu. Ég held að ég hafi annars vegar verið að reyna að uppfylla væntingar föður míns, en hann lagði mikla áherslu á að vera heiðarlegur og göfugur í sam- skiptum, og hins vegar verið að reyna hvað ég gat til að fjarlægjast hann.“ Jarðbundinn eins og mamma Svavar telur að hann sé ekki mjög ólíkur föður sínum og sé líka draum- óramaður. „Ég hef örugglega fengið jarðtenginguna frá henni mömmu, sem pabbi hafði ekki. Ég get séð um fjölskylduna mína og verið ábyrgur og passað að ekkert skorti en samt verið með loftbelginn minn uppi. Ég var seinn af stað í tónlistinni en það er bara allt í lagi því núna bý ég yfir reynslu sem ég hefði annars ekki búið yfir og þess vegna, kannski, get ég lifað af þessu þrátt fyrir að vera engin stjarna. Ég get bara látið hlutina virka fyrir mig.“ Harkaleg lending sem endaði vel Svavar var lengi vel að vinna dagvinnu með tónlistinni en hefur unnið ein- göngu sem tónlistarmaður frá árinu 2008. Að eigin sögn var hann í mjög skemmtilegri vinnu á þessum tíma en hann kynntist konunni sinni í því starfi. Það starf snérist um að tengja saman ólíka hópa í þjóð félaginu, til að mynda var Svavar með í því að hr- inda af stað verkefni þar sem tólf ára krakkar kenndu eldri borgurum á tölvur en það verk efni er nú komið í gang víðs vegar um Evrópu. „Ég gekk út úr gömlu vinnunni minni nán- ast á sama tíma og Geir H. Haarde sagði: „Guð blessi Ísland“ og ég var rosalega feginn að hafa stokkið en hafa ekki verið hrint, en lendingin var samt sem áður harkaleg en ég átti smá sparifé sem fleytti mér í gegnum fyrstu mánuðina meðan ég kom und- ir mig fótunum og svo var þetta allt í einu farið að virka.“ Listamenn eru vinnualkar „Mér finnst allt við tónlistina alveg yndislegt. Ef ég geri of mikið af ein- hverju þá get ég alveg fengið græn- ar en svo hugsa ég hvað ég sé hepp- inn að þetta sé vinnan mín og það er alveg æðislegt. Það halda margir að listamenn séu bara drekkandi latté á kaffihúsum og geri ekkert annað, en ég get fullyrt að ég hef aldrei kynnst eins duglegu fólki eins og listamönnum. Við vitum það öll sem vinnum við list að ef við vinnum ekki eins og vitleysingar þá mun þetta aldrei ganga. Það eru engar atvinnuleysisbætur fyrir okk- ur ef illa gengur. Það er líka algengur misskilning- ur að listamenn séu ekki með nein- ar útflutningstekjur og komi aldrei með neitt inn í íslenskt samfélag. Ég er til að mynda í tónleikaferðum oft á ári í Evrópu og eyði samanlagt um 2–3 mánuðum á ári erlendis og kem allatf stoltur með bunka af evr- um í bankann þegar ég kem heim.“ Nýkrýndur söngvaskáldameistari Í fyrrasumar, þegar Svavar spil- aði á hátíð í Kaupmannahöfn, komu skipuleggjendur alþjóðlegr- ar söngvaskáldakeppni að máli við hann og óskuðu eftir þátttöku hans í keppni: „Þessi keppni, Trou- badour, er mjög vinsæl og fer fram í Berlín, og Mckinley Black, einn af skipuleggjendunum, skráði mig til leiks. Keppendurnir voru alls stað- ar að úr heiminum og ég kynntist fólki frá Chile, Ástralíu, Frakklandi, Ameríku, Danmörku og fleiri lönd- um, en það voru 36 keppendur sem tóku þátt og ég stóð uppi sem sigur- vegari eftir þrjár umferðir. Ég fékk meðal annars hljóðnema í verð- laun sem ég hef notað mikið síðan.“ Frí og svo mikil vinna Í sumar ætlar Svavar að fara til Bandaríkjanna með fjölskyldunni. „Ég er að fara að spila fyrir vinkonu mína, Gerri Griswold, sem er að halda kynningu á Íslandi í Conn- ecticut og hún bauð mér að taka fjölskylduna mína með og við ætl- um að taka tíu daga frí meðfram þessari kynningu sem verður mitt fyrsta almennilega frí í langan tíma. Svo er bara nóg að gera, ég ætla að spila á Djúpavíkurdögum, og svo má nefna Act Alone-hátíðina, Melodica Festival og svo fékk ég að spreyta mig á því að semja fyrir leikrit í Þjóðleikhúsinu. Annað mjög skemmtilegt verk- efni, sem ég vinn með Aðalsteini vini mínum, er að fara í grunnskól- ana og kenna krökkunum um Stein Steinarr, syngjum og förum með ljóðin hans og mér finnst það alveg ofboðslega gaman. Það er svo gam- an að hitta þessa krakka og sérstak- lega þykir mér vænt um litlu skól- ana úti á landi, eins og skólana í Breiðdalsvík, á Húnavöllum, Borg- arfirði eystri, Stóru Tjörnum og fleiri stöðum. Þarna er svo ótrúlega fallegt lítið samfélag þar sem krakk- arnir og kennararnir eiga gott sam- band og það virðist vera svo mikil ró og værð yfir krökkunum, sem mað- ur sér ekki eins mikið hér í bænum. Ég held að börn séu svolítið eins og atóm, ef þú treður þeim öllum í lítið rými þá myndast spenna og hiti og hætta á sprengingu. Þegar þau eru færri saman þá verða þau rólegri.“ Eymd og endurlausn Svavar segist heillast af einfaldleik- anum og notar það í tónlist sinni. „Ég er ekki mikið fyrir pjátur og til- stand, því ef það er hægt að flytja lagið án alls tilstands þá vil ég það frekar en einhverja svakalega um- gjörð. Ef lagið virkar vel bara á kassagítar og rödd þá er lagið mjög gott því að ef það virkar ekki þannig þá má alveg ætla að allar viðbætur eftir það séu til að fela hvað lagið er í raun leiðinlegt,“ segir Svavar og glottir, „en auðvitað hef ég gaman af vel útsettri tónlist en ég er sjálfur bara svo mikill mínimalisti. Mér varð það ljóst um daginn að það er varla til eitt lag sem er ekki sjálfsævisögulegt, því þau eru öll tengd mér og segja mína sögu, ást- arlíf mitt og fjölskyldumál, og þá áttaði ég mig á því hvað ég er alls- ber í tónlistinni minni. Ég er rosa- lega mikill bullari en þegar kem- ur að tónlistinni minni þá langar mig ekki að vera þannig. Nýja plat- an mín, sem ég held að ég muni nefna Ölduslóð, er mjög drama- tísk en hún er dramatísk á góðan hátt því hún er um ást, gleði, fjöl- skyldu, vináttu og fyrirgefningu. Ég hef alltaf sagt að lögin mín séu um eymd og endurlausn, það er að segja ferðina frá sársauka og eymd til endurlausnar, sem er þessi til- finning þegar þú finnur að allt verður gott og hjartað frjálst,“ segir Svavar Knútur að lokum. „Þú finnur að allt verður gott og hjartað er frjálst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.