Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 41
Lífsstíll 41Helgarblað 13.–15. júlí 2012
OREO
BANANA
SÚKKULAÐIKAKA
Sími: 561 1433
Innihald: Súkkulaðibotnar, súkkulaðimousse, bláberja
sulta
, ba
nan
ar
og
O
re
ok
ex
.
Opnunartími:
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugar- og sunnudaga 8.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Slökun grennir
Gleymdu öllum erfiðum
æfingum og ströngum megr
unarkúrum. Lykillinn að því að
missa auka kílóin gæti falist í því
að liggja með fæturna upp í loft
og slaka á ef marka má nýja upp
götvun breskra vísindamanna.
Þeim hefur tekist að finna gen
sem veldur því að við þráum
sælgæti og feitan mat þegar við
erum stressuð eða undir miklu
álagi. Þetta gen hefur líka ver
ið tengt við sykursýki 2 sem er
áunnin tegund sykursýki sem
leggst yfirleitt á þá sem eru
komnir á miðjan aldur og eru yfir
kjörþyngd.
Vonast er til að þessi rann
sókn geti nýst við þróun nýs lyfs
við sykursýki en hún sýnir einnig
fram á að nauðsyn þess að finna
reglulega tíma til að slaka á.
Léttvín gegn
beinþynningu
Konur sem drekka eitt til tvö
glös af léttvíni á dag eru í minni
hættu á því að fá beinþynningu
ef marka má niðurstöður nýrr
ar bandarískrar rannsóknar.
Niðurstöðurnar leiddu í ljós að
þær konur sem drekka léttvín í
hóflegu magni í hverri viku eru
ólíklegri til að þróa með sér sjúk
dóminn en þær sem ekki drekka
áfengi.
Sjúkdómurinn leggst á þriðj
ung breskra kvenna og tólfta
hvern karlmann og verður sífellt
meira vandamál vegna hækkandi
meðalaldurs. Beinþynning veldur
því að beinin tapa sveigjanleika
sínum og verða gjörn á brotna.
Rannsóknin leiddi í ljós að
bein kvenna sem drukku eitt eða
tvö glös af víni á dag en hættu því
um stundarsakir urðu mjög fljótt
veikari og kom það vísindamönn
um töluvert á óvart. Það sem kom
vísindamönnunum einnig mikið
á óvart var að ef konurnar byrjuðu
aftur að drekka þá urðu beinin
samdægurs sveigjanlegri.
Nauthólsvíkin
n Paradís á sólardögum
V
eðurblíðan á Íslandi hefur
alveg verið með eindæm
um þetta sumarið. Lands
menn hafa fengið alveg
ótrúlega marga sólardaga
og fólk nýtur lífsins alveg til fulln
ustu. Margir á höfuðborgarsvæð
inu fara á ströndina í Nauthólsvík.
Hefur fengið Bláfánann
Ströndin í Nauthólsvík var vígð árið
2000 og árið 2001 var opnuð þjón
ustumiðstöð með búningsklefum,
baðaðstöðu og léttri veitingasölu.
Á góðum dögum getur lónið verið
15–19° heitt og pottarnir á svæðinu
eru 30–39° heitir.
Ströndin í Nauthólsvík hefur
fengið Bláfánann sem er alþjóð
leg viðurkenning sem Landvernd
hefur umboð til að veita og þýðir
að uppfyllt eru ströng skilyrði um
hreinlæti, vatnsgæði, öryggi, að
búnað og fræðslu á staðnum.
Nóg að gera fyrir alla
Hafdís Hrund Gísladóttir er ein
af þeim sem starfar í siglinga
klúbbnum í Nauthólsvík. „Síðustu
daga hefur verið nóg að gera hér á
ströndinni því veðrið hefur verið
svo gott. Svo er greinilegt að fólk er
komið í sumarfrí og kemur hingað
með fjölskyldur sínar, einnig eru
Frístundaheimili mjög dugleg að
koma hingað með hópana sína
sem er mjög skemmtilegt.
Það er alltaf eitthvað að gera,
jafnvel í rigningu og kulda því
sjósundið er alltaf í gangi sama
hvernig viðrar og það er alltaf eitt
hvað á hverjum degi.
Það er mjög virkur sjósunds
hópur í Nauthólsvík sem nýtir sér
vetraropnunina og Sjósundsfélag
ið sér um að fara með nýliða út í
sjó og leiðbeina þeim. Svo er blak
völlur á svæðinu sem fólk hefur
greiðan aðgang að, pottar og svo
eru gasgrill hér sem fólki er vel
komið að nota. Það eru fjórir verðir
starfandi á svæðinu og er starf
þeirra aðallega að vera til staðar
svo hægt sé að leita til þeirra. Það
kostar ekkert á ströndina á sumr
in og það er opið frá 10–19,“ segir
Hafdís Hrund að lokum.
Fyrir börnin Siglunes er með siglingar-
og róðrarnámskeið fyrir börn.
Gaman við sjóinn Drengur að „fleyta
kerlingar“ í fjörunni.
Sól, sól, sól Íslendingar heppnir með veðurblíðuna.
Einstök blíða
Í sól og sumaryl á góð-
um degi í Nauthólsvík.
myNd Eyþór ÁrNaSoN
allt í sandi Sandkastalar rísa í sandinum.
Busla Gaman að busla í sólinni.