Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 46
U mdeild atvik líkt og það sem átti sér stað í leik Úkra- ínu og Englands í riðla- keppni Evrópumótsins í sumar verða úr sögunni eftir að forystumenn í knattspyrnu- hreyfingunni samþykktu notkun á marklínutækni á dögunum. Tæknin verður prufukeyrð af Al- þjóðknattspyrnusambandinu, FIFA, í heimsmeistarakeppni félagsliða á næsta ári og í Álfukeppninni sem einnig verður haldin á næsta ári. Stóra prófið mun svo væntanlega verða á heimsmeistaramótinu árið 2014 sem haldið verður í Brasilíu. Mýmörg dæmi Á undanförnum árum hafa komið upp fjölmörg umdeild atvik í leikjum þar sem boltinn fer inn fyrir marklínuna en mark ekki dæmt. Það gerðist síð- ast þann 19. júní þegar Úkraínumenn skoruðu, að því er virtist, fullkomlega löglegt mark gegn Englendingum á Evrópumótinu. Dómarar leiksins sáu atvikið ekki nægjanlega vel og því hélt leikurinn áfram. Þá gerðist þetta einnig á Heimsmeistaramótinu í Suður-Afr- íku árið 2010 þegar Frank Lampard, leikmaður Englendinga, skoraði full- komlega löglegt mark gegn Þjóðverj- um í sextán liða úrslitum keppninnar. Dæmin eru mýmörg. Í kjölfarið hafa sífellt háværari raddir krafist þess að marklínutækni verði tekin upp og áður en langt um líður verður þessi tækni orðin að veruleika. Notað í enska bikarnum Á myndinni sem fylgir umfjöllun- inni er marklínutæknin útskýrð en um er að ræða tvær leiðir sem hægt verður að nota. Annars vegar svokölluð Hawk-Eye-tækni og hins vegar GoalRef-tækni. Hawk-Eye- tæknin hefur meðal annars verið prófuð á Wembley, þjóðarleikvangi Englendinga, en þar er notast við mjög fullkomnar myndavélar sem raðað er í kringum markið. Myndavélarnar eru mjög fljótar að gefa merki til dómar- ans ef boltinn fer inn fyrir línuna. Alex Horne, aðalritari enska knattspyrnu- sambandsins, hefur látið hafa eftir sér að marklínutæknin verði innleidd í ensku knattspyrnuna „svo fljótt sem auðið er“ sem gæti þýtt að hún verði að veruleika strax á næsta ári. „Það er ekki óvarlegt að áætla að þessi tækni verði tekin í notkun strax á næsta ári,“ segir hann en líklegt þykir að tækn- in verði notuð í undanúrslitaleikjum og úrslitaleik ensku bikarkeppninn- ar næsta vor sem fer fram á Wembley. Það krefst tíma og nákvæmni að setja marklínubúnaðinn upp og enn sem komið er er Wembley eini völlur- inn á Englandi með marklínutækni. Knattspyrnuhreyfingin borgar GoalRef-tæknin virðist í fljótu bragði vera töluvert flóknari en Hawk-Eye- tæknin, en í henni er notast við örflögu sem komið er fyrir inni í boltanum. FIFA mun bæði prófa Hawk-Eye-tækn- ina og GoalRef-tæknina á heimsmeist- aramóti félagsliða á næsta ári og loks á HM í Brasilíu 2014. Árangurinn af þessum prófunum mun svo líklega skera úr um hvor tæknin verði notuð í framtíðinni. Að sögn Jerome Valcke, forsvars- manns FIFA, mun kostnaðurinn við kerfin nema um 160 þúsund pund- um á hverjum velli, upphæð sem sam- svarar tæplega 32 milljónum króna. Knattspyrnuhreyfingin mun borga fyrir búnaðinn og því mun það ekki standa á félögunum að koma bún- aðinum fyrir. Þannig myndi enska knattspyrnusambandið borga fyrir búnaðinn verði hann tekinn upp í ensku úrvalsdeildinni. Blatter miður sín Sepp Blatter, forseti FIFA, hafði lengi verið mótfallinn marklínutækni, eða allt þar til atvikið á HM í Suður-Afr- íku varð þegar Englendingar skoruðu markið sem aldrei var dæmt. „Ég verð að segja, þakka þér fyrir, Lampard. Ég var gjörsamlega miður mín þegar ég varð vitni að þessu. Þetta gerðist aftur í Úkraínu,“ segir Blatter. Þó að marklínutæknin muni ekki beinlínis gjörbreyta leiknum mun hún aðstoða dómara heilmikið sem þurfa að taka ákvarðanir á svipstundu. Forsvars- menn IFAB, sambandsins sem skoð- ar lagabreytingar í sambandi við knattspyrnuna og átti frumkvæðið að marklínutækninni, segja að engar frekari breytingar séu væntanlegar. Myndavélar verði ekki notaðar til að taka ákvarðanir um önnur atvik á vell- inum, til dæmis brot eða rangstöður. 46 Sport 13.–15. júlí 2012 Helgarblað n Marklínutækni verður notuð á næstu stórmótum í knattspyrnu Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Svona virkar marklínutæknin Graphic Story Size Artist Date Reporter Research Code SOCCER-FIFA/TECHNOLOGY SOCCER-FIFA/TECHNOLOGY 10 x 16.5 cm Fabian Chan/Jim Peet 06 / 07 / 12 - Chan, Peet SPO © Copyright Reuters 2012. All rights reserved. http://www.reuters.se/media/graphics/ Örflaga Höggdeyfir Bolti Örflaga í boltanum með kerfi sem nemur rafsegulsvið. Kapall sem sendir upplýsingar í tölvubúnað. Vírar í kringum markið mynda einskonar segulsvið. Segulsvið Örflaga í boltanum lætur vita ef boltinn fer inn fyrir línuna og gefur til kynna að mark hafi verið skorað. GOALREF Bolti Ferill boltans Mark lína Markl ína Myndavélum sem tengdar eru í tölvu verður komið fyrir í kringum mörkin. Þær nema hreyfingu boltans og senda upplýsingarnar aftur í tölvuna jafn óðum. Myndavélarnar sem verða notaðar ná 500 römmum á sekúndu. Það er margfalt meiri hraði en á venju- legum myndavélum. Allar myndavélarnar nema hreyfingu boltans og til verður nákvæm þrívíddarmynd af staðsetningu boltans hverju sinni. Ef boltinn fer yfir marklínuna eru skilaboð þess efnis send í búnað sem dómarinn er með á sér, annað hvort í armbandsúr hans eða í heyrnartæki. MyndavélakerfiHAWK-EYE Marklínutæknin sem verður notuð Heimild: Reuters, Hawk-Eye Innovations, adidas „Ég verð að segja, þakka þér fyrir, Lampard. Ég var gjörsamlega miður mín þegar ég varð vitni að þessu Boltinn inni Boltinn þarf að vera kominn allur inn fyrir línuna til að mark sé dæmt. Úkraínumenn skoruðu löglegt mark gegn Englendingum á EM í sumar en dómararnir sáu boltann ekki fara inn fyrir línu. Marklínu- tæknin mun koma í veg fyrir að svona mistök endurtaki sig. Markið sem aldrei varð Á þessari mynd sést að skot Franks Lampard fór í markið gegn Þjóðverjum í sextán liða úrslitum árið 2010. Lampard hefði getað jafnað í 2–2 en í staðinn unnu Þjóðverjar 4–1. Ferguson vill einn í viðbót Sir Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, kynnti á fimmtudag nýjustu leikmenn fé- lagsins, þá Shinji Kagawa og Nick Powell. Á blaðamannafundi sem haldinn var eftir kynninguna var Ferguson meðal annars spurður hvort hann ætlaði að bæta fleiri leikmönnum í hópinn. „Mögu- lega einum,“ sagði Ferguson en meðal þeirra sem hafa verið orð- aðir við United eru Englendingur- inn Leighton Baines, Króatinn Luka Modric og Brasilíumaðurinn Lucas Moura. „Við höfum yfirleitt getað gengið frá okkar leikmanna- kaupum snemma en þegar stór- mót eru annars vegar, líkt og í ár, er það erfiðara.“ Pepsídeildin Keflavík - KR 1 - 1 0-1 Emil Atlason (‚57) 1-1 Guðmundur Steinarsson (‚64) Staðan L U J T Mörk Stig 1 KR 11 7 2 2 23:14 23 2 FH 9 6 2 1 27:9 20 3 Stjarnan 10 5 4 1 23:17 19 4 Keflavík 11 4 3 4 18:15 15 5 ÍBV 9 4 2 3 17:9 14 6 Breiðablik 10 4 2 4 8:12 14 7 ÍA 10 4 2 4 14:22 14 8 Fylkir 10 3 4 3 12:18 13 9 Valur 10 4 0 6 13:14 12 10 Fram 10 3 0 7 11:16 9 11 Selfoss 10 2 2 6 13:20 8 12 Grindavík 10 1 3 6 14:27 6 FH og Þór áfram en ÍBV úr leik FH-ingar lögðu  Eschen/Mauren frá Liechtenstein að velli í síðari leik liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar á fimmtu- dagskvöld. Leikurinn endaði með 1–0 sigri FH en fyrri leikurinn end- aði með 2–1 sigri Hafnfirðinga. FH-liðsins bíður verðugt verk- efni því það mætir AIK frá Svíþjóð í næstu umferð. Þór frá Akur- eyri lagði Bohemians frá Írlandi að velli, 5–1 á Akureyri í sömu keppni. Fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Þórsar- ar mæta Mladá Boleslav frá Tékk- landi í annarri umferð. Eyjamenn lögðu írska liðið St. Patricks að velli 2–1 í Vestmannaeyjum en það dugði ekki til. Írarnir unnu fyrri leikinn 1–0 og komast áfram á útivallar markinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.