Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 28
28 Viðtal 13.–15. júlí 2012 Helgarblað Þ etta var eitt af fyrstu stóru viðtölunum mínum,“ segir blaða­ maðurinn Björk Eiðs­ dóttir í samtali við DV. Segja má að viðtalið sem hún tók við Lovísu Guðmunds­ dóttur, fyrrverandi nektar­ dansmey á Goldfinger, hafi fylgt henni allt frá því hún, ný­ útskrifuð úr fjölmiðlafræði, steig fyrst fæti inn á ritstjórn Vikunnar fyrir um fimm árum og til dagsins í dag þegar dóm­ ur Mannréttindadómstóls Evrópu féll henni í hag. Björk var dæmd fyrir um­ fjöllunina í Hæstarétti árið 2009, en hafði áður verið sýknuð í héraði. Í viðtalinu lýsti Lovísa reynslu sinni sem nekt­ ardansmey á Goldfinger og sagði meðal annars að vændi hefði verið stundað á staðn­ um með fullri vitund eigand­ ans, Ásgeirs Þórs Davíðssonar, og að mikill þrýstingur hefði verið á dansarana að stunda slíkt. Ásgeir, eða Geiri á Gold­ finger, eins og hann var jafn­ an kallaður, fór í kjölfarið í mál við Björk og útgefendur Vik­ unnar. Því máli lauk með því að Björk var persónulega gert að greiða Geira hálfa milljón í miskabætur auk málskostn­ aðar. „Þetta mál var einhvern veginn ógeðfellt að öllu leyti,“ segir Björk í samtali við DV. Í yfirlýsingu frá Elínu Arn­ ar ritstjóra Vikunnar og Björk í kjölfar dómsins sagði að dómurinn ætti eftir að breyta verulega starfsumhverfi blaða­ manna á Íslandi. Það reyndist rétt því í kjölfarið féll fjöldi svipaðra dóma, þar sem blaða­ menn voru dæmdir fyrir um­ mæli viðmælenda sinna. Ís­ lenskir dómstólar dæmdu næstu ár eftir því dómafor­ dæmi sem gefið hafði verið í máli Bjarkar og var oft vitnað til máls hennar í dómsölum. Þannig var Erla Hlynsdóttir dæmd á sömu forsendum fyrir umfjöllun um nektardansstað­ inn Strawberries, og ummæli sem fram komu í þeirri um­ fjöllun. „Mér fannst ömurlegt að vita til þess að það væri vís­ að í málið mitt þegar verið var að dæma aðra. Það var vond tilfinning,“ segir Björk. Þarf stöðugt nýjar áskoranir Við hittumst á sólríkum degi og fáum okkur kaffibolla á Kjar­ valsstöðum. Það er bjart yfir Björk sem stendur nú á öðr­ um tímamótum í lífi sínu, er hætt hjá Vikunni þar sem hún hefur starfað síðan árið 2007, og hefur tekið við sem ritstjóri tímaritsins Séð og Heyrt. Hún hefur nýlokið vinnudegi sín­ um þegar við hittumst og er að vonum spennt, enda fyrsta blaðið undir hennar ritstjórn á leið í prent. Maður þarf ekki að sitja lengi og spjalla við Björk til að komast að því að þar fer upptekin kona. Auk þess að sinna starfi ritstjóra, sem Björk segir að þýði til dæmis að hún sé ávallt við símann, held­ ur þessi 38 ára gamla baráttu­ kona stærðar heimili, ásamt börnunum sínum þremur, þeim Blæ, Birtu og Eiði Breka. Hún gerir þó ekki mikið úr álaginu, segist vera með „dass“ af athyglisbresti og ofvirkni, og þurfi ávallt að hafa nóg fyrir stafni, þess vegna henti blaða­ mennskan henni vel. „Þetta er starf sem er aldrei eins, þú ert alltaf að hitta nýtt fólk og taka á mismunandi málefnum, þetta er áskorun og ég held ég þurfi stanslaust að vera að takast á við nýj­ ar áskoranir,“ segir Björk. Hún segir í raun að allt sem viðkomi fjölmiðlum heilli hana, „fjöl­ miðlar eru yfir höfuð skemmti­ legir, það að miðla til fólks spennandi hlutum, einhverju sem það veit kannski ekki af.“ Æskudraumurinn Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í vikunni að íslenska ríkið hefði brotið á mannréttindum Bjark­ ar og Erlu með dómunum og er ríkinu gert að greiða þeim skaðabætur sem nema um tíu milljónum króna alls. Sá peningur mun að sögn Bjark­ ar renna meira og minna upp í málskostnað síðustu ára. Þá kemur fram í niðurstöðunni að með dómunum tveimur hafi mögulega verið komið í veg fyrir frekari umfjöllun um við­ kvæm mál sem eiga erindi við almenning, eins og umfjöllun um nektardansstaði og man­ sal. Dómur Mannréttinda­ dómstólsins er fordæmisgef­ andi og búast má við því að í kjölfarið muni fleiri blaða­ menn leita réttar síns gagnvart íslenska ríkinu vegna svipaðra dóma. „Þetta sýnir að þetta er hægt, það er til æðri dómstóll sem getur dregið aðeins niður í þessum dómurum hér,“ seg­ ir Björk sem er í skýjunum yfir nýföllnum dómi. Björk segir mér frá því að draumur hennar hafi alltaf ver­ ið sá að starfa í blaðamennsku, og það sé kannski þess vegna sem hún hafi verið jafn trygg starfinu og raun ber vitni þrátt fyrir ýmsar mótbárur. „Við vor­ um einmitt að tala um það vin­ konurnar, hvert maður fór í starfsþjálfun þegar maður var í grunnskóla, og ég fór sko í Þjóðleikhúsið og á RÚV.“ Leiðin að blaðamennskunni var krók­ ótt en þangað komst Björk á endanum og það svo eftir var tekið. Björk reyndi fyrir sér í ís­ lenskunámi í Háskóla Íslands stuttu eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn. „Ég hætti fljótlega þar, enda var ég einstæð móð­ ir og hafði ekki efni á að vera eingöngu í námi.“ Hún vann næstu árin, meðal annars sem flugfreyja í innanlandsflugi og lýsir því starfi sem einhverju því þægilegasta sem hún hafi unnið við. Ævintýri í Alabama Líf hennar tók svo óvænta en kærkomna stefnubreytingu eftir að hún kynntist fyrr­ verandi eiginmanni sínum, knattspyrnumanninum Bjarka Frey Guðmundssyni. Eftir að honum var boðin staða í há­ skólaliði í fótbolta í höfuðstað Alabama fylkis í Bandaríkj­ unum, Montgomery, létu þau slag standa og færðu sig um set, til vesturheims. Þar nam Björk fjölmiðlafræði eins og hana hafði alltaf langað til, en á þessum tíma var ekki hægt að nema fjölmiðlafræði til BA­ gráðu hér á landi. Hún seg­ ir dvölina og námið hafa ver­ ið henni afar lærdómsríkt. Eitt af því sem vakti athygli hennar var það hversu mikill rasismi fái að þrífast í hinu djúpa suðri þarna vestra. „Maður hefur al­ gjörlega aðra sýn eftir að hafa lært þarna.“ Björk eignaðist sitt þriðja barn í september 2006, nokkrum mánuðum áður en hún útskrifaðist úr fjölmiðla­ fræðinni í Alabama og hélt heim þar sem hún hóf störf hjá Vikunni. Eftir einungis nokkurra vikna starf birtist viðtalið við Lovísu sem breytti öllu. „Draumurinn var að verða rannsóknarblaðamað­ ur en síðan áttaði ég mig á því að það er ekkert endilega mik­ ið pláss fyrir þá á Íslandi,“ segir Björk. Hún segir íslenska fjöl­ miðla í fyrsta lagi ekki nógu fjárhagslega burðuga til þess að reka alvöru rannsóknar­ blaðamennsku, og þegar skrítnir dómar leggist ofan á, sé voðinn vís. „Raunveruleik­ inn var annar en það sem ég lærði í Bandaríkjunum, þó svo að bandarískt fjölmiðlaum­ hverfi sé langt frá því að vera fullkomið.“ Finnur mikinn stuðning Við röltum um Klambra­ túnið og ræðum hinn nýfallna dóm. Hún viðurkennir að það hafi verið ánægjulegt að líta á dóminn þegar hún fékk hann í hendurnar; „eitt lítið peð sem sigraði ríkið,“ segir hún og hlær. Hún segir frá því að daginn áður hafði hún staðið í bakaríi þegar síminn henn­ ar fór að pípa óeðlilega mik­ ið. „Ég tók upp símann til þess að skoða hvað væri eiginlega í gangi og sá að fjöldi fólks, sumt sem ég er ekkert endi­ lega í miklum samskiptum við, var farið að tagga mig á feis­ búkk.“ Hún áttaði sig fljótlega á því hvernig var í pottinn búið. Fréttir um dóminn voru komn­ ar á netið og þær vöktu strax mikla athygli á samskipta­ vefnum. „Þetta voru auðvitað alveg hreint æðislegar fréttir. Þegar ég labbaði út úr bakarí­ inu hringdi fyrsti fjölmiðillinn og síminn stoppaði ekki eftir það,“ segir Björk sem var sama dag að skila af sér fyrsta blað­ inu sínu sem ritstjóri Séð og heyrt. „Þannig að ég var pínu­ lítið búin á því um kvöldið, en dagurinn var skemmtilegur þó að maður hafi verið svolítið tættur. Tíundi júlí verður alltaf eftirminnilegur og góður dag­ ur í mínum huga.“ Fjöldi fólks hefur fagn­ að niðurstöðu Mannréttinda­ dómstólsins síðustu daga. Þannig sagðist Hjálmar Jóns­ son, formaður Blaðamanna­ félags Íslands, sem studdi blaðamennina í málarekstrin­ um, vera mjög ánægður með niðurstöðuna. „Ég held að þetta sé merkur dagur í sögu tjáningarfrelsis á Íslandi,“ sagði Hjálmar og bætti við að íslenskir dómstólar hefðu því miður umgengist tjáningar­ frelsið af allt of lítilli virðingu. Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri DV fagnaði dómnum á bloggsíðu sinni og sagði hann marka endalok þeirrar póli­ tísku herferðar sem dómara­ Hún sigraði íslenska ríkið fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu eftir fimm ára baráttu. Ís- lenskir dómstólar dæmdu hana til hárra fjársekta fyrir blaðaskrif. Í kjölfarið kallaði nafn- togaður lögfræðingur hana og kollega hennar, síbrotamenn. Dómarnir ofbuðu alltaf rétt- lætiskenndinni, segir blaðamaðurinn og núverandi ritstjórinn, Björk Eiðsdóttir, í ítarlegu viðtali við DV. Þessi einstæða þriggja barna móðir segir meðal annars frá æskudraumnum um blaðamennskuna, metnaðinum sem hún hefur í starfi, skilnaðinum við barnsföður sinn og morgunklúbbnum sem skiptir öllu máli þegar erfiðleikar steðja að í lífinu. Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Viðtal Við Vorum kölluð síbrota- men „Maður þorir ekkert að fjalla um hvað sem er eftir að hafa fengið svona dóm á sig Töffari Björk Eiðsdóttir á tvo eldri bræður og segir alla geta staðfest að það gerir unga stúlku að töffara. myndir jg „Ég vona það Björk mín, að þú lendir ekki í nein- um leiðindum vegna þess sem þú ert að fara að skrifa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.