Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 34
34 13.–15. júlí 2012 Helgarblað Stórafmæli Rúnar Sigurkarlsson 60 ára 13. júlí 51 árs 15. júlí Íslandsvinurinn sem fékk óskarinn fyrir The Last King of Scotland, Forest Whitaker. 39 ára 15. júlí Eiginmaður Megan Fox og leikari í Beverly Hills, Brian Austin Green. 70 ára 13. júlí Star Wars stjarnan og Indiana Jones goðsögnin Harrison Ford. Merkis- atburðir 13. júlí 1465 - Orrustan við Montlhéry: Her Loðvíks 11. Frakkakonungs beið næstum því ósigur fyrir her Karls af Búrgund. 1793 - Charlotte Corday myrti franska byltingarsinnann Jean- Paul Marat í baðinu hans. Hún var tekin af lífi með fallöxi fjórum dögum seinna. 1832 - Henry Rowe Schoolcraft kom að upptök- um Miss- issippifljóts. 1837 - Viktor- ía Bretadrottning flutti inn í Buckinghamhöll, fyrst enskra þjóðhöfðingja. 1878 - Serbía fékk sjálfstæði frá Tyrkjaveldi með Berlínarsátt- málanum. 1985 - LiveAid-tónleikarnir fóru fram á nokkrum stöðum um heiminn. Þeir áttu að vera mikilvægur liður í að styrkja stöðu bágstaddra í Afríku. 2005 - Fyrrverandi for- stjóri WorldCom, Bernard Ebbers, var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir þátt sinn í einu stærsta fjársvika- máli í sögu Bandaríkjanna. 14. júlí 1789 - Ba- stilludagur- inn: Franska byltingin hófst þegar Parísarbúar réðust á Bastilluna. 1929 - Varðskipið Ægir var keypt fyrir Landhelgisgæsluna. 1948 - Palmiro Togliatti, leiðtogi ítalska kommúnista- flokksins, var skotinn rétt fyrir utan þinghúsið. 1958 - Þjóðernissinnar steyptu konungi Íraks af stóli í íröksku byltingunni. 1971 - Viðreisnarstjórnin lét af völdum eftir tólf ára stjórnarsetu eftir kosningaósigur í kosningun- um daginn áður. 1974 - Hringvegurinn var full- gerður með opnun Skeiðarár- brúar. 2006 - Dómur féll í ítalska úrvalsdeildarhneykslinu: Liðin S. S. Lazio, Juventus og Fior- entina voru felld niður um deild. Dómnum var síðar áfrýjað og refsingar mildaðar. 15. júlí 1099 - Krossfarar í fyrstu kross- ferðinni unnu Jerúsalem eftir mánaðarlangt umsátur og myrtu nánast alla íbúa borgarinnar. 1240 - Rússneski furstinn Alex- ander Nevskíj sigraði Svía í orrust- unni við Nevu. 1410 - Pólverjar og Litháar sigr- uðu her þýsku riddaranna í orrust- unni við Tannenberg. 1435 - Danakonungur samdi um frið við greifana í Holtsetalandi. 1567 - María Stúart beið ósigur fyrir skoska aðlin- um við Carberry Hill og var fangelsuð í Loch Leven-kastala. 1870 - Manitoba varð fylki í Kanada. 1958 - Tilraun Meselsons og Stahl birtist í PNAS, en með henni sýndu Matthew Mesel- son og Franklin Stahl fram á að lífverur tvöfalda erfðaefni sitt með því að afrita hvorn DNA- þráðinn fyrir sig. 1983 - Leikjatölvan Nintendo Entertainment System kom fyrst á markað í Japan. Það er einfalt að skrifa á kökur n Ekki eins flókið og það lítur út fyrir að vera Þ að er ótrúlega ein­ falt að skrifa á kökur. Margir láta það vaxa sér í augum og halda að það geti ekki mögu­ lega heppnast hjá þeim, en það er ekki jafnflókið og það lítur út fyrir. 1 Fylltu sprautuna sem þú ætlar að nota með bráðnu súkkulaði eða lituðu kremi. Passaðu að hafa stútinn mjög þröngan svo stafirnir verði ekki of breiðir. Ef þú átt ekki sprautu er gott að nota lítinn plastpoka (helst með rennilás) og setja kremið í hann og klippa pínulítið gat í hornið öðrum megin. 2 Merktu, með tannstöngli, hvar orðin eiga að byrja og enda í beinni línu. 3 Notaðu tannstöngulinn til að skrifa textann í kremið á kökunni. Mundu að það er ekkert mál að slétta yfir kremið og byrja upp á nýtt ef mistök eiga sér stað. 4 Æfðu þig fyrst að skrifa á disk eða plötu. Þá verður þú öruggari þegar þú byrjar og eins veistu hvað þú þarft að beita mikl- um þrýstingi til að kremið komi út. 5 Skrifaðu á kökuna með þeirri hönd sem þú skrifar með. Notaðu svo hina höndina til að styðja við pokann/sprautuna. Kemur víða við á afmælisdaginn R únar Sigurkarlsson verður sextugur á föstudaginn. Hann mun halda upp á stórafmælið í Stykkis­ hólmi þar sem hann og kon­ an hans eiga lítið hús. En þótt Rúnar eigi hús í Stykkishólmi er hann búsettur í Kópavogi. „Ég er fæddur í Reykjavík. Þegar ég var þriggja ára flutti ég í Kópavoginn. Þá var Kópa­ vogur allt öðru vísi en hann er núna; menn voru með rollur og hænur úti í garði og um­ hverfið nokkuð sveitalegt. Þá þótti mönnum varla hægt að flytja á mölina nema að hafa með sér nokkrar rollur.“ Rúnar hefur fengist við ýmislegt tengt heilsufæði og börnum með sérþarf­ ir. Um tvítugt hóf hann störf á barnageðdeild við Dal­ braut og vann þar í þrjú ár. Á þeim tíma kynntist hann Hildi, konunni sinni. „Síðan þá höfum við verið óaðskilj­ anleg. Við kynntumst í gamla Sigtúni sem nú er Nasa. Þess vegna er ég alveg sammála Páli Óskari um að ekki megi rífa Nasa.“ Ætlaði að verða lífrænn bóndi Því næst hóf hann störf á Heilsuhælinu í Hveragerði við garðyrkju og svo á Sólheim­ um í Grímsnesi. „Um langt skeið ætlaði ég að verða líf­ rænn bóndi og fór þess vegna að vinna í Hveragerði. Þegar ég vann á Sólheimum ákvað ég að læra uppeldisfræði í Sví­ þjóð. Lífið í Svíþjóð var dá­ samlegt. Fjölskyldulífið þar er svo gott, sérstaklega þegar maður er með lítil börn. Við áttum eitt barn þegar við flutt­ um til Svíþjóðar og eignuð­ umst tvö börn þar úti.“ Stofnaði Yggdrasil Eftir að við fluttum aftur heim til Íslands ákváðum við að stofna fyrirtæki sem framleiddi eingöngu lífrænt ræktaðar mat­ vörur. Fyrirtækið kallaðist og kallast enn Yggdrasill. Ég seldi fyrirtækið fyrir fjórum árum því ég vildi fá meiri tíma til að vekja athygli á hinum ýmsu málefn­ um, til dæmis umhverfisvernd. Þar að auki ver ég miklum tíma með barnabörnunum mínum.“ Fær erlenda vini í heimsókn Rúnar ætlar að halda upp á af­ mælisdaginn í faðmi vina frá Portúgal, Hollandi og Þýska­ landi. „Við ætlum að njóta þess að vera saman í Stykkishólmi og fara í siglingu og keyra um nes­ ið og koma víða við. Góð vinátta skiptir rosalega miklu máli í líf­ inu. Það má alveg fara á prent.“ Rúnar Sigurkarlsson Ætlar að halda upp á stórafmælið í Stykkishólmi. Fjölskylda Rúnars n Maki: Hildur Guðmundsdóttir f. 10. 1.1953 n Börn: Davíð Rúnarsson 2.12. 1974 Sigurkarl Rúnarsson 8.7. 1979 Sigrún Agnes Rúnarsdóttir 2.1. 1985
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.