Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Blaðsíða 30
30 Viðtal 13.–15. júlí 2012 Helgarblað lega dugleg og læra rosalega mikið að bjarga sér sjálf. Við erum „tím“ og þó að mamma sé stundum útúrstressuð og vangefin þá hlæja þau bara að mér, það er bara þannig.“ Björk var ekki alltaf ein með börnin. Eftir að hún og Bjarki Freyr komu frá Alabama bjó fjölskyldan saman hér á landi. Það var síðan í kjöl­ far efnahagshrunsins sem Bjarki Freyr missti vinnuna og ákvað að halda til Noregs í atvinnuleit. „Ég elti hann til Noregs,“ segir Björk sem starf­ aði í hlutastarfi á Vikunni og við norskukennslu á með­ an á dvölinni ytra stóð. Erfið­ leikar í sambandinu ágerð­ ust og á endanum ákváðu þau að slíta því. „Ég pakkaði búslóðinni í bílinn, fór í Nor­ rænu með börnin og hef verið hér heima síðan,“ segir Björk en tekur fram að ákvörðunin hafi ekki verið tekin í skyndi. Hún og Bjarki Freyr hafi ein­ faldlega verið búin að vaxa frá hvort öðru og tími til kominn að leiðir þeirra skyldu. Björk segir að það væri vissulega gott að fá stundum frí en tekur fram að hún hafi farið út í Flatey um daginn, þar sem hún hafi náð að endur­ hlaða batteríin fyrir nýja starf­ ið hjá Séð og Heyrt. Hún sér ekki fram á mikil frí á næstunni og heldur ótrauð áfram í starfi. „Ég er með svo fáránlega gott net í kringum mig. Ég á bræð­ ur og föður sem hafa sagt að þeir séu hlutafélag í kringum mig og móður sem hjálpar mér óspart með börnin. Þetta væri ekki hægt öðruvísi, maður væri bara komin á Klepp.“ Baráttumæðgur Eins og lesendur vita ef til vill hefur Björk staðið í annarri baráttu upp á síðkastið, en fjölmiðlar sögðu nýlega frá því að hún hefði kært íslenska rík­ ið fyrir að meina dóttur henn­ ar að vera skráð undir nafn­ inu Blær í þjóðskrá. Nafnið var lengi vel viðurkennt sem kvenmannsnafn hér á landi en mannanafnanefnd tók fyrir það á sínum tíma og ákvað að Blær skyldi einungis vera karl­ kynsnafn — dóttir Bjarkar varð á milli steins og sleggju. Hún hefur síðan þá verið skráð sem Stúlka Bjarkardóttir í þjóðskrá. Björk segir tilviljun eina ráða því að málin hafi verið til um­ fjöllunar á sama tíma. „Já, fólk heldur örugglega að ég sé sífellt í baráttuhug, segir hún og brosir við, „en þetta er mál sem skiptir mig og dóttur mína mjög miklu máli, enda erum við að tala um nafnið hennar.“ Björk seg­ ir frá því þegar prestur skírði dóttir hennar og gaf henni nafnið Blær. Hann heim­ sótti hana síðan viku síðar og sagði að mistök hefðu átt sér stað og spurði hvort þeim lit­ ist ekki ágætlega á nafnið Blædís. Björk segist ekki hafa getað valið nafn á barnið sitt eins og lit á bílinn og því hafi aldrei komið til greina að breyta nafninu. Nú berjast þær mæðgur fyrir því að ríkið viðurkenni nafn þeirrar yngri. „Mér fannst þetta auðvitað bara hrikalegt og hefur alltaf fundist,“ segir Björk og bætir við að hún fari með málið fyr­ ir Mannréttindadómstólinn ef það vinnist ekki hér. „Þeir verða örugglega búnir að fá ótrúlega mikið leið á mér.“ Góðir tímar framundan Ég má til með að spyrja hvað­ an baráttuandinn sé kominn. Björk hugsar sig um stutta stund og segir svo: „Ég hef aldrei látið vaða yfir mig, ég á auðvitað tvo bræður, og það geta allir staðfest að það gerir unga stúlku að töffara að eiga tvo eldri bræður. Ég hef alltaf þurft að standa fyrir mínu, þó að þeir séu yndislegir í dag og mínir bestu vinir og allt það er staðreyndin sú að ég þurfti að standa upp í hárinu á þeim á æskuárunum. „It toughens you up,“ eins og maður seg­ ir á ensku. Svo held ég reynd­ ar líka að móðir mín hafi alið mig sérstaklega þannig upp að ég myndi alltaf segja það sem mér fyndist, það hefur hún alla vega sagt mér. Hún sér kannski eftir því í dag en hún var mjög ákveðin í því að ég myndi standa fyrir mínu og liggja ekki á skoðunum mínum.“ Og nú er Mannréttinda­ dómstóllinn búinn að stað­ festa það: „Nú er Mann­ réttindadómstóllinn búinn að staðfesta að þetta voru eflaust góð ráð frá móður minni,“ segir Björk og hlær við. „Ég hef alltaf verið með smá kjaft og reynt að standa með sjálfri mér. Það sannast kannski best á því að í dag stend ég ein uppi með þrjú börn. Ég læt helst engan stoppa mig, sama þó það kosti stundum svita og tár og smá puð, en það er alltaf þess virði að fylgja eigin sann­ færingu og standa með sjálf­ um sér, standa í báða fætur.“ Það er ennþá sól yfir Klambratúninu þegar við Björk kveðjumst og ég spyr að lokum hvort hún telji góða tíma framundan í blaða­ mennskunni? „Já, það eru frábærir tímar framundan. Ótrúlega dásamlegt og gott veður, ég að taka við nýju starfi, og nú þessi dómur, ég hef ekki undan neinu að kvarta, svo við endum þetta á jákvæðu nótunum.“ n „Tíundi júlí verður alltaf eftirminni- legur og góður dagur í mínum huga Fimm ára barátta Björk hefur staðið í dómsmálum í fimm ár í kjölfar skrifa sinna í Vikuna árið 2007. „Fjölmiðlar eru skemmtilegir yfir höfuð, það að miðla til fólks spennandi hlutum, einhverju sem það veit kannski ekki af.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.