Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Page 6
Árvakur skuldar 1,5 milljarða
n Hlutafé aukið um hundruð milljóna
Ú
tgáfufélag Morgunblaðsins,
Árvakur, tapaði 205 milljónum
króna eftir skatta á síðasta
ári. Það er um 125 milljónum
króna betri afkoma en á síðasta
ári. Óskar Magnússon, útgefandi
Morgunblaðsins, segir í tilkynningu
vegna málsins að fjárhagsleg endur-
skipulagning á félaginu hafi stað-
ið yfir undanfarið og að hlutafé hafi
verið aukið. Heildartekjur ársins
2011 voru um þrír milljarðar króna,
sem er aukning um 360 milljónir, eða
13,6 prósent frá árinu á undan.
Hlutafé í félaginu var nú síðast
aukið um 540 milljónir króna og
stendur nú í 1,2 milljörðum króna,
að sögn Óskars. „Hefur þeim
fjármunum verið varið til að mæta
rekstrartapi Árvakurs og til þess að
minnka skuldabyrði félagsins. Áhrif
þessa koma ekki öll fram í ársreikn-
ingnum, sem nú er birtur, en í efna-
hagsreikningnum kemur fram að
skuldir hafa minnkað um 944 mkr og
eignir um 920 mkr,“ segir hann í til-
kynningu.
Taprekstur hefur verið á Morgun-
blaðinu frá því að nýir eigendur tóku
það yfir árið 2009. Óskar fór þá fyr-
ir hópi fjárfesta sem margir hverj-
ir koma úr sjávarútvegi. Blaðið var
keypt af Íslandsbanka og þurfti að
ráðast í endurskipulagningu vegna
gríðarlegra skulda félagsins og
breyttra rekstrarforsenda. Félagið
skuldar 1,5 milljarða króna sam-
kvæmt úrdrætti úr ársreikningi fé-
lagsins sem birtur var með tilkynn-
ingunni. Skuldirnar hafa minnkað
talsvert frá árinu áður en eignir fé-
lagsins hafa einnig minnkað.
adalsteinn@dv.is
6 Fréttir 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
tilbúin til matreiðslu
Heilsubuff
ÁN MSG
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur
Bjartsýnn Óskar segir að áform geri ráð fyrir
rekstrarhagnaði á næsta ári. Mynd Sigtryggur Ari
umhirða í borginni gagnrýnd:
„Ástandið er
ekki boðlegt“
„Það er lágmarkskrafa að sá
meirihluti sem hér er við völd
standi undir því einfalda verkefni
að láta slá græn svæði í borginni
og halda illgresi í skefjum.
Ástandið er hreinlega ekki boð-
legt,“ sagði Júlíus Vífill Ingvarsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, á borgarráðsfundi á fimmtu-
dag. Á fundinum kom umhirða í
borginni nokkuð til sögu og lögðu
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram
tillögu um að bæta almenna um-
hirðu og tryggja þannig að grunn-
hreinsun sé ásættanleg. Í bókun
Sjálfstæðisflokks segir meðal
annars:
„Grassláttur og almenn um-
hirða á opnum grænum svæðum
og við umferðargötur í borginni
er langt frá því að vera viðunandi.
Augljóslega er betur að þessu stað-
ið í nærliggjandi sveitarfélögum og
nú er svo komið að víða í borginni
er arfi, úr sér vaxið gras og almenn
óhirða orðin svo áberandi að ásýnd
borgarinnar líður verulega fyrir.
Lagt er til að þegar verði gert átak
í því að koma þessum málum í
betra horf, enda getur borg sem
ver milljörðum í framkvæmdir
og verulegum upphæðum í ýmsa
þætti er lúta að almennri fegrun
ekki með neinum rökum haldið því
fram að til þessara brýnu mála sé
ekki til fjármagn.“
Snorra vikið
frá störfum
Snorra Óskarssyni, sem oftast er
kenndur við Betel, hefur verið sagt
upp störfum í Brekkuskóla í
Akureyrarbæ. Það var í febrúar
síðastliðnum sem Snorra var vikið
frá störfum tímabundið vegna
skrifa sinna um samkynhneigð. Á
fimmtudag var Snorri kallaður á
fund fræðslustjóra sveitarfélagsins
og var hann látinn skrifa undir
uppsagnarbréf. Snorri greindi
sjálfur frá þessu á bloggsíðu sinni.
Hann segist fá fimm mánaða
rétt til launa, þriggja mánaða rétt
til að kæra málið til innanríkisráðu-
neytisins og fjórtán daga til að óska
eftir frekari rökstuðningi fyrir upp-
sögninni.
E
ngin gögn liggja fyrir sem
styðja fullyrðingu Valitor að
ekki sé heimilt að taka við
fjárframlögum til WikiLeaks.
Þetta er niðurstaða Héraðs-
dóms Reykjavíkur sem á fimmtu-
dag hafnaði vörnum Valitor um að
óheimilt hafi verið að taka við fjár-
framlögum. „Þessa fullyrðingu sína
hefur stefndi ekki stutt neinum
gögnum, eða vísað til réttarreglna
sem banni móttöku fjár til þessa að-
ila,“ segir meðal annars í dómnum.
Fyrir tækinu hefur verið gert að opna
aftur greiðslugátt DataCell hjá fyrir-
tækinu sem notuð var, áður en henni
var lokað, til að fólk gæti styrkt upp-
ljóstrunarsíðuna WikiLeaks. Valitor
hefur ákveðið að áfrýja málinu og
er enn ekki ljóst hvort eða hvenær
greiðslugáttin verður opnuð.
reka fleiri mál í Evrópu
„Þetta er úrskurður sem sýnir að þeir
hafi verið með ákveðið valdníð,“ segir
Ólafur Vignir Sigurvinsson, forstjóri
DataCell, um dóminn. Hann segist
hafa verið í miklum samskiptum
við forsvarsmenn WikiLeaks vegna
málsins. „Við vinnum þétt saman og
rekum mál í Brussel og Kaupmanna-
höfn út af sömu aðgerðum. Þetta
dregur línuna finnst mér í því máli.
Þetta sýnir að þeir hafa enga heim-
ild til að ákveða hvar þú eyðir pen-
ingunum þínum.“ Hann segir niður-
stöðu málsins ekki bara vera sigur
fyrir DataCell og WikiLeaks. „Þetta er
sigur fyrir tjáningarfrelsið.“
Greiðslugáttum sem WikiLeaks
hafði aðgang að var lokað stuttu
eftir að WikiLeaks birti mikið magn
leynigagna frá bandaríska hernum.
Lokunin var að beiðni bandarískra
stjórnvalda. Valitor, sem er umboðs-
aðila VISA á Íslandi, brást við og lok-
aði greiðslugáttinni hjá DataCell.
Vissu af WikiLeaks
Valitor bar fyrir sig að DataCell bryti
á samningi sínum við fyrirtækið með
því að safna peningum fyrir þriðja
aðila í gegnum greiðslugáttina. Í
dómi héraðsdóms segir hins vegar
að Valitor hafi mátt vera það ljóst
hver fengi peningana sem safnað var
í gegnum greiðslugáttina. Ekki væri
því hægt að bera því við að um brot
væri að ræða þar sem ljóst hafi verið
til hvers stofnað var til samningsins.
Athygli vakti að enginn starfsmaður
sem kom að samningsgerð á milli
DataCell og Valitor var leiddur fyrir
dóminn sem vitni heldur einungis
yfirmenn hjá fyrirtækinu sem höfðu
enga beina aðkomu að samningn-
um.
Ef Valitor hundsar tilmæli héraðs-
dóms um að opna greiðslugáttina
innan fjórtán daga á fyrirtækið von á
800 þúsund króna dagsektum þang-
að til greiðslugáttin verður opnuð.
Valitor þarf einnig að greiða DataCell
1,5 milljónir króna í málskostnað en
það er tæplega 380 þúsund krónum
minna en málskostnaðarkrafa
DataCell var í málinu. Engin skaða-
bótakrafa var lögð fram í málinu
en ekki liggur fyrir hvort WikiLeaks
muni gera slíka kröfu.
n Dagsektir á Valitor ef það opnar ekki greiðslugáttina n Dómnum áfrýjað„Þetta sýnir að þeir
hafa enga heim-
ild til að ákveða hvar þú
eyðir peningunum þínum.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Julian og Kristinn Ekki náðist í forsvarsmenn WikiLeaks, Julian Assange og Kristinn
Hrafnsson, vegna málsins. Mynd rEutErS
engin rök fyrir
lokun á Wikileaks
Sáttir Bæði Sveinn Andri
Sveinsson, lögmaður
DataCell, og Ólafur Vignir
Sigurvinsson, forstjóri
fyrirtækisins, voru ánægðir
að lokinni dómsuppsögu í
málinu.
Mynd Eyþór ÁrnASon