Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Side 12
12 Fréttir 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
Brjálaðar útrásir
n Ætluðu að byggja borg á Indlandi n Framleiða átti 20 þúsund tonn af lakkrís í Kína n Íslenska vatnið í ítrekaðri útrás
M
óðir íslenskra útrása
er útrás bankanna eft-
ir einkavæðingu þeirra
snemma á síðasta áratug.
Með gífurlega skuldsetn-
ingu að vopni og víkingablóð í æðum
hugðist ný kynslóð íslenskra fjár-
málaspekúlanta leggja heiminn að
fótum sér. Ísland skyldi verða sérstök
miðstöð bankaviðskipta á heimsvísu.
„Hugsið ykkur að bankakerfið hef-
ur á milli sjö- og tífaldast á þessum
fjórum, fimm árum,“ sagði Hannes
Hólmsteinn Gissurarson í frægu við-
tali á Stöð 2 haustið 2007. Þetta var ís-
lenska efnahagsundrið í hnotskurn.
„You ain‘t seen nothing yet“
Í þessu sambandi var forseta Ís-
lands, Ólafi Ragnari Grímssyni,
tíðrætt um sérstakt eðli íslensku
þjóðarinnar. Það sagði hann krist-
allast í landvinningum „athafna-
skáldanna“ eins og hann kallaði þá
sem stóðu í stafni útrásarinnar. Efa-
semdum um íslenska efnahagsund-
rið var svarað að bragði með þekkt-
um frasa sem lýsir hugarfari þess
tíma nokkuð vel: „You ain‘t seen
nothing yet“. Söguna af ævintýrum
útrásarvíkinganna þekkja flestir.
Því fer þó fjarri að banka-
mennirnir hafi fundið upp hjólið
í þessum efnum. Íslendingar hafa
margsinnis haldið í útrás með slatta
af metnaði og misvel heppnaðar
hugmyndir í farteskinu, jafnt fyrir
hrun sem eftir. Þar má nefna lakkrís-
verksmiðju í Kína, lífsstílsborg á
Indlandi og útrás í kappaksturs-
heiminn með akstursbraut fyrir
Formúlu 1. Vatnsútflutningurinn
var klúður frá upphafi til enda en
vopnasalan reyndist mikil frægðar-
för, þótt setja megi spurningarmerki
við siðferði slíkrar útrásar. Afríku-
veiðar íslenskra útgerðarmanna
eru annað dæmi um fjárhagslega
velheppnaða útrás með siðferðis-
legu spurningarmerki. DV lítur hér
yfir farinn veg og skoðar stórhuga
útrásir Íslendinga.
Reisa átti nokkur þúsund manna byggð
við gatnamót Grindavíkurvegar og
Reykjanesbrautar. Kappakstursborgin
átti að rísa meðfram þremur tegund-
um keppnisbrauta; kvartmílubraut, go
kart-braut og kappakstursbraut fyrir
akstursíþróttir í næsta flokki fyrir neðan
Formúlu 1 kappakstur. „Á þeirri braut
verður einnig leyfður æfingaakstur
Formúlu 1 bíla en brautin sjálf er nógu
góð fyrir þá tegund ökutækja, en til að
hún yrði keppnishæf þyrfti að bæta við
sjúkrahúsi og öðru þess háttar. Braut-
irnar hannar annar tveggja sérfræðinga
sem leyfi hafa til að hanna formúlu-
brautir fyrir alþjóðaaksturssambandið og hann telur
aðstæður hér góðar,“ sagði í frétt Stöðvar 2 af fyrstu
skóflustungu verkefnisins árið 2006.
Leiða má að því líkur að þarna sé komin ein
þeirra frétta íslenskra fjölmiðla af stórhuga athafna-
mönnum, sem átt er við þegar talað er um gagnrýn-
isleysi innlendra fjölmiðla fyrir hrun. Þótt þorp-
ið hafi átt að rísa hér á Íslandi verður Motopark að
teljast sem útrás enda ljóst að mikið púður fór í að
markaðssetja verkefnið sem þjónustu fyrir erlenda
aðila, formúlukeppnir og atvinnumenn í kappakstri.
Miklar vonir voru bundnar við verkefnið og því líkt
við framkvæmdagleði í Dúbaí.
Ekkert varð af framkvæmdum en forsvars-
menn fyrirtækisins létu það þó ekki stoppa sig í
að taka milljarðs króna lán hjá VBS fjárfestinga-
banka. Toppurinn innflutningur ehf., fyrirtækið
að baki skýjaborginni gerði langtímaleigusamning
við Reykjanesbæ. Árni Þór Sigfússon bæjarstjóri
Reykjanesbæjar skrifaði undir samninginn og var
viðstaddur fyrstu skóflustunguna.
Upp úr öskustó Toppsins reis fyrirtækið Ökugerði
Íslands en stjórnarformaður þess var Sturla Böðv-
arsson, fyrrverandi samgönguráðherra. Í kynningar-
bæklingi fyrir æfinga- og ökunema á Íslandi sem
gefinn var út af Ökugerði Íslands í mars 2010 segir
orðrétt: „Í framtíðinni verður hægt að nota svæðið
sem þjónustusvæði fyrir kappakstur og bílastæði
ef svo færi að kappakstursbraut sem hönnuð hefur
verið og var áætlað að yrði staðsett fyrir neðan öku-
gerðið á sínum tíma yrði byggð.“ Motopark-draumur-
inn virðist því ekki hafa dáið sjálfkrafa með nýjum
eigendum.
Að fyrirmynd erlendra auðkýfinga
datt íslenskum útrásarvíkingum
það snjallræði í hug að kaupa
sér íþróttalið. Ekki réðust þeir á
garðinn þar sem hann var lægstur.
Hópur íslenskra fjárfesta, með
Björgólf Guðmundsson í broddi
fylkingar, keypti West Ham, rót-
gróið og fornfrægt knattspyrnu-
lið frá Lundúnum. Kaupverðið
hljóðaði upp á 10 milljarða króna
á gengi ársins 2006. Með Björgólfi
í ráðum var félagi hans, Eggert
Magnússon, formaður KSÍ til
margra ára, sem gerður var að
stjórnarformanni.
Árið 2007, þegar hæst stóð,
voru uppi hugmyndir um
byggingu nýs heimavallar fyrir fé-
lagið sem tæki 60 þúsund manns
í sæti. En fallið var hátt. Eftir nær
samfelldan taprekstur lenti félagið
í fangi skilanefndar Straums á vor-
mánuðum 2009. Þá hafði kastast
í kekki á milli Eggerts og Björg-
ólfs því nokkru fyrr stefndi Eggert
Björgólfi og krafðist ríflega 200
milljóna króna vegna vanefnda á
starfslokasamningi.
Einnig ber að nefna yfirtöku
Íslendinga á knattspyrnufélaginu
Stoke, næstelsta atvinnu-
knattspyrnuliðs heims, árið 1999.
Þar fór fremstur í flokki Magnús
Kristinsson, útgerðar- og þyrlu-
áhugamaður í Vestmannaeyjum,
bróðir landsliðsmarkvarðarins
Birkis Kristinssonar.
Árið 2006 losaði Magnús sig
við félagið og lét hafa eftir sér:
„Þetta er lélegasta fjárfesting sem
ég hef farið í síðustu tíu árin.“
Veitingastaður Iceland Food
Center átti að sigra heiminn.
Veitingastaðurinn var sam-
vinnuverkefni ríkisins og Sam-
bandsins. Hlutafé fyrirtækisins
var í upphafi um átta milljón-
ir en þar átti ríkið fjórar. Það
kemur að auki fram í fyrir-
spurn á Alþingi árið 1966 að
yfirvöld hafi lánað fyrirtækinu
tvær milljónir á fyrsta rekstr-
arári. Óhætt er að fullyrða að
útrásin heppnaðist ekki en
árið 1968 hafði staðnum ekki
aðeins verið lokað heldur
mest allt innbú komið aftur til
landsins. Iceland Food Center
varð tilefni heimildarmyndar
eftir Þorstein Joð.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
„Þetta er
lélegasta
fjárfesting sem
ég hef farið í
síðustu tíu árin
Reykjanes, Ísland – 2006
Motopark, kappakstursbærinn
Toppurinn innflutningur, VBS, Byggðastofnun og Reykjanesbær
Í skugga norðurljósa
Tölvumynd af einni þeirra
glæsibygginga sem átti
að rísa í Motopark.
Milljarðaskýjaborg Til stóð að reisa
sjö þúsund manna kappakstursþorp
á Reykjanesi til að draga til landsins
kappaksturskappa víðs vegar að úr
heiminum.
London, England – 1999, 2006
Fótboltaútrásin
Björgólfur Guðmundsson og Eggert Magnússon
Alltaf í boltanum Í útrásar-
bransanum þótti fínt að eiga eins
og eitt stykki knattspyrnulið. Ekki
var verra að liðið keppti í ensku
úrvalsdeildinni eins og West Ham.
London, England – 1965
Iceland Food Center
Íslenska ríkið og Sambandið