Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Síða 14
14 Fréttir 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
Bretland, Skotland og meginland Evrópu
Rafmagnsútrás
Ýmsir aðilar
Ítrekað hafa íslenskir aðilar gert tilraun til
vatnsútflutnings, oftar en ekki með dræm
um árangri og miklu tapi. Þekktasta dæm
ið er án nokkurs vafa tilraunir Vatnsber
ans hf. til stórfellds vatnsútflutnings en
fyrirtækið ætlaði sér stóra hluti og aug
lýsti meðal annars eftir fjárfestum í DV
og öðrum fjölmiðlum landsins. Þórhall
ur Ölver Gunnlaugsson, nú Þór Óliver,
forsvarsmaður Vatnsberans lofaði gulli
og grænum skógum í viðtali
við DV árið 1991. Þar lýsti
hann sams konar viðskiptum
í Noregi en sagði norskt vatn
ekki nándar nærri jafn gott og
það íslenska – að fráleitt væri
að bera okkar vatn saman við
það norska. Þá lofaði hann að
gengið yrði þannig frá málum
að útflutningurinn skaðaði
á engan hátt orðstír íslenska
vatnsins. Tilraun Vatnsberans
er langt frá því að vera síðasta
tilraun Íslendinga til útflutn
ings á vatni en misjöfnum sög
um fer af slíkum viðskiptum.
Vatnsberinn endaði á hvín andi kúpunni og
Þór Óliver var dæmdur í fangelsi vegna stórfelldra skatta
brota og svika á endurgreiðslukerfi virðisaukaskatts. Árið
1999 var Þór dæmdur fyrir að hafa banað Agnari W. Agn
arssyni á hrottafenginn hátt aðfaranótt 14. júlí árið 1999.
Agnar var þá staddur á heimili sínu við Leifsgötu 28. Þór
stakk Agnar margsinnis víðs vegar um líkamann með
þeim afleiðingum að hann lést. Agnar hafði einnig hlotið
dóm í vatnsverksmiðjumálinu.
Bandaríkin, Mið-Austurlönd og Ástralía – 1991
Vatnsútflutningur
Þór Óliver Gunnlaugsson – Vatnsberinn hf.
Villtu verða milli?
Vatnsberinn fór mikinn
í fjölmiðlum um gæði
íslenska vatnsins og
tækifærin í útflutningi
þess. Hann auglýsti með-
al annars eftir fjárfestum
meðal almennings.
Vatnsberinn Þór
Óliver Gunnlaugs-
son er iðulega
kallaður Vatnsberinn
eftir stórfellda óreiðu í
kringum vatnsútrása-
drauma hans á
tíundaára-
tugnum.
Mumbai, Indland – 2007
Orange Lifestyle City
Askar Capital og Sjóvá
110 þúsund verkamenn áttu að
reisa lífsstílsborg fyrir Sjóvá og
Askar Capital í nágrenni Mumbai
á Indlandi. Hlutur fyrirtækjanna í
fjárfestingaverkefninu er metinn á
nærri 4 milljarða króna. Ákveðið var
að taka þátt í byggingu borgarinn
ar haustið 2007 þegar Tryggvi Þór
Herbertsson, núverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, var forstjóri
Askar. Þátttaka í verkefninu var
hugarfóstur Tryggva Þórs en Askar
átti þriðjungshlut í íslenska hluta
verkefnisins ásamt dótturfélagi Sjó
vár, SJ1. Þegar Tryggvi Þór kynnti
fjárfestinguna fyrir starfsmönnum
Askar síðla árs 2007 sýndi hann
þeim mynd af sér þar sem hann stóð
á landinu þar sem borgin átti að
rísa og faðmaði meðfjárfesti
Askar, Asog Nikhil Gandhi,
en félag hans, Skil Group,
átti fasteignaverkefnið á
móti þeim. Í viðtali við Viðskipta
blaðið í nóvember 2007 þar sem
Tryggvi ræddi um verkefnið sagði
hann. „Þetta svæði
er auðn enn sem
komið er. Ég var
þarna á dögun
um og það vantar
bara bengaltígris
dýr til að fullkomna tilfinningu
villtrar náttúru,“ sagði Tryggvi Þór en
líklega var það í þessari heimsókn
sem þeir Gandhi féllust í faðma. „Ég
held að alveg sama hvernig á þetta
er litið þá hafi þetta verið góð fjár
festing,“ sagði Tryggvi Þór við DV
um verkefnið á sínum tíma.
Gríðarleg uppbygging var fyrir
huguð á svæðinu, meðal
annars bygging fríversl
unarsvæða, alþjóða
flugvallar sem átti að
vera í um átta kílómetra
fjarlægð frá borginni
sem og brú yfir til
Mumbai.
Hugmyndir um sölu á raforku í gegnum sæstreng
til meginlands Evrópu hafa verið í umræðunni
hérlendis í nokkur ár. Ýmsar útfærslur hafa verið
ræddar í þeim efnum. Árið 1995 hugðist breska
orkufyrirtækið Western Electrica flytja út „hreina
orku“ frá Íslandi í gegnum sæstreng fyrir hund
ruð milljarða króna. Áttu tekjurnar að nema
um 12 milljörðum á ári en fyrirtækið vildi gera
fimmtíu ára nýtingarsamning vegna málsins.
Lofað var fjárfestingum upp á mun hærri upp
hæðir. „Við verðum að fara að gera okkur grein
fyrir því að orkan er okkar verðmætasta auðlind
og við verðum að hlusta á svona tilboð af fullri
alvöru,“ sagði Sighvatur Björgvinsson, þáverandi
iðnaðarráðherra, í samtali við Helgarpóstinn á sínum tíma.
Sams konar hugmyndir lifa enn góðu lífi þótt aldrei hafi áætlanir um sölu raf
orku til útlanda gengið eftir. Síðast á þessu ári heyrðust hugmyndir um raforkusölu
til Evrópu í gegnum sæstreng.
Írak, – janúar 1987
Vopnasala
Loftur Jóhannesson
Flugmaðurinn Loftur Jóhannesson
hagnaðist gífurlega á Bíafrastríðinu í
Nígeríu árin 1967–1970 er hann stofn
að fraktflugfélag. Upp frá því stundaði
hann alþjóðleg viðskipti með flugvélar
og vopn. Sunday Times greindi frá því
árið 1987 að Loftur hefði selt stjórnar
her Saddams Hussein tólf sovéska
T72 skriðdreka fyrir tæplega tvo milljarða íslenskra króna. Það nemur um
sjö milljörðum króna að núvirði.
Helgarpósturinn greindi frá því árið 1994 að Loftur hafi um tíma átt í
miklu samskiptum við CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna, sem og Stasi,
leyniþjónustu AusturÞýskalands. Þar er hann sagður meðal auðugustu
Íslendinga og búa á þremur stöðum: London, Maryland í Bandaríkjunum
og á vínbúgarði í Frakklandi sem kona hans erfði.
Í nágrenni milljónaborgar
Borg Askar Capital átti að vera í
nágrenni borgarinnar Mumbai þar
sem búa um 20 milljónir manna.
Sovéskur T-72 skriðdreki
Loftur seldi tólf skriðdreka af
þessari gerð til Saddams Hussein
á níunda áratugnum.
12 milljarðar á ári Íslendingum
hefur ítrekað verið lofað stór-
fenglum fjárfestum og gríðarleg-
um gróða verði af rafmagnsútrás
frá Íslandi. Hér má sjá forsíðu
Helgarpóstsins frá febrúar 1995.
Tryggvi Þór
Herbertsson Var
forstjóri Askar Capital
þegar ákveðið var
að fara af stað í
byggingu borgarinnar.
Steingrímur og Karl Wernerssynir Voru eigendur
Askar í gegnum Milestone þegar Indlandsútrásin byrjaði.