Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Page 17
Fréttir 17Helgarblað 13.–15. júlí 2012
Þetta vilja nýju flokkarnir
Þjóðarflokkurinn
n Fjöldi nýrra framboða mun bjóða fram í næstu Alþingiskosningum n DV sendi nokkrar spurningar á forsvarsmenn nýju flokkanna
1 Hvorki hægri né vinstri, okkar flokkur er hagsmunasamtök fyrir þjóðar-
heildina og hefur málefni sem gætu kallast
hægri og önnur vinstri á þeim úrelta kvarða
sem þessi hugtök mynda. Hagsmunir þjóðar-
heildarinnar verða að ganga fyrir í samskipt-
um okkar við önnur lönd, þeim samskiptum
þarf að dreifa svo landið verði ekki háð einu
viðskiptasvæði um of, eins og dæmið frá
október 2008 sýnir.
2 a. Þeir hafa; ekki traustverðuga stefnu í hagsmunamálum þjóðar-
innar, fullveldis- og sjálfstæðismálum,
auðlindamálum, atvinnumálum og menn-
ingarmálum og hafa brugðist trausti þjóðar-
innar, gjörspillt virðingu fyrir Alþingi, eins
og atkvæði þingmanna á Alþingi hafa sýnt
og skoðanakannanir gefið til kynna. Enginn
flokkanna hefur uppsögn tilskipanavalds
ESB, EES- og Schengen-samninga, eða
endurreisn á valdi Alþingis og Stjórnar-
ráðsins, á stefnumörkun sinni. Þeir hafa
enga skýra stefnu um uppgjör við Breta
vegna beitingar hryðjuverkalaganna og Ice-
save. Enginn flokkanna hefur skýra stefnu
í gjaldmiðilsmálinu og peningamálastjórn
eða heilsteypta stefnu í utanríkismálum.
b. Þau hafa ekki framtíðarlausnir á nú-
verandi vandamálum Íslands. Þau byggja
á fálmkenndum og oft vanhugsuðum
hugmyndum um rústabjörgun eftir hrunið
sem ekki eru nothæfar til uppbyggingar til
framtíðar og taka ekki á meginhagsmuna-
málum þjóðarinnar.
3 Nei.
4 Við höfum skýra stefnuskrá með málefnum er varða hagsmuni lands-
ins sem enginn annar flokkur hefur og vísar
veginn til framtíðar úr vandræðum hrunsins
og áratuga uppsöfnuðum mistökum fjór-
flokksins.
1 Við erum hófsamir þjóðernissinnar á miðju stjórnmálanna. Við höfum
hófsemina í hávegum í öllum málum. Það
er hægra og vinstra ívaf í stefnunni og við
viljum engar öfgar. Við nálgumst öll ágrein-
ingsmál af jafnvægi.
2 a. Flokkarnir á þingi eru meira eða minna eins í öllum aðalatriðum og
hafa enga skýra stefnu í málefnum inn-
flytjenda, hælisleitenda og flóttamanna.
„Stefna“ þeirra byggist á meðvirkni og
dómgreindarleysi. Hún snýst um linkind og
eftirgjöf og að vera góður við alla og bjarga
heiminum.
Þeir hafa enga skýra framtíðarsýn hvað
þjóðina varðar og þeir eru hræddir við
þennan málaflokk, hræddir við kjósendur
og hræddir við að vera úthrópaðir sem ný-
nasistar, rasistar eða fasistar.
b. Nýju framboðin eru líka öll eins hvað
þetta varðar og Dögun, Samstaða og Björt
framtíð geta að skaðlausu runnið inn í VG,
Framsókn eða Samfylkinguna.
3 Nei, Ísland á ekki að ganga í ESB
4 Fólk á að kjósa okkur því okkur vantar þjóðernissinna á Alþingi til að standa
vörð um hagsmuni þjóðarinnar, við þorum
að vera hreinskilin og það þarf einhver
flokkur að hafa skýra og ákveðna stefnu í
málefnum innflytjenda, flóttamanna og
hælisleitenda.
1 Við erum eins og Miðflokkurinn í Borgen.
2 a. Gleði og bjartsýnib. Gleði og bjartsýni
3 Já, ef góður samningur næst. En þjóðin á að ráða þessu.
4 Fólk á að kjósa það sem því sýn-ist. Vega og meta alla jafnt, nýja
sem gamla. Ef það treystir okkur og lík-
ar við málflutning okkar þá ætti fólk að
kjósa okkur.
1 Við skilgreinum okkur hvorki til hægri né vinstri heldur leggjum áherslu á
nýja hugsun í stjórnmálum sem byggir á
hugmyndafræði samstöðu. Við leggjum
bæði áherslu á markaðslausnir sem og sam-
félagslausnir við úrlausn verkefna.
2 a. Við leggjum megináherslu á tafar-lausa skuldaleiðréttingu íslenskra
heimila og fyrirtækja. Samhliða þarf að
afnema verðtryggingu, endurskipuleggja
lífeyrissjóði og skattkerfi landsmanna. Við
viljum beint lýðræði í stjórnmálaflokkun-
um í stað fulltrúalýðræðis, gagnsæi m.a. um
hverjir gegna trúnaðarstöðum og hámarks-
tíma á þingi.
b. Við viljum aukið atvinnulýðræði til þess
að koma í veg fyrir fákeppni og að völd
og auður safnist á fáar hendur sérhags-
munahópa. Við viljum einnig koma á þriðja
stjórnsýslustiginu með svæðisþingum til að
efla valddreifingu.
3 Við teljum að við núverandi aðstæð-ur sé hagsmunum Íslands best borgið
utan ESB en leggjum áherslu á að samn-
ingaviðræðum verði lokið án tafar og niður-
staðan fari í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við
teljum einnig að vegna breyttra forsendna
sé ástæða til þess að þjóðin skeri úr um
áframhald viðræðna verði þeim ekki lokið
innan tilskilins tíma.
4 Vegna þess að sagan er besti mæli-kvarðinn á hegðun í framtíðinni, og
við erum líklegri en aðrir til þess að standa
við stefnumál okkar eins og núverandi þing-
maður og formaður flokksins hefur sýnt og
nýtur þess vegna víðtæks trausts.
Björt framtíð
Samstaða
1 Erfitt er að greina milli vinstri og hægri flokka, þeir fara núna allir í
sömu átt.
Húmanistaflokkurinn byggir á mann-
réttindum og sjálfbærni og er róttækur
flokkur.
2 a. Húmanistaflokkurinn stefnir að gagngerum breytingum á þjóð-
skipulaginu. Við viljum beint lýðræði þar
sem þingræðið víkur fyrir þátttöku fólksins
í ákvörðunum. Við viljum að almenningur
taki þátt í fjárlagagerð og ákvörðunum um
ráðstöfun skattfjár. Við viljum lýðræði á
vinnustöðum, einn maður eitt atkvæði og
við viljum að ríkið stjórni fjármálakerfinu.
b. Við teljum að við séum á sömu leið og
flest þeirra, en við setjum fram skýrar
tillögur um hvernig stokka þarf upp sjálft
skipulag þjóðfélagsins.
3 Nei, Evrópusambandið verður til á grundvelli viðskipta- og markaðs-
hagsmuna. Húmanistaflokkurinn er með
tillögur um myndun ríkjabandalags þjóða
sem verða sammála um félagsleg mark-
mið eins og mannréttindi og mannsæm-
andi grunnframfærslu fyrir alla.
4 Sú hagvaxtar- og neyslustefna sem ríkir hefur ekki staðið undir
væntingum. Hefðbundnir stjórnmálaflokk-
ar hafa engar úrlausnir. Þess vegna viljum
við að á Alþingi Íslendinga komist stjórn-
málaafl sem setur fram skýra stefnu um
annars konar þjóðfélag sem byggir á þörf-
um fólksins. Þeir sem eru okkur sammála
um þetta ættu að kjósa okkur.
Húmanistaflokkurinn
Einar Gunnar Birgisson Hefur skýra
stefnu í málefnum innflytjenda, flótta-
manna og hælisleitenda.
Bjartsýnisflokkurinn
Pétur Valdimarsson Flokkurinn er hagsmunasamtök fyrir þjóðarheildina.
Guðmundur Steingrímsson Glað-
ur og bjartsýnn.
Lilja Mósesdóttir Hvorki
til hægri né vinstri.
Methúsalem Þórisson Stefnir að gegn-
gerum breytingum á þjóðskipulaginu.