Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Side 18
18 Fréttir 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
Ég veit að þessi kona
er vinafá og snauð
af veraldlegum auð,
að launin, sem hún fær,
eru last og daglegt brauð.
En oftast er það sá,
sem allir kvelja og smá,
sem mesta mildi á. -
Fáir njóta eldanna,
sem fyrstir kveikja þá.
Svona hljómar síðasta erindi ljóðs
ins Konan sem kyndir ofninn minn,
eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Jakob Frímann Magnússon, mið
borgarstjóri og meint barnabarn
skáldsins, segir ljóðið eiga sérstak
an stað í hjarta sínu. „Ég hef aldrei
lesið annað en falleg ljóð eftir þenn
an mann,“ segir Jakob og bætir við að
hann haldi einnig upp á fyrstu ljóða
bók Davíðs, Svartar fjaðrir. „Öll ljóðin
í Svörtum fjöðrum eru auðvitað tær
snilld.“
Sannleikurinn kemur brátt í ljós
Héraðsdómur Reykjavíkur komst
að þeirri niðurstöðu síðastliðinn
miðvikudag að Jakob Frímann eigi
rétt á því að fá aðgang að lífsýnum
stórskáldsins. Jakob stefndi Land
spítalanum, Vísindasiðanefnd og
Persónuvernd í þeim tilgangi að
fá aðgang að lífsýnunum en Jakob
telur að Davíð geti hugsanlega verið
móðurafi sinn. Móðir Jakobs, Bryn
dís Jakobsdóttir, var ættleidd sem
kornabarn af kaupmannshjónum
á Akureyri og hefur faðerni hennar
ætíð verið á huldu. Aðspurður segist
Jakob ekki telja að Jakob Frímanns
son, uppeldisfaðir móður hans, yrði
ósáttur við þessa fyrirætlun. „Það
var ekkert leyndarmál að móðir mín
var ættleidd. Ég er mjög nátengdur
Jakobi Frímannssyni og hef alla tíð
verið. Hann ól mig upp. Hann verður
alltaf afi Jakob þó að einhver tiltek
inn blóðfaðir móður minnar komi
í ljós.“ Þó fyrrnefnd verk Davíðs séu
hugsanlegu barnabarni sérstaklega
hugleikin tekur Jakob þó fram: „Allt
litróf fjaðra Davíðs Stefánssonar er
að mínu skapi.“
Barnlaus Davíð
Davíð Stefánsson, var sonur alþingis
mannsins og bóndans í Fagraskógi,
Stefáns Baldvins Stefánssonar. Kona
Stefáns hét Ragnheiður Davíðsdóttir
og var húsfreyja í Fagraskógi. Saman
áttu þau sjö börn, þar á meðal þjóð
skáldið Davíð Stefánsson. Öll systkini
Davíðs eignuðust síðar sín eigin börn
og talið hefur verið að Davíð væri
eina barn þeirra Stefáns og Ragn
heiðar sem ekki réðist í barneignir –
þar til nú. Brátt mun koma í ljós hvort
stuðmaðurinn bætist í fjölmennt
niðjatal hjónanna frá Fagraskógi.
Ættarmót
„Við héldum ættarmót fyrir 20 árum,“
segir Guðrún Inga Bjarnadóttir,
barnabarn Þóru Stefánsdóttur, systur
Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi,
um það hvort ættin rækti fjölskyldu
tengslin. „Þarna komu saman af
komendur Stefáns Baldvins Stefáns
sonar og Ragnheiðar Davíðsdóttur.“
Guðrún segir að ættarmótið hafi
verið hið skemmtilegasta. „Þarna
voru tæplega 200 manns, með
mökum.“ En verður Jakobi boðið á
næsta ættarmót? „Væntanlega. Ef
satt reynist þá yrði honum boðið á
ættarmót.“
n Jakob Frímann fær aðgang að lífsýnum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi
Jakob boðið
á ættarmót
„Allt litróf
fjaðra Dav-
íðs Stefánssonar
er að mínu skapi
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Stórskáld Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
er eitt ástsælasta skáld þjóðarinnar.
Jakob Frímann Upp-
áhaldsljóð Jakobs eftir
hugsanlegan móður afa
sinn heitir Konan sem
kyndir ofninn minn.