Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Side 25
Er hér um óbeina
morðhótun að ræða?
Mér er slétt sama hjá
hverjum hann leggst
Þetta er að verða
grafalvarleg staða
Samskiptaörðugleikar listamanna og sjónlistastjóra á Akureyri – Akureyri VikublaðKristrún Ösp Barkardóttir um Svein Andra Sveinsson, lögfræðing og barnsföður sinn – VikanSiggi stormur segir að góða veðrið geti haft alvarlegar afleiðingar sums staðar. – DV
Spurningin
„Eina viku í ár.“
Harpa Heimisdóttir
37 ára arkitekt
„Tvær vikur.“
Bjarni Jónsson
62 ára leigubílsstjóri
„Þrjá daga.“
Davíð Mar Guðmundsson
34 ára málari
„Ekkert ákveðið eins og er.“
Kristín Sigurðardóttir
39 ára málaranemi
„Ekki neitt.“
Anika Sóley Snorradóttir
18 ára afgreiðslumaður
Hvað tekur þú
langt sumarfrí?
1 „Slétt sama hjá hverjum hann leggst“ Kristrún Ösp um ástarlíf
Sveins Andra Sveinssonar.
2 Arnór Guðjohnsen sleginn niður á Pollamóti Þjáist af
verkjum eftir að andstæðingur sló hann
fyrirvaralaust.
3 Katie leitaði ráða hjá Kidman vegna skilnaðarins Katie Holmes
leitaði til fyrrverandi eiginkonu Tom
Cruise vegna skilnaðar þeirra.
4 Gjaldþrotaslóð eftir forsvarsmann Likes Björgvin Þór
Þorsteinsson stendur á bak við vefsíðu
þar sem fólki er boðið að fá greitt fyrir að
„læka“ Facebook-síður.
5 Ari Trausti skýtur fast á Ólaf Ragnar Veltir vöngum yfir
nýafstöðnum forsetakosningum sem
Ólafur Ragnar sigraði.
6 Skotinn til bana í úthverfi Stokkhólms Sænskur maður
skotinn til bana á miðvikudagskvöld.
Lögreglan leitar tveggja manna.
7 „Er hér um óbeina morðhótun að ræða?“ Myndlistarmenn á
Akureyri ósáttir við sjónlistarstjóra og
bæjaryfirvöld.
Mest lesið á DV.is Að fussa og sveia
S
varthöfði er Íslendingur í húð og
hár, það hefur alltaf legið fyrir.
Ungur að aldri fékk hann smjör-
þefinn af einni uppáhaldsiðju
Íslendinga – að fussa og sveia. Þegar
Svarthöfði var ungur var einn ónefnd-
ur fjölskylduvinur færasti fussarinn í
nærsveitum og hann stundaði sína iðju
óspart í eldhúsi fjölskyldunnar.
Svarthöfði man það enn. Eldmóður
fussarans var þvílíkur. Augun einbeitt,
varirnar titrandi og þegar hann sveiaði
yfir sig, sem gerðist einstöku sinnum,
voru komnar svitaperlur á ennið. Stund-
um hrökklaðist líka einstaka kaffibolli
af eldhúsborðinu, titrandi undan mis-
kunnarlausum hnefa sveiarans.
Svo þegar Svarthöfði óx úr grasi þá
skildi hann loks um hvað fussið og svei-
ið snérist. Það er, þótt mótsagnakennt
virðist, sálarsefandi. Sveiarinn efast ekki
um sig, tilgangur hans er skýr. Sá sem
fyrir fussinu verður er holdgervingur
heimsku, hroka og alls ills. Sveiarinn er
þá, par définition, holdgervingur visku,
auðmýktar og alls góðs.
En það eru skýrar reglur í fussinu.
Það má ekki bara fussa og sveia hverju
sem er. Þetta er eins og með klappið. Að
fussa á réttum tímapunkti er náðargáfa,
en misstígi menn sig er hætta á að verða
álitinn fýlupúki. Eða verra – femínisti!
Þess vegna hefur Svarthöfði reglulega
hitt nokkra valinkunna amatörfussara
– enga þingmenn, en þó gjaldgengir
í flestar kaffistofur landsins. Æfingin
skapar jú meistarann og saman fussa
þeir: „Skattgrímur, svei!“ „ESB, fuss!“
„Útrásarvíkingar, fari þeir til fjandans!“
Allt þetta fer svo auðvitað fram með
drjúgum skammti af bleksvörtu kaffi –
þeim lífsins elexír – enda endast menn
skammt í fussinu án þess.
Eitt uppáhalds svei Svarthöfða er
fengið að láni: „Meðalgreinda apa-
þjóð!“ hrópar hann þegar tilefni gefur
til. Þetta gefur lífi hans fyllingu. Hann
er þá vitringur með óhemjugóða nátt-
úrugáfu, enda er það hann sem kem-
ur auga á heimskuna. Hann segir þetta
samt ekki, að hann sé klár, enda á þetta
sér stað í hyldjúpum freudískrar dulvit-
undar hans.
Hann veit líka að þessi fullyrðing
er byggð á traustum vísindum.
Þjóðin er meðalgreind.
Enda myndar sérhvert
nægilega stórt úrtak
manna normalkúrfu í
greind. Fáir eru af-
burðagáfaðir rétt
eins og það eru
fáir sem eru af-
gerandi heimsk-
ir. Flestir eru ein-
hvers staðar í
miðjunni og því
meðalgreindir.
Það er líka auðvelt að sanna að menn
séu apar, við erum jú eftir allt saman
prímatar.
En það sem Svarthöfði vill náttúru-
lega ekki leiða hugann að er hvort að
hann sé sjálfur meðalgreindur api. Það
vill enginn. Hann hefur reyndar pælt í
því í hálfkæringi. En freudísk undirvit-
und hans neitar staðfastlega að trúa því
að hún sé meðalgreind. Hún er líka
fljót að stökkva til. Þegar vafi svíf-
ur að eins og skuggi yfir vötn-
um. Þá man hann hverju
hann ætlaði að sveia,
hefst handa, og skugginn
hverfur eins og dögg
fyrir sólu. Hann vík-
ur fyrir eins kon-
ar blöndu af ham-
ingju og reiði,
fussið er þannig
mótsagnarkennt
og ruglar stund-
um Svarthöfða.
Með aðstoðarmann Þessi ungi maður naut dyggrar aðstoðar í Nauthólsvík á fimmtudag við að færa hjólbörurnar sínar. Fjöldi fólks naut blíðunnar
í höfuðborginni á fimmtudag og lögðu margir leið sína í Nauthólsvík. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Svarthöfði
Umræða 25Helgarblað 13.–15. júlí 2012
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Hrun eða Rán
A
ð gefnu tilefni langar mig að
rýna í nokkur orð. Að vísu er
ég ekki blaðamaður. En engu
að síður þarf ég að beygja mig
undir ofríki dómstóla ef mig langar að
teygja orð mín að einhverju sem hugs-
anlega mætti flokka sem meiðyrði.
Reyndar skáka ég jafnan í skjóli skáld-
skapar og kemst því upp með eitt og
annað sem blaðamenn hafa hingað til
verið dæmdir fyrir.
En áður en lengra er haldið vil ég
óska Björk Eiðsdóttur og Erlu Hlyns-
dóttur til hamingju með sigurinn í
Strassbúrg. Og reyndar ná þessar ham-
ingjuóskir mínar til allra Íslendinga.
Ég hef eiginlega aldrei skilið hvern-
ig okkur tókst í sameiningu að festa
orð einsog: kreppa, hrun eða efna-
hagsvandi, við það rán sem framið var
hér á landi í skjóli hins svokallaða góð-
æris. Hér var um hreint og klárt rán að
ræða og við ættum að sjá sóma okkar
í því að tala um Ránið (með stórum
staf) þegar við tölum um hið svokall-
aða hrun. Hrun hljómar svona einsog
þegar nær ómálga barn segir: -Datt.
Hér hrundi ekkert og hér varð
engin kreppa: Það sem gerðist var að
ýmsum útvöldum var falið að hirða
allar eigur almennings. Og ríkisvaldið,
sem þá var undir stjórn sjálfstæðis-
manna og þjófafélags Framsóknar,
tryggði hinum útvöldu auð og gróða.
En loforðunum fylgdi svo vissan um
að allt tap hinna útvöldu myndi síð-
an enda á ríkissjóði í formi afskrifta.
Ránið var framið af ríkisstjórn og það
voru framsóknarmenn og sjálfstæðis-
menn sem stjórnuðu. Þessu skulum
við aldrei gleyma.
Um daginn las ég grein eftir ein-
hvern Guðmund, en hann stýrir klofn-
ingsframboði sjálfstæðismanna sem
kallast Hægri grænir. Þessi ágæti Guð-
mundur er þar að væna núverandi
ríkisstjórn um slæleg vinnubrögð. En
honum tekst með skrifum sínum að
spinna svo þéttan lygavef um eigið
orðagjálfur að tilvitnun hans í Kon-
fúsíus virkar einsog lélegur brandari.
Menn sem þykjast skilja það sem hinn
kínverski spekingur sagði um lyg-
ina, ættu að temja sér að fara svona
nokkurn veginn með rétt mál. En í
pistli sínum segir leiðtogi klofnings-
framboðs sjálfstæðismanna, að tap
SpKef, Sjóvár, VBS og fleiri fyrirtækja
sé núverandi ríkisstjórn að kenna.
Þegar hið sanna er, að glæpurinn skrif-
ast allur á slóttuga ríkisstjórn sem
laug því að þjóðinni að hér ríkti góð-
æri, á meðan verið var að taka lán hjá
ófæddum Íslendingum.
Í bulli sínu, lætur klofningsmað-
urinn ekki staðar numið við tapað-
ar kröfur. Nei, hann heldur lygi sinni
áfram, segir að það sé núverandi rík-
isstjórn að kenna að bankarnir séu
reknir sem þrotabú og hann segir að
núverandi ríkisstjórn stundi þá sögu-
fölsun að halda því fram að kreppan sé
um garð gengin. Að vísu bendir hann
réttilega á að enn eigi eftir að dæma þá
sem frömdu Ránið. En hann getur þess
ekki, að það var helmingaskiptaveldið
sem tryggði útvöldum einstaklingum
afskriftir uppá bráðum 1.000 millj-
arða. Það var gert með eftirlitsleysi og
lánum til manna sem lögðu fram verð-
lausa pappíra sem tryggingu. Og hann
nefnir ekki að það eru hagfræðingar í
útlöndum sem gefa hagstjórn núver-
andi ríkisstjórnar hæstu einkunnir.
Svo glímir hver sem getan býð-
ur. Sannleikurinn er sá, að ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar framdi Ránið og
allt sem sagt er til að breyta þeirri stað-
reynd, er lygi.
Í nauðum sínum nærist þjóð
nú á íslenskunni
því lausavísan ljúf og góð
lætur vel í munni.