Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Side 38
Á
milli þess sem Barði
Guðmundsson er í há-
loftunum sem flug-
þjónn skrifar hann
sögur sem sumar
verða að kvikmyndahandrit-
um.
Væntanleg er kvikmynd
eftir Friðrik Þór Friðriksson
sem byggð er á handriti eftir
Barða. Kallast hún Staying Ali-
ve og fjallar um miðaldra kon-
ur og jarðarfarafíkla. „Myndin
á að gerast árið 1997 og fjallar
um tvær konur á besta aldri
sem hittast eftir langan að-
skilnað og taka upp fyrri kunn-
ingsskap. Þær höfðu kynnst í
húsmæðraskóla og verið mjög
nánar þar til þær skildust að.
Vinkonurnar hittast aftur eft-
ir tuttugu og fimm ár. Þar að
auki eru tveir jarðarfarafíkl-
ar sem eiga eftir að hafa mik-
il áhrif á líf kvennanna tveggja.
Jarðarfarafíklarnir þrífast á
því að sækja jarðarfarir hjá
ókunnugu fólki og gefa þeim
einkunn. Síðan fara þeir í erfi-
drykkjurnar á eftir. Jafnframt
skoða þeir rækilega minn-
ingargreinar um látið fólk og
kynna sér ættfræði þess. Segja
má að þetta sé gamansöm ást-
arsaga.“
Kynntist ungur heimi
jarðarfarafíkla
Spurður hvernig honum hafi
dottið í hug að skrifa sögu
sem meðal annars fjallar um
jarðarfarafíkla, svarar hann:
„Faðir minn var prestur og
ég kynntist heimi jarðarfaraf-
íkla í gegnum sögur sem hann
og móðir mín sögðu mér.“
Barði segir konur á miðjum
aldri verða í aðalhlutverk-
um í myndinni og vera lítið
um hlutverk fyrir karla. Engin
sérstök ástæða hafi verið fyrir
því og skrifin einfaldlega þró-
ast þannig fyrir tilviljun. „Þetta
er svolítil nýjung og að sama
skapi skemmtileg.“
Upphaflega smásaga
Barði hefur skrifað sögur af og
til í tuttugu ár: „Ég hef alltaf
verið að búa til sögur, alveg
frá því ég var lítill strákur. Svo
ákvað ég að koma þeim niður
á blað og vinna meira úr þeim
í stað þess að geyma þær ein-
göngu í kollinum.“ Handritið
að Staying Alive var upphaflega
smásaga sem ég skrifaði þegar
ég var búsettur í Barcelona fyr-
ir tuttugu árum,“ útskýrir Barði.
Lærður leikari
Barði er lærður leikari og út-
skrifaðist úr Leiklistarskóla Ís-
lands. Hann lék meðal annars
með Leikfélagi Akureyrar en
handritsskrif og leikstjórn hafa
fangað hug hans allan. Erfitt
sé að lifa á leiklistinni því hún
sé stopul og þess vegna hafi
hann farið að starfa sem flug-
þjónn. „Ég væri löngu týnd-
ur og gleymdur sem leikari. Í
staðinn fór ég mikið til útlanda
sem flugþjónn. Það þótt mér
mjög skemmtilegt. Svo sótti ég
ýmis námskeið í kvikmynda-
gerð í Danmörku og Englandi.“
Með mörg járn í eldinum
Hann skrifaði handrit að og
leikstýrði stuttmynd sem ber
titilinn Mamma veit hvað hún
syngur og skartaði Helgu Braga
í aðalhlutverki. Stuttmyndin
var sýnd á 30 kvikmyndahátíð-
um víðs vegar um heiminn og
fékk þrenn áhorfendaverðlaun.
„Ég er líka að vinna að annarri
stuttmynd sem ég skrifaði
handritið að og leikstýri. Hún
heitir Bóbó og fer Einar Aðal-
steinsson með aðalhlutverkið.
Stuttmyndin verður að öllum
líkindum fullkláruð í septem-
ber. Hann hefur ekki sérstak-
an áhuga á að leika sjálfur í
kvikmyndum en gæti þó íhug-
að að taka að sér lítið hlutverk í
Staying Alive. „Draumur minn
er þó að leikstýra kvikmyndum
í fullri lengd í framtíðinni. Eftir
að ég hef skrifað og leikstýrt
tveimur stuttmyndum og skrif-
að handrit að kvikmynd í fullri
lengd, gæti verið að ég fái tæki-
færi síðar til að leikstýra mynd í
fullri lengd.“
Tökur hefjast næsta sumar
Myndinni hefur þegar verið
vel tekið af Kvikmyndamiðstöð
Íslands, að sögn Hrannar
Kristinsdóttur, framleiðanda
myndarinnar. Stefnt er á að
tökur á myndinni hefjist næsta
sumar. elin@dv.is
Hvað er að
gerast?
ÁMS á Útlaganum
Hljómsveitin Á móti sól ætlar að
slá upp sveitaballi á Útlaganum
á Flúðum á föstudags- og laugar-
dagskvöld. Á föstudagskvöld
verður sveitin í góðum gír og á
laugardagskvöld er svo komið
að árvissu Bylgjuballi þar sem
heiðursgestur er sjálfur Hemmi
Gunn!
Flóamarkaður
unga fólksins
Flóamarkaður ungs fólks í Hinu
Húsinu verður laugardaginn
14. júlí milli klukkan 13 og 17.
Markaðurinn verður í kjallara Hins
hússins og er gengið inn Austur-
strætismegin. Þessi markaður er
haldinn einu sinni í mánuði þar
sem fólk á aldrinum 16–25 ára
selur notuð föt og aðrar gersemar
og eru allir meira en velkomnir
að koma og kaupa sér eitthvað
ódýrt og fínt.
Ferðalag í Tré og list
Á milli klukkan 16 og 18 á laugar-
dag opnar Fríða Rögnvaldsdóttir
myndlistarkona úr Keflavík
sýninguna Ferðalag í Tré og
list í Forsæti, Flóahreppi. Fríða
hefur haldið fjölda einkasýninga
hérlendis, ásamt einkasýningu í
Lúxemburg. Einnig hefur hún tek-
ið þátt í mörgum samsýningum
hér heima, ásamt 5 samsýn-
ingum erlendis, í Belgíu, í New
York og síðasta haust í Istanbúl í
Tyrklandi.
Hugljúft á Gljúfrasteini
Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari
og Hrönn Þráinsdóttir píanóleik-
ari spila Bach, Tchaikovsky og
Chausson á Gljúfrasteini klukkan
16. Bæði eru þau sprenglærðir
tónlistarmenn. Ari kennir hópi
efnilegra fiðlunemenda við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
leikur á fiðlu smíðaða af Giovanni
Maggini frá u.þ.b. 1620, að láni
frá Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hrönn er kennari við Söngskólann
í Reykjavík og við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík.
38 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Laugardagur
Föstudagur
Sunnudagur
14
júl
13
júl
15
júl
„Fyndin og
hjartnæm mynd“
„Umgerð leiksins og öll myndræn
úrvinnsla er mikið augnagaman“
Moonrise Kingdom
Wes Anderson
Gamli maðurinn og hafið
Berg Ogrodnik
n Barði Guðmundsson flugþjónn og handritshöfundur n Vinnur með Friðriki Þór
Mikill kattavinur Barði
er mikill kattavinur. Grái
kötturinn heitir Magdalena
eftir persónu í handriti
væntanlegrar bíómyndar.
Mynd Eyþór Árnason
HandritsHöfundur í Háloftunum
Heillaður af skrifum Flugþjónninn hefur verið heillaður af handritsskrif-
um um langt skeið. Mynd Eyþór Árnason