Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Síða 39
39Helgarblað 13.–15. júlí 2012
„Vel heppnuð frumraun“ „Fær mann til að vökna
um augun“Það kemur alltaf
nýr dagur
Unnur Birna Karlsdóttir
Intouchables
Olivier Nakache, Eric Toledano
Uppáhaldsbókin ?
Dauði í Texas
B
ernie er svört grín-
mynd úr smiðju
Texas-búans Ric-
hard Linklater en
hann varð frægur
árið 1991 fyrir indí-meist-
araverkið Slacker. Sú mynd
er nokkurs konar óður til
sérkenna og undarlegheita
Suður-Texas, en nú hefur
Linklater einmitt snúið aft-
ur til heimaslóða sinna en
Bernie er byggð á sannri
sögu, sem er samt sem áður
lyginni líkust.
Hrókur alls fagnaðar
Jack Black fer á kostum sem
Bernie; indæll, vinalegur og
sannkristinn útfararstjóri í
litlum bæ í Texas, þar sem
Bernie er hrókur alls fagnað-
ar. Hann er svo virkur og um-
hyggjusamur í samfélaginu
að hann er brátt kominn á
góða leið með að verða vin-
sælasti íbúi bæjarins.
Bernie hefur þann háttinn
á að láta sér mjög annt um
gömlu ekkjurnar í bænum.
Hann hirðir meira að segja
ekkert um ungu dömurn-
ar og þrálátur orðrómur er á
kreiki í bænum um að hann
sé enn inni í skápnum en eft-
ir að eigandi eina bankans
í bænum fellur frá kviknar
vinátta með Bernie og ekkj-
unni, milljónamæringnum
Marjorie, (Shirley Maclaine)
sem er í raun það þveröfuga
við Bernie – sú manneskja í
bænum sem fólki líkar hvað
verst við. Bernie verður brátt
eins konar þjónn hennar og
lífsförunautur, og þorpsbú-
ar undrast yfir sambandinu
og slúðra um hvort hann
sé að gera þetta vegna ástar
eða vegna peninga. Bráðum
verður lífið með þeirri gömlu
Bernie ofviða og þá flækjast
málin til hins verra.
Úr lausu lofti
Það er ljóst að Jack Black
heldur myndinni algjör-
lega uppi en túlkun hans á
karakternum er stórkost-
leg. Bernie er margbrot-
inn maður sem er keyrður
áfram af velvilja en býr þó
yfir leyndarmálum eða sár-
um, sem hann sýnir okkur
ekki. Það mætti halda að Jack
Black hafi gripið karakterinn
úr lausu lofti en svo er ekki
þar sem myndin styðst við
raunverulega atburði. Bern-
ie er meinfyndin mynd, sem
tekur sig þó ekki of hátíðlega
sem grínmynd. Í sumum at-
riðum er eins og maður þurfi
að spyrja sig: „Á ég að vera að
hlæja af þessu?“
Þegar öllu er á botninn
hvolft heldur þó myndin ekki
alveg þræði og mætti vera
styttri en annars er vel þess
virði að fara og sjá Bernie,
þótt ekki væri fyrir annað að
sjá en Jack Black, sem hefur
sjaldan leikið jafn vel.
Þórður Ingi Jónsson
ritstjorn@dv.is
Bíómynd
Bernie
IMDb 7,4 RottenTomatoes 86% Metacritic 8,0
Leikstjóri: Richard Linklater
Handrit: Richard Linklater, Skip
Hollandsworth
Aðalleikarar: Jack Black, Shirley
MacLaine, Matthew McConaughey
104 mínútur
Bernie „Jack Black heldur
myndinni algjörlega uppi
en túlkun hans á karakt-
ernum er stórkostleg.“
„Uppáhaldsbókin mín núna er bókin Hugarró skrifuð af Rob
Narin, fjallar um sögu Buddha og núvitundarhugleiðslu.
Einföld, falleg bók sem er mér dýrmætur fjársjóður.“
– Tolli Morthens, listmálari.
Þ
etta er samansafn af
myndum úr myndatök-
um síðustu mánaða.
Þetta er það sem ég
kalla millimyndir eða milli-
móment í rauninni, á milli
uppstillinga,“ segir ljós-
myndarinn Aníta Eldjárn sem
opnar sýninguna „Á milli
mynda“ í Artima Gallery við
Skúlagötu föstudaginn 13.
júlí. Um er að ræða augnablik
á milli uppstillinga í tísku-
myndatökum sem Aníta hef-
ur tekið að sér. „Þetta eru
móment sem mér finnst mjög
falleg og myndir sem standa
vel einar sér.“
Aníta verður með níu
myndir á sýningunni en þær
eru mjög stórar, eða allar yfir
metri á hæð og breidd. „Ég
einmitt sá eina í dag og ég var
alveg í sjokki,“ segir Aníta hlæj-
andi. „En þetta kemur rosavel
út og ég er rosalega ánægð og
ég er mjög spennt fyrir þessu,“
bætir hún við.
Aníta hefur verið sjálfstætt
starfandi ljósmyndari frá því
hún kláraði ljósmyndanám
í Noregi á síðasta ári og hef-
ur tekið að sér fjölmörg verk-
efni. Hún hefur meðal annars
myndað fyrir verslunina lakka-
lakk.com á Hverfisgötu. Þá
myndaði hún nýlega söngkon-
una Þórunni Antoníu fyrir vef-
miðilinn Pjattrófurnar.
Sýningin verður opnuð, líkt
og áður sagði, föstudaginn 13.
júlí og stendur til þriðjudags-
ins 17. júlí. Aníta hvetur fólk
til að drífa sig á sýninguna um
helgina enda standi hún stutt
yfir.
„Var alveg í sjokki“
„Millimóment“ Aníta segir mynd-
irnar mjög fallegar og er spennt fyrir
sýningunni.
n Aníta Eldjárn opnar ljósmyndasýningu
Aníta Eldjárn Ungur og upp-
rennandi ljósmyndari.
Heillaður af handritinu
n Hefur ákveðna leikara í huga fyrir hlutverkin
Friðrik Þór Friðriksson er hæstánægður með að nóg sé
um kvenhlutverk fyrir konur á miðjum aldri í handriti
flugþjónsins Barða Guðmundssonar: „Allar bestu
leikkonur Íslands eru á sama aldri og sögupersónurnar í
handritinu. Í hvert skipti sem ég les handritið hef ég
ákveðinn leikara í huga fyrir hvert hlutverk svo það er
allt að koma heim og saman.“
Friðrik var leyndardómsfullur þegar blaðamaður DV
spurði hann hvaða leikara hann hefði í huga fyrir aðal-
hlutverkin: „Ég get ekki sagt til um það núna því engir
leikarar hafa verið ráðnir enn sem komið er. Auk þess á
eflaust eitt og annað eftir að breytast fram að tökum
næsta sumar.“
Þegar Friðrik var spurður hvað hafi heillað hann
mest við söguna, svarði hann: „Ég hef oft verið heillaður
af utangarðsfólki í öðrum myndum sem ég hef gert. Svo
hef ég sérstakt yndi af jarðarförum í mínum myndum í
gegnum tíðina og sagan fjallar meðal annars um fólk
sem þrífst á að sækja jarðarfarir.“
Sérstakt yndi af jarðarförum í myndum sínum Friðrik Þór
vill lítið gefa upp um hvaða leikara hann hefur í huga fyrir myndina.
MynD SIgTRygguR ARI
HandritsHöfundur í Háloftunum