Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Side 40
Fæðan geymir
fegrunarefnin
Má bjóða þér bjór í hárið eða appelsínu í andlitið? Bestu snyrtivörurnar má oft finna á hinum ótrúlegustu
stöðum og eldhúsið er einn þeirra. Á vefsíðu Whole Living má finna hinar margvíslegustu upplýsingar um
hvaða matvæli virka vel sem snyrtivörur.
Ólífuolía
Í olíunni er mikið af E-vítamíni og fitusýrum
og gefur brothættu og stökku hári raka.
Áður en farið er í sturtu er gott að greiða
nokkrar matskeiðar af olíunni í hárið, byrja
á rótum hársins. Setjið sundhettu yfir hárið
í 5–7 mínútur. Þvoið hárið og setjið næringu
í það en eftir þessa meðferð verður hárið
mjög mjúkt.
40 Lífsstíll 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
Haframjöl
Haframjöl inniheldur beta-glúkan trefjar
sem hafa róandi og bólgueyðandi áhrif en
auk þess mynda þær þunna og rakagefandi
filmu á yfirborð húðarinnar. Setjið lúku af
haframjöli á hreint viskastykki og lokið því
með teygju. Látið þetta ofan í volgt vatn
og kreistið fjórum eða fimm sinnum. Þegar
vatnið er orðið hvítt á lit berið það á andlitið
og látið svo þorna. Ef nauðsynlegt er að
þurrka andlitið gerið það þá varlega.
Lárpera
Fitusýrur í ávextinum hjálpa til við að
viðhalda rakajafnvægi húðarinnar og
A-, C- og E-vítamínin vernda hana gegn
skaða. Blandið saman jöfnu hlutfalli af
lárperuolíu og kvöldvorrósarolíu og setjið
í krukku eða annað ílát með loki og hristið
vel. Nuddið fimm til sex dropum á hreina
húð og leggið svo heitan þvottapoka yfir
andlitið. Það hjálpar olíunni að smjúga inn
í húðina.
Appelsínur
Sýrurnar í appelsínunni hreinsa dauðar
húðfrumur. Skerið appelsínu í tvennt og
kreistið safann úr helmingi hennar í skál.
Bætið út í ¼ bolla af sykri og ¼ bolla af
ólífuolíu. Blandið saman.Takið hinn helming
appelsínunnar og nuddið á hné, olnboga,
hæla og aðra þurra staði á líkamanum.
Takið því næst skrúbbinn og berið á til að
fjarlægja dautt skinn. Hreinsið af með volgu
vatni og þurrkið varlega.
Mjólk
Mjólkursýran hjálpar til við að fjarlægja húð-
frumur en hin fitan virkar sem náttúrulegt
rakakrem. Setjið fjóra potta af mjólk út
í baðvatnið og baðið ykkur í því. Þetta er
góður valkostur fyrir þá sem eru með við-
kvæma húð eða þjást af psóríasis eða exemi
en þeir ættu ekki að nota sykur eða salt
sem húðskrúbb. Ef þið viljið bæta við lykt í
mjólkurbaðið getið þið sett 10 til 20 dropa
af olíu, til dæmis lavenderolíu.
Egg
Próteinið í eggjunum styrkir hárið og gefur
því gljáa. Hrærið saman 1 eggi, 2 mat-
skeiðum af kókosolíu og 2 matskeiðum af
sesamolíu. Berið blönduna í hárið og setjið
heitt og rakt handklæði yfir það. Slakið á
í 5 til 10 mínútur. Setjið svo sjampó í hárið
án þess að bleyta það og skolið það svo úr.
Setjið að lokum hárnæringu í hárið.
Eplaedik
Hátt sýrustig í eplaediki gerir húðina
ófýsilegan stað fyrir bakteríur. Setjið
handfylli af steinselju, sem hreinsar húðina,
í pressukönnu og hálfan bolla af sjóðandi
vatni yfir. Látið standa í 10 mínútur áður en
safinn er pressaður frá steinseljunni. Látið
vökvann kólna áður en hann er settur í úða-
flösku og bætið svo fjórum dropum af tea
tree-olíu en hún virkar bakteríudrepandi.
Hristið vel og úðið á hreint andlitið. Geymið
flöskuna í ísskáp.
Bjór
Gerið og humallinn gefa hárinu meiri lyft-
ingu. Sýrustigið hjálpar til við að fjarlægja
leifar af hárvörum. Hellið flösku af bjór yfir
hárið eftir að það hefur verið þvegið. Skolið
með hreinu vatni. Germikill bjór virkar best.
Sýrður rjómi
Sýrður rjómi virkar vel sem rakagefandi
maski og mjólkursýrurnar hraða endur-
nýjun frumanna og gefa húðinni bjartara
yfirbragð. Fitan endurnýjar eðlilegt rakastig
húðarinnar. Berið 1–2 matskeiðar á andlitið
með fingrunum. Látið sýrða rjómann þekja
andlit og háls en forðist að setja hann ná-
lægt augum og vörum. Bíðið í 7–10 mínútur
áður en hann er skolaður af með blautum
þvottapoka. Skvettið svo volgu vatni á
andlitið og þurrkið varlega.
Kamillute
Notið þennan róandi drykk til að búa til
róandi bakstur. Te er bólgueyðandi auk
þess sem það dregur úr roða og þrota í
kringum augu. Það hefur einnig góð áhrif
á erta húð.
Leggið hreinan þvottapoka í kalt kamillu-
te og svo á húð eins og bakstur. Látið hann
liggja á í að minnsta kosti 10 mínútur áður
en húðin er skoluð og þurrkuð.
Möndluolía
Olían virkar mjög vel sem handáburður. Hún
er stútfull af E-vítamíni, smýgur auðveld-
lega inn í húðina og ver hendur og neglur.
Berið matskeið af olíunni á hendur og
naglabönd. Vefjið handklæði utan um
hendurnar og leyfið olíunni að vinna sitt
verk í 5 mínútur. Þurrkið olíuna af höndum
en skolið þær ekki. Olían sem eftir er heldur
áfram að fara inn í húðina. Setjið svo góðan
og rakagefandi handáburð á hendurnar.
Kíví
Ávöxturinn inniheldur mikið af C-vítamíni og
þegar andlitið er skrúbbað með kíví koma
litlu fræin að góðum notum við að hreinsa
húðina.
Afhýðið ávöxtinn og stappið hann með
gafli. Berið maukið á blautt andlitið með
hringlaga hreyfingum. Passið þó að fara
ekki nálægt augum og vörum. Skolið kívíið
af með volgu vatni eftir 30-60 sekúndur af
skrúbbi. Þurrkið varlega.
Matur sem
bætir
kynlífið
Ef dregið hefur úr neistafluginu í
kynlífinu hjá þér og makanum eða ef
erfiðleikar gera vart við sig í rúminu er
ýmislegt matarkyns sem getur leyst
vandamálið á náttúrulegan hátt.
A Lakkrís Ef þú átt erfitt með að koma þér í stuð er gott ráð
að borða lakkrís. Hann eykur blóð-
flæðið í líkamanum og ákveðin spenna
myndast.
B Túnfiskur Ef þú þjáist af þreytu og átt jafnvel orðið erfitt
með að brosa, borðaðu þá járnríkan mat
líkt og túnfisk og sólblómafræ. Slepptu
kaffi og blóðugum steikum, það gerir
ekki eins mikið gagn.
C Ostrur Blóðstreymið eykst þegar þú borðar mat sem inn-
heldur mikið sink, líkt og ostrur. Sinkið
eykur testósterón- og sæðisframleiðslu
hjá karlmönnum en eykur kynhvöt
kvenna og þær fá meira út úr kynlífinu.
D Spínat Til að draga úr eða koma í veg fyrir stress er gott að
borða mat sem inniheldur vöðvaslak-
andi vítamín, líkt og magnesíum eða
kalsíum. Spínat er gott dæmi um slíka
fæðu og appelsínusafi einnig.
E Súkkulaði Það er ástæða fyrir því að sumar konur segja
að súkkulaði geti komið í stað kynlífs.
Náttúruleg andoxunarefni í súkkulaði
hjálpa líkamanum við koma jafnvægi á
blóðstreymið í æðakerfinu. Súkkulaðiát
eykur einnig dópamínframleiðslu sem
hefur áhrif á ánægjustöðvar heilans.
Þú verður rólegri og fullnægðari. Þar
sem stress og taugaveiklun hefur áhrif
á kynhvötina þá gefur það auga leið að
súkkulaðiát getur bætt hana.
F Fræ Ef þú finnur fyrir depurð og hún er farin að hafa áhrif á
kynlífið er gott að borða mat sem er
uppfullur af ómega-3 fitusýrum eins og
hörfræ, valhnetur og lax. Slík fæða get-
ur aukið vellíðan með því að hafa áhrif á
serótónínmagn líkamans. En serótónín
eru hinir náttúrulega „ástarhormónar“
sem hjálpa þér við að slaka á og auka
hamingju sem eru lykilþættir þegar
kemur að því að njóta kynlífs.
G Avókadó Kossaflens er góður forleikur og lykillinn að góðu
kynlífi, en ef þú þjáist af andremmu
þá getur það dregið úr stemningunni.
Avókadó er frábært náttúrulyf við
andremmu en það drepur niður ensímin
sem valda henni. Steinselja er einnig góð
við andremmu.
H Appelsínur Það sem þú borð-ar hefur ekki bara áhrif á skapið
heldur einnig bragð líkamsvessanna líkt
og sæðis. Ef þú vil bragðast og lykta vel
meðan á kynlífi stendur er best að borða
sæta og súra ávexti eins og mangó,
appelsínur, sítrónur og ananas.
I Bananar Auka kynhvöt karla og gefa mikla orku sem er
nauðsynleg í kynlífinu.
J Chili-pipar Losar um endorfín í heilanum, örvar taugaendana og
örvar púlsinn. Allt þetta er bara jákvætt
þegar kemur að því að stunda kynlíf.