Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2012, Síða 44
Betri skjár á nýrri Kindle
n Aukin samkeppni og breyttar áherslur
N
ý Kindle-lestölva er væntan-
leg á markað síðar á árinu en
hún leysir af hólmi Kindle
Fire. Kindle-vélarnar hafa
verið gríðarlega vinsælar sem lest-
ölvur en það þykir einna best að
lesa af skjá Kindle-vélarinnar auk
þess sem hún er lítil og fer vel í lófa.
Eins og alltaf þegar nýir gripir eru
væntanlegir á markað leka út upp-
lýsingar og nýjustu fregnir herma
að skjáupplausnin verði betri en á
Kindle Fire; 1280 x 800 í stað 1024
x 600.
Það er sama upplausn og á nýju
vélinni frá Google, Nexus 7. Hún
í sama stærðarflokki og Kindle, 7
tommu skjár, en minni en iPad,
10,2 tommu skjár. Breytingin er því
sögð vera svar við þessari auknu
samkeppni sem Nexus 7 mun án efa
veita Kindle. Þá hefur einnig verið
uppi orðrómur um iPad-mini. Sú vel
mun verða hugsuð til þess að herja
á þennan markað, þar sem þeir
sem hafa eingöngu áhuga á lest-
ölvu hafa hingað til mest sóst eftir
Kindle vegna þess hve ódýr hún er
miðað við aðrar spjaldtölvur. Nexus
7 kostar hins vegar það sama en er
einnig mun öflugri að flestu ef ekki
öllu leyti.
Fleiri upplýsingar um nýju
Kindle-vélina liggja ekki á lausu en
talið er að hún verði kynnt í kringum
næstu mánaðamót. Mikið líf hef-
ur verið á spjald- og lestölvumark-
aðnum undanfarið. Bæði Google
og Microsoft sendu frá sér nýj-
ar vélar auk þess sem Samsung er
hugsanlega á leiðinni með vél með
Windows-stýrikerfi.
44 Lífsstíll 13.–15. júlí 2012 Helgarblað
Hreinsaðu
vatnið sjálfur
Þó svo við Íslendingar höf-
um óheftan aðgang að hreinu
drykkjar vatni er sú ekki raunin
víða annars staðar. Núna er hægt
að kaupa vatnsflösku frá Camel-
bak sem hreinsar fyrir þig vatnið
með útfjólubláum geislum (UV).
Þannig að ef þú ert staddur ein-
hvers staðar þar sem þú kemst
ekki í ómegnað drykkjarvatn getur
þú rifið upp brúsann og hreinsað
sopann. Hægt er að hreinsa um 15
lítra af vatni með hverri hleðslu en
gripurinn kostar ytra 75 dali eða
9.500 krónur.
Samsung vill
Windows
Allt útlit er fyrir að Samsung setji á
markað spjaldtölvu með Windows
RT-stýrikerfi. Hávær orðrómur
þess efnis hefur vakið upp spurn-
ingar þar sem Samsung er þegar
með spjaldtölvu í sölu sem notast
við Android-stýrikerfi – það sama
og er að finna í Samsung-farsím-
um. Í kjölfarið hafa skapast um-
ræður um hvort að Samsung, einn
stærsti farsímaframleiðandi heims
um þessar mundir, ætli alfarið að
snúa sér að Windows eða bjóða
upp á báða kosti.
Með bakverk?
Eftir því sem skrifstofuvæðingin
eykst kljást æ fleiri við bakkvilla
vegna daglangrar kyrrsetu.
Vinnuaðstaðan frá Focal Locus
er hönnuð til þess að koma í veg
fyrir það. Með stillanlegu borði og
stól sem ýta undir hreyfanleika og
þar með blóð- og súrefnisflæði.
Borðið hallar á móti viðkomandi
þannig að álagið er líka tekið af
hálsinum. Sett saman úr áli, stáli
og harðvið og kostar sitt. 1.450 dali
eða um 190.000 krónur ytra.
Kindle Fire, Nexus 7 og Nook Tablet Þær 7 tommu spjaldtölvur sem eru í boði á 199 dali ytra.
T
ækniþróunin á spjaldtölvu-
og snjallsímamarkaðnum
hefur verið hröð undanfar-
in misseri. Sífellt meira úr-
val er af þessum tækjum
og mikil samkeppni. Svo virðist þó
vera að þessi samkeppni sé ekki jafn
óheft og halda mætti. Í það minnsta
ef marka má grein Nilay Patel,
blaðamanns TheVerge.com. Hann
skrifaði fyrir skömmu grein þar sem
hann fjallar um áhrif símafyrirtækja
á þróunina og rifjar upp ummæli
Steve Jobs frá árinu 2005.
Í grein sinni segir Patel frá því
hvernig símarisarnir, aðallega Ver-
izon og AT&T í Bandaríkjunum,
stjórna vöruþróuninni og í raun
segja fyrirtækjum hvernig varan eigi
að vera. Rætt er við ýmsa ónafn-
greinda aðila í faginu. Rifjar hann
upp eftirminnileg ummæli Steve
Jobs heitins, forstjóra Apple, frá ár-
inu 2005. „Símafyrirtækin hafa nú
náð yfirhöndinni gagnvart farsíma-
framleiðendum. Þeir segja fram-
leiðendum hvernig varan á að vera.
Ef Nokia og Motorola hlusta ekki þá
munu Samsung og LG gera það.“
Í þessu samhengi er rifjað upp
að áður en iPhone kom á markað-
inn vildi Verizon ekki selja símann.
Steve Jobs vissi að án símarisanna
sem sjá um sölu og dreifingu myndi
iPhone aldrei komast á flug. Hann
sannfærði því AT&T um að taka
iPhone upp á sína arma og neyt-
endur þekkja framhaldið. Varan
gjörbreytti markaðnum. Þessi völd
símafyrirtækjanna gera að verk-
um að þau velja hvaða tæki ná ár-
angri og hver ekki. Ekki neytend-
ur sjálfir heldur dreifingaraðilarnir.
Dæmi um þetta eru fyrirtæki eins og
Palm og Vizio. Palm fór einfaldlega
á hausinn út af því dreifingaraðil-
ar/símafyrirtæki settu þeim stólinn
fyrir dyrnar. Sömu sögu er að segja
um Vizio sem hætti við að setja
farsíma á markað.
Þessi völd og verðlagning á þjón-
ustu gerir að verkum að risafyrirtæki
eins og Google og Microsoft eru far-
in að sneiða hjá því að semja við
dreifingaraðilana. Það sést á því að
bæði nýja spjaldtölvan frá Google,
Nexus 7, og nýja vélin frá Microsoft,
Surface, verða fyrst um sinn í það
minnsta aðeins fáanlegar með Wi-
Fi-tengingu. Þær geta því ekki tengst
netinu í gegnum GSM-samband.
Þannig að öll þessi tæki sem bjóða
upp á að fólk sé tengt öllum stund-
um eru ekki nýtt sem skyldi þar sem
framleiðendur og jafnvel notendur
treysta á þráðlaust net, Wi-Fi.
„Símafyrirtækin
stjórna þróuninni“
n Ummæli Steve Jobs frá 2005 hafa ræst n Velja hvaða vörur ná árangri
Steve Jobs Sagði árið 2005 að símarisarn-
ir stjórnuðu markaðnum og það virðist hafa
komið á daginn.