Fréttablaðið - 12.12.2014, Qupperneq 54
16 • LÍFIÐ 12. DESEMBER 2014
4
Kögurkjóll – Hann er
keyptur í Aftur og er úr
smiðju Raquel Allegra.
Mér finnst hann not-
hæfur við mörg tæki-
færi, hvort sem ég er að
klæða mig upp á fyrir
eitthvert tilefni eða hvers-
dags með grófri peysu
og grófum skóm. Fyrir
utan það að ég elska
kögur, það er aldrei of
mikið af því.
1. Þegar ég var ungur
var ég mjög uppátækjasamur
og vildi verða Dj.
2. En núna er ég mjög
uppátækjasamur Dj/tónlistar-
maður sem andar dýpra en þá.
3. Ég mun eflaust
aldrei skilja fólk sem
biður um óskalög.
4. Ég hef ekki sér-
stakan áhuga á
leiðindum.
5. Konur eru okkar
eina von.
6. Ég hef lært að
maður á alls
ekki að velta
sér upp úr
hlutunum.
7. Ég fæ samviskubit
þegar ég er ekki nóg með
fjölskyldunni.
8. Ég slekk á sjónvarpinu
þegar ég fæ ekkert út úr því.
9. Um þessar mundir er
ég mjög upptekinn
af fjölskyldunni, fyrir-
tækinu og tónlistinni.
10. Ég vildi
óska þess að
fleiri vissu af
því hversu gott er
að stunda jóga.
10 SPURNINGAR
Benedikt Freyr Jónsson,
tónlistarmaður/plötusnúður og eigandi að
Lifandi verkefnum
3 Duffle bag – Jólagjöf frá samstarfskonu minni, henni Evu. Mér
finnst hún mjög falleg og mér þykir vænt um hana. Ég nota
hana ótrúlega mikið, hvort
sem ég er að fara í burtu
yfir helgi eða bara í jóga.
Ég lánaði hana um dag-
inn og ég saknaði henn-
ar allan tímann sem ég
sá hana ekki í herberg-
inu mínu. Hún gerir mig
bara glaða.
1 2„Fatastíllinn minn er breytilegur og kemur í tímabilum. Ég klæði mig meira eftir því hvernig mér
líður heldur en hvernig veðrið er
úti, sem getur verið stórfenglegt
vandamál.“
Aftur vesti – Fullkomin flík
þegar byrjar að kólna í
Køben, þá getur maður fram-
lengt alla jakka inn í vetur-
inn. Ég reyni að vera alltaf í
því þegar ég ferðast því þetta
er náttúrulega besta og smart-
asta flugvélateppið. Reynd-
ar er það mjög svo ófullkom-
in hjólaflík, það hef ég lært
af biturri reynslu en hvað með
það! Þá labba ég bara!
Rick Owens skór –
Hmmm, skemmti-
leg og falleg saga
á bak við þessa
snilld. Hún fær
hins vegar að
liggja á milli hluta
að þessu sinni.
Þeir eru náttúru-
lega bara tryllt-
ir og ég fékk þá
að gjöf.
5
Grá kasmírullarpeysa – Það er
ekkert flókið en ég bara elska
hana, gerði áður en hún varð mín
og mun alltaf gera eftir að ég fékk
hana. Hún er líka úr Aftur. Get
ekki hugsað mér neitt annað en
að vefja henni utan um mig þegar
mér er kalt, ég sver það hún fram-
leiðir hita.
FATASKÁPURINN
ANNA SÓLEY
VIÐARSDÓTTIR
Stílisti og annar eigandi lífsstílsmerkisins Ampersand
JÓLA
VERÐ-
SPRENGJAN
ER HAFIN!
50%
Grensásvegi 8 - Sími 553 7300
Opið mán-fim 12–18, fös 12–19, lau 12–17
PEYSUR, BUXUR, BOLIR, LEGGINGS,
TOPPAR, KJÓLAR, SKYRTUR,
TÖSKUR, SKART OG FLEIRA
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
FATNAÐI
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ, GERÐU
DÚNDUR KAUP FYRIR JÓLIN