Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Qupperneq 8
990 milljónir fóru
á milli félaga Pálma
8 Fréttir 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað
„Aldrei beitt ofbeldi“
n Egill Einarsson segir ömurlegt ár að baki
Þ
að vita allir að ég hef gengið í
gegnum ömurlegasta ár ævi
minnar og það er ekkert sér
staklega hressandi að rifja
það upp. En góðu fréttirnar eru
að það versta er að baki. Ég vona
það,“ segir Egill Einarsson, betur
þekktur sem Gillz, í fjögurra síðna
viðtali í tímaritinu Monitor, fylgiriti
Morgunblaðsins.
„Það er ákveðinn öfgahópur
sem engu ræður sem vill svipta mig
málfrelsinu. Ég gerði ekkert af mér,
hef aldrei beitt manneskju ofbeldi
á ævinni, er ekki ofbeldismaður, og
því ætti að vera í góðu lagi að taka
viðtal við mig.“
Egill segir málið hafa haft mikil
áhrif á líf sitt: „Það er erfitt að lýsa
því hvernig það er að vera sakaður
um glæp sem maður framdi ekki,
og svona hræðilegan glæp. Þegar
svo við bætist að menn hafa viljað
notfæra sér svo alvarlega ásökun
og bæta í, rógi og viðbjóði, ofan á
það, og við erum ekki bara að tala
um einhverja fábjána á umræðu
kerfi DV heldur líka stjórnmála
menn og annað áhrifafólk, þá get
urðu rétt ímyndað þér hvernig það
fer með mann. Þetta er bara veru
lega vont. Við erum að tala um
margar andvökunætur og það var
leiðinlegt að sofna með hnút í mag
anum og vakna með sama hnút,“
segir Egill sem segir málið hafa haft
gríðarleg áhrif á móður sína. Þá lést
fósturóðir Gurrýjar, unnustu hans,
í janúar:
„Það var sérkennilega erfitt
að fylgja henni til grafar í skugga
nauðgunarkæru. Sko, það sem ég
er að reyna að segja er að þetta litar
líf manns, eiginlega setur skugga á
allt sem maður gerir.“ n
Fáðu greinar í heild sinni
á DV.is og vefáskrift
af prentútgáfu DV
* Verðið er 790 kr. fyrstu
3 mánuðina, en 1.790 kr. eftir það.
fyrir 790 kr.
á mánuði *
Sjáðu
meira
R
úmlega 990 milljónir
króna af ríflega 2,6 millj
arða rekstrartekjum Ferða
skrifstofu Íslands runnu til
Iceland Express í fyrra. Þetta
kemur fram í ársreikningi Ferða
skrifstofu Íslands sem skilað var til
ársreikningaskrár ríkisskattstjóra
um miðjan september síðastliðinn.
Pálmi Haraldsson fjárfestir var eig
andi beggja fyrirtækjanna í lok síð
asta árs.
Þetta þýðir í reynd að meira en
þriðjungur af öllum tekjum Ferða
skrifstofu Íslands rann til systurfé
lags þess, Iceland Express. Um þetta
segir orðrétt í ársreikningi Ferða
skrifstofu Íslands: „Félagið keypti
þjónustu af tengdum aðila fyrir
990,6 millj. kr. á árinu.“
Ferðaskrifstofa Íslands sam
anstendur af Úrval Útsýn, Plúsferð
um, Sumarferðum og ferðaskrif
stofunni Heklu Travel í Danmörku,
sem var keypt í febrúar 2012. Fyr
irtækið er í eigu eignarhaldsfélags
ins Academy S.á.r.l. í Lúxemborg.
Ferðaskrifstofan hefur verið í sölu
ferli hjá verðbréfafyrirtækinu Arct
ica Finance. Komið hefur fram í fjöl
miðlum að Pálmi vilji að minnsta
kosti 800 milljónir króna fyrir Ferða
skrifstofu Íslands.
84 milljóna hagnaður
Hagnaður Ferðaskrifstofu Íslands
nam tæplega 85 milljónum króna
í fyrra en hafði numið ríflega 650
milljónum króna árið 2010. Sá hagn
aður var að hluta tilkominn vegna
niðurfærslu á skuldum Ferðaskrif
stofu Íslands árið 2010, rúmlega 260
milljónum króna. Í fyrra var engin
skuldaniðurfærsla hjá fyrirtækinu og
er því um að ræða hagnað af rekstri
félagsins að stóru leyti.
Hagnaðurinn byggir þó auðvit
að að nokkru leyti meðal annars á
því að Pálmi var í þeirri stöðu að
geta átt í viðskiptum við eigin far
miðasölu, Iceland Express, og eig
ið flugfélag, Astraeus, stóran hluta
ársins í fyrra.
Viðskiptavild tæpur helmingur
eigna
Bókfærðar eignir Ferðaskrifstofu Ís
lands nema rúmlega 1.200 milljón
um króna. Þar af er viðskiptavild upp
á rúmlega 511 milljónir króna. Við
skiptavildin var niðurfærð um 50
milljónir króna í fyrra. Ekki er útskýrt
hvernig viðskiptavild félagsins er til
komin né af hverju hún er svo há.
Væntanlegur kaupandi Ferða
skrifstofu Íslands mun því vera að
greiða nokkur hundruð milljónir
króna fyrir viðskiptavild fyrirtækisins
ef svo fer að Pálmi fái eins hátt verð
fyrir félagið og hann telur sig geta
fengið.
Skuldir afskrifaðar við kaupin
Líkt og DV greindi frá í mars í fyrra af
skrifaði Landsbanki Íslands um 800
milljónir króna af skuldum Ferða
skrifstofu Íslands í ársbyrjun 2010.
Pálmi keypti Ferðaskrifstofu Ís
lands í byrjun janúar 2009, nokkrum
mánuðum eftir íslenska efnahags
hrunið. Reksturinn hafði verið erf
iður hjá þáverandi eiganda félags
ins, eignarhaldsfélaginu Saxbygg og
tengdum aðilum, en skuldir félags
ins námu rúmum tveimur milljörð
um króna í árslok 2008.
Þegar greint var frá kaupunum á
Ferðaskrifstofu Íslands í fjölmiðlum
kom fram að nokkur hundruð millj
ónir króna yrðu lagðar inn í rekstur
inn auk þess sem skuldir þess yrðu
yfirteknar. Félagið stóð því frammi
fyrir óhjákvæmilegu gjaldþroti
þegar Pálmi kom að rekstrinum og
má segja að hann hafi haldið fyrir
tækinu gangandi með kaupunum.
Breyttar forsendur
Kaupverðið á félaginu var ekki gefið
upp á sínum tíma.
Samkvæmt ársreikningnum fyrir
2009 voru 750 milljónir króna lagðar
inn í rekstur Ferðaskrifstofu Íslands í
formi nýs hlutafjár á árinu en skuld
ir félagsins lækkuðu sömuleiðis úr
rúmum 2,4 milljörðum króna og nið
ur í tæpa 1,4 milljarða vegna skulda
niðurfærslu og innborgun nýs hluta
fjár.
Nú vill Pálmi selja ferðaskrif
stofuna fyrir nokkuð háa upp
hæð enda hafa forsendurnar fyr
ir áframhaldandi eignarhaldi
hans á fyrirtækinu breyst umtals
vert frá kaupunum á henni í árs
byrjun 2009. Astraeus er komið í
greiðslustöðvun og Pálmi seldi far
miðasöluna Iceland Express í síð
asta mánuði fyrir ótilgreinda upp
hæð. n
n Tæplega helmingur eigna Ferðaskrifstofu Íslands er viðskiptavild
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Félagið keypti
þjónustu af tengd-
um aðila fyrir 990,6 millj.
kr. á árinu.
Vill 800 milljónir Pálmi Har-
aldsson vill selja Ferðaskrifstofu
Íslands fyrir 800 milljónir króna.
Meira en hálfur milljarður af 1.200
milljóna króna eignum félagsins er
viðskiptavild.
Andvökunætur „Það var leiðinlegt að
sofna með hnút í maganum og vakna með
sama hnút.“
Ók full með
barnabarnið
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði í vikunni konu sem
reyndist vera ölvuð undir stýri.
Konan var ekki einsömul í bílnum
því með í för var ólögráða barna
barn hennar. Amman var hand
tekin og flutt á lögreglustöð, en
gerðar voru viðeigandi ráðstaf
anir í þágu barnsins og barna
verndaryfirvöld jafnframt upplýst
um málið.
„Þekkt eru dæmi um foreldra
sem aka drukknir eða undir
áhrifum fíkniefna með börn sín í
bílnum. Lætur nærri að slík mál
hafi komið á borð lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu næstum
mánaðarlega á síðasta ári. Fáheyrt
er hins vegar að afar og ömmur
gerist sek um slíkt dómgreindar
leysi, en svo bregðast krosstré sem
önnur tré,“ segir í tilkynningu lög
reglunnar um málið.
„Ég hef engar
áhyggjur“
„Ég hef engar áhyggjur af þessu,
það er ekkert athugavert við þessi
viðskipti sem voru fyrir áratug og
menn mega skoða það eins og
þeir vilja,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis
flokksins, í samtali við Morgun
blaðið.
Þar er hann spurður út í kæru
Gunnars Andersen, fyrrverandi for
stjóra Fjármálaeftirlitsins, á hend
ur honum til embættis sérstaks
saksóknara. Kæran varðar meint
umboðssvik og mútuþægni þing
mannsins vegna viðskipta einka
hlutafélagsins Bogmannsins ehf. við
Landsbanka Íslands árið 2003.
Það var DV sem greindi frá
kærunni á þriðjudag en hún beinist
einnig að eiginkonu Guðlaugs Þórs,
Ágústu Johnson, og fyrrverandi
bankastjóra Landsbankans, Sigur
jóni Þ. Árnasyni.
„Þetta er einungis nýjasti þáttur
inn í leikriti Gunnars Andersen og
Inga Freys á DV og ég efast ekki um
að þeir verða örugglega fleiri,“ segir
Guðlaugur Þór við Morgunblaðið.