Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Blaðsíða 32
Salka Sigurðardóttir Styður þú Árna Pál til forystu í Samfylkingunni eða hefur þú sjálf áhuga á að bjóða þig fram til formanns?  Sigríður Ingibjörg Ég hef haldið öllu opnu og styð því á þessari stundu engan. Rósanna Andrésdóttir Hver telur þú að séu brýnustu hagsmunamál ungs fólks í dag?  Sigríður Ingibjörg Öflugur leigumarkaður, gott menntakerfi og þátttaka og áhrif í samfélaginu. Salvar Sigurðarson Hver eru þín stærstu mistök á ferlinum, og hvað lærðirðu af þeim?  Sigríður Ingibjörg Ég get nú ekki bent á eitthvað eitt sem stærstu mistök en mér hefur lærst á tiltölulega stuttum þingmannsferli að tvítékka upplýsingar! Það ætti auðvitað að segja sig sjálft. Theodor Marrow Ertu ánægð með Samfylkingarskjald­ borgina fyrir heimilin?  Sigríður Ingibjörg Samfylkingin og VG hafa beitt sér mikið í skulda­ málum heimilanna. Við vitum líka að það þarf að fylgjast vel með að­ stæðum heimilanna og endurmeta stöðuna ef einhverjir hópar eru ekki að komast út úr skuldavanda. Guðjón Sigurðsson Skeggjaður kall eða lagleg kona sem formaður. Hvað skilur á milli ykkar Árna?  Sigríður Ingibjörg Fólk telur mig meira til vinstri og hann meira til hægri. Að mínu mati komum við úr ólíkri stjórnmálahefð. En við vinnum vel saman. Haraldur Baldursson Það liggur í augum uppi að Samfylkingin leiti til þín með formannshlutverkið. Getur þú vikist undan því?  Sigríður Ingibjörg Ég hef ekki vik­ ist undan því en það er mikilvægt að prófkjör í öllum kjördæmum klárist og fólk í flokknum meti þá hvað komi sér best fyrir flokkinn. Hver er líklegastur til að tryggja flokknum forystuhlutverk eftir næstu kosningar og fylkja fólki bak við jafnaðarhugsjónina. Ingibjörg Stefánsdóttir Er eitthvað verið að gera til þess að byggja upp húsaleigukerfið sem alvöru valkost?  Sigríður Ingibjörg Já, heldur betur. Það er verið að breyta húsnæðisstuðningskerfinu svo að fólk á leigumarkaði fái stuðning til jafns við þá sem kaupa. Þá er t.d. Reykjavíkurborg að vinna frábæra vinnu til að fjölga leiguíbúðum miðsvæðis í borginni. Í velferðar­ ráðuneytinu er líka verið að vinna tillögur um breytt rekstrarumhverfi leigufélaga, aukna upplýsingaöfl­ un um húsnæðismarkaðinn og búið að gera samning við Neytenda­ samtökin um upplýsingaþjónustu fyrir fólk á leigumarkaði. Theodor Marrow Hver eru laun þín á mánuði, fyrir nefndarstörf?  Sigríður Ingibjörg Ég fæ þingfararkaup sem er 610.104 og starfskostnað sem er um 70 þúsund kr. Það er greiddur skattur af honum en hægt að leggja inn reikninga fyrir kostnaði sem tengist þingstörfum. Theodor Marrow Ertu ánægð með þá niðurstöðu að 16.000 af því fólki sem þú ert í vinnu hjá, hefur ekki í sig eða á, á meðan laun þín eru margföld þeirra??  Sigríður Ingibjörg Nei, að sjálf­ sögðu er ég það ekki. Ríkisstjórnin tók við þegar fjármálakerfið og krónan voru hrunin og skuldir ríkisins gríðarlegar. Við þurftum að auka skattheimtu því tekjustofnar hrundu en innleiddum þrepaskatt svo ekki þyrfti að hækka á þá lægst launuðu. Í niðurskurði á almannatryggingakerfinu var þeim tekjulægstu hlíft og velferðarkerfið varið. Bjarni Jónsson Ef þú lítur til baka og skoðar störf þín á Alþingi, frá því þú tókst þar sæti, af hverju ertu stoltust?  Sigríður Ingibjörg Ég er stoltust af því hvernig Samfylkingin hefur staðið saman þrátt fyrir erfið verkefni. En ef ég á að taka eitt mál út sérstaklega þá er það yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitar­ félaga. Það er málaflokkur sem var vanræktur en er í uppbyggingu eftir hrun út af yfirfærslunni. Kári Jónsson Ert þú sammála því að upplýsingar um tekjur og skuldir frambjóðenda séu kjósendum aðgengilegar?  Sigríður Ingibjörg Já, ég er það. En það þyrfti líka ítarlegri hags­ munaskráningu. Skuli Gunnarsson Hvernig gengur að afnema verðtrygginguna hjá stjórnvöldum? Fer málið enn og aftur í nefnd?  Sigríður Ingibjörg Verðtryggingin er sjúkdómseinkenni. Það þarf samstarf um að ná niður verðbólgu og helst að taka upp stöðugri gjaldmiðil. Verðtrygging var allt of almenn í lánveitingum til heimila. Nú hafa heimilin fleiri valkosti en ef verðbólga er viðvarandi vandamál bitnar það á heimilunum óháð því hvort þú ert með verðtryggð eða óverðtryggð lán. Kristín Sesselja Kristins- dóttir Hvað ætlar Samfylkingin að gera fyrir venjulegt fólk, sem ekki hefur fengið neina leiðréttingu í kjölfari hruns. Hjá fólki sem fór varlega í sínum fjármálum, tók ekki gengistryggð lán og situr núna með ólöglega eignaupptöku sem er í formi verðbólgu? Við sitjum eftir og sjáum að ekkert er gert fyrir þennan hóp.  Sigríður Ingibjörg Við hækkuðum vaxtabætur til að koma á móts við þessi heimili. Hildur Lilliendahl Viggósdóttir Hver eru brýnustu útistandandi jafnréttismálin?  Sigríður Ingibjörg Skýrustu birtingarmyndir kynjamisréttis eru kynbundið ofbeldi og launamis­ rétti. Það þarf augljóslega að gera miklu meira á þessum sviðum. Heimir Hólmarsson Þingmenn ræða oft um að bæta þurfi siðferði á Alþingi. Það hefur verið sent á alla þingmenn siðfræðilegt líkan fyrir þingmenn til að meta siðferði í frumvörpum. Hvað finnst þér um stöðu siðferðis þingmanna og munt þú nýta þér þetta líkan til að meta þína siðferðisvitund gagnvart frumvörpum?  Sigríður Ingibjörg Mér fannst frábært að fá þetta líkan sent og mun nýta mér það. Síðan er verið að semja siðareglur fyrir þingmenn. Að mínu mati er rík þörf á skrifuð­ um siðareglum fyrir þingmenn. Gísli Baldvinsson Sæl Sigríður Ingibjörg. Ljóst er að nýr formaður verður kosinn bréflega eða á landsfundi. Hvaða sýn hefurðu á nýja forystu og hvaða áherslumál á hún að hafa?  Sigríður Ingibjörg Ný forysta þarf að vera traustvekjandi og hafa breiða skírskotun í flokknum. Helstu áherslumálin eiga að vera jöfnuður og félagslegt réttlæti. Agnar Þorsteinsson Ert þú tilbúin til þess að ganga til samstarfs við Sjálfstæðis­ flokkinn þ.e. „óbundin til kosninga“ eða muntu leggjast á móti því að Samfylkingin gerist á ný helminga­ skiptahækja íhaldsins með því að koma sjálfstæðismönnum til valda að nýju?  Sigríður Ingibjörg Ég vil helst ekki starfa með Sjálfstæðis­ flokknum. Þeir eru allt of langt til hægri og fylgja enn sömu stefnu og fyrir hrun. Ég hef áður sagt að minn fyrsti valkostur væri áframhaldandi samstarf við VG ef umboð frá kjósendum fengist til þess. Donni Gislason Sæl Sigríður,ætlið þið ekki að hækka/leiðrétta örorkubæt­ urnar afturvirkt?  Sigríður Ingibjörg Það er ekki stefnt að afturvirkri hækkun örorkubóta. Einar Jónsson Nú er fólki sem var með erlend húsnæðislán mismunað eftir því í hvaða banka þau voru tekin. Hafið þið hugleitt lagasetningu til að jafna stöðu þessara hópa?  Sigríður Ingibjörg Ef þú ert að vísa í þau lán sem Hæstiréttur hefur dæmt lögleg gengisbundin lán þá skilst mér að það sé lítið hægt að gera. En félagar mínir í efnahags­ og viðskiptanefnd vita mun meira um þessi mál. Við höfum miklar áhyggjur af því hvað þetta gengur hægt og hvað sum fjármálafyrirtæki eru treg í taumi. Lára Hanna Einarsdóttir Ertu hlynnt því að land Grímsstaða á Fjöllum, 0,3% af Íslandi, sé framselt Kínverjum í gegnum GáF ehf.?  Sigríður Ingibjörg Ég var ánægð með niðurstöðu Ögmundar á sínum tíma því salan hefði í raun gert lögin marklaus. Það sem ég hef fylgst með þessu máli virðast fjárfestingaráætlanir GáF ehf. frekar óskýrar og ég tel ekki að leigja eigi mikilvægt land undir starfsemi sem hefur ekki augljóst gildi fyrir eigendurna. Hrafn Malmquist Styður þú þátttöku Íslands í hernaðar­ aðgerðum Atlantshafsbanda­ lagsins í Afganistan?  Sigríður Ingibjörg Ég er friðarsinni og er því á móti hernaðaraðgerð­ um. Mér þykir vel koma til greina að endurmeta aðild Íslands að NATO en þá þarf að vega og meta hags­ muni Íslands og hvaða stöðu við viljum hafa í alþjóðasamfélaginu. Gísli Valdórsson Nú mistókst aðför þín að Össuri Skarphéðinssyni um síðustu helgi þegar ykkur tókst að kæra hluta kjósenda (í flestum tilvikum stuðningsmenn Össurar) út af kjörskrá. Sérðu fram á að geta boðið þig fram til formanns eftir þann gjörning?  Sigríður Ingibjörg Mér skilst að kjörstjórn hafi tekið fólk út af kjörskrá vegna fjölda kvartana sem bárust skrifstofu Samfylk­ ingarinnar frá fólki sem kannaðist ekki við að vera í flokknum. Ég sé ekki að það hafi áhrif á hugsanlegt formannsframboð mitt! Bjarki Hilmarsson Oft segjast frambjóðendur/ flokkar „ganga óbundnir til kosninga“ ertu fylgjandi því hugarfari?  Sigríður Ingibjörg Mér finnst eðlilegt að kjósendur viti að hverju þeir ganga. Hins vegar verður að mynda ríkisstjórn og því er ekki skynsamlegt að útiloka ákveðna flokka nema þeir séu mjög öfga­ fullir. Sigurjón Hafsteinsson Ert þú tilbúin að mæla með frumvarpi þess efnis að ríkissjóður Íslands greiði fyrir kostnað við að fá skorið úr um hjá ESB dómstólum lögmæti verðtryggingar á neytendalánum hér á landi?  Sigríður Ingibjörg Ég tel að það þurfi að stórauka neytendavernd á fjármálamarkaði en tel ekki að ríkissjóður eigi að greiða einstaka málsóknir. Ingi Hauksson Hvað gerir þú í frístundum?  Sigríður Ingibjörg Ég er með fjölskyldunni og svo finnst mér mjög skemmtilegt að umgangast vini mína. Ég vildi að ég gæti sagt frá spennandi áhuga­ málum og ævintýramennsku en það væri lygi! Mér finnst mjög gaman að lesa, púsla og bródera. Lára Hanna Einarsdóttir Landsvirkjun er að skipuleggja og láta hanna raflínur um allt Ísland sem geta flutt margfalt það rafmagn sem þörf er á. Forstjóri Landsvirkjunar stefnir að því að selja rafmagn úr landi. Virðisauki yrði þar með fluttur úr landi og afleiðingin sú að Íslendingar færu á samevrópskan markað með tilheyrandi verðsveiflum og verðhækkunum. Ertu sammála fyrirætlunum Landsvirkjunar?  Sigríður Ingibjörg Ég viðurkenni að ég hef ekki mikið verið að skoða þessi mál og treysti mér ekki til að segja eitthvað af viti um þetta. Almennt vil ég segja um orkumál að ég er fylgjandi rammaáætlun, tel að þjóðin eigi að njóta arðsins af orkulindunum og að nýta eigi orkuna fyrir verðmætaskap­ andi atvinnugreinar sem auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi og veita fólki vel launuð störf. Sveinn Arnarsson Hvert á íslenskt samfélag að stefna í byggðamálum? Hver eru brýnustu verkefni íslensks þjóðfélags í dag varðandi byggðir landsins?  Sigríður Ingibjörg Blómleg byggð í landinu er eftirsóknarverð. Það finnst mér í hjarta mínu þó ég sé Reykvíkingur. En blómleg byggð fæst ekki með stórri verksmiðju heldur með góðri opinberri þjónustu, fjölbreyttum atvinnu­ tækifærum og menningarlífi. Sóknaráætlun 2020 og vaxta­ samningarnir miða að þessu og svo tel ég að byggðaáætlanir ESB yrðu mikil lyftistöng fyrir Ísland í heild sinni. Guðmundur Skúlason Hvers vegna varst þú á móti því að aftengja verðtrygginguna fyrir hrunið, þegar vitað var hvert stefndi? ­ Þar á ég við setu þína í nefnd, ásamt Gylfa Arinbjarnarsyni, sem var mótfallin forvirkum aðgerðum sem þeim að aftengja vísitöluna tímabundið.  Sigríður Ingibjörg Þessi nefnd var að störfum eftir hrun og ég vann í ráðuneytinu og var starfsmaður hennar. Niðurstaða hennar er því ekki mín skoðun heldur þeirra sem skipaðir voru í nefndina. Einar Aðalbjörnsson Nú talar þú um að það hafi verið hækkaðar vaxtabætur! Við hin erum að tala um verðtryggingu sem á bara ekkert skylt við vaxtabætur. Til hvaða aðgerða vilt þú að verði gripið varðandi hana?  Sigríður Ingibjörg Það þarf að draga úr vægi hennar. En verðbólgan er hið stóra mein sem tengist óstöðugu efnahagslífi og íslensku krónunni. Greiðslubyrði óverðtryggðra lána tekur miklum sveiflum í verðbólgu og getur því reynst heimilunum erfið. Mál nr. 1, 2 og 3 er að ná verðstöðugleika. Þá myndi hjálpa mikið að hafa stöð­ ugri gjaldmiðil en íslensku krónuna. 32 Umræða 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað „Verðbólgan hið stóra mein“ M y n D IR E y Þ Ó R Á R n A S O n „Ég held að háttvirt- ir þingmenn ættu að fara að snúa sér að hlutum og málum sem eru að einhverju gagni fyrir Ísland og Íslendinga en ekki eyða tímanum í svona vitleysu þá loksins þegar þeir drullast til að mæta í þingsal!“ Vilhjálmur Óli Valsson lét Álf­ heiði Ingadóttur heyra það, sem spurði hvað Nova hefði greitt fyrir meinta auglýsingu í skemmtiþættin­ um Hraðfréttum. „Elsku drengur. Þegar örlar á mótbyr ertu farinn að tala um „vinstrisinnaða femínista“ og „einhverjar lopahúfur“ sem fyrirmynd. Áttaðu þig á því að í orðum þínum felst sú fyrirlitning sem er óþolandi. Ég er vinstrisinnuð, ég er nettur femínisti og kolféll fyr- ir afar klárum og huggulegum pilt sem sennilega myndi flokkast undir lopahúfu. Gerir það mig að verri manneskju? Lærðu að umbera og slökkva á fordómunum, það þurfa ekki allir að falla í staðlaða mótið þitt.“ Ingunn Bylgja Einarsdóttir skrifaði þessa athugasemd við frétt um Egil Einarsson, sem var í viðtali í Monitor. „Í húsinu er fullbúið eldhús, sem íbúar hússins hafa aðgang að, auk þess sem þeir hafa að- gang að internetinu og farsím- um sínum allan sólarhringinn.“ Bíðum nú við. Eru þessir menn ekki frelsi sviptir vegna fjármálaglæpa? Er ekki öllum ljóst að mestu fjármálaglæp- irnir eiga sér stað í gegnum internetið? Hvernig væri að DV fólk fylgdi þessu vel eftir og kannaði þetta betur? Því sé þetta staðreynd þá eru þessir menn aðeins í einangruðu umhverfi og hafa næði til að sinna störfum sínum jafnvel með betri árangri en áður.“ Tónlistarmaðurinn Hörður Torfason undrast þann munað sem dæmdir fjárglæframenn búa við í fangelsinu Kvíabryggju. „Rak augun í, að enginn matreiðslu- meistari, þjónustu- stúlka/maður og ræstitækn- ir hafa ekki [sic] verið ráðin, þetta er ekki boðlegt og til háborinnar skammar?“ Baldur Bjarnason gerir grín að aðbúnaði fanganna á Kvía­ bryggju. „Er þetta ekki lög- reglumál? Á ekki að gefa út handtöku- skipun á stjórn/lánanefnd þessa sjóðs? Í mínum huga er þetta ekkert annað en rán úr lífeyrissjóðnum, ekki félagi og ekki greiðslumat!!“ Hluti athugasemdar Arnars Sig- urbjörnssonar við frétt DV þar sem greint var frá því að Sævar í Leonard fékk 100 milljóna króna lán hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Vinsæl ummæli við fréttir DV.is í vikunni 71 128 94 113 36 nafn: Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Aldur: 44 ára Starf: Þingmaður Sam­ fylkingar Menntun: MA í viðskipta­ og hagfræði frá Uppsalaháskóla og BA í sagnfræði frá HÍ. Sigríður Ingibjörg segir að verðbólgan sé sjúkdómseinkenni og að Íslendingar þurfi stöðugri gjaldmiðil
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.