Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Blaðsíða 37
maður mun aldrei geta geðjast öll- um. Maður skrifar leikrit, tíu eiga eftir að fíla það, tíu eftir að hata það. Það er happ eða glapp hvort maður lendir á gagnrýnenda sem fílar það eða skrifar hauskúpudóm. Þess vegna verður maður að sleppa tak- inu og leggja verk sín út í alheiminn eins og þau eru og það er ekki hægt ef maður er með fullkomnunaráráttu. Það er ekkert fullkomið í listinni og því valdi ég mér starfsvett- vang sem vegur á móti ákveðnum karakter einkennum mínum. En ég held að það sé bara fín blanda og holl fyrir mig.“ Versti óvinur sófakartöflunnar Hún viðurkennir að funkera best þegar mikið er að gera og margt um að vera. „Manninum mínum finnst ég ekki kunna að taka því rólega en í mínum huga er ég að slappa af þegar ég sest niður og les mér til um eitt- hvað sem tengist vinnunni, til dæm- is. Vinnan mín og áhugamálin eru oft eitt og hið sama. Ég hef elt ástríðumálin um víðan völl og gert þau að starfi. Ég get því verið í hörku afslöppun að lesa um kynbundið ofbeldi, eins einkennilega og það hljómar. Mér leiðist svakalega að hafa ekkert að gera og eftir tíu daga frí er ég að sturlast. Það er því ekkert skemmtilegt að fara með mér í sólarlandaferðir. Ég vil alltaf vera á söfnum, arka um hæðir, skoða rústir og taka myndir. Ætli ég sé ekki á vissan hátt versti óvinur sófakartöflunnar í sumarfrí- inu.“ Sambýlismaður Þórdísar Elvu heitir Víðir Guðmundsson og er lærður leikari eins og hún. „Við eigum mjög vel saman, þrátt fyrir eirðarleysið í mér. Hann er líka lista- maður og hefur skilning á mínum hugsjónum, er líka femínisti og hef- ur sterkar skoðanir á málefnum kynjanna. Hann á tvær dætur af fyrra hjónabandi sem hafa mótað hans afstöðu. Við mætum hvort öðru á miðri leið. Það þarf svona manneskju til að geta verið með mér því ég myndi gera annað fólk gjörsamlega geð- veikt. Maður er oft með kynjagler- augun á nefinu og kemur auga á hluti sem annað fólk veltir ekki fyr- ir sér. Ég hugsa að ef maður ætti Þórdís Elva 36 Viðtal „Ég skal fúslega játa það að ég jaðra við að vera „bess- ervisser“ og nú hlakkar örugglega í nánum vinum og fjölskyldu. „Mér var nauðgað þegar ég var 16 ára — pönkast í teprunum Viðtal 37Helgarblað 23.–25. nóvember 2012 Flakk í æsku Þórdís Elva bjó í Bandaríkjun- um og Svíþjóð og flutti ekki til Íslands fyrr en hún var tólf ára. myndir Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.