Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Side 62
62 Fólk 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað Bíllinn Mæja Kominn til landsins Ektahjónin Þóra Sigurðar- dóttir, ritstýra foreldrahand- bokin.is, og gæðakokk- urinn Völ- undur Snær eru í óða önn að koma sér fyrir hér á landi. Þau vinna hörðum höndum að því að gera upp fallegt hús á Bókhlöðu- stíg og nú hafa þau flutt til lands- ins afar fallega Volkswagen-bjöllu sem þau kalla sín á milli Mæju. Hvetur konur Í krabbameins- skoðun Það er öllum konum mikilvægt að fara í leghálskrabbameinsskoðun. Því meiri líkur eru á lækningu því fyrr sem leghálskrabba- mein greinist. Þetta veit fjölmiðlakonan knáa Edda Sif Páls- dóttir sem birti mynd af sér á leið í skoðun á Instagram og sagði: „Þessi legháls strýkur sér ekki sjálfur“ og hvatti konur að mæta í skoðun. V ið erum ekki að hafa neina skoðun á því sem Egill heldur fram í viðtalinu, heldur finnst okkur þetta bara vera svo viðkvæmt mál,“ segir Vala Jónsdóttir, einn af stofnendum viðburðarins „Gillz af forsíðunni – krefjum Monitor um afsökunarbeiðni“ á Facebook. En Egill Einarsson, betur þekkt- ur sem Gillz eða Gillzenegger, prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Monitor, fylgiblaðs Morgun- blaðsins. Inni í blaðinu er þriggja síðna viðtal þar sem hann ræðir meðal annars um nauðgunar- kæru sem 18 ára stúlka lagði fram á hendur honum á síðasta ári. Málið var hins vegar látið niður falla því sönnunargögn þóttu ekki nægja til sakfellingar. „Ég er saklaus af þessum viðbjóði“ Þáttunum Lífsleikni Gillz sem átti að sýna á Stöð 2 á síðasta ári, var í kjöl- far kærunnar frestað um óákveðinn tíma. Fyrir skömmu var svo einnig tekin ákvörðun um að fresta sýningu bíómyndar sem gerð var úr þáttun- um, um óákveðinn tíma. Egill segir ákvörðunina vera vonbrigði. Aðspurður í viðtalinu hvort það hafi aldrei hvarflað að honum að draga sig úr sviðsljósinu í lengri tíma svarar Egill: „Ég gerði það. Ég dró mig úr sviðsljósinu meðan þetta mál var í gangi, af hverju ætti ég að draga mig úr sviðsljósinu í lengri tíma, ég er saklaus af þessum viðbjóði sem ég var sakaður um. Það kemur náttúru- lega ekki til greina að ég láti nokkra vitleysinga og rangar sakargiftir stjórna lífi mínu.“ Blaðið blasir við Stofnendur síðunnar, sem allir eru nemendur við Menntaskólann í Hamrahlíð, hvetja fólk til að senda ritstjóra Monitor kröfu um afsök- unarbeiðni vegna viðtalsins. Þegar þessi orð eru rituð hafa yfir 200 manns skráð sig til mætingar á við- burðinn. Völu og félögum hennar finnst bæði mjög slæmt og óviðeigandi að birta umrætt viðtal núna. „Eins og við segjum í textanum á síðunni þá er kærandinn í þessu máli ennþá á fram- haldsskólaaldri. Ef við gefum okkur að hún sé að segja satt, sem ég er ekki endilega að halda fram, þá ímynda ég mér að henni þyki ótrúlega óþægilegt að sjá hann blasa við sér.“ Vala tekur fram í samtali við blaðamann að þar sem hún sé stödd í Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð, sjái hún tvö eintök af Monitor blasa við. „Okkur ofbauð þetta.“ Vonast eftir viðbrögðum Vala segir þau bæði hafa fengið já- kvæð og neikvæð viðbrögð við Facebook-síðunni en bendir á að það fylgi gjarnan allri umræðu um Egil. „Það eru ótrúlega mörg dóna- leg komment inni á síðunni en það eru líka rosalega margir sem eru ánægðir með þetta framtak.“ Hún býst allt eins við því að stofnun síðunnar hafi einhverja eftir mála en er ekki sannfærð um að aðstandendur Monitor taki kröf- una um afsökunarbeiðni til athug- unar. „En ég vona það,“ segir Vala að lokum. Ásamt Völu eru skráð fyrir síð- unni Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, Júlía Runólfsdóttir, Hjalti Vigfússon og Steinarr Ingólfsson. n n Nokkrir menntaskólanemar vilja afsökunarbeiðni frá Monitor „Ofbauð þetta“ Hvetja fólk til til að senda eftir- farandi bréf á ritstjóra Monitor: Kæri ritstjóri Monitor, Jón Ragnar Jónsson. Það er ámælisvert að Monitor skuli hafa valið Egil Einarsson til að prýða forsíðu blaðsins í þessari viku. Monitor gefur sig út fyrir að vera málgagn ungs fólks en ég tel Egil síður en svo góða fyrirmynd þess (líkt og hann gef- ur sig út fyrir að vera í umræddu viðtali). Þau sem hafa prýtt forsíðu Monitor fram til þessa hafa jafnan átt erindi við ungt fólk vegna jákvæðrar umræðu. Fellur Egill undir þá skilgreiningu? Þrátt fyrir þrotlausa viðleitni hans sjálfs og annarra til að réttlæta ýmis ummæli Egils sem grín er hann ekki þekktur fyrir jákvæða hluti. Grín er ekki lögmæt réttlæting á hverju sem er. Egill er þekktur fyrir neikvæð ummæli um konur, upphafningu á klámi og staðalímyndum, og nú nauðgunarkæru. Egill var aldrei sýknaður af þessari kæru, mál hans var fellt niður enda taldi saksóknari ekki líkur á sakfellingu. Hvorki ritstjórn Monitor, ég, né nokkur annar sem ekki er beinn aðili að málinu, hefur því minnstu hug- mynd um hvort kæran hafi verið tilhæfulaus eða ekki, einungis að sak- sóknari hafi ekki talið líkur á sakfellingu. Kærandinn í málinu er enn í framhaldsskóla þar sem blaðið er í dreifingu. Það vekur furðu mína að ritstjórn Monitor skuli ekki nálgast jafn við- kvæmt málefni af meiri nærgætni og á skynsamari hátt en raun ber vitni. Ég bið þig, ritstjóra Monitor, að biðjast formlegrar afsökunar á þessu forsíðuviðtali í næsta tölublaði. Undirskrift Á forsíðu Monitor Nokkrir menntaskólanemar stofnuðu Facebook-síðu þar sem þeir krefjast afsökunarbeiðni frá ritstjóra Monitor.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.