Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Blaðsíða 20
20 Fréttir 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
M
itt Romney, sem bauð
sig fram á móti Barack
Obama í forsetakosn
ingunum vestanhafs er
sakaður um tengsl við
valdamikla menn innan sjóðsstýr
ingafyrirtækisins Davidson Kemp
ner Capital Management LLC. Þetta
kemur meðal annars fram á vef
Occupyhreyfingarinnar í Banda
ríkjunum en eins og Fréttablað
ið greindi frá um síðustu helgi er
David son Kempner með gríðarleg
ítök í íslensku viðskiptalífi og er á
meðal stærstu kröfuhafa bankanna.
Brask með fjárfestingarstjóra
Fullyrt er á vefsíðunni að Mitt Romn
ey hafi tekið þátt í braski með fjár
festingarstjóra Davidson Kempner
í Evrópu, Michael Herzog, áður en
hann var ráðinn til starfa. Þá hafi
forsetaframbjóðandinn sérstaklega
beitt sér fyrir því að Herzog fengi
stöðuna hjá fyrirtækinu.
Í umfjöllun Fréttablaðsins kem
ur fram að hagsmunir Davidson
Kempner á Íslandi séu að mestu
leyti í gegnum írska skúffufyrirtækið
Burlington Loan Management sem
Davidson Kempner
fjármagnar og stýrir.
Athygli vekur að Mich
ael Herzog er einn
af þremur stjórnar
mönnum skúffufyrir
tækisins. Svo virðist
sem Burlington Loan
Management hafi
keypt skuldabréf í
Glitni á eftirmarkaði
í kjölfar hrunsins.
Samkvæmt skilgrein
ingu Lilju Móses
dóttur, þingkonu
utan flokka, er því
hér um svokallaðan
hrægammasjóð að
ræða. Hann fjár
festi hér á Íslandi fyr
ir meira en 130 milljarða króna á ár
unum 2009 og 2010 og í ljósi þess að
virði krafnanna sem fyrirtækið keypti
hefur margfaldast mega eigendur
þess vel við una.
Þungar ásakanir
Á vefsíðu sem stuðningsmenn
þingmannsins Rons Paul halda úti í
Bandaríkjunum er Mitt Romney
gagnrýndur harðlega fyrir að hafa
tekið þátt í viðskiptum með Mich
ael Herzog og auðmanni að nafni
Paul Guenette og eru þeir sakað
ir um að hafa beitt eigendur svo
kallaðs Falconesjóðs blekkingum.
Á meðan forvalið stóð yfir hjá
Repúblikanaflokknum vestanhafs
sendu aðdáend
ur Ron Paul út yf
irlýsingu þar sem
Romn ey var hvattur
til að draga framboð
sitt til baka vegna
tengslanna við þessa
menn. „Mitt Romn
ey sækist eftir æðsta
embætti hér á landi,
og samt á hann í
viðskiptum við tvo
menn með glæpsamlega fortíð
sem er allrar athygli verð,“ segir á
vefnum. Þá eru þungar ásakanir
bornar á þá og staðhæft að Michael
Herzog hafi tvívegis verið handtek
inn, annars vegar í Sviss og hins
vegar í Þýskalandi, vegna rann
sóknar í tengslum við hvítflibba
glæpi. Við vinnslu þessarar fréttar
hafa engar upplýsingar komið í
leitirnar sem renna stoðum undir
þessar ásakanir. Ljóst er þó að
Michael Herzog er nafntogaður í
netheimum og á sér ófáa óvildar
menn.
Mikil ítök
Fyrirtækið Davidson Kempner er
sveipað mikilli dulúð og þarf not
endanafn og lykilorð til að komast
inn á vefsíðu fyrirtækisins. Eins og
fram kom í Fréttablaðinu eru vog
unarsjóðir í umsjón fyrirtækisins
stærsti einstaki kröfuhafi Glitnis og
á meðal stærstu kröfuhafa Kaup
þings og Landsbankans. Jafnframt
á fyrirtækið stóran hlut í Straumi og
Klakka og hefur sölsað undir sig hluti
í Bakkavör Group upp á síðkastið.
Slóð sjóðsins má því rekja nið
ur til fyrirtækja á borð við Advania,
Icelandair, Lyfju, Eimskip, Haga, N1
og Vodafone. n
Romney sagðuR tengjast
„skuggaeigendum Íslands“
n Sakaður um brask með fjárfestingastjóra vogunarsjóðsins Davidson Kempner
„Á meðan forval-
ið stóð yfir hjá
Repúblikanaflokkn-
um vestanhafs sendu
aðdáendur Rons Paul
út yfirlýsingu þar sem
Romney var hvattur til
að draga framboð sitt til
baka vegna tengslanna
við þessa menn.
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Bendlaður við vogunarsjóðinn Auðmaðurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Mitt Romney hefur komið
víða við í viðskiptaheiminum. Hefur hann meðal annars verið sakaður um þátttöku í vafasömu braski með áhrifamanni í
sjóðsstýringafélagi sem öðlast hefur mikil ítök í íslensku fjármálalífi.
Sveipað dulúð Ekki gætir mikils gegnsæis hjá fyrirtækinu Davidson Kempner. Hér má sjá skjáskot af vefsíðu þess.