Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Síða 37
maður mun aldrei geta geðjast öll-
um. Maður skrifar leikrit, tíu eiga
eftir að fíla það, tíu eftir að hata það.
Það er happ eða glapp hvort maður
lendir á gagnrýnenda sem fílar það
eða skrifar hauskúpudóm. Þess
vegna verður maður að sleppa tak-
inu og leggja verk sín út í alheiminn
eins og þau eru og það er ekki hægt ef
maður er með fullkomnunaráráttu.
Það er ekkert fullkomið í listinni
og því valdi ég mér starfsvett-
vang sem vegur á móti ákveðnum
karakter einkennum mínum. En ég
held að það sé bara fín blanda og holl
fyrir mig.“
Versti óvinur sófakartöflunnar
Hún viðurkennir að funkera best
þegar mikið er að gera og margt um
að vera. „Manninum mínum finnst
ég ekki kunna að taka því rólega en í
mínum huga er ég að slappa af þegar
ég sest niður og les mér til um eitt-
hvað sem tengist vinnunni, til dæm-
is.
Vinnan mín og áhugamálin
eru oft eitt og hið sama. Ég hef elt
ástríðumálin um víðan völl og gert
þau að starfi. Ég get því verið í hörku
afslöppun að lesa um kynbundið
ofbeldi, eins einkennilega og það
hljómar. Mér leiðist svakalega að
hafa ekkert að gera og eftir tíu daga
frí er ég að sturlast.
Það er því ekkert skemmtilegt
að fara með mér í sólarlandaferðir.
Ég vil alltaf vera á söfnum, arka um
hæðir, skoða rústir og taka myndir.
Ætli ég sé ekki á vissan hátt versti
óvinur sófakartöflunnar í sumarfrí-
inu.“
Sambýlismaður Þórdísar Elvu
heitir Víðir Guðmundsson og er
lærður leikari eins og hún. „Við
eigum mjög vel saman, þrátt fyrir
eirðarleysið í mér. Hann er líka lista-
maður og hefur skilning á mínum
hugsjónum, er líka femínisti og hef-
ur sterkar skoðanir á málefnum
kynjanna. Hann á tvær dætur af
fyrra hjónabandi sem hafa mótað
hans afstöðu. Við mætum hvort
öðru á miðri leið.
Það þarf svona manneskju til að
geta verið með mér því ég myndi
gera annað fólk gjörsamlega geð-
veikt. Maður er oft með kynjagler-
augun á nefinu og kemur auga á
hluti sem annað fólk veltir ekki fyr-
ir sér. Ég hugsa að ef maður ætti
Þórdís Elva
36 Viðtal
„Ég skal fúslega
játa það að ég
jaðra við að vera „bess-
ervisser“ og nú hlakkar
örugglega í nánum vinum
og fjölskyldu.
„Mér var nauðgað
þegar ég var 16 ára
— pönkast í teprunum
Viðtal 37Helgarblað 23.–25. nóvember 2012
Flakk í æsku Þórdís Elva bjó í Bandaríkjun-
um og Svíþjóð og flutti ekki til Íslands fyrr en
hún var tólf ára. myndir Sigtryggur Ari