Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Side 16
16 Fréttir 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað
UMDEILDUSTU PRESTAR ÍSLANDS
n Prestar sem vakið hafa athygli fyrir gjörðir sínar eða viðhorf n Þjóðkirkjan hefur leikið á reiðiskjálfi n „Ég verð að sanna sakleysi mitt“
Þ
eir eru ófáir prestarnir sem
vakið hafa neikvæða athygli
fyrir viðhorf sín eða gjörð-
ir síðustu misseri. Þjóðkirkj-
an hefur leikið á reiðiskjálfi
vegna ásakana fjölda kvenna um
kynferðislega misnotkun biskupsins
Ólafs Skúlasonar, og þúsundir hafa
sagt sig úr kirkjunni. Snorra í Betel
var vikið frá störfum sem kennari í
kjölfar ummæla um samkynhneigða.
Þá hröktust Jónína Benedikts-
dóttir og Gunnar Þorsteinsson, fyrr-
verandi forstöðumaður Krossins,
úr söfnuðinum í kjölfar ásakana á
hendur Gunnari.
Segja má að það hafi alls engin
lognmolla ríkt í kringum kirkjunnar
menn að undanförnu. DV tók saman
lista yfir presta sem hafa verið áber-
andi í umræðunni síðustu ár. Sumir
vegna dómgreindarbrests eða mis-
taka í starfi en aðrir vegna alvarlegrar
og ítrekaðrar misnotkunar.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
G
uð hatar syndina – ekki mann-
inn,“ var í grófum dráttum um-
deildur boðskapur Gunnars
Þorsteinssonar, þáverandi
forstöðumanns í Krossinum, varð-
andi samkynhneigð. Í því samhengi
var talað um „afhommun“ – vildi
Gunnar meina að samkynhneigðir
gætu líkt og aðrir syndugir snúið frá
synd sinni.
Boðskapurinn mildaðist eftir að
hann og Jónína Benediktsdóttir tóku
saman, en þau giftu sig í mars árið
2010. Lítið hefur heyrst um afhomm-
un af hálfu Gunnars síðan þá –
helstu deilurnar hafa verið í kringum
Krossinn. Gunnar og Jónína hröktu-
st úr Krossinum í sumar, en það var í
kjölfar valdatafls Gunnars við dóttur
sína, Sigurbjörgu Gunnarsdóttur,
og fyrrverandi eiginkonu sína, Ingi-
björgu Guðnadóttur.
Forsaga málsins var sú að Gunn-
ar sagði af sér sem forstöðumað-
ur Krossins – starfi sem hann hafði
gegnt frá stofnun félagsins árið 1979.
Það hafði hann gert í kjölfar ásak-
ana um kynferðislega áreitni, en sjö
konur sökuðu hann um kynferðis-
brot gegn sér. Ríkissaksóknari vísaði
málinu frá, þar sem meint brot voru
fyrnd.
„Ég verð að sanna sakleysi mitt.
Ef ég get ekki gert það þá er ég dauð-
ur,“ sagði Gunnar um málið. Eftir frá-
vísun málsins bauð Gunnar sig aftur
fram til forstöðumanns Krossins, en
gegn dóttur sinni sem lét þung orð
falla á safnaðarfundi, þar sem hún
hvatti fólk til þess að kjósa Gunnar
ekki.
Að endingu hætti Gunnar í
Krossinum, en Jónína hafði þetta að
segja um það: „Gunnar minn hef-
ur endanlega verið sigraður í þeirri
kirkju sem hann byggði upp og það
af sömu öflum og reyndu að kné-
setja hann þegar við giftum okkur.“
Hún bætti við að hún hefði sagt sig
úr Krossinum.
n Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður Krossins
„Ég verð að sanna
sakleysi mitt“
Borinn þungum sökum „Ég
furða mig bara á því að það sé hægt
að mannorðsmyrða menn án dóms
og laga,“ sagði Gunnar Þorsteinsson
um ásakanir sjö kvenna gegn sér.
Þ
etta hefur aldrei komið upp
í kennslustundum,“ sagði
Snorri Óskarsson, betur
þekktur sem Snorri í Betel,
um það hvort málflutningur
hans og skoðanir á samkynhneigðum
hafi verið til umræðu í starfi hans sem
kennari. „Nemendur geta spurt og
þeir eru alveg tilbúnir til þess og ég get
þá svarað einfalt. En þetta hefur aldrei
komið til truflunar í kennslu. Ég hefði
ekki verið í kennslu öll þessi ár ef ég
kynni ekki að sniðganga heitu málin.“
Viðhorf hans til samkynhneigðar
eru ansi umdeild: „Kjarninn í sjón-
armiði evangelískra er sá að samkyn-
hneigðin telst vera synd. Syndin erfir
ekki Guðs ríkið og því óæskileg. Laun
syndarinnar er dauði og því grafalvar-
leg,“ skrifaði Snorri um samkynhneigð
á bloggsíðu sinni. Þessi viðhorf hans
ollu hörðum viðbrögðum á með-
al foreldra á Akureyri en hann starf-
aði sem kennari hjá Brekkuskóla
í Akureyrarbæ. „Þetta er spurning
um tjáningarfrelsið. Á að fara fram á
það við kennara að hann tjái sig ekki
um mál sem vissulega snerta börn?“
spurði Snorri í kjölfar gagnrýni á þessi
viðhorf sín.
Snorra var tímabundið vikið frá
störfum í febrúar vegna viðhorfa
sinna gagnvart samkynhneigð, en í
sumar var honum að endingu sagt
upp. „Ég met þetta þannig að Biblí-
an sé að segja satt,“ sagði hann og stóð
við sín viðhorf. Viðhorf hans gagnvart
samkynhneigð eru ekki eina tilfellið
þar sem hann syndir gegn straumn-
um, því á vefsvæði sínu tekur hann
upp hanskann fyrir Ísraelsmenn, og
telur það einkennilegt að talað sé um
„ofbeldisöldu“ í tengslum við árásir
Ísraela á Gaza-svæðinu. G
eir Waage sóknarprestur í
Reykholti var árið 1996 kærð-
ur af Ólafi Skúlasyni bisk-
up fyrir ærumeiðingar. Geir
talaði máli kvenna sem sökuðu Ólaf
um kynferðisbrot gegn sér. Á þeim
tíma var hann formaður Prestafé-
lags Íslands og er ásakanir á hend-
ur Ólafi komust í hámæli vildi hann
að konurnar fengju áheyrn. Á flest-
um stöðum innan kirkjunnar komu
þær Stefanía Þorgrímsdóttir og Sig-
rún Pálína Ingvarsdóttir að luktum
dyrum.
„Reiði biskups í minn garð var
mest vegna þess, að eg gaf mig ekki
með það, að þessar konur áttu rjett
á áheyrn. Þær fengu hana hvergi.
Biskup sá til þess,“ skrifaði Geir um
málið. Síðar kom í ljós að ásakan-
ir kvennanna voru á rökum reistar.
En deilur Geirs við Ólaf biskup ristu
djúpt og áttu sér rætur í kosningum
til biskups; Geir var ósáttur við kosn-
ingu Ólafs, andstæðingar biskupsins
voru fylking kölluð Svartstakkar.
Þegar þessar ofangreindu ásak-
anir komu fram litu sumir þannig
á málið að um valdabaráttu væri
að ræða. Svartstakkar, með Geir í
broddi fylkingar, væru að reyna að
koma höggi á biskup. „Ég hafði á
tilfinningunni að þetta væri svona
hálfgert einelti gagnvart Ólafi,“ sagði
einn viðmælandi rannsóknarnefnd-
ar kirkjuþings.
Þrátt fyrir stuðning sinn við kon-
urnar og deilur sínar við biskup var
Geir sakaður um þöggunartilburði.
Bjarni Karlsson, sóknarprestur
í Laugarneskirkju, hvatti Geir til
þess að segja af sér, þar sem hann
hefði lýst sig reiðubúinn til þess
að þegja yfir níðingsskap á börn-
um. Geir hafði sagt það mikilvægt
að virða þagnarskyldu presta en
undirstrikaði þó að hann virti lög-
in, sem krefja hann um að segja frá
verði hann þess áskynja að barn sé
beitt ofbeldi. Geir sagði í bréfi í kjöl-
farið að sér hefði verið kastað fyrir
lýðinn. „Þá verður svo að vera, en
grátbroslegt þykir mjer það,“ bætti
hann við.
Spánarferð á kostn-
að hins
opinbera
n Séra Sigurð- ur
Helgi Guðjónsson,
fyrrverandi prestur hjá
Víðistaðasókn, hefur verið
áberandi í fjölmiðlum síðustu vikur. DV
fjallaði um það að á meðan hann gegndi
stöðu framkvæmdastjóra Eirar lét hann
hjúkrunarheimilið greiða fyrir utanlands-
ferð dóttur sinnar. „Þetta var gert framhjá
okkur og við vissum ekkert um þetta,“ sagði
Magnús L. Sveinsson, núverandi stjórnar-
formaður Eirar, en Ríkisendurskoðun fer
nú yfir viðskiptin. Samkvæmt nýjustu upp-
lýsingum hefur Sigurður nú endurgreitt Eir
200 þúsund krónur. Ýmislegt bendir til að
Sigurður hafi hyglað sér og sínum ótæpilega
í framkvæmdastjóratíð sinni, en hann réð
meðal annars eiginkonu sína og dóttur til
starfa hjá félaginu.
Sagður káfa
á stúlkum
n Séra Gunnar
Björnsson, fyrrver-
andi sóknarprestur á
Selfossi, var árið 2008
kærður fyrir kynferð-
islega áreitni og brot
á blygðunarsemi gagnvart
tveimur stúlkum sem voru sóknarbörn hans.
Í skýrslu sagði ein stúlkan að Gunnar hefði
látið þau orð falla að straumarnir streymdu
úr líkama hans við það að faðma hana.
Séra Gunnar sagði við DV í lok apríl 2009
að ásakanir stúlknanna væru einn stór
misskilningur, að hann hefði aðeins sýnt
stúlkunum hlýju en ekki áreitt þær á
nokkurn hátt. Þetta staðfesti dómari
Hæstaréttar sem sýknaði Gunnar af ákæru
um kynferðisbrot árið 2009.
Umdeildur
biskup
n Karl Sigurbjörnsson
biskup baðst lausnar
frá embætti fyrr á
þessu ári. Það gerði
hann í kjölfar mikillar um-
ræðu um mál Ólafs Skúlasonar
sem sakaður var um kynferðislega áreitni
gagnvart ungum konum á tíunda áratug
síðustu aldar. Karl var annar tveggja presta
sem beittu áhrifum sínum til að fá konurnar
til að falla frá málum sínum. „Munu prest-
arnir meðal annars hafa lagt mikla áherslu
á kostnaðinn sem því fylgi að standa í mála-
rekstri gegn biskupi,“ segir í frétt DV þann 6.
mars 1996.
Karl hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir
framgöngu sína í þessum málum. Hann var
sakaður um að hafa brugðist þeim konum
sem leituðu til hans eftir aðstoð og voru
margir sem vildu að Karl segði af sér. Þá
hafa fjölmargir sagt sig úr þjóðkirkjunni
vegna þessara mála en samkvæmt upp-
lýsingum frá Þjóðskrá hafa liðlega 8.000
manns skipt um trúfélag frá 1. desember
2009.
Samkynhneigð
„grafalvarleg“
n Snorri Óskarsson, safnaðarhirðir í Betel
Kastað fyrir lýðinn
n Geir Waage prestur Þjóðkirkjunnar
Svartstakkar gegn Ólafi
Geir Waage átti í miklum
deilum við Ólaf Skúlason
biskup. Einn viðmælandi
rannsóknarnefndar kirkju-
þings taldi að hin svokallaða
Svartstakkahreyfing – and-
stæðingar Ólafs í biskups-
kosningunum – væri ásamt
Geir að leggja Ólaf í einelti.