Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Blaðsíða 28
28 Erlent 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað
Ísraelar hótuðu landárásum létu Hamas-liðar ekki af flugskeytaárás-
unum. Herskáir Palestínumenn héldu árásunum áfram og flugskeyti
hæfði íbúabyggð þar sem nokkrir særðust.
Leiðtogi í Hamas-samtökunum þingaði með egypskum og tyrknesk-
um ráðamönnum í Kaíró en Ísraelar voru reiðubúnir til þess að herða
aðgerðirnar og innanríkisráðherra Ísraels sagði að markmiðið væri
að sprengja Gaza aftur á miðaldir, eyðileggja grunnstoðir samfélags-
ins, taka í sundur vegi og neita íbúum um aðgang að vatni. Mohamed
Morsi, forseti Egyptalands reyndi að miðla málum og varaði Ísraela við
því að senda landher á svæðið.
Laugardagurinn 17. nóvember
Um 50 eru látnir og yfir 365 eru særðir, þar af 130 konur og börn.
Opinberar byggingar á Gaza voru jafnaðar við jörðu, höfuðstöðv-
ar Hamas-stjórnarinnar gjöreyðilögðust og sjónarvottar sögðu að fjór-
um sprengjum hefði verið varpað á skrifstofubyggingu forsætisráherr-
ans. Háttsettur liðsmaður Hamas-samtakanna féll í loftárás á þéttbýlar
flóttamannabúðir en yfir þrjátíu manns særðust í árásinni, þeirra á
meðal voru mörg börn. Lítil stúlka, D‘awa Abd Karim, fannst und-
ir rústunum og var talin af þegar í ljós kom að hún hafði aðeins misst
meðvitund. Í Rafah féll Osama Al Quadi, 25 ára karlmaður, þegar flug-
skeyti var varpað á mótorhjólið hans. Þá voru moskur, neðanjarðar-
göng og lögreglustöðvar sprengdar upp. Talið er að sprengjuregnið kosti
Ísraelsmenn daglega 42 milljónir Bandaríkjadala. Þjóðvegum sem liggja
að Gaza var lokað og talið að allsherjar innrás væri í undirbúningi.
Palestínumenn skutu tugum eldflauga yfir landamærin til Ísraels,
meðal annars að Tel Aviv og Jerúsalem. Óttaslegnir íbúar þar flykktust í
loftvarnarskýli. Árásir Palestínumanna eru frumstæðar, erfitt er að stýra
eldflaugunum og þær valda oftast litlum skemmdum. Engu að síður
særðust að minnsta kosti fimm.
Samkvæmt dagblaðinu Yediot Aharonot samþykktu Hamas-lið-
ar vopnahlé í suðri ef Ísraelar afléttu umsátrinu. Tayyip Erdogan, for-
sætisráðherra Tyrklands, og Mohamed Morsi, forseti Egyptalands, for-
dæmdu árásir Ísraelsmanna en Barack Obama, forseti Bandaríkjanna,
sagði Ísraela eiga fullan rétt á því að verja hendur sínar.
Föstudagurinn 16. nóvember
Um 30 Palestínumenn eru fallnir og 280 særðir.
Forsætisráðherra Egyptalands fór til Gaza til að sýna samstöðu
með Palestínumönnum. Ísraelar hafa gert á annað hundrað loftárásir
og ráðist á hernaðarmannvirki, þjálfunarbúðir skæruliða og opinber-
ar byggingar. Innanríkisráðuneytið var sprengt upp og fleiri opinberar
byggingar.
Ísraelar urðu við kröfu Egypta um vopnahlé í þrjár klukkustundir en
síðan hófust árásirnar að nýju. Varalið ísraelska hersins var kallað út en
það telur um 30 þúsund manns og samþykkt var að kalla út 75 þúsund
heimavarnarliða. Þungavopn voru flutt að landamærunum. Talið var
að innrás landhers væri í vændum. „Hryðjuverkamenn skulu borga fyr-
ir stigmagnaðar árásir,“ var sagt í útvarpinu og íbúar Palestínu óttuðust
það sem var í vændum.
Palestínumenn skutu flugskeytum á Tel Aviv og Jerúsalem en engan
sakaði. Flugskeyti sem skotið var að Tel Aviv lenti í sjónum og það sem
átti að lenda í Jerúsalem hafnaði í landtökubyggð sunnan við borgina
án þess að valda manntjóni. Flugskeytin eru mun langdrægari en þau
sem Palestínumenn hafa áður haft yfir að ráða og draga allt að 75 kíló-
metra. Frá því á miðvikudag hafa Palestínumenn skotið yfir 550 flug-
skeytum á Ísrael og Ísraelsher skotið yfir 600 sprengjum á Gaza. Spenn-
an fór stöðugt vaxandi.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til neyðarfundar.
Sendiherrar Egyptalands og annarra Arabaríkja báðu um fundinn, og
kröfðust þess að öryggisráðið fordæmdi Ísraela fyrir árásirnar. Ban Ki-
moon lofaði að fara á vettvang.
Fimmtudagur 15. nóvember
Um 19 Palestínumenn hafa látist
og 235 eru særðir.
Sjö Hamas-liðar eru drepnir og
tugir særðir. Omar, ellefu mánaða
sonur Jihad Misharawi, fréttaritara
BBC, dó þegar sprengjubrot hitti
heimili þeirra. Haneen Tafesh, tíu
mánaða stúlka, dó af völdum áverka eftir loftárásir á borgina. Hún var í
gjörgæslu í nokkra klukkutíma áður en hún lést af sárum sínum. Þá lést
barnshafandi kona, tvö börn og eldri kona. Skortur er á nauðsynjum og
hvergi er skjól.
Alls hafa Palestínumenn skotið 280 flugskeytum á þessum tveimur
dögum. Þrír ísraelskir borgarar féllu í árásunum og 16 særðust.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði að öllum ráðum
yrði beitt til að tryggja öryggi ísraelsks almennings. Hamas-samtökin
hafna viðræðum um vopnahlé á Gaza, segja allt tal um slíkt blekkingar-
leik Ísraelsmanna sem hefðu hrundið átökunum af stað með 150 árás-
um síðasta sólarhringinn.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hvatti bæði leiðtoga Palestínu-
manna og Ísraels, til að sýna stillingu og koma í veg fyrir að átökin stig-
magnist. Susan Rice, sendiherra Bandaríkjanna, sagði að Hamas-liðar
hefðu skotið um 770 flugskeytum á Ísrael frá Gazaströnd í ár, Ísraelar
yrðu að fá að verja sig.
Miðvikudagur 14. nóvember
Að minnsta kosti átta eru látnir og um 60 eru særðir.
Ísraelar felldu Ahmed Jaabari, herstjóra Hamas-hreyfingarinnar og
lífvörð hans. Sex menn féllu með Jaabari, þar af tvö börn, í loftárásum á
svæðið.
Ísraelsmenn gerðu á annan tug loftárása á Gaza og vörpuðu sprengj-
um á geymslustaði fyrir langdræg flugskeyti og skotpalla og íbúahverfi,
meðal annars Al Tuffah sem er sögulegt hverfi. Íbúar upplifðu sig hvergi
örugga. Mahmoud Abu Soawin, 65 ára karlmaður, féll í árásunum.
Sendimaður Palestínumanna hjá Sameinuðu þjóðunum segir að
tilgangur árása Ísraela á Gaza sé að reyna að koma í veg fyrir atkvæða-
greiðslu í Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um að ríki Palest-
ínumanna fá aðild að Sameinuðu þjóðunum sem áheyrnarfulltrúi.
Liberman, utanríkisráðherra Ísraels, hótaði að Ísraelar felldu Abbas
forseta og ríkisstjórn hans ef Palestínumenn hættu ekki við umsókn-
ina. Ísraelsmenn segja að Ahmed Jaabari hafi verið felldur því hann hafi
fjármagnað hryðjuverkastarfsemi og skipulagt árásir á Ísraelsmenn,
Hamas-liðar hefðu skotið meira en 120 flugskeytum frá Gaza að undan-
förnu. Talsmaður Hamas sagði að Ísraelsmenn muni iðrast aðgerða
sinna. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, óskaði eftir neyðar-
fundi í Arababandalaginu og óskaði eftir hjálp. Sendiherra Eygptalands
í Ísrael var kallaður heim.
eins og aðrir. Fólkið á Gaza er frið-
sælt fólk sem þráir frið. En eftir að
Ísraelar hertóku landið hafa Palest-
ínumenn reynt að verjast árásum
þeirra. Ég hef samt alltaf sagt að ég
vil finna lausn á því, mynda tvö ríki
og gleyma öllu sem á undan er geng-
ið, svo við getum búið hér í friði með
þeim. En akkúrat núna þegar ég sit
hérna undir stiganum þá efast ég og
vil bara að Ísraelar láti landið mitt í
friði. Þeir hertóku Palestínu og ráð-
ast á borgara. Reyndar hafa öfga-
hópar í Palestínu líka ráðist á borg-
ara en árásir þeirra hafi aldrei verið
neitt í líkingu við þetta. Og ég vil ekki
að þeir geri það, ég vil ekki að öfga-
hópar í Palestínu ráðist á borgara í
Ísrael. Við erum ekki hryðjuverka-
menn, það er ekki satt,“ sagði Areej
á miðvikudagskvöld en blaðamaður
kvaddi hana rétt áður en vopnahléið
átti að hefjast.
Vonar að friðurinn endist
Á fimmtudag var allt annað hljóð í
Areej sem hló og virtist vera hátt uppi
í gleðivímu. „Ég er með góðar fréttir,“
sagði hún þegar hún svaraði. „Á
slaginu níu þá hættu þeir. Stríðið er
búið,“ sagði hún áköf og bætti því við
að fólk hefði hópast saman úti á götu
til þess að fagna. „Í fyrsta sinn í átta
daga þá svaf ég eins og barn, í nótt
var ég aldrei vakin upp við hljóðin í
sprengjunum. Ég var svo glöð þegar
ég vaknaði,“ segir Areej hlæjandi.
Öllu alvarlegri bætir hún því þó
við að hún sé ekki viss um að vopna-
hléið sé varanlegt. „Mér skilst að það
hafi aðeins verið samið um vopnahlé
í 73 tíma og þá eigi Ísraelar og Palest-
ínumenn eftir að tala saman aftur til
þess að staðfesta samninginn. Þótt
við séum hamingjusöm erum við
enn áhyggjufull undir niðri.“
Lífið er þó hafið á ný. „Það er
eins og fólk hafi losnað úr fangelsi.
Það eru allir úti og hér er fullt hús
af fólki sem er komið til þess að
athuga hvort það er allt í lagi með
okkur og gleðjast yfir því að þetta sé
búið.
Ég fór út í morgun og sá að fólk
er á fullu við að hreinsa húsin sín.
Hjálparsamtök eru að taka saman
upplýsingar um fjölda látinna og
skoða eyðilegginguna. Það er ver-
ið að fara á milli staða og taka stöð-
una á fólki, sjá hvort það vanti mat
eða plast í gluggana. Eins er verið
að skoða hvað það missti, margir
misstu húsgögnin sín og víða vant-
ar hurðir og glugga í húsin.
En það veit enginn hvað gerist
næst. Við verðum bara að bíða og
vona að þetta sé endanlegt. Ég vona
að vopnahléið endist næstu árin.
Við viljum ekki frekari átök. Þetta
var martröð.“ n
„Í nótt var ég aldrei vakin upp
við hljóðin í sprengjunum.
Ég var svo glöð þegar ég vaknaði.
Ákallar Guð Ísraelskur hermaður biður bænirnar sínar við landamærin að Gaza þar sem
herinn var í viðbragðsstöðu, tilbúinn til að ráðast inn þegar kallið kæmi. Flugskeytin flugu
yfir landamærin úr báðum áttum.
Á hættuslóðum Palestínskur maður gengur með eigur sínar á asnanum fram hjá opinber-
um byggingum sem eru nú í rúst. Areej hélt sig heima og sagði það of hættulegt að stíga fæti
út fyrir hússins dyr. Það væri ekki hægt að heyra þegar árásir væru gerðar og því væri fólk á
hrynja niður á götum úti án þess að geta nokkra björg sér veitt.
Læknanemar drepnir Palestínumenn safnast saman í kringum bíl sem varð fyrir loft-
árás en læknanemar féllu í árásinni. Mamma Areej var svo hrædd um að börnin hennar færu
út að hún var alltaf að kalla nöfn þeirra og fullvissa sig um að þau væru hjá sér.
Átök á Vesturbakkanum
Palestínskur maður fylgist
með ísraelskum hermönnum á
Vesturbakkanum á miðviku-
daginn en þar brutust út
átök vegna mótmæla vegna
átakanna á Gaza.