Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Síða 30
Sandkorn Ö fgar og rugl er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar horft er til þeirrar tillögu Sivjar Friðleifsdóttur, þing­ manns Framsóknarflokksins, að myndatökur verði alfarið bannað­ ar í dómshúsum og nágrenni þeirra. Samkvæmt hugmynd þingmannsins verða það eingöngu starfsmenn dóm­ stóla sem mega taka myndir þegar um er að ræða málaferli. Þarna er skýr vilji þingmanns til að þagga niður umræðu og hamla því að sagan verði skráð með eðlilegum hætti. Skýrt dæmi um skað­ leg inngrip af þessu tagi var þegar for­ stokkaður sýslumaður á Ísafirði bann­ aði myndatökur af hörmungarsvæði snjóflóðanna í Súðavík. Afleiðingin er óbætanlegt tjón fyrir sögu þjóðar. Annað dæmi um yfirgang og þöggun er þegar dómari í undirrétti bannaði tímabundið í vikunni fréttaflutning í máli þar sem réttað var yfir tveimur al­ ræmdum hrottum. Tekið skal fram að stundum er ástæða til að loka réttarhöldum. Þetta á sérstaklega við þar sem um er að ræða barnaníð og hlífa þarf fórnar­ lömbum. Aldrei má víkja frá þeirri reglu að auka ekki harm fórnarlamba kynferðisofbeldis. En þá á að heyra til undantekninga að réttarhöldum sé lokað. Íslenskir dómstólar hafa verið á undarlegum og sumpart óútskýran­ legum brautum undanfarin ár. Geð­ þótti hefur gjarna vikið réttlætisgyðj­ unni til hliðar og dómarar fengið útrás í að refsa saklausum. Þetta hefur sérstaklega átt við í meiðyrðamálum sem sótt hafa verið á hendur ritstjórn DV. Fréttastjóri og ritstjóri DV voru lögsóttir af Eiði Smára Guðjohnsen knattspyrnumanni sem vildi ekki að sannleikurinn um fjármál hans kæmi fram í blaðinu. Hann tapaði málinu en hinum lögsóttu var gert að greiða málsvarnarlaunin. Hið sama átti við í Krónuníðingsmáli Heiðars Más Guð­ jónssonar fjárfestis. DV var sýknað af þöggunarkröfu fjárfestisins en Hæsti­ réttur ákvað að íþyngja þeim sem lög­ sóttir voru með því að láta þá greiða vörn sína. Þetta eru sömu dómstólar og hafa verið dæmdir sekir af Mann­ réttindadómstóli Evrópu og gert að greiða tveimur blaðamönnum háar miskabætur vegna dómsmorða. Og fleiri mál sem snúa að gölluðum og illviljuðum dómum eru á leið fyrir sama dómstól. Tillaga Sivjar er enn ein birtingar­ mynd þeirrar tilhneigingar að dóms­ mál verði þögguð niður. Líkleg skýring þess að Siv setur málið fram er að hún hefur nýlega gengið í gegnum dóms­ mál. Sjálf er hún á útleið af Alþingi en hefur ákveðið að draga persónulegt mál inn á Alþingi Íslendinga. Umfjöllun um dómsmál er hluti af uppgjöri sem þarf að vera fyrir opnum tjöldum. Refsing vegna glæpa hefur lítinn tilgang ef hún er í kyrrþey. Og mál sem umvafin eru þagnarhjúpi eru ekki líkleg til þess að samfélagið allt læri af þeim. En það er jafnljóst að ekki er boðlegt að saklausum sé refs­ að. Fjölmiðlar og dómstólar verða að hafa til þess vit og þroska að halda skilmerkilega til haga bæði sekt og sakleysi þeirra sem ganga í gegnum málaferli. Dekur við glæpamenn á ekki rétt á sér. Þöggun um sekt eða refsi gleði gagnvart saklausum ættu ekki að líðast í íslensku réttarkerfi. Geir styður Brynjar n Hæstaréttarlögmaðurinn orðhvati, Brynjar Níelsson, er vinsæll meðal sjálfstæðis­ manna þótt femínistar hafi fyrirvara varðandi hann. Hann sækist nú eftir þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokks­ ins í Reykjavík og hélt fram­ boðsteiti á dögunum. Á meðal þeirra sem heiðruðu Brynjar með nærveru sinni var Geir H. Haarde, fyrrver­ andi formaður Sjálfstæð­ isflokksins. Hélt hann stutt ávarp og fór fögrum orðum um samherja sinn. Því er spáð að Brynjar lendi ofar­ lega í prófkjörinu. Frosti vill málgagn n Frosti Sigurjónsson, fram­ bjóðandi Framsóknarflokks­ ins í Reykjavík, hefur áhyggj­ ur af litlu fylgi flokksins. Hann mætti í Bítið til að lýsa skoðunum sínum. Greining Frosta á fylgiskreppunni er sú að flokkinn skorti mál­ gagn. Hann benti á að Sjálf­ stæðisflokkurinn hefði Moggann en Framsókn ekk­ ert síðan dagblaðið Tím­ inn hvarf af sjónarsviðinu. Fyrir nokkrum misserum reyndu framsóknarmenn að kaupa Fréttatímann en hrukku undan. Ljóst er að þeir munu halda áfram til að bjarga fylginu. Leiðtogakreppa? n Þótt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og nánustu bandamenn innan Fram­ sóknarflokksins telji að snautlegt fylgi flokks­ ins sé vegna þess að rödd þeirra heyr­ ist ekki eru aðrir á þeirri skoðun að ástæðunnar sé að leita hjá formanninum sjálfum. Hann hafi góðan málstað en sé einstakur klaufi í al­ mannatengslum. Þar beri hæst samskiptin við Höskuld Þór Þórhallsson þingmann á Akureyri. Til eru þeir sem telja leiðtogaskipti vera nauðsynleg og mikið mann­ val sé í flokknum til að fylla skarð formannsins. Smugan og VG n Innan Samfylkingar eru uppi sömu sjónarmið og í Framsókn varðandi skort á málgagni. Þar á bæ horfir fólk öfundaraugum á Smug­ una sem er meðal annars í eigu Steingríms J. Sigfús- sonar og VG og haldið úti fyrir almannafé. Fullyrt er að flokksmenn hafi kannað kostnað við að koma upp vefsíðu til að breiða út boð­ skapinn en hætt við þegar í ljós kom að það myndi kosta tugi milljóna króna. Fylgis­ hrun VG bendir hins vegar til þess að fjölmiðillinn geri engan gæfumun. Þetta er helför Þetta atriði með Nova var grín Amany El Garth óttast um líf fjölskyldu sinnar á Gaza. – DV Sigmar Guðmundsson svarar fyrir atriði í síðasta Hraðfréttatíma Kastljóssins. – DV.is Geðþótti dómara N ú heyrist sami söngurinn um Gaza og jafnan heyrist þegar Ísraelar láta til skara skríða gegn Palestínumönnum. Vísað er í „deiluaðila“ sem báðir hafi rétt til þess að verja sig. Þar er átt við að Ísrael sé í fullum rétti í árásarstríði sínu því að á þá hafi einnig verið skotið. En mynstrið er alltaf það sama: Þegar stjórnvöld í Ísrael ætla að hefja hernaðaraðgerðir er aðdragandinn stigvaxandi áreitni – aukin „gæsla“, handtökur og einstaka aftökur ‒ þar til að upp úr sýður og herskáustu sam­ tök Palestínumanna svara fyrir sig. Við þetta ráða lögformleg stjórnvöld í Palestínu ekki. Þegar hér er komið sögu segjast Ísraelsmenn sjá sig knúna til að grípa til varna einsog það heitir. Skiptir þá engu þótt flaugar sem að þeim hefur verið beint séu heimasmíð­ aðar og valdi takmörkuðu tjóni, en þeirra eigin vopn tæknivæddustu víga­ tól sem fyrirfinnast enda eyðileggingin og manntjónið eftir því. Síðan hefjast umræður innan veggja þjóðþinga heimsins um að hefja þurfi samninga­ viðræður og komast að samkomulagi til frambúðar. Þegar vopnin eru síðan lögð niður – í bili – hverfur allt til „hins venjulega“ að nýju, nema að hið venju­ lega er svo óvenjulegt að það ætti ekki að vera til. Veruleikinn Veruleikans vegna er nauðsynlegt að rifja upp söguna. Ísraelsríki var stofnað árið 1948 að undangengnum áratuga skipulegum flutningum til svæðisins. Land hafði verið tekið af Palestínu­ mönnum, sumt keypt, og vopnavaldi beitt. Átök urðu viðvarandi og sú skipt­ ing sem Sameinuðu þjóðirnar gerðu tillögu um 29. nóvember 1947 var í óþökk Palestínumanna og nágranna­ þjóða. Ekki væri hægt að taka land frá einni þjóð og gefa annarri. Landa­ mærin sem SÞ drógu upp gerðu ráð fyrir helmingaskiptum. En í stríðinu 1948–1949 lögðu Ísraelsmenn undir sig fjórðung landsins til viðbótar og voru þá komnir með 78% upphaflegrar Palestínu undir nýtt ríki, Ísrael. Í Sex daga stríðinu 1967 lögðu Ísraelar alla Palestínu undir sig. Síðan þá hafa Sam­ einuðu þjóðirnar samþykkt margar ályktanir um að Ísrael skili hertekna landinu, en þessar ályktanir hafa alltaf verið hunsaðar. Kyngt nánast öllu Nú hafa Palestínumenn samþykkt skiptinguna og tilvist Ísraelsríkis. Og þeir hafa einnig kyngt hernáminu 1948. Þeir gera aðeins kröfu til sjálfstæðs og fullvalda ríkis inn­ an landamæranna eins og þau voru fram til ársins 1967, að halda Gaza og Vestur bakkanum að meðtalinni Austur­Jerúsalem. Út á þetta gekk Óslóar­samkomulagið sem Arafat og Rabin skrifuðu undir. Nú eru þeir báð­ ir horfnir af sjónarsviðinu, Rabin var myrtur af öfgamönnum í eigin her­ búðum. Síðan hafa öfgamenn verið við völd í Ísrael sem engan frið vilja, nema þá „frið“ undirgefni og kúgunar. Þeir settu Arafat líka á aftökulista og hafa sýnt í verki að þeir ætla ekki að skila neinu palestínsku landi. Þvert á móti heldur landrán þeirra áfram og ný­ lendur þeirra á Vesturbakkanum verða æ stærri og fjölmennari. Palestína berst nú fyrir því að öðlast viðurkenningu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þetta ætla Ísraelar að koma í veg fyrir og hóta eldi og brennisteini ef Palestínumenn halda þessu til streitu. Margir ætla að þar sé að hluta komin skýring á hernaðinum nú. Stærstu fangabúðir heims Um Gaza er það að segja að þar búa 1,7 milljónir manns í því sem lýst hefur verið sem stærstu fangabúðum heims því svæðið hefur verið í herkví frá ár­ inu 2007 og raunar mun lengur. Þetta er það sem nú er vísað til sem „deiluaðila“.Voru deiluaðil­ ar í Auschwitz? Voru deiluaðilar í Suður­Afríku? Að sjálfsögðu voru engir deiluaðilar þar. Að sjálfsögðu voru ekki uppi tvö jafnrétthá sjónarmið. Aðeins kúgari og hinn kúgaði. Sama á við á Gaza. Þess vegna á ekki að krefj­ ast samningaviðræðna nú. Krefjast á að ofbeldinu verði tafarlaust hætt. Þeir sem því ráða eru Bandaríkjamenn – þeir halda um pyngjuna og sjá Ísrael fyrir vopnum. Þess vegna var efnt til útifundar við bandaríska sendiráðið á mánudag. Látum ekki sundra okkur Í kjölfar útifundarins kom fram fólk sem gagnrýndi útifundinn og sér­ staklega undirritaðan fyrir að tala tveim tungum. Annars vegar for­ dæma fjöldamorð á Gaza og hins vegar framfylgja Dyflinnarsáttmál­ anum um að senda hælisleitendur til þess lands sem þeir fyrst komu til inn á Schengen­svæðið. Rangar fullyrðingar hafa komið fram um þetta efni og þyk­ ir mér dapurlegt að horfa upp á fólk halda fram ósönnum staðhæfingum um hælisleitendur á Íslandi og leggja að jöfnu hlutskipti þeirra og fólks sem er verið að murka úr lífið á Gaza. Þetta grefur undan því sem ég hélt að væri sameiginlegur málstaður en er þegar allt kemur til alls eitthvað allt annað. Ég hef ekki vikið mér undan því að eiga samtal um málefni flóttafólks og hælisleitenda á Íslandi. Ég hef heldur ekki vikið mér undan því að ræða um ástæður þess að fólk leggst á flótta frá heimkynnum sínum. Á hinn bóginn á ég erfitt með að skilja hvað býr að baki því að blanda slíkri umræðu saman við baráttuna gegn viðbjóðslegu ofbeldi og fjöldamorðum í Palestínu. Ég hef litið svo á að ekkert megi sundra okkur í þeirri baráttu. Deiluaðilar? Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALNÚMER RITSTJÓRN ÁSKRIFTARSÍMI AUGLÝSINGAR 30 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað „Umfjöllun um dómsmál er hluti af uppgjöri Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is „Voru deiluaðil- ar í Auschwitz? Voru deiluaðilar í Suð- ur-Afríku?“ Kjallari Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.