Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Page 42
R ithöfundurinn Kristín Steinsdóttir hefur í nógu að snúast þessa dagana. Hún ferðast um landið og les upp úr nýrri bók sinni um Bjarna-Dísu. Í skáldsögu Kristínar fær göm- ul þjóðsaga nýtt líf og Kristín gef- ur Þórdísi Þorsteinsdóttur, Dísu, orðið. Dísa hefur ekki átt sér sérstakan málsvara fyrr. Sagan segir að Dísa hafi fundist með lífsmarki uppi á heiði eftir að hafa háð bar- áttu við hamslaust óveður. Afdrif hennar urðu efni í eina skelfileg- ustu draugasögu Íslendinga. Dísa fæddist í lágum torfkofa austur á landi á öld hjátrúar, 18.öld, nálægt æskuslóðum Kristínar á Seyðis- firði. Hrædd og heilluð „Ég var hrædd við Dísu, það voru allir hræddir við drauga, líka Dísu,“ segir Kristín. „Sem lítil stúlka trúði ég á drauga. Í timburhúsum sem brakar í fara draugar á stjá. Ég var með mik- ið hugarflug og var hrædd við alla draugana í bænum, því þeir voru margir og sumir nafnkunnir!“ Kristín varð heilluð af sögunni um Dísu, en trúði ekki að hún ætti svo óvægna lýsingu skilið sem raun- in var. „Ég vildi aldrei trúa því að Dísa hefði verið svona mikill kjáni. Að fara óklædd á heiðina. Því ég vissi það sem barn strax að ef ég færi óklædd út á tröppur þá yrði mér kalt. Mér fannst þetta mjög skrýtið. Svo leið og beið. Seinna fór ég að vinna mikið með þjóðsagna- arfinn í mínum barnabókum og þá rifjaði ég oft upp söguna af Dísu. Svo kristallaðist það fyrir mér að það er auðvitað bullandi kvenfyrirlitning í sögunni.“ Kvenfyrirlitning í lýsingum Þjóðsagnaritarar voru all margir og flestir lýsa þeir Dísu sem skapvondri og hégómlegri. „Við vitum náttúrulega að þjóð- sagnaritarar hafa sögurnar eftir ein- hverjum,“ segir Kristín og er um- hugað um að orð hennar séu ekki mistúlkuð á þann máta að þjóð- sagnaritarar hafi verið uppfullir kvenfyrirlitningar. Lýsingar á Dísu séu frekar tímanna tákn. „Kannski höfðu konur sagt frá á þennan hátt, kannski voru það karlar. En allt um það þá er myndin af Dísu afar nei- kvæð. Hún er sögð skapvond og hégómleg. Hún hefur verið í kaup- stað í vinnu, í Eskifirði, þar sem voru danskir kaupmenn og dönsk tíska. Hún semur sig að þeim sið, segir einhvers staðar. Sem þýðir að hana dreymir um tískufatnað, léreftskjól og serk sem er skyrta sem nær ekki fram að olnboga. Þetta finnst mér svo eðlilegt í dag. Af hverju má stúlk- una ekki langa til að líta vel út þótt hún sé vinnukona? Kannski fékk hún enn harkalegri meðferð því hún hafði verið niðursetningur. Ég veit það ekki. Hún er komin út fyrir sinn ramma. Ég fann sagnaritara sem skrifar allt aðra lýsingu. Það var hann Sig- mundur Long. Hann skrifar að Dísa hafi verið vel klædd. Hann talar ekki um vonda skapgerð, heldur aðeins um unga stúlku á ferð með bróður sínum. Það gladdi mig. Ég las mér til um það að Sig- mundur þessi hafði hitt Bjarna, bróður Dísu. Hann var að vísu ungur drengur þá, aðeins sex ára. En sá fundur leið honum aldrei úr minni því Bjarni var óskaplegur ógæfu- maður og missti öll sín börn, 13 tals- ins, en jafnan var talið að Dísa hefði flýtt fyrir dauða þeirra.“ Vöruð við Kristín segist hafa byrjað á því að skrifa um Dísu fyrir löngu. Sagan hafi aldrei látið hana í friði. Dísa krafðist þess að fá orðið. „Þess eldri sem ég varð, því reiðari varð ég,“ segir Kristín. „Ég fór að skrifa um Dísu fyrir mörgum árum síðan. Þegar ég var búin með Ljósu ákvað ég svo að klára hana. Hún lét mig ekki í friði, hún Dísa. En ég varð að skrifa sögu hennar. Ég get sagt þér að ég var vöruð við. Að bölvun henn- ar myndi elta mig – hún kæmi á eftir mér. Hugsa sér að máttur þjóðsagna okkar sé enn svo mikill,“ segir hún og hlær og segist ekkert mark hafa tekið á viðvörununum enda sé hún sann- færð um að Dísa hefði í dag verið lífs- glöð dugnaðarstúlka. „Hún hefði kannski verið fata- hönnuður eða framkvæmdastjóri eða álíka,“ segir Kristín og brosir. „Ég er sannfærð um að hún hefði verið lífsglöð, dugleg stúlka með bein í nefinu. Mér finnst svo gaman að geta brugðið upp mynd af því hvað það var gaman á þessum tímum. Okkur hættir svo til þegar við hugsum til baka að álykta að lífið hafi verið táradalur. En það var það ekki. Dísa naut lífsins í ríkum mæli á sinn hátt.“ Kristín fór austur síðasta sumar á slóðir Dísu og brátt fer hún austur að lesa. „Ég myndi helst vilja lesa upp úr bókinni uppi á heiðinni,“ segir hún og skellir upp úr. „Ef það væri nú í boði!“ Fann engil á efstu hæð í blokk Dísa er fjórða bókin sem Kristín skrifar með fullorðna lesendur í huga, en hún hefur til langs tíma verið einn þekktasti barnabókahöf- undur landsins. Oft er sagt að barna- bók hennar Engill í Vesturbænum (2002) hafi verið tímamótaverk á ferli hennar. Hún segir breytingar hafa knúið dyra. „Já, það er rétt að Engill í Vestur- bænum markar ákveðin skil hjá mér. Það var kominn tími á breytingar. Manneskjan þarfnast einfald- lega breytinga. Við vorum búin að vera mjög lengi búsett á Skagan- um og ég hafði skrifað rúmlega 20 barnabækur. Ég hugsa með mikilli hlýju til baka á Skagann. En það hefur allt sinn tíma. Ég tók þá ákvörðun að fara til Reykjavíkur þegar öll börnin mín voru flogin úr hreiðrinu. Ég leigði mér íbúð á 4. hæð yfir Melabúðinni. Horfði út um glugg- ann á Hallgrímskirkjuturninn öðrum Vöruð Við þVí að skrifa um Bjarna-Dísu 42 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g „Eiríkur er algjör stílsnillingur“ „Ferskur blær en mörg vandamál“ Illska Eiríkur Örn Norðdahl Black Ops 2 xBox-PC og PS3 Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal „Sem lítil stúlka trúði ég á drauga. Í dimmum timburhús- um sem brakar í fara draugar á stjá. Kristín Steinsdóttir vildi rétta hlut Þórdísar Þorgeirsdóttur, ungrar stúlku sem hlaut grimmileg örlög uppi á heiði fyrir 200 árum og varð efni í eina skelfilegustu þjóðsögu okkar Íslendinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.