Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Síða 49
Íslensk með-
göngumynd í Vogue
Lífsstíll 49Helgarblað 23.–25. nóvember 2012
Ugla
Egilsdóttir
Ugluvæl
Þ
egar Lauryn
Hill var á
toppi fer-
ils síns
var þrálát fiski-
sagan um að
hún hataði hvítt
fólk og hefði sagt eitt- hvað
á þá leið að hún vildi frekar að
börnin hennar syltu en að hvítt
fólk keypti plöturnar hennar.
Hún átti ýmist að hafa sagt þetta
á tónleikum eða eitthvað svipað
í viðtölum.
Úthúðaði hvítu fólki
Ég vildi ekki trúa því að átrún-
aðargoðið mitt hefði sagt nokk-
uð þessu líkt og þurfti að heyra
það með eigin eyrum áður en
ég tryði því. Miðað við gífurlega
frægð hennar á þessum tíma þá
hefði átt að vera til upptaka af
henni einhvers staðar á netinu
að úthúða hvítu fólki. Þess
vegna leitaði ég allt internetið
á enda að þessum upptökum
en fann hreinlega ekkert. Hins
vegar fann ég viðtöl við hana
þar sem hún reyndi að kveða
orðróminn niður.
Hún náði aldrei almennilega
að hreinsa mannorð sitt af þess-
um áburði og ég hef oft heyrt
fólk endurtaka þessa sögu. Til-
hugsunin um hugsanlegt skít-
legt eðli hennar sótti stundum
á mig þangað til að ég áttaði
mig á því að mér stæði eiginlega
hjartanlega á sama þótt þetta
væri satt. Sennilega myndi ekki
einu sinni bera skugga á aðdá-
un mína ef hún væri dæmdur
morðingi.
Ólíklegar vinkonur
Hún býður sig ekki fram í þing-
kosningum og þrátt fyrir ein-
læga aðdáun mína er frekar
ólíklegt að við verðum nokkurn
tímann vinkonur. Það er ekk-
ert við tónlistina sem bendir til
þess að henni standi stuggur af
hvítu fólki. Þar af leiðandi hafa
meintar skoðanir hennar hverf-
andi áhrif á mig.
Maður getur víst ekki sett
hugsanir inn í höfuðið á öðru
fólki með valdi og ég held að
það sé algjört lykilatriði í sam-
skiptum að maður geti trúað því
að breyskleikar annarra smiti
ekki út frá sér í allt sem þeir
gera. Fólk er nefnilega ekki bara
annaðhvort gott eða vont.
Átrúnaðar-
goðið mitt
Lauryn Hill
A
ndrea Sóleyjar- og Björg-
vinsdóttir vinnur þessa
dagana að bókinni Bókin
okkar sem fjallar um getn-
að, meðgöngu, fæðingu
og sængurlegu. Í bókinni verða ráð,
fróðleikur og reynslusögur kvenna.
Aldís Pálsdóttir ljósmyndari
hefur myndað barnshafandi kon-
ur og fæðingar og ein mynda
hennar hefur nú ratað í ítalska
Vogue. „Það gladdi okkur ákaf-
lega mikið,“ segir Andrea í spjalli
við blaðamann. „Bókin á bæði
að} vera tímalaust uppflettirit,
þar sem mæður og feður deila
reynslu sinni, og listaverk en bók-
in er ríkulega skreytt undurfögrum
ljósmyndum, teknum af þunguð-
um konum í íslenskri náttúru af
Aldísi Pálsdóttur ljósmyndara og
stórfenglegum málverkum af því
sem myndavél getur ekki fangað,
teiknuðum og máluðum af Unni
Magna listakonu.“
Móðurhlutverkið veitti inn-
blástur
Andrea er þriggja barna móð-
ir og fékk hugmyndina að bókinni
þegar hún gekk með fyrsta barn
sitt fyrir um sjö árum. „Það var
móðurhlutverkið sem veitti mér
innblástur. Mér finnst við enda-
laust geta sótt upplýsingar á netið
en mér finnst engin íslensk bók
vera til um efnið. Ég gerði alltaf ráð
fyrir því að einhver myndi nú taka
sig til og gefa út rit í þessa veru en
það gerðist ekki, svo ég hófst sjálf
handa og fékk útgáfusamning hjá
Sölku útgáfu.
Ég eignaðist svo tvær stúlkur til
viðbótar svo útgáfan hefur heldur
betur dregist á langinn. Ég verð því
afskaplega glöð þegar bókin kem-
ur loks út nú í vor.“
Auk þess að vera fræðilegt rit
um efnið þar sem farið er í líffræði
getnaðar og meðgöngu er bókin
stútfull af reynslusögum íslenskra
kvenna, góðum ráðum sem hafa
gengið manna á milli og frásögn-
um af skemmtilegum atvikum sem
foreldrar hafa lent í. „Bæði mæður
og feður hafa verið að senda okk-
ur góð ráð byggð á eigin reynslu.
Svo er bókin full af staðreyndum
og fróðleik um líkama konunnar
og þroska barnsins á meðgöngu,
viku fyrir viku. Í því fékk ég stuðn-
ing frá þeim Hafdísi Rúnarsdóttur
og Ragnheiði Helgu Reynisdóttur
sem sáu um alla staðreyndavinnu,“
segir Andrea frá um vinnslu bók-
arinnar.
Vilja mynda fæðingar kvenna
Hún segist stolt af því að bók-
in verði mikið kvennaverk. Ljós-
myndarinn Aldís fylgist enn með
barnshafandi konum í von um að
fá að mynda fæðinguna. „Við erum
allar mjög stoltar af því að vera
hluti af þessu kvennaverki. Nú
erum við bara að bíða og vona að
þær konur sem eru búnar að segja
já treysti okkur fyrir verkinu. Það
er ekki sjálfgefið að ljósmyndarinn
nái í tæka tíð. Þær láta vita og svo
reynir Aldís að ná upp á fæðinga-
deild. Þær hafa líka verið svolítið
feimnar við að láta mynda sig en
vonandi sjá þær hvað þær verða
fallegar.“
kristjana@dv.is
n Andrea skrifar bók um getnað, meðgöngu, fæðingu og sængurlegu
Andrea gengin 37 vikur
„Hér er ég gengin 37 vikur með
Björgey Njálu, yngstu dóttur
mína.“ MYNDIR: ALDÍS PÁLSDÓTTIR
Ljósmóðir Hafdís
Rúnarsdóttir ljósmóð-
ir með nýfætt barn.
Myndin sem birtist í Vogue
Aldís Pálsdóttir tekur myndir af
fæðingum og þunguðum konum í
íslenskri náttúru.