Valsblaðið - 01.05.2012, Side 8

Valsblaðið - 01.05.2012, Side 8
8 Valsblaðið2012 Starfiðermargt Nú er runninn upp síðasti dagur afmælis- ársins, árs sem við Valsmenn getum og eigum að minnast með miklu stolti. Við þurfum ekki að rifja hér upp þá fjöl- mörgu viðburði sem staðið hefur verið fyrir af hálfu afmælisnefndar og Vals á árinu en þeir eiga þó allir það sammerkt að hafa verið skemmtilegir, fræðandi og ekki síst vel til þess fallnir að auka á samhug og samstöðu okkar allra, þátt sem ekki má vanmeta. Bókagjöf á afmælisári- Útkall Á afmælisárinu hafa félaginu borist úr ýmsum áttum margar góðar gjafir sem við erum þakklát fyrir. Og nú á síðasta degi ársins hefur Óttar Sveinsson, Vals- maður, rithöfundur og bókaútgefandi ákveðið að færa félaginu að gjöf öll 18 bindi bókarflokks síns sem hann nefnir Útkall, og að auki 5 hljóðbækur. Óttar er einn þeirra fjölmörgu sem er trúr upp- runa sínum en hann var nánast alinn upp hér á Hlíðarenda á sínum unglingsárum. Bækur Óttars hafa vermt efstu sæti met- sölubóka frá árinu 1994 og hafa einnig verið gefnar út í víða erlendis, nýjasta Útkalls bókin sem kom út á haustmánuð- um nefnist Ofviðri í Ljósufjöllum og er svo gott sem uppseld. Færum Óttari bestu þakkir fyrir og enn og aftur sjáum við hversu víða rætur félagsins okkar liggja og hvað við njótum velvildar víða. Áfram hærra Í lok afmælisárs langar mig að þakka öll- um félagsmönnum og starfsmönnum fyr- ir að hafa lagt sitt af mörkum til að gera þessi tímamót sem eftirminnilegust. Það er þó á engan hallað þó að við þökkum sérstaklega höfundi og ritnefnd bókarinn- ar Áfram Hærra fyrir þeirra ómetanlega framlag síðustu tvö árin a.m.k. Bið ég þau Þorgrím Þráinsson höfund bókarinn- ar, Þorstein Haraldsson formann ritnefnd- ar, Hönnu Katrínu Friðriksson og Guðna Olgeirsson um að koma hingað upp og veita móttöku smá gjöf sem þakklæti frá félaginu fyrir frábærlega vel unnin störf. Bið ykkur auk þess að gefa Guðna auka klapp fyrir að hafa ritstýrt enn einu glæsi- lega Valsblaðinu sem er okkur ómetan- legt, ekki síst þegar frá líður. Afmælisnefndin Afmælisnefndin hefur starfað óslitið á þriðja ár undir stjórn Reynis Vignis og getum við öll sannmælst um að starf hennar hefur ekki síst stuðlað að metnað- arfullri dagskrá afmælisársins sem sann- anlega hefur mælst mjög vel fyrir hjá félagsmönnum. Bið Reyni Vigni, Grím Sæmundsen, Ragnheiði Víkingsdóttur, Karl Axelsson og Halldór Einarsson um að kom og taka á móti þakklætisvotti frá félaginu fyrir störf sín. Minjanefnd Minjanefnd félagsins var endurvakin ef svo má segja undir stjórn Magnúsar Ólafssonar. Nefndin hefur unnið ákaflega mikilvægt starf síðustu mánuði og miss- eri. Fyrir utan að hafa staðið fyrir glæsi- legri sögusýningu á afmælisárinu, sýn- ingu sem vakið hefur athygli langt út fyr- ir okkar raðir, hefur nefndin farið yfir allflesta gripi sem félagið á og skráð þá og síðan leitað frekari heimilda um þá fjölmörgu sem ekki eru til fullkomnar heimildir um og skoðar nefndin nú hvar koma megi sem flestum af þessum dýr- gripum fyrir í húsakynnum okkar til að þeir geti orðið okkur sýnilegir. Það er okkur mikilvægt að þekkja sögu okkar og halda henni á lofti hvenær sem tæki- færi gefst til. Svo vel vill til að nefndin mun halda áfram störfum sínum þó svo að þessi tímamót séu liðin enda er mörgu ólokið og verkefnin svo til endalaus. Vil ég biðja nefndarmenn þau Magnús Ólafs- son, Úlfar Másson, Kristján Ásgeirsson, Ólaf Már Sigurðsson, Helga Benedikts- son, Margréti Bragadóttur, Óskar Jóhann- esson, Ægi Ferdinandsson, Hermann Gunnarsson, Gunnar Svavarsson og Atla Sigþórsson um að koma upp og veita móttöku þakklætisvotti frá félaginu fyrir störf sín. Blómlegt yngri flokka starf – góð forvörn Íþróttastarf hefur verið með miklum blóma í félaginu á árinu. Ekki er síst áhugavert að fylgjast með hversu vel miðar í uppbyggingu yngri flokka Vals þó að alltaf megi gera betur. Sem betur fer er öflugur hópur foreldra sem kemur að starfi félagsins en ef við ætlum að ná frekari árangri er samspil krakka, for- eldra og Vals það sem er mikilvægast. Samkvæmt samantekt Ragnhildar Skúla- dóttur yfirmanns barna- og unglingasviðs Vals eru 720 krakkar við æfingar hjá fé- laginu um þessar mundir og hafa að ég hygg aldrei verið fleiri a.m.k ekki hin síðari ár. Vil ég færa Ragnhildi, foreldr- um, þjálfurum og öðrum sem að starfinu Viðburðaríktafmælisár Ræða Harðar Gunnarssonar formanns Vals á gamlársdag 2011 Minjanefnd Vals var heiðruð sérstaklega með bókargjöf fyrir vel unnin störf. Frá vinstri: Börkur Edvardsson stjórnar maður, Gunnar Svavarsson, Kristján Ásgeirsson, Ægir Ferdinandsson, Helgi Benediktsson, Nikulás Úlfar Másson, Margrét Bragadóttir og Hörður Gunnarsson formaður Vals. Ekki voru allir nefndarmenn viðstaddir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.