Valsblaðið - 01.05.2012, Qupperneq 9
Valsblaðið2012 9
Viðurkenningar
Þrír stórir titlar á afmælisári
Á árinu hömpuðu meistaraflokkar okkar
alls 8 titlum í efstu deild. Þrír þeirra telj-
ast til hinna stærri eða til Íslands- eða
bikarmeistaratitla. Meistaraflokkur karla
í handbolta varð bikarmeistari þriðja árið
í röð og í áttunda sinn alls eða oftar en
nokkurt félag, meistaraflokkur kvenna í
handbolta varð Íslandsmeistari annað
árið í röð, og urðu að auki meistarar
meistaranna og deildarmeistarar. Meist-
araflokkur kvenna í knattspyrnu varð
bikarmeistari í þrettánda sinn eða oftast
allra félaga, og þær hömpuðu einnig
Reykjavíkurmeistaratitli. Meistaraflokk-
ur karla í knattspyrnu urðu Reykjavíkur-
meistarar og unnu að auki deildarbikar-
inn. Afrekslega stóð Valur því vel undir
væntingum á afmælisárinu.
koma kærar þakkir fyrir þeirra framlag.
Jafnframt vil ég minna alla leikmenn
Vals og aðra sem tengjast meistaraflokk-
um félagsins á þá augljósu staðreynd að
þið eruð fyrirmynd þessar krakka og því
fylgir ákveðin ábyrgð sem við verðum að
standa undir.
Í nýútkomnu Valsblaði má lesa áhuga-
verða grein eftir Ragnhildi sem ber yfir-
skriftina „Þjálfun barna og unglinga“ en
greinin fjallar um glæsilega ráðstefnu
sem haldinn var hér að Hlíðarenda fyrir
tilstuðlan Fálkanna þar sem umræðuefn-
ið var þjálfun barna og unglinga, lofsvert
framtak af þeirra hálfu sem ber að þakka.
Í greininni kemur m.a. fram það mikla
forvarnargildi sem fólgið er í skipulagðri
íþróttaiðkun barna og unglinga.
Í framhaldi af umræðuefni ráðstefn-
unnar langar mig að beina athyglinni að
heilbrigði og vellíðan sem í raun er sitt
hvora hliðin á sama peningi og er þá
bæði átt við líkamlegt – andlegt og
félagslegt heilbrigði barna og unglinga
sem og fullorðinna. Ef við finnum okkur
örugg og við teystum umhverfi okkar þá
líður okkur vel. Það eru gömul sannindi
og ný að ef okkur líður vel þá náum við
árangri jafnt utan vallar sem innan. Því er
það grunnurinn að góðu íþróttafélagi að
byggja upp þannig umgjörð að sem flest-
um líði vel og hæfileikar hvers og eins
fái að blómstra og njóta sín. Aðeins við
þannig aðstæður getum við gert kröfur til
árangurs og aðeins þannig tekst okkur að
laða fram það besta í fari Valsmanna
hvort sem þeir eru iðkendur, foreldrar,
starfsmenn eða fjölmennur hópur sjálf-
boðaliða sem leggur Val lið hvern dag
ársins.
Til fundar við framtíðina
Góðir félagar, að mínu viti þyrftum við
að taka til skoðunar innviði félagsins á
árinu 2012. Í því sambandi væri ekki úr
vegi að efna til málþings um stöðu Knatt-
spyrnufélagsins Vals sem mætti kalla „til
fundar við framtíðina“. Þingið væri að
sjálfsögðu öllum opið og þar gætu komið
fram sjónarmið iðkenda, foreldra, starfs-
manna og ekki síst hins almenna félags-
manns, um það hvernig við sjáum Val
verða enn betra félag og hvernig við í
sameiningu getum styrkt innviði félags-
ins því séu þeir sterkir og þjóni vel þörf-
um félagsmanna þá mun okkur farnast
vel. Hugum að þessu á nýju ári.
Afmælisnefnd Vals var heiðruð sérstaklega með bókargjöf fyrir vel unnin störf. Frá
vinstri: Börkur Edvardsson stjórnarmaður, Grímur Sæmundsen, Ragnheiður Víkings-
dóttir. Reynir Vignir formaður afmælisnefndar og Hörður Gunnarsson formaður Vals.
Hörður Gunnarsson formaður Vals tekur
við bókabjöf til félagins frá Óttari
Sveinssyni, en um er að ræða heildarút-
gáfu af vinælum Útkallsbókum sem hann
hefur samið og gefið út.
Ritnefnd afmælisritsins Áfram hærra var heiðruð sérstaklega með bókargjöf fyrir vel
unnin störf. Frá vinstri: Börkur Edvardsson stjórnarmaður, Hanna Katrín Friðriks-
dóttir, Þorsteinn Haralds son formaður ritnefndar, Guðni Olgeirs son, Þorgrímur
Þráinsson höfundur bókarinnar og Hörður Gunnars son formaður Vals.