Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 17
Valsblaðið2012 17
Framtíðarfólk
Hlíðarenda. Ég vænti þess að við komum
með gott lið til leiks næsta sumar og ef
það verður að veruleika er aldrei að vita
nema við getum strítt liðunum í efri hluta
deildarinnar. Hópurinn í meistaraflokki
er meiriháttar. Mér finnst gæðin mikil og
leikmenn ef til vill betri heldur en þeir
gera sér grein fyrir. Vonandi kemur meiri
festa í leikmannahópinn með árunum.
Það þýðir hins vegar ekki sem leikmaður
félagsins að kvarta of mikið undan tíðum
breytingum á hópnum. Það er í hlutverki
okkar að vera nógu góðir til þess að
klæðast Valstreyjunni,“ segir Ingólfur.
Hvernig líst þér Ingólfur á yngri flokk
ana hjá Val um þessar mundir í fót
bolta? „Mér líst vel á þá. Í hverjum ein-
asta flokki, hvort sem hópurinn er stór
eða lítill, má alltaf finna leikmenn sem
geta orðið nógu góðir. Valur er ekki með
sérstaklega marga iðkendur og það leyn-
ast ýmis tækifæri í því, sem getur gefið
okkur forskot á önnur félög. Leikmaður
fær meiri ábyrgð innan liðsins og þjálfar-
ar hafa kjörið tækifæri til þess að hlúa
vel að einstaklingnum og bæta hann,“
segir Ingólfur.
Ingólfur, hvaða markmið ætti Valur að
hafa að þínu mati um uppalda leik
menn í meistaraflokki? „Það eru margir
uppaldnir leikmenn í meistaraflokki Vals
í dag og ég sé ekki af hverju það ætti að
breytast á komandi árum. Hins vegar er
gott fyrir hópinn að fá sterka aðkomu-
menn af og til. Þeir geta miðlað sinni
reynslu og auka gæðin í hópnum. Þetta
snýst um að fara inn á völlinn til þess að
sigra og ef það þarf aðkomumenn til
þess, þá efast ég ekki um að það verði
gert. Það ríkir einfaldlega of mikil sigur-
hefð innan félagsins til að sætta sig við
annað. Mig dreymir um fátt annað en að
festa mig í sessi sem leikmaður í Valslið-
inu. Ef ég næ því, mun ég geta hugsað út
í næstu skref,“ segir Ingólfur að lokum.
Valsblaðið spurði Gunnar að lokum
hver væri frægasti Valsarinn í fjölskyld-
unni. Hann svaraði um hæl: „Ætli það sé
ekki Ingólfur Sigurðsson.“
mann áfram sama hvernig gengur,“ segir
Ingólfur.
Hvernig gekk ykkur í sumar Gunnar?
„Okkur gekk ágætlega, komumst í úrslit
í bikarnum gegn Stjörnunni. Töpuðum
mjög naumlega og það var svekkjandi.
Stóðum okkur ekkert sérstaklega vel í Ís-
landsmótinu. Í júlí fórum við á Keele-cup
á Englandi og lentum í öðru sæti. Sumar-
ið var því að mörgu leyti gott. Þór Hin-
riksson og Jón Karlsson þjálfuðu okkur
og voru frábærir. Þjálfarar þurfa að vera
ákveðnir en samt skemmtilegir og félagar
iðkenda. Það voru þeir sannarlega. Hóp-
urinn var þéttur og góður andi. Núna í
haust tók Jóhann Hreiðarsson við 3.
flokki og mér líkar mjög vel við hann og
býst við skemmtilegu ári,“ segir Gunnar.
„Eftirminnilegasti leikur minn frá upp-
hafi var 2008 úti í Heerenveen en þar var
ég í eitt ár. Rétt áður en ég fór heim
fengu þjálfarnir lið frá Gorredijk til þess
að spila kveðjuleik við okkur. Við spiluð-
um mjög vel og mér tókst að skora
þrennu. Eftir leikinn var síðan smá sam-
koma í félagsheimilinu þar sem ég var
kvaddur og fékk margar gjafir, meðal
annars bolta sem allir leikmenn meistara-
flokks höfðu skrifað á. Þetta voru
skemmtileg lok á mjög góðum vetri,“
segir Gunnar.
Ingólfur, hvaða ráð viltu gefa Gunnari
og öðrum leikmönnum í yngri flokk
um? „Mikilvægast til þess að verða góður
í fótbolta er að æfa sig í fótbolta. Þegar ég
spilaði á Íslandi, 16 ára gamall, var alltaf
verið að hamra á því að ég þyrfti að bæta
á mig vöðvum til þess að verða nógu góð-
ur fyrir meistaraflokk. Ég gerði lítið ann-
að en að djöflast í ræktinni og var minna
úti á æfingasvæðinu. Þegar ég fór ári síðar
til Hollands í atvinnumennsku ræddi ég
við nýja þjálfarann minn og spurði hvort
ég ætti ekki að halda áfram að lyfta lóð-
um. Hann varð furðu lostinn og sagði við
mig: „Við erum hérna til þess að búa til
fótboltamenn. Ef þú ert nógu góður tækni-
lega, þá nær andstæðingurinn þér aldrei.“
Þetta voru minnisstæð orð sem ég hef
reynt að tileinka mér – og ráð sem ein-
hverjir í yngri flokkunum gætu ef til vill
nýtt sér,“ segir Ingólfur.
Gunnar segir mikilvægt að hafa rétt
hugarfar til að ná árangri, mæta á sem
flestar æfingar og trúa á sjálfan sig. Líka
segir hann mikilvægt að taka aukaæfing-
ar. Hann segist t.d. þurfa að æfa skot með
hægri fæti og stundum vera dálítið
ákveðnari.
Hvers vegna fótbolti Gunnar? „Mér
finnst fótbolti einfaldlega skemmtilegur.
Ég hef æft mjög margar greinar, frjálsar,
fimleika, badminton og aðeins farið á æf-
ingar í körfubolta og handbolta. Ég ætla
bara að halda áfram í fótbolta og vera
líka í skóla,“ segir Gunnar.
Nú hefur Ingólfur Sigurðsson snúið
aftur að Hlíðarenda og hefur gert nýjan
samning við Val fyrir næsta tímabil. Vals-
blaðið notaði tækifærið og spurði hann
um hvernig honum litist á að vera kom-
inn afur í Val.
„Mér líst vel á þær breytingar sem hafa
orðið í haust. Hugsunarháttur stjórnar-
innar er að mínu mati raunsær og í takt
við íslenskan veruleika. Hlúa að þeim
Valsmönnum sem eru fyrir í félaginu og
vera með sterka aðfengna leikmenn.
Stuðningsmenn Vals, sem eru í einu orði
sagt frábærir, eiga skilið að sjá gott lið á
Öflugir bakhjarlar Knattspyrnufélagsins Vals óska öllum Valsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári