Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 19
Valsblaðið2012 19
Starfiðermargt
aðila sem mun stofna nefnd sem hefur það
verkefni að fara yfir allar hugmyndir síns
flokks og flokka þær eftir því: Hvað er
ekki hægt að gera, hvað er þegar gert og
hvað er hægt að gera? Með þessu móti
munu allar hugmyndir sem komu fram á
vinnufundinum vera vegnar og metnar.
Undirflokkar og ábyrgðarmenn eru
eftir farandi:
Hverfið • – Viðar Bjarnason, íþrótta-
fulltrúi Vals
Skóli• – Viðar Bjarnason, íþróttafulltrúi
Vals
Íþróttaskóli Vals• – Viðar Bjarnason,
íþróttafulltrúi Vals
Þjálfarar• – Jón Gunnar Bergs
Íþróttir sem áhugamál• – Jón Gunnar
Bergs
Börn af erlendum uppruna • – Hafrún
Kristjánsdóttir og Davor Purusic
Foreldrar• – Margrét L. Guðmunds-
dóttir
Félagsmenn• – Margrét L. Guðmunds-
dóttir
Eldri borgarar• – Halldór Einarsson
Upplýsingatækni• – Haraldur Daði
Ragnarsson, framkvæmdastjóri Vals
Markaðsetning/Ímynd/Stefnumótun• –
Haraldur Daði Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Vals
Aðstaðan að Hlíðarenda• – Haraldur
Daði Ragnarsson, framkvæmdastjóri
Vals
Fjármál• – Brynjar Harðarson og
Sveinn Stefánsson
Þegar þetta er skrifað er vinna að hefjast
í hópunum sem myndaðir hafa verið og
eru miklar vonir bundnar við starf þeirra.
Ákveðið hefur verið að halda vinnu-
fundi Vals reglulega og hlökkum við til
að sjá enn fleiri Valsmenn á næsta fundi.
Að lokum vill aðalstjórn Vals þakka
þeim Hönnu Katrínu og Heru kærlega fyr-
ir þeirra óeigingjarna starf. Einnig viljum
við þakka Berghildi Erlu og Finni Pálma
sem komu að framkvæmd fundarins sem
og borðstjórum og öllum þátttakendum.
Takk fyrir ykkar vinnu. Áfram, Hærra!
Fyrir hönd aðalstjórnar Vals
Arna Grímsdóttir og Hafrún
Kristjánsdóttir.
Valur á nýrri öld.
Hvar viltu sjá Val
á næsta árhundraði
Taktu laugardaginn
12. maí frá
Vinnufundur í Valsheimilinu 12. maí 2012
Fjölmargir Valsmenn tóku á einn eða annan hátt þátt í hátíðahöldum í tengslum við
100 ára afmæli Vals á síðasta ári. Hápunkturinn var síðan útgáfa á veglegri afmælis-
bók „Áfram hærra“ þar sem brugðið er upp svipmyndum frá fyrstu 100 árunum í sögu
þessa merka íþróttafélags.
Þegar sagan er rifjuð upp, er ljóst að það er ekki tilviljun sem hefur ráðið sigur-
göngu Vals í 100 ár, heldur hugsjónir, eldmóður og óeigingjörn vinna og framlag fjölda
fólks, jafnt innan vallar sem utan.
Í gegnum tíðina hefur eðlilega oft verið tekist á um ákveðin málefni, lítil sem stór, en
sem betur fer hafa menn borið gæfu til þess að fylgja þeirri sýn og þeim hugsjónum
sem mörkuð voru í upphafi.
Nú líður að 101 afmælisdegi Vals og stjórn félagsins þykir við hæfi að fagna afmæl-
inu með því að bjóða félagsmönnum og velunnurum Vals að taka þátt í móta stefnuna
fyrir næstu öld. Valur á nýrri öld- Hvar viltu sjá Val á næsta árhundraði? er yfirskrift op-
ins fundar sem verður haldinn í Valsheimilinu að Hlíðarenda hinn 12. maí næstkom-
andi.
Dagskrá fundarins er enn í mótun, en meðal efnis sem unnið verður með er núver-
andi staða Vals, jafnt félagsleg sem fjárhagsleg, leitað verður svara við spurningum á
borð við: fyrir hverja er Valur, hvernig aukum við fjölda iðkenda í yngri flokkum, hvern-
ig styrkjum við stöðu Vals sem hverfafélags, hvernig fjölgum við félagsmönnum og
aukum við áhuga þeirra á að koma og starfa fyrir félagið, hvert er hlutverk Vals í
tengslum við almenna lýðheilsu, hvernig eflum við tengsl fyrrverandi iðkenda við starf-
ið, hvernig tryggjum við fjárhagslegan grundvöll rekstrarins o.s.frv.
Listinn yfir áhugaverð viðfangsefni er nánast ótæmandi en það er verkefni skipu-
leggjenda að búa svo um hnútana að verkefnið verði ekki óviðráðanlegt og rúmist inn-
an þess tíma sem fundinum er ætlað. Í lok fundarins verður farið yfir það með fundar-
gestum hvernig úrvinnslu hugmynda og eftirfylgni verður háttað. Markmiðið er að góð-
ar hugmyndir verði sem fyrst að veruleika!
Til að skrá sig á vinnufundinn þarf að senda tölvupóst á valur@valur.is með yfir-
skriftinni „Valur á nýrri öld“ og verður opnað fyrir skráningu frá 15. apríl til 4. maí.
Um kvöldið verður síðan punkturinn settur yfir i-ið með vorballi Vals.