Valsblaðið - 01.05.2012, Page 29
Valsblaðið2012 29
Freyr Sigurðsson frá Fjölni, Hafsteinn
Briem frá HK, Ólafur Þór Gunnarsson
frá Bandaríkjunum og Josep Edward Til-
len frá Selfoss.
Keppnistímabilið hófst með Reykja-
víkurmótinu og hafnaði liðið í 3. sæti í
sínum riðli með fjögur stig. Fyrsti leikur
liðsins var á móti Þrótti og þótti afar
bragðdaufur og endaði 0-0. Næsti leikur
var á móti barráttuglöðu Fylkisliði sem
tapaðist 2-3 en okkar menn stigu upp og
gjörsigruðu lið Fjölnis 5-0 þar sem Indr-
iði Áki Þorláksson skoraði sitt fyrsta
mark fyrir meistarflokk Vals.
Árangur í Lengjubikarnum var mun
grundvöll fyrir ungt og efnilegt knatt-
spyrnufólk til að ná hámarksárangri og
leggja rækt við sál og líkama. Valsmenn
eru hvattir til að koma sem oftast að
Hlíðarenda og taka þátt í fjölbreyttu starfi
þar sem innviðir eru sterkir og vinnu-
brögð markviss. Þjónustulund er ætíð
höfð að leiðarljósi og starfið byggir á
skilvirku upplýsingastreymi og jákvæð-
um viðhorfum.
Afreksstefna meistaraflokka
meistaraflokkar Vals eru ávallt í einu •
af þremur efstu sætunum á Íslandsmót-
um
meistaraflokkarnir vinna sér keppnis-•
rétt í Evrópukeppni að lágmarki annað
hvert ár
á hverju ári eru einn til tveir leikmenn •
seldir til erlendra liða
Framtíðarfólk Vals
Metnaðarfullur og faglegur vettvangur er
fyrir framtíðar afreksfólk Vals í 2. aldurs-
flokki. Alhliða þjálfun sem grundvallast
m.a. á því; að greina styrkleika og veik-
leika leikmanna, einstaklingsþjálfun,
fyrir lestrum sérfræðinga, og markmið-
asetningu. Með afreksstefnunni skapar
Valur grundvöll fyrir ungt og efnilegt
íþróttafólk sem ætlar að ná einstökum ár-
angri í íþrótt sinni.
Meistaraflokkur karla
Ljósi punkturinn var frammistaða
Rúnars Más S Sigurjónssonar, inn
koma Indriða Áka Þorlákssonar og
Kolbeins Kárasonar
Erfitt sumar hjá meistaraflokki karla þar
sem árangur var undir væntingum. Þjálf-
arateymið var óbreytt frá fyrra ári, þeir
Kristján Guðmundsson og Freyr Alex-
andersson og um markmannsþjálfun sá
Rajko Stanisic. Friðrik Ellert Jónsson var
sem fyrr sjúkraþjálfari, Björn Zoega
læknir liðsins og liðsstjórar þeir Halldór
Eyþórsson og Sævar Geir Gunnleifsson.
Töluverðar breytingar urðu á leik-
mannahópnum frá fyrra ári, frá Val fóru,
Haraldur Björnsson til Noregs, Stefán Jó-
hann Eggertsson til Leiknis, Guðmundur
Steinn Hafsteinsson til Víkings Ólafsvík,
Arnar Sveinn Geirsson til Víkings Ólafs-
vík, Jón Vilhelm Ákason til ÍA, Einar
Marteinsson til Njarðvíkur, Fitim Morina
til ÍR, Pól Jóhannus Justinussen til Dan-
merkur, Christian R. Mouritsen til Fær-
eyja, Sigurbjörn Örn Hreiðarsson til
Hauka, Ingólfur Sigurðsson til Danmerk-
ur. Til Vals komu þeir, Ásgeir Þór Ing-
ólfsson, Hilmar Rafn Emilsson og Úlfar
Pálsson frá Haukum að láni, Kristinn
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu 2012. Efri röð frá vinstri: Pála Marie Einarsdóttir, Ingunn Haraldsdóttir, Katla Rún
Arnórsdóttir, Thelma Þrastardóttir, Dóra María Lárusdóttir, Laufey Björnsdóttir, Mist Edvardsdóttir, Berglind Rós Ágústsdóttir,
Rakel Logadóttir, Thelma Ólafsdóttir, og bandaríski markmaðurinn Brett Maron. Neðri röð frá vinstri: Svana Rún Hermanns-
dóttir, María Soffía Júlíusdóttir, Þórhildur Einarsdóttir, Erla Steina Sverrisdóttir, Hildur Antonsdóttir, Svava Rós Guð-
mundadóttir, Elín Metta Jensen, Katrín Gylfadóttir og Þórdís María Aikman.
Börkur Edvardsson formaður knatt-
spyrnudeildar og Barry Smith fyrr-
verandi leikmaður Vals.