Valsblaðið - 01.05.2012, Side 31
Valsblaðið2012 31
Starfiðermargt
á gervigrasi og lyftingar 1 sinnum í viku.
Vetraræfingaprógramminu lauk með æf-
ingaferð 2. flokks karla, þar sem Vík í
Mýrdal var heimsótt og æft tvisvar sinn-
um á dag við góðar aðstæður á grasi. Í
þeirri ferð setti flokkurinn sér markmið
fyrir sumarið ásamt því að velja sér gildi
sem við tókum með okkur inn í alla leiki
sumarsins þau voru Trú, Vinnusemi,
Ábyrgð og Liðsheild.
Nýtt þjálfarateymi hefur nú þegar
hafið störf
Magnús Gylfason aðalþjálfari, Dragan
Kazic aðstoðarþjálfari og Valgeir Viðars-
son verður sjúkraþjálfari. Magnús Gylfa-
son var nálægt því að gera ÍBV að Ís-
landsmeisturum árið 2004 en ÍBV endaði
í 2. sæti það árið og 2012 en þá endaði
ÍBV í 3. sæti. Dragan Kazic verður að-
stoðarþjálfari ásamt því að sinna sérþjálf-
un. Hann hefur starfað við þjálfun síðan
1989, lengst af í heimalandi sínu Serbíu
en hefur þjálfað hér á landi fyrst í Grinda-
vík, Ísafirði og síðast í Vestmanneyjum.
Valur – 2. flokkur karla
Æfingahópurinn
Í 2. flokki karla voru strákar fæddir árin
1995, 1994 og 1993. Flestir iðkendur
flokksins voru á yngsta árinu eða 12
strákar. Um 15 strákar voru á tveimur
eldri árunum. Yfir veturinn létu þó yfir
50 drengir sjá sig á æfingum í 2. flokki
karla, en eins og stundum vill verða þá
kjósa sumir þeirra að staldra stutt við.
Æfingasókn var mjög góð hjá þeim
tæplega 30 strákum sem lögðu stund á
fótboltann af alvöru og ástundun þeirra
því til fyrirmyndar. Yfir veturinn var æft
5 sinnum í viku og yfir sumarið 5 sinn-
um. Á undirbúningstímabilinu var lagt
upp með að hafa æfingarnar fjölbreyttar
og komum við því víða við. Mættu strák-
arnir í Futsal 1 sinni í viku og gerðu
styrktaræfingar. Æft var 5 sinnum í viku
Nýr þjálfari m.fl. karla, Magnús
Gylfason.
Freyr Alexandersson og Gunnar Borgþórsson þjálfarar í knattspyrnu létu báðir af
störfum fyrir félagið á árinu. Af því tilefni kom Freyr eftirfarandi skilaboðum til
Valsmanna:
„Ég vil nýta tækifærið og þakka öllu því góða fólki sem ég hef unnið með síðast-
liðin sex ár. Það hafa verið forréttindi að kynnast, vinna með og læra af því góða
fólki sem ég hef verið í kringum á tíma mínum hjá Val. Ég vil þakka fyrir þau
tækifæri sem Knattspyrnufélagið Valur hefur gefið mér á þessum tíma, mér var
treyst fyrir stórum og krefjandi verkefnum sem ég trúi að ég hafi leyst með sóma.
Leikmönnum vil ég þakka fyrir skemmtilega tíma og óska ég þeim öllum vel-
farnaðar og gæfuríkrar framtíðar. Ég get ekki sagt skilið við félagið án þess að
þakka mínu nánasta starfsfólki fyrir samstarfið, það hefur gefið mér einstaklega
mikið að starfa með Betu, Óskari Bjarna, Kristjáni, Gunna, Orra og Þórði Jens-
syni. Miklir fagmenn sem skilja mikið eftir sig hjá mér.“