Valsblaðið - 01.05.2012, Side 34
34 Valsblaðið2012
Starfiðermargt
hendi ásamt Skúla Edvardssyni og Þor-
steini Guðbjörnssyni. Þeir ásamt fjölda
annarra sjálfboðaliða, iðkenda úr yngri
flokkum, foreldrum og starfsfólki Vals
eru færðar bestu þakkir fyrir sitt óeigin-
gjarna starf.
Uppskeruhátíð yngri flokka
knattspyrnudeildar 2012
7. flokkur kvenna
7. flokkur kvenna er skipaður rúmlega 30
efnilegum fótboltastúlkum. Stúlkurnar
komu ekki einungis úr nærliggjandi
hverfum heldur einnig úr Breiðholti,
Grafarvogi og Árbæ. Flokkurinn hefur
vaxið síðustu ár og vonum við að sú þró-
un haldi áfram. Markmið flokksins voru
skýr frá upphafi, að gefa hverri og einni
tækifæri til að iðka knattspyrnu á sínum
forsendum. Lögð var áhersla á skemmt-
un, leikgleði og vellíðan iðkenda. Æfðu
stelpurnar þrisvar í viku ásamt því að
spila á fjölmörgum mótum. Mótin gengu
ávallt vel og voru þær sér og sínu félagi
til mikils sóma. Þó nokkrir bikarar komu
í hús en það sem mestu máli skipti var
hversu skemmtileg þeim þóttu mótin.
Þjálfarar og foreldraráð sáu um að stelp-
urnar hittust utan fótboltaæfinga og var
meðal annars farið í bíó, pizzuveisla
haldin, piparkökur skreyttar og síðast en
ekki síst haldnar tvær búningaæfingar.
Þjálfarar 7. flokks kvenna: Steinunn
Sara, Lísbet og Erla Steina.
7. flokkur karla
Strákarnir í 7. fl. hófu æfingar haustið
2011, þar komu saman margir snillingar
og flestir að stíga sín fyrstu spor. Um ára-
mótin urðu þjálfarabreytingar hjá flokkn-
um. Freyr Alexandersson tók við flokkn-
um og með honum hafa verið þeir Atli
Heimisson, Sturla Magnússon og Valur
Benonýson. Strákarnir hafa æft vel og
tekið gríðarlegum framförum, æft hefur
verið þrisvar sinnum í viku og hefur stór
kjarni haldist við æfingar nánast allt árið.
Fjöldinn hefur verið svolítið rokkandi
eins og gengur og gerist í þessum aldurs-
flokki þar sem margir nýir iðkendur
koma og prufa, flestir halda áfram og eru
orðnir flottir fótboltastrákar.
7. fl. tók þátt í þremur mótum. Íslands-
bankamóti Vals í vor, Norðurálsmótinu í
sumar og Bónusmóti Fylkis í haust. Lið-
ið hefur staðið sig vel á öllum mótum og
hápunktur drengjanna var Norðurálsmót-
ið þar sem Valur fór með fjögur lið og
frábæran hóp foreldra. Árangurinn var
ig sigra á liðum KR og FH. Í 15. umferð
kom Fylkir í heimsókn og uppskar jafnt-
efli gegn okkar stelpum. Fyrsti tapleikur
seinni hluta tímabilsins var á móti
Breiðablik 0-4 í 17. umferð. Síðasti leik-
ur Vals á tímabilinu var gegn Aftureld-
ingu á Varmárvelli. Okkur stelpur mættu
hálfsofandi í leikinn og var staðan í hálf-
leik 3 Aftureldingu í vil. Hálfleiksræðan
hefur hrifið þar sem leikurinn endaði 4
og máttu Valsstelpur sætta sig við 4. sæt-
ið þetta sumarið.
Á árinu hafa margar Valsstelpur spilað
með landsliðum Íslands. Fimm þeirra hafa
spilað A-landsliðsleiki, fimm með U-13,
níu stelpur spilað með U-19 og sex með
U-17. Algerlega frábær árangur hjá okkar
fótboltastelpum. Til gamans má geta af-
rekaði ein Valsstelpan, Elín Metta Jensen,
að spila með öllum fjórum landsliðunum
á árinu og einnig spiluðu fimm þeirra
bæði með U-19 og U-17. Elín Metta Jens-
en hlaut einnig gullskóinn með 18 skoruð
mörk í Pepsideild kvenna.
Gunnar Borgþórsson, Þórður Jensson
og Ólafur Pétursson létu af störfum hjá
félaginu í haust og tók Gunnar við þjálf-
un meistaraflokks kvenna á Selfossi og
Þórður við 2. flokki kvenna hjá FH. Við
viljum þakka þeim góð störf í þágu
félagsins og óskum þeim alls hins besta á
nýjum vettvangi.
Nýtt þjálfarateymi
Nýr þjálfari var ráðinn til starfa sem
meistaraflokksþjálfari í kjölfarið, reynslu-
boltinn Helena Ólafsdóttir og henni til að-
stoðar var ráðinn annar reynslubolti, Þor-
leifur Óskarsson, markmannsþjálfun verð-
ur Rajko Stanisic með.
Að lokum vill stjórn knattspyrnudeild-
ar og meistaraflokksráð kvenna þakka
öllum þeim sem að starfinu komu í sum-
ar sem var ómetanlegur stuðningur við
stelpurnar og félagið.
Valur – 2. flokkur kvenna
Í upphafi tímabilsins tóku stelpurnar í 2.
flokki þátt í Faxaflóamótinu og enduðu
þar í 5. sæti en 8 lið tóku þátt í mótinu.
Eins og glöggir lesendur Valsblaðsins
taka eftir voru meirihluti stelpna á 2.
flokks aldri með meistaraflokki þetta
tímabil. Af þeim sökum var oft á tíðum
ekki auðvelt að manna æfingar og leiki
flokksins og á tímabili voru stúlkur allt
niður í 4. flokk fengnar til að verma
bekkinn hjá þeim. Margar efnilegar yngri
fótboltastelpur tóku þátt í starfi flokksins
og ljóst að framtíðin er björt á meðal
ungra fótboltastelpna í Val. Miðað við
aðstæður verður niðurstaða tímabilsins
að teljast ágætis árangur hjá stelpunum
og þjálfara þeirra, Rakel Logadóttir en 2.
flokkur kvenna uppskar 4. sætið á Ís-
landsmótinu. Fyrsti leikurinn var úti gegn
Keflavík sem tapaðist 0-2. Heimaleikur
gegn Breiðablik var næstur og endaði
með jafntefli 2-2. Næstu fimm leikir end-
uðu með sigri Valsstelpna, þar á meðal
sigur á KR 5. Ekki gekk sem skyldi í síð-
ustu 5 leikjum tímabilsins þar sem ein-
ungis 2 stig komu í hús í fimm leikjum. Í
bikarkeppninni sigruðu þær ÍBV, gerðu
jafntefli við KR og komust í undanúrslit
gegn liði Breiðabliks. Það var hörkuleik-
ur þar sem staðan í hálfleik var 0-0 en
lokatölur 3-1 fyrir Breiðablik. Rakel
Logadóttir lét af störfum sem þjálfari 2.
flokks í haust og tók við þjálfun 3. og 8.
flokks kvenna. Nýr þjálfari er því mættur
til leiks í 2. flokki, Þorleifur Óskarsson
en eins og áður kom fram verður hann
einnig aðstoðarþjálfari meistaraflokks.
Lokahóf annars og meistarflokks
kvenna
Efnilegust í öðrum flokki kosið af leik
mönnum: María Soffía Júlíusdóttir.
Best í öðrum flokki kosið af leikmönn
um: Ingunn Haraldsdóttir.
Efnilegust í meistaraflokki kvenna
kosið af leikmönnum: Berglind Rós
Ágústsdóttir .
Best í meistaraflokki kvenna kosið af
leikmönnum og þjálfurum: Dóra María
Lárusdóttir.
Öflugt heimaleikjaráð
Allt til fyrirmyndar á
Vodafonevellinum í sumar
Öflugt starf var unnið í kringum heima-
leiki liðanna í sumar og umgjörðin var
glæsileg og félaginu til sóma. Jón Hösk-
uldsson stýrði því starfi með styrkri
Nýr þjálfarateymi m.fl.
kvenna, Helena Ólafs-
dóttir og Þorleifur
Óskarsson.